Selfoss - 13.03.2014, Blaðsíða 8

Selfoss - 13.03.2014, Blaðsíða 8
8 13. MARS 2014 Jöklar á hröðu undanhaldi „Að því tilskildu að hlýnun jarðar haldi fram sem horfir þá hefur því verið spáð með gildum rök- um að eftir tvær aldir verði Ísland í stórum dráttum jökullaust land. Hefur það geysilegar breytingar í för með sér,“ segir Oddur Sigurðsson, jarðfræðingur á Veðurstofu Íslands. Umfram flest önnur byggð ból er Ísland land jökla eins og nafnið gefur til kynna. Jöklar setja mikinn svip á landið og allt landslag hér er meira og minna mótað af jöklum. Jökla- breytingar gefa skýra vísbendingu um loftslagsbreytingar og því tók Jón Eyþórsson veðurfræðingur það upp árið 1930 að fylgjast með breyting- um á jökulsporðum frá ári til árs. Til þess fékk hann heimamenn á hverj- um stað sem svo skiluðu árlega til hans skýrslum um jöklabreytingarn- ar. Þessu hefur Jöklarannsóknafélag Íslands haldið áfram fram á þennan dag í samvinnu við Orkustofnun og Veðurstofu Íslands. Nú hafa safnast gögn um jöklabreytingar í meira en átta áratugi og er það bitastætt safn sem ýmislegt má lesa úr. Hversu mikið breytast jöklarnir? Sólheimajökull, sem rennur úr Mýrdalsjökli sunnanverðum, gef- ur mjög skýra mynd af samhengi jöklabreytinga og veðurlags. Meðal- hiti sumars skiptir jökulinn höfuð- máli eins og sjá má af meðfylgjandi línuriti. Í samræmi við mælingarnar á línuritinu má með vissu segja að jöklar hafa rýrnað mjög frá því fyr- ir aldamótin 1900; hraðast undir miðja 20. öld og aftur í upphafi 21. aldar. Jöklar gengu þó fram á aldar- fjórðungnum 1970-1995. Það land, sem nú er að birtast undan hörfandi jökulsporðinum, hefur enginn mað- ur séð áður. Þarna koma ferðamenn tugþúsundum saman á hverju ári. Nú er farið að myndast þar dálítið lón og gert er ráð fyrir að það stækki með minnkandi jökli. Frá því að jöklar náðu hámarki um 1890 hefur Vatnajökull minnkað um 7% að flatarmáli, Langjökull og Hofsjökull 14-15%, Mýrdalsjökull 19%, Eyjafjallajökull 30%, Torfa- jökull 52% og Kaldaklofsjökull um 75%. Almennt gildir að því minni sem jökullinn er þeim mun meira hefur hann minnkað hlutfallslega að flatarmáli. Litlir, flatvaxnir jöklar eins og Torfajökull eru líklegastir til að hverfa á fáum áratugum. Ekki bara loftslag Ýmislegt getur haft áhrif á vöxt og viðgang jökla annað en loftslagið. Þar má nefna að öskusáldur á jökul getur tvöfaldað sumarbráðnun. Hins vegar ef öskulagið verður samfellt og nokkrir mm á þykkt einangrar það jökulinn svo að bráðnun snar- minnkar. Nýlega vorum við minnt á að eldgos undir jökli getur brætt ókjör af ís og valdið jökulhlaupum. Þetta er Skaftfellingum kunnara en öðrum mönnum því að þeir hafa um aldir búið við mestu vatnavexti sem mannskepnan verður vör við en þar er átt við Kötluhlaup. Í Kötluhlaup- inu 1918 jókst rennsli vatnsfalla á Mýrdalssandi margþúsundfalt þegar um 5-6% af jöklinum bráðnaði nán- ast í einu vetfangi. Þá stundina rann mesta vatnsfall veraldar til sjávar rétt austan við Vík í Mýrdal. Mælingar haustið 2013 Á nýliðnu hausti voru sporðar jökla mældir víða um land að venju. Helstu tíðindi mælinganna tengdust Heinabergsjökli á Mýrum í Aust- ur-Skaftafellssýslu. Jökultungan er á floti í lóni og hefur í áratugi lónað þar fram og aftur. Þar hefur nú helmingur jökulsporðsins brotn- að mjög upp svo að eystri hlutinn hefur styst um hartnær einn km. Vesturhelmingur sporðsins hefur hins vegar gengið fram um fáeina tugi metra að líkindum vegna þess að þar er hann hulinn einangrandi aurkápu og hefur bráðnað miklu minna. Áður en langt um líður mun sá hluti jökulsins einnig gefa eftir og þá stækkar lónið til mikilla muna. Aðrir jökulsporðar sem styst hafa um meira en 100 m á síðasta ári eru Hagafellsjökull eystri í Langjökli, Morsárjökull í Vatnajökli, Skeiðar- árjökull (austanverður) í Vatnajökli og Öldufellsjökull í Mýrdalsjökli. Horfur Að því tilskildu að hlýnun jarðar haldi fram sem horfir þá hefur því verið spáð með gildum rökum að eftir tvær aldir verði Ísland í stórum dráttum jökullaust land. Hefur það geysilegar breytingar í för með sér. Sjónarsviptir verður að hinum glæsi- legu jöklum. Jökulár breyta eðli sínu og tekur fyrir jökulhlaup. Aurburður fallvatna minnkar stórkostlega. Land lyftist þar sem helstu jöklar eru nú og í nágrenni þeirra. Sjávarborð hækkar víða um heim en þó ekki alls staðar. Margt er enn ófyrirséð af því sem bráðnun jökla hefur í för með sér. Oddur Sigurðsson, jarðfræðingur á Veðurstofu Íslands Línurit af uppsöfnuðum breytingum Sólheimajökuls 1930-2013 í metrum. Á þessum tíma hefur jökullinn styst um samtals tæplega 1400 m þótt hann hafi gengið fram um hálfan km aldarfjórðunginn 1970-1995. Línurit af árlegum sporðabreytingum Sólheimajökuls í metrum (blátt) og meðalsumarhita í Stykkishólmi 1930-2010 (rautt). Sporður Sólheimajökuls 1997. Hér er jökultungan meira en 100 m þykk þar sem mest er. (Ljósm. Oddur Sigurðsson) Sólheimajökull horfinn 2010 enda hefur hann styst um meira en 700 m síðan fyrri myndin var tekin. (Ljósm. Oddur Sigurðsson)

x

Selfoss

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Selfoss
https://timarit.is/publication/988

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.