Fréttir - Eyjafréttir - 26.05.1988, Page 1
15 . árgangur Vestmannaeyjum, 26. maí 1988 39. tölublað
Fiskupp-
boð kl.
16:30 alla
virka daga
Sími1777
Skólavegi 1
Simi1300
Hinir
vinsælu
WOLF
kant-
skerar
komnir.
Jafn meðfærilegir
fyrir bæði kynin!
Verð aðeins kr. 3.990.
□
Segul-
rykburst-
arnir
einnig
nýkomnir.
□
Eigum
gítara og
hljómtæki
ágamla
verðinu.
Búið að ráða hljómsveitir á Pjóðhátfð:
GREIFARNIR OG FELIX
Á STÓRA PALLINUM
- KASKÓ Á LITLA PALLINUM.
Þjóðhátídarnefnd Þórs er
búin að ráða Greifana og
söngvarann Felix Bergsson
á stóra pallinn á Þjóðhátíð-
ina sem haldin verður 29.-
31. júlí n.k., og hljómsveit-
ina KASKÓ á litla pallinn.
Að sögn Þórs Vilhjálms-
sonar formanns Þjóðhátíð-
arnefndar barst óvenjulega
mikið af tilboðum frá hljóm-
sveitum að þessu sinni og
virtist sem mikill áhugi væri
fyrir þjóðhátíðinni. Greif-
anir léku sem kunnugt er
einnig á Þjóðhátíðinni í
fyrra og vöktu þar mikla lukku.
„Við stöndum í viðræðum
við marga landsþekkta
skemmtikrafta og fleiri
hljómsveitir og það skýrist
mjög fljótlega hverjir verða
fyrir valinu," sagði Þór.
Þjóðhátíðarnefnd vinnur
nú af fullum krafti við undir-
búning Þjóðhátíðarinnar.
Þjóðhátíðarnefnd Þórs í ár
skipa auk Þórs Vilhjálms-
sonar þeir Gunnar og Arnar
Andersen, Óskar Óskars-
son, Magnús Bragason, Ás-
mundur Friðriksson og Árni
Johnsen.
Skipalyftan:
Breytingar á rúss-
neskum skipum?
Eins og kunnugt er af fréttum
er fyrirtækið Traust hf. að vinna
að samningi við Rússa um að
setja skelvinnslu í veiðiskip
þeirra. Er málið komið það langt
að í næstu viku á að fást svar,
hvort af þessu verður eða ekki.
Samkvæmt upplýsingum
blaðsins mun Skipalyftan hér
hafa unnið að þessum samningi
með Traust, því talsverðar
breytingar þarf að gera á
skipunum. Mun Skipalyftan
sjá um breytingarnar ef af verð-
ur og er þetta verkefni upp á
einar 35-40 milljónir.
Kristján Ólafsson fram-
kvæmdastjóri Skipalyftunnar,
hafði lítið um málið að að
segja, þegar þetta var borið
undir hann. Sagðist hann vonast
til að þetta skýrðist í næstu viku.
Hraðfrystistöðin fær viður-
kenningu frá Coldwater
- Eitt af sex húsum sem fengu þessa viðurkenningu.
Hraðfrystistöð Vestmanna-
eyja var eitt sex frystihúsa á
landinu sem í ár fengu sérstaka
viðurkenningu Coldwater, fyrir
frábæran árangur í framleiðslu
frystra fiskafurða.
Páll Pétursson yfirgæðaeftir-
litsmaður Coldwater í Banda-
ríkjunum. afhenti Hraðfrysti-
stöðinni skjöld. sem tákn viður-
kenningarinnar. Sagði hann við
það tækifæri, að þetta væri
frábær árangur. Þessi sex hús
sem fá viðurkenningu eru með
gæðaeinkunn frá 95-100, en
meðal einkunn 80 húsa væri
85-90. Má því lítið út af bera, cf
menn vilja vera meðal þcirra
útvöldu. Ekki mætti slaka á
kröfunum ef ætlunin væri að
standa sig. „Icelandic", sem
vörumerki í Bandaríkjunum er
enn í fyrsta sæti í harðnandi
samkeppni og vcrður það von-
andi áfram. En það sem menn
verða að gcra sér grein fyrir, er
að frystiiðnaðurinn hcfur hald-
ið lífinu í þessari þjóð og mun
gera það áfram." Að endingu
sagði Páll að ekki væri hægt að
setja Hraðfrystistöðina á topp
scx listann. án þess að starfs-
fólkið fylgdi með. ,. Þetta á líka
við ykkur, þið eruð meðal
þeirra (i bestu."
Sigurður Einarsson forstjór'i
I Iraðlrystistöðvarinnar sagði
að þetta væri mjög ánægjulegt
Rekstur Herjólfs
gekk vel á síðasta ári
Á aðalfundi Herjólfs hf. í gær-
kvöldi kom fram að reksturinn
hefði gengið vel á síðasta ári og
skilað hagnaði í fyrsta skipti.
f aðalstjórn voru kjörnir
Guðmundur Karlsson og
Tryggvi Jónasson frá bæjar-
sjóði. Kristján Eggertsson frá
fjármálaráðuneyti, Gísli G.
Guðlaugsson frá samgöngu-
ráðuneyti og Heiðmundur Sig-
urmundsson trá almennum
hluthöfum. í varastjórn eru
Kristmann Karlsson, Jóhann
Ólafsson, Sigurður Ingi Ing-
ólfsson, Ásmundur Friðriksson
og Georg Þór Kristjánsson. Úr
stjórn gengu Magnús Kristins-
son og Stefán Runólfsson.
Nánar verður sagt frá fundin-
um í næsta blaði.
Sól og blíða
Eftir stormasama Hvítasunnuhelgi hafa veðurguðimir leikið við Eyjamenn síðustu daga og skartað
sínu fegursta. Ljósm. FRÉTTA rakst á þessa krakka og mömmur þeirra í vaðlaug Sundlaugarinnar í
blíðviðrinu fyrr í vikunni.
• Jón Svansson verkstjóri og Sigurður Einarsson framkv.stj. við
verðlaunasafnið sem Hraðfrystistööin hefur fengið s.l. ár.
fyrir Hraðfrystistöðina, þar
sem um 80 frystihús kæmu til
greina, að fá þessa viðurkenn-
ingu. Lagði hann áherslu á, að
þessi árangur næðist ekki nema
með góðu starfsfólki, og væri
þetta því að þakka.
Einum frystitogara, Akur-
eyrinni EA, var veitt viður-
kcnning Coldwater, er þetta
annað árið sem frystitogurum
er veitt hún.
Að lokum skal þess getið, að
starfsfólkið kom því á framfæri
við FRÉTTIR, að Hraðfrysti-
stöðin hefði gefið nýstofnuðu
starfsmannafélagi 75.000 kr.
Vildi það nota tækifærið til að
koma á framfæri þakklæti fyrir
þessa myndarlegu gjöf.