Fréttir - Eyjafréttir - 23.04.1986, Qupperneq 9
Þorsteinn Gunnarsson:
Á að sameina
í handboltanum?
Flest bendir nú til þess að
meistara- og 2. fl. Týs og Þórs
í handboltanum verði sam-
einaðir og spili undir merki
ÍBV næsta vetur.
Nú þegar er það vitað að
það er almennur vilji hjá
leikmönnum Týs og hand-
knattleiksforystunni þar, fyr-
ir því að það verði sameinað,
og stjórn Týs hefur margoft
lýst því yfir að hún sé hlynnt
sameiningu í handboltanum.
Hins vegar stóð hnífurinn í
kúnni hjá Þór, en á fundi 13.
apríl s.l. hjá handknattleiks-
ráði og leikmönnum, var það
nær einróma samþykkt að
sameining væri besti valkost-
urinn nú.
S.l. sunnudag var svo fund-
ur hjá aðalstjórn félagsins. en
útkomu þess fundar var beðið
með mikilli óþreyju. Var það
ofan á, að sameining var
samþykkt, en með nokkrum
skiiyrðum sem í fljótu bragði
sýnast mjög réttlát.
Þar er fyrst að nefna að
handknattleiksdeild ÍBV
verði með sjálfstæðan
fjárhag, þannig að Þór og Týr
þurfa ekki aö láta fé af hendi
rakna til reksturs hennar. Á
móti á að koma að félögin láti
af hendi nokkrar fjáraflanir í
hendur handknattleiksdeild-
arinnar.
Með þessari samþykkt
aðalstjórnar Þórs er nánast
búið að „gulltryggja" það að
það verði spilað undir merki
ÍBV í handboltanum næsta
vetur.
Hvað mælir með
sameiningu?
Þegar þetta mál er skoðað
ofan í kjölinn. eru það auð-
vitað leikmenn liðanna. sem
eiga að hafa úrslitavaldið,
því málið snýst um hvort þeir
vilja sameininguna eða ekki.
hvort þeir vilji vinna með
hvor öðrum.
Ef markmiðið hjá leik-
mönnunr og handknattleiks-
forystunni er að gera út fram-
bærilegt 1. deildarlið frá Eyj-
um. þá er það margsannað
mál að breiddin í handknatt-
leiknum hér í Eyjum er ekki
nógu mikil til að halda uppi
tveim frambærilegum 1.
deildarliðum. Möguleiki væri
á því fvrir annað Eyjaliðið.
að koma upp slíku liði. en
það kostar mikla peninga og
fórnir eins og komið hefur í
ljós s.l. ár. Skemmst er að
minnast þess þegar Þór vann
sér 1. deildarsæti fyrir tveim
árum. Að því hafði verið
stefnt í nokkur ár. en þegar
þangað kom. hafði félagið
ekki orku til að halda sér
uppi, allt púðrið hafði farið í
það að koma sér upp.
Það hlýtur ávallt að vera
takmarkið hjá handknatt-
leiksforystunni að búa til
Þorsteinn
Gunnarsson
„stabílt" 1. deildarlið, það
telst varla árangur þessi
tröppugangur milli 2. og 3.
deildar.
Ef af sameiningu yrði, eins
og flest bendir raunar til, þá
yrði breiddin auðvitað meiri
og þegar þessi tvö lið hafa
sameínað krafta sína, þá er
það mun raunhæfari mögu-
leiki að gera út 1. deildarlið
frá Eyjum, byggt á Eyjaleik-
mönnum.
Eins og málum er háttað í
dag. þá er breiddin hjá fé-
lögunum ekki meir en það að
það er í raun sjálfgefið hvaða
7 leikmenn byrji leikina,
mannskapurinn er ekki meiri
en það. Með þessu móti geta
leikmenn liðanna leyft sér
ýmislegt sem þeir myndu ann-
ars ekki gera ef einhver sam-
keppni væri um sætin í liðinu.
Þá eru leikmenn farnir að
sjá fram á það að það bíður
þeirra ekkert nema meðal-
mennskan ef þeir ætla að
leika hér í Eyjum, ef þeir
vilja ná árangri verða þeir að
leita á önnur mið. Við höfum
nú þegar misst of marga góða
menn fyrir þessar sakir.
Einnig má benda á 2. flokk
telaganna. en þeir hafa því
miður oft þurft að sitja á
hakanum og hverfa í skugg-
ann af meistaraflokknum.
Væri auðsjáanlega hægt að
leggja mun meiri rækt við þá
ef um sameiningu yrði að
ræða.
Hvað mælir á móti
sameiningu
En hvað með þá sem eru á
móti sameiningu? Þeir benda
m.a. á það að meistaraflokk-
ar félaganna hafi verið andlit
félaganna út á við, og í raun
og veru sé vcrið aö háls-
höggva Þór og Tý með sam-
einingunni.
Hvers vegna aö breyta, þá
breytinganna vegna? Hefur
hingað til hefur veriö pláss
fyrir tvö meistaraflokkslið
þannig að það hlýtur að vera
það áfram. Einnig bcnda þeir
á það að mjög efnilegir flokk-
ar eru að koma upp, eins og
t.d. fjórðu flokkar félaganna.
Þá er það ljóst að félögin
myndu að öllum líkindum
missa nokkuð af fólki sem
starfað hefur fyrir félögin
beint eða óbeint í gegnum
handboltann og það er mjög
slæmur kostur fyrir félögin.
Spurningin um
hvort árangur sé
fyrir mestu
Frá mínum bæjardyrum
séð er þetta aðeins spurning
um eitt sjónarmið, hvort við
viljum vera áfram í meðal-
mennskunni, eða rífa okkur
upp úr henni og ná árangri.
Ætla íþróttafélögin hér í Eyj-
um að halda áfram að starf-
rækja þau sem skátafélög eða
íþróttafélög þar sem árangur
er fyrir mestu? Þá hef ég
eingöngu meistara- og 2.
flokk fyrir augum, en það er
gjörsamlega út í hött að
sameina yngstu flokkanna, í
bili a.m.k. Það eru flestir
sammála um.
En til að sameining verði
ofan á, þá er það í raun
grundvöllur hennar að sterk
stjórn verði á bak við í fyrstu,
til að halda vel um hlutina og
koma handknattleiksdeild-
inni vel af stað. í þessari
stjórn þyrftu helst að vera
reyndustu menmrnir frá báð-
um félögunum, þessir sem
hafa staðið á bak handbolt-
ann hjá félögunum í fjölda
ára.
Að hrökkva
eða stökkva
Að lokum má einnig geta
þess að vilyröi hefur nokkurn
veginn fengist fyrir því. að cf
um sameiningu yrði aö ræða
þá fengi ÍBV að spila í 2.
deild næsta vetur. því eins og
flcstir vita. þá stendur nú
fyrirdyrum. fjölgun 12. dcild-
inni.
Þarna hljóta allir að sjá að
nú er um cinstakt tækifæri að
ræða. og óvíst er hvort slíkt
tækifæri myndi bjóöast aftur
í bráð. Það er því núna um
það að ræða að hrökkva eða
stökkva. Þeir sem hrökkva
stefna í raun að ekki hærra en
á meðalmennskuna, en þeir
sem stökkva að þessu tæki-
færi, vilja breytingar og setja
stefnuna hátt, vilja árangur.
Ég telst einn úr þeim hópi.
I
Vestmannaeyjabær
Lögtaksúrskurður
Fógetaréttur Vestmannaeyja hefur kveð-
ið upp eftirfarandi lögtaksúrskurð:
„Lögtök fyrir gjaldföllnum en vangreidd-
um útsvörum og aðstöðugjöldum til Vest-
mannaeyjabæjar, álögðum 1985, auk drátt-
arvaxta og áfallins kostnaðar mega fara
fram að liðnum átta dögum frá birtingu
auglýsingar um úrskurð þennan, á kostnað
gjaldenda en á ábyrgð Vestmannaeyjabæj-
ar. “
í framhaldi af úrskurði fógetaréttar verða
inn heimtuaðgerðir hafnar, því birtist lög-
taksúrskurðurinn hlutaðeigandi.
Gerið skil og forðist innheimtuaðgerðir.
Dráttarvextir eru nú 2,25% á mánuði.
Vestmannaeyjum 17. apríl 1986
Bæjarstjóri
Frá stjórn
verkamannabústaða
Stjórn verkamannabústaða í Vestmanna-
eyjum auglýsir til sölu 4ra herbergja íbúð
að Foldahrauni 42, 3. hæð.
Umsóknareyðublöð fást í ráðhúsinu.
Umsóknir frá fyrra ári óskast endurnýjað-
ar.
Nánari upplýsingar gefur Kristjana Þor-
finnsdóttir í síma 1485.
Stjórnin
ATVINNA
Tómstundaráð Vestmannaeyja óskar eft-
ir að ráða flokksstjóra fyrir vinnuskólann og
skólagarðana, svo og yfir flokksstjóra. Unn-
ið verður frá júní byrjun til seinnihluta júlí
mánaðar.
Starfið er fólgið í tilsögn og verkstjórn
barna og unglinga við snyrtingu og fegrun
bæjarins svo og leik.
Leitað er eftir hressu fólki með góðan
húmor.
Æskilegt er að viðkomandi sé ekki yngri
en 20 ára.
Upplýsingar um starfið gefur undirritað-
ur.
Þangað skal umsóknum einnig skilað,
fyrir 29. apríl n.k.
Tómstunda og íþróttafulltrúi,
Vestmannaeyja
Hvítasunnumót SJÓVE
verður dagana 17. og 18. maí n.k. Tilkynna
þarf þátttöku fyrir 1. maí í síma 2567 (Þura)
og síma 1566 (Lilla) sjáumst é s JÓVE
I