Fréttir - Eyjafréttir - 14.07.1994, Blaðsíða 7
Skuggahliðar aflamarksins:
Þúsundum tonna af þorski hent?
-Sjómenn og þeir sem til þekkja fullyrða að svo sé.
Nú er hálfur annar mánuður
eftir af yfirstandandi fískveiði-
ári og er kvóti báta óðum að
klárast. Sérstaklega er það
þorskurinn sem vantar og er
nú svo komið að sífellt fjölgar
þeim skipum sem éiga lítinn
sem engan þorskkvóta eftir.
Nokkur þessara skipa eru vel
birg af kvóta í öðrum tegund-
um og gerast þær raddir æ
háværari að sjómenn á þessum
skipum grípi til þess örþrifa-
ráðs að henda þorskinum og
hirða þær tegundir sem nógur
kvóti er af. Einnig eru dæmi
þess að sjómenn hirði aðeins
stærsta þorskinn en sá smærri
fari aftur í hafið. Krókaleyfis-
bátar koma líka við sögu í
þessum leik því þeir hirða fisk
sem togbátarnir henda og eins
eru sögur á lofti um að þorskur
verði að ýsu þegar honum er
landað. Astandið er orðið mjög
alvarlegt og sjómenn og út-
gerðarmenn sem rætt var við
standa ráðalausir. Telja þeir að
þarna sé að fullu komið fram
það sem þeir hafa alltaf haldið
fram; að aflamarkskerfið bjóði
upp á að fiski sé hent. Fullyrða
þeir að í sumar hafi þúsundum
tonna verið hent og þeir spyrja
hvort ekki sé hægt að finna leið
til að gera þeim kleift að koma
með hann að landi? Jafnvel þó
þeir fengju ekki krónu fyrir,
bara ef þeir losna við að henda
honum.
Þorskur um allan sjó
FRÉTTIR telja sig hafa öruggar
heimildir fyrir því að umtalsvert
magnafþorskifarijafnóðum í sjóinn
og hann kemur inn fyrir. Heyrst hefur
að allt að 15 tonnum af þorski hafi
verið hent úr einu hali. Þetta er versta
dæmið sem blaðið hefur fregnaö af
en þaó hefur verið fullyrt við blaðið
að sumir bátamir hendi tugum tonna í
hverjum túr. Segja þeir að í heild hafi
hundruðum tonna verið hent og til eru
þeir sem fullyrða að magnið skipti
einhverjum þúsundum tonna. Er svo
komið að sjómönnum blöskrar þessi
gegndarlausa sóun en þeir segjast
lítið geta að gert, þeir fara á sjó með
skipun um að koma með allt annað en
þorsk og vissulega er það reynt en nú
er ástandið þannig, að sama er hvar
trolli er dýpt í sjó alls staðar er þork-
sur.
Utgerðarmaður, sem rætt var við,
benti á einn þátt í þessum farsa. Segir
hann að krókaleyfisbátar haldi sig á
sömu slóð og togbátamir og hirða
þeir þorskinn sem togbátamir henda.
Koma þeir með fullfermi af bolta-
þorski að landi dag eftir dag án þess
aó dýfa nokkum tíma krók í sjó. Þetta
er þó skömminni skárri leið en að
henda þorskinum sem kemur engum
að gagni. Eins hefur blaðið fregnað
að á Suðumesjum séu dæmi um að
þorskur verði að ýsu þegar í land er
komið.
Fékk 15 tonn af að-
gerðum þorski
Þetta vandamál er viðurkennt af
þeim sem FRÉTTIR ræddu viö hjá
Fiskistofu og LIÚ, en þeir segja erfitt
að gera sér grein fyrir því hversu stórt
vandamálið er. Nefnd, sem á að koma
með tillögur um bætta umgengni um
auðlindir hafsins tekur m.a. á þessu
og eru tillögur hennar væntanlegar
fyrir næstu áramót.
Oft hefur verið bent á að afla-
markskerfið bjóði upp á að fiski sé
hent, bæði velji menn verðmesta
fiskinn af takmörkuðum afla-
heimildum eða þegar lítið er eftir af
einni tegund. I ár á þetta sérstaklega
við þorskinn því fram til þessa hafa
menn átt möguleika á að kaupa kvóta
þegar þrengir að en nú er að lokast
fyrir öll kvótakaup eða að kvótinn er
alltof dýr. Leiga á þorskkvóta er að
nálgast 80 krónur og takist útgerðar-
mönnum að fá einhvem kvóta koma
þeir öfugir út úr dæminu þegar búið
er að gera upp við áhöfnina því
kvótakaupin eru hrein útgjöld.
Þurfa útgerðarmenn aó stunda
mikla talnaleikfimi þegar saxast á
kvótann. Menn geta þó misreiknað
sig og eina slíka sögu sagði skipstjóri
hér í bæ og fullyróir hann að hún sé
sönn. Snurvoðarbátur á að hafa
fengið fulla voð af þorski við Reykja-
nes. Það var svo sem allt í lagi nema
aó búið var að gera að þorskinum og
þegar farið var að grennslast fyrir um
um uppruna aflans kom í ljós að bátur
hafði lent í góðum þorski og gerði á-
höfnin að honum í þeirri trú að til
væri nægur kvóti. Þegar farið var
nánar í kvótastöðu bátsins kom í ljós
að þorskkvótinn var búinn og var þá
ekki um annað að ræða en henda
fiskinum til að forðast sektir og jafn-
vel missi á veiðleyfi.
Stjórnvöld að nokkru
leyti ábyrg
Þeir sem fara með stjómun fisk-
veiða af hálfu hins opinbera þekkja
þetta vandamál en þeir hafa enga ein-
falda lausn á takteinum. Þórður
Arelíusson hjá Fiskistofu segist kann-
ast við þetta vandamál en það sé erfitt
að meta hvað alvarlegt það er. Þórður
segir að Veiðieftirlitið liggi undir á-
mæli fyrir slælega framgöngu í
eftirliti með fiskveiöum og ber hann
ekki á móti því að gagnrýnin eigi rétt
á sér. En ef vel eigi að vera þurfi
meiri fjárveitingar til að hægt verði
að ráða fleiri eftirlitsmenn. Tuttugu
veiðieftirlitsmenn em við störf að.
öllu jöfnu en í sumar vom fimm
ráðnir til viðbótar til eftirlits um borð
í erlendum togumm. „Við reynum að
fylgjast með veiðunum úr landi eins
og kostur er en eftirlitið út í sjó er
mun erfiðara. Til að ná árangri þarf
fleiri menn og jafnvel eftirlitsbáta því
varðskipin koma að litlu haldi,“ sagði
Þórður.
Þórður segir ómögulegt að segja til
um hvað miklu magni er hent hverju
sinni en hann leggur áherslu á að að-
stæður núna séu öðmvísi en undan-
farin ár, sérstaklega þar sem
þorskkvóti er miklu minni. „Tvær
ástæður em fyrir því að sjómenn
henda fiski, annars vegar þegar valið
stendur um að koma með fyrsta
flokks fisk að landi eða skemmdan
sem miklu minna fæst fyrir og annars
vegar þegar menn nálgast núllið í ein-
hverri tegund. Eru stjómvöld að
nokkm leyti ábyrg því þau settu á það
kerfi sem við búum við í dag. Þetta er
stórmál en það vill enginn bera vitni
þegar kemur að því að staðfesta hvort
fiski er hent eða ekki. En hvað gera
menn sem ætla eingöngu að veiða
ufsa á vertíðinni af því þeir em ekki
með nema 20,30 eða 40 tonna þorsk-
kvóta? Sama gæti gilt um humar- og
rækjubáta sem draga í fimm til sex
tíma og fá útstunginn fisk og lé-
legan?“ spurði Þórður og sagði að
þetta væri dökka hliðin á kvóta-
lögunum.
Jákvæðar hliðar
Þórður sagði að líka mætti benda á
jákvæðar hliðar á núverandi kerfi.
„Frá árinu 1991 hefur fjölgað þeim
fisktegundum sem skipin koma með
að landi eins og t.d. tindabykkju,
grásleppu og ýmsum kolategundum
sem var hent áður. Með tilkomu fisk-
markaðanna er hægt að koma þessum
tegundum í verð. Skip á Vestfjarða-
miðum komu með lítið af smáfiski í
land fyrir nokknim árum en þetta
hefur snarbreyst. í fyrra var smáfiskur
frá 13% upp í 22% af heildarafla
skipa sem veiða á þessum slóðum. Þá
má ekki gleyma stóru netabátunum
sem í dag eru ekki með fleiri net í sjó
en þeir geta dregið á einum degi. í
helgarleyfum og þegar spáir illa
koma þessi bátar með netin í land.
Einnig er meðferð á fiski í þessum
bátum til mikillar fyrirmyndar og
koma þeir yfirleitt með fyrsta flokks
hráefni að landi sem er mikil breyting
til hins betra frá því þegar einungis
var hugsað um tónnafjöldann," sagði
Þórður.
Þetta þarf
að taka alvarlega
Kristján Þórarinsson, fiski-
fræðingur hjá LIÚ, er formaður
nefndar sem sjávarútvegsráðherra
skipaði. Verkefni nefndarinnar er að
koma með tillögur um bætta um-
gengni um auólindir hafsins og er
stefnt að því að hún Ijúki því fyrir árs-
lok. Kristján sagði í samtali við
FRÉTTIR að nefndin væri m.a. að
skoða fyrirkomulag fiskveiða og afla
gagna um allt sem að þeim lýtur.
Hafa nefndarmenn m.a. verið að
skoða hvort og hvað miklu af fiski cr
hent.
„Þetta er mál sem þarf að taka
alvarlega en er breytilegt eftir að-
stæðum. Vandinn núna er hvað mikið
hefur verið skorið niður í þorski.
Þetta er flækja sem við Islendingar
höfum komið okkur í og verðum að
leysa sjálfir. Það er m.a. hlutverk
nefndarinnar," sagði Kristján.
Kristján sagði að allar sögur um að
fiski sé hent verði skoðaðar og reynt
verði að komast að því hvað er á
seyði. „Nefndin er að fá gögn til að
sjá í hvaða mæli þetta er því
spumingin er: Hvað er miklu hent,
hvers vegna og hvemig má koma í
veg fyrir það?“ sagði Kristján en
benti einnig á að menn séu sér með-
vitaðir um þetta vandamál.
Allt betra en að henda
fiskinum
„I sínum útreikningum gera fiski-
fræðingar t.d. ráð fyrir þessum
möguleika. Mælingar gefa einnig vís-
bendingar og gefa einnig
viðvömnarmerki þegar eitthvað ó-
eðlilegt er á seyði. En á þessu stigi á
ég erfitt með að gera mér grein fyrir
því hvað miklum fiski er hent,“ sagði
Kristján aó lokum.
Erfitt er að gera sér grein fyrir því
hvað miklu hefur verið hent af þorski
á undanfömum vikum og enn
erfiðara er að benda á leiðir til úrbóta.
Sjómönnum finnst blóðugt að sjá á
eftir verðmætunum í sjóinn og finnst
fráleitt að þurfa að vinna eftir kerfi
sem neyðir þá til að henda fiski. „Það
er alltaf verió að tala um að þjóðin sé
að fara á hausinn en það hlýtur að
vera rík þjóð sem neyðir þegnana til
að henda milljónaverðmætum. Sjálf-
um væri mér andskotans sama þó ég
fengi ekki krónu fyrir þann þorsk sem
við kæmum með að landi. Það mætti
vel hugsa sér að andvjrðið færi í
þyrlusjóð eða annað þarft verkefni
því allt er betra en að henda
þorskinum aftur í sjóinn,“ sagði skip-
stjóri sem er að því kominn að gefast
upp á þessari endaleysu.
Ó.G.