Selfoss - 13.03.2014, Síða 4
4 13. MARS 2014
„Við getum látið okkur dreyma“
Fischer er goðsaga, sagði Garry Kasparov heimsmeistari í eftirminnilegri heimsókn.
„Það er erfitt að segja í fáum orðum hvert framlag Fischers er til skáklistarinnar. Hann er
goðsaga,“ sagði Kasparov í viðtali á
kirkjutröppunum í Laugardælum.
Hann var þögull við gröf Fischers.
Tilfinningin tók yfir. „Maður fyllist
einhverri sorg við að koma hér.“
Garry Kasparov, fyrrum
heimsmeistari í skák kom í heimsókn
til Íslands sl. sunnudag. Hann brá
sér meðal annars austur yfir fjall, að
leiði Bobby Fischers í kirkjugarðinum
í Laugardælum. Að lokinni drjúgri
stund við leiðið var haldið inn í kirkj-
una þar sem Kasparov ritaði nafn
sitt og kveðjur í minningabókina
um Fischer. „Með einvíginu 1972 á
Íslandi náði skákin slíkum hæðum í
vinsældum – en það er okkar að vera
með tilgátur um hvað hefði getað
gerst ef Fischers hefði notið lengur
við. Við getum látið okkur dreyma.
Því miður hitti ég aldrei Fischer.“
Kasparov segist ætla að leggja skák-
inni lið, en hann hefur tilkynnt um
framboð sitt til forseta Alþjóða skák-
sambandsins, FIDE.
Að lokinni heimsókninni að
leiði Fischers hélt Kasparov ásamt
fylgdarliði og erlendum sem inn-
lendum fréttamönnum í hið glæsi-
lega Fischersafn á Selfossi. Þar var
fyrir hópur heimamanna. Með-
al gesta var líka eldri maður frá
Kasakstan sem tefldi við Kasparov
suður í Bakú við Svartahaf, hann
sjálfur 14 ára en Kasparov aðeins 6
ára. Kasparov beið lægri hlut í þeirri
viðureign.
Guðmundur G. Þórarinsson,
sem var ein af driffjöðrum einvígis
Fischers og Spasskys 1972 leiddi
heimsmeistarann um sali. Kasparov
staldraði lengi við sýniskáp með
fyrstadagsumslögum sem sýndu
mismunandi skákstöður í einvíg-
inu. Hann stóðst ekki freistinguna
og lék nokkra leiki gegn Einari S.
Einarssyni, fyrrverandi forseta Skák-
sambandsins. Menn Einars urðu
snemma berskjaldaðir.
Óli Þ. Guðbjartsson, fyrrum
skólastjóri á Selfossi og dómsmála-
ráðherra, flutti eftirminnilegt erindi
um móður Fischers, einstaka konu.
Varpaði Óli Þ. nýju ljósi á atburði
og fjölskyldu Fischers, erfiða lund
skáksnillingsins, ætt og uppruna.
Þannig lauk viðburðaríkum degi.
Heimsmeistarar eru ekki daglegir
gestir hér um slóðir.
ÞHH. Ljósm. ÞHH
Útgefandi: Fótspor ehf. Ábyrgðarmaður: Ámundi Ámundason, sími: 824 2466,
netfang: amundi@fotspor.is. auglýsingastjóri: Ámundi Ámundason, Suðurlandsbraut
54, 108 Reykjavík. Auglýsingasími 578 1190, netfang: auglysingar@fotspor.is. Ritstjóri:
Þorlákur Helgi Helgason, netfang: torlakur@fotspor.is Myndir: ÞHH og ýmsir aðrir.
Umbrot: Prentsnið, Prentun: Ísafoldarprentsmiðja, 9.500 eintök. dreifing: Íslandspóstur
Fríblaðinu er dreiFt í 9.500 eintökum á öll heimili á suðurlandi.
SELFOSS
5. TBL. 3. ÁRGANGUR 2014
Selfoss inn á hvert heimili!
Tefldu fyrir hálfri öld austur við Kaspíahaf.
Garry Kasparov við leiði Bobby Fischers í Laugardælakirkjugarði
Kasparov íhugull í Laugardælakirkju
Þær stöllur fluttu frumsamið tónverk heimsmeistaranum til heiðurs
Aldís Sigfúsdóttir færði skákmeistaranum gjöf frá Fischersafni
Tveir heimsmeistarar
Það er ekki amalegt að fá áritað tafl-
borð
Óli Þ. Guðbjartsson hélt fróðlegt er-
indi