Selfoss - 11.09.2014, Page 6
6 11. SEPTEMBER 2014
Ótrúlegt úrval húsgagna
Syrusson Hönnunarhús
Síðumúla 33
syrusson.is
Illugi Gunnarsson ráðherra:
„Tölum um kosti en
ekki að við séum að
fást við galla“
Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra hef-ur farið um landið og kynnt
áherslur sínar í menntamálum –
undir hatti „Hvítbókar um umbæt-
ur í menntun“. Hann kynnti þær
í Tryggvaskála á Selfossi miðviku-
daginn í fyrri viku, 3. september.
„Grunnskólinn er besta tækið til
að jafna stöðu fólks,“ sagði Illugi.
Honum var tíðrætt um árangur skv.
Písarannsóknum og einkum um
bágborna stöðu stráka í lestri og
læsi. Við vitum ekki hvaða fram-
tíðarstörf bíða nemenda þegar
hefðbundinni skólagöngu lýkur.
Það var annað fyrir nokkrum ára-
tugum. Menn vissu þá nokkurn
veginn að hverju væri gengið að
námi loknu. Velgengni drengja sem
stúlkna í lífinu væri mjög komið
undir því hvernig þeim vegnaði í
skóla. Læsi væri undirstaða og við
yrðum að bæta úr. Styrkur íslenska
skólakerfisins lægi ekki síst í því
að nemendur hefðu jöfn tækifæri
til menntunar. Ísland væri með-
al þeirra landa þar sem minnstur
munur væri á árangri nemenda
milli skóla.
Illugi fjallaði um námstíma í
framhaldsskólum. 44% lykju fram-
haldsskólanámi á tilsettum tíma.
Markmiðið væri að 60% (sex af
hverjum tíu) lykju framhalds-
skólanámi árið 2018. Í Písarann-
sókninni kemur fram að hlutfall
nemenda sem ekki geta lesið sér til
gagns hefur hækkað úr 15% árið
2000 í 21% árið 2012. Markmið
menntayfirvalda sé að árið 2018
verði þetta hlutfall komið niður
í 10%. Raunhæf markmið, telur
ráðherra, en sagðist ekki gefa neitt
fyrir það að við værum í einhverju
sæti í samanburði við aðrar þjóð-
ir. Skólinn og heimilin yrðu að
sameinast um þessi markmið. Þau
yrðu að vera raunhæf. Það þyrfti
að breyta hugsunarhættinum þegar
kæmi að því að bæta skólastarf og
efla það. „Tölum um kosti fremur
en að við séum að fást við galla.“
Lesa má nánar um umbótatillög-
ur í Hvítbókinni sem hægt er að
nálgast á vefnum mrn.is.
ÞHH
Hrunamannahreppur:
Verulegt álag vegna
launahækkana
Á fundi sveitarstjórnar Hruna-mannahrepps 4. september sl. var rekstur sveitarfélagsins
fyrstu 8 mánuði ársins undir. Í fundar-
gerð segir: „Sveitarstjóri fór yfir rekstur
sveitarfélagsins fyrstu 8 mánuði ársins.
Rekstur sveitarfélagsins er að mestu á
áætlun en ljóst er að verulegt álag verð-
ur á launaliði sveitarfélagsins vegna
áhrifa nýrra kjarasamninga.“
Hvað verður í fjár-
lagafrumvarpinu?
Beðið er eftir fjárlagafrumvarpi til að sjá hvernig ríkið bregst við og leggur til fjármagn til
byggingar verknámshúss Fjölbrauta-
skóla Suðurlands. Gert er ráð fyrir
að það taki ár að reisa húsið.
Á fréttasíðu Ásahrepps 4. sept.
er vakin athygli á hversu mikilvægt
starf FSu hafi verið en biðin eftir
bættri aðstöðu fyrir verknám hafi
verið löng. „Lengi hefur verið beðið
eftir og barist fyrir nýrri verknáms-
aðstöðu við skólann. Endurbyggingu
Hamars, verknámshúss FSu. Fyrstu
framlögin frá ríkinu til undirbúnings
framkvæmdanna voru sett á fjárlög
ársins 2012 en sveitarfélögin hafa
safnað sínum hluta í sjóð um árabil.
Í vikunni var stigið skref í átt að nýja
verknámshúsinu með undirritun
samnings um hönnun þess en þá var
skrifað undir ráðgjafarsamning við
TARK – Teiknistofan arkitekta um
fullnaðarhönnun verknámsaðstöðu
við Fjölbrautaskóla Suðurlands. ...
Sveitarfélögin sem standa að skól-
anum leggja til hluta af fjármögnun
hússins, en halda að sér höndum
með lokafjármagn þar til ríkisvaldið
leggur fram sínn hluta og heildstæða
fjámögnunaráætlun.“
Teikning: Ólafur Th. Ólafsson
Samningur um framhald undirritaður.
Beðið eftir endurbótum verknáms.
Næstum helmingi færri í
atvinnuleit 2014 en 2013
- Langflestir í Árborg
Skráð atvinnuleysi á Suður-landi er nú 1.9%. Á sama tíma í fyrra var atvinnuleysið
2.6%. (miðað við opinberar tölur í
júlí 2014)
Í byrjun september voru 233
einstaklingar skráðir í atvinnuleit á
Suðurlandi. 129 konur og 104 karl-
ar. Þar af eru 120 með lögheimili
í stærsta sveitarfélaginu, Sveitarfé-
laginu Árborg.
Á sama tíma í fyrra voru 422
einstaklingar skráðir í atvinnuleit á
Suðurlandi, 241 kona og 181 karl.
Þar af 191 með lögheimili í Sveitar-
félaginu Árborg.
„Eins og sjá má hefur atvinnu-
leysi minnkað á Suðurlandi milli ára
sem er mjög jákvætt fyrir svæðið,“
segir Svava Júlía Jónsdóttir, ráðgjafi
Vinnumálastofnunar Suðurlandi.
Svava Júlía segir mörg störf hafa ver-
ið í boði undanfarið og að skráð séu
sjö laus störf hjá fjórum fyrirtækjum
á heimasíðu Vinnumálastofnunar
fyrir Suðurland. Líklegt sé að talsvert
fleiri störf séu í boði þar sem aðeins
lítill hluti starfaauglýsinga komi inn
á vef Vinnumálastofnunar.
Þar sem dregið hefur úr atvinnu-
leysi mun stofnunin minnka opn-
unartímann. Frá 10. september n.k
verður opið klukkan 09:00-13:00
alla virka daga á skrifstofunni á
Selfossi og klukkan 09:30 -12:00
í Vestmannaeyjum. Skrifstofunni í
Vestmannaeyjum verður lokað 1.
desember 2014.
Svava Júlía Jónsdóttir, ráðgjafi Vinnu-
málastofnunar Suðurlandi.