Selfoss - 13.03.2014, Blaðsíða 9

Selfoss - 13.03.2014, Blaðsíða 9
913. MARS 2014 Gígjökull í Eyjafjallajökli 1992 um það leyti sem breska herflugvélin, sem hrapaði 1952 í gíg eldfjallsins, var að skila sér fram á jökulsporðinn. (Ljósm. Oddur Sigurðsson) Gígjökull í Eyjafjallajökli 2007. Lónið framan við jökulinn hefur fimmfaldast að flatarmáli síðan 1992. (Ljósm. Oddur Sigurðsson) Gígjökull í Eyjafjallajökli ári eftir gosið. Í gosinu 2010 fylltist lónið af aurburði jökulhlaupa langt yfir bakka sína. Askan litar allt umhverfið en hún sýnir að það er ekki bara jöklarnir sem breytast. Ekkert land breytist jafn ört og Ísland. (Ljósm. Oddur Sigurðsson) Marserað í hala- rófu á öskudaginn Hefð hefur skapast fyrir því í Grunnskólanum í Þorlákshöfn að marserað er í halarófu um ganga skólans og sungnir öskudagssöngvar. Í broddi fylkingar fara trommuleikarar, þegar veður leyfir er einnig farið út og marserað um skólalóðina. Yngri bekkjum er svo gefið frí um hádegi og fara börnin þá í verslan- ir og jafnvel heimahús og syngja og þiggja sælgæti að launum. Síð- degis stendur svo foreldrafélagið fyrir öskudagsskemmtun þar sem kötturinn er meðal annars sleginn úr tunnunni og veittar viðurkenn- ingar fyrir bestu og skemmtilegustu búningana. JHS Nemendur úr 5. bekk mættu skrautlegir til fara á öskudag að vanda. Marserað í halarófu nm ganga skólans og trommarar ganga í broddi fylk- ingar og mikið er sungið. Furðuverur í hverju horni í Grunnskólanum í Þorlákshöfn. Í fjórða bekk tóku þessar tvær norn- ir völdin á öskudaginn.

x

Selfoss

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Selfoss
https://timarit.is/publication/988

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.