Selfoss - 13.03.2014, Page 7
Orkuvinnsla er hafin í Búðarhálsstöð, nýjustu
aflstöð Íslendinga. Uppsett afl stöðvarinnar
er 95 MW og árleg orkuvinnsla verður
um 585 GWst.
Búðarhálsstöð er sjötta aflstöðin á vatnasviði
Þjórsár og Tungnaár, stærsta vinnslusvæði
Landsvirkjunar. Hún skapar veruleg verðmæti
með því að virkja áður ónýtt 40 metra fall
milli Hrauneyjafoss og Sultartanga.
Byggingu stöðvarinnar fylgdi mun minna
rask en byggingu virkjunar á nýju svæði.
Allt steypuefni var til staðar, eldri efnisnámur
voru nýttar aftur og aðrennsli að stöðinni
er að mestu neðanjarðar. Samrekstur afl-
stöðvanna á svæðinu skapar hagkvæmni
með samlegðaráhrifum.
Um 900 ársverk voru unnin við byggingu
Búðarhálsvirkjunar. Nú verða vinnubúðir
fjarlægðar og unnið að frágangi og uppgræðslu
á svæðinu. Markmiðið er að ný aflstöð við
Búðarháls verði okkur öllum til sóma.
Við þökkum öllum sem komu að fram-
kvæmdinni við Búðarháls kærlega fyrir
frábært samstarf.
Nýjasta aflstöð
Íslendinga
Fallhæð og aflstöðvar
í Þjórsá og Tungnaá
Lón
Stífla
Aflstöð
Hágöngumiðlun
Kaldakvísl
Kvíslaveita
Þjórsá
Þórisvatn
TungnaáVatnsfell
Sigalda
Hrauneyjafoss
Sultartangi
Búrfell
Sultartangalón
Búðarháls