Fréttir - Eyjafréttir

Útgáva

Fréttir - Eyjafréttir - 09.05.1996, Síða 2

Fréttir - Eyjafréttir - 09.05.1996, Síða 2
2 Fréttir Fimmtudagur 9. maí 1996 Fréttir Sömu rólegheitin Síðasta helgi var fremur róleg hjá lögreglunni sem eflaust má rekja til margra frídaga undanfarið. Þar fyrir utan er vor í lofti þannig að fólk ætti að eiga auðveldara með að sjá björtu hliðamar á lífinu og tilver- unni. Þeyst utan vegar Um klukkan sex, síðdegis á fimmtudaginn, var lögreglu til- kynnt um mann sem þeysti utan vegar á léttbifhjóli við Hásteins- veginn. Lögreglan fór þegar af stað og tókst að stöðva kauða inni í Heijólfsdal. Rúðubrot í kranabifreið Klukkutíma seinna var lögreglu til- kynnt um rúðubrot í kranabifreið sem stóð við Garðaveg 16. Ekki er vitað hver eða hveijir þama vom að verki. Sinnti ekki stöðvunarmerkjum Rétt fyrir klukkan sex síðdegis á föstudaginn hafði lögreglan afskipti af ökumanni sem keyrði um ljós- laus ásamt því að númeraplötu að framan vantaði. Hann sinnti ekki stöðvunarmerkjum lögreglu og hélt heim til sín þar sem hann náðist. Ekki var hann ölvaður að sögn lög- reglu. Brutu rúður í safnaðarheimilinu Um kvöldmatarleytið á laugar- daginn barst lögreglu tilkynning um að verið væri að bijóta rúður í safnaðarheimilinu við Landakirkju. Þegar lögregla kom á staðinn var búið að brjóta tvær rúður. Náðist í ijóra stráka sem þama voru að verki. Vildi ekki aðstoð Þegar klukkan var 12 mínútur í eitt á aðfaranótt sunnudagsins kom kall til lögreglu frá Lundanum vegna konu sem hafði fengið flogaveikiskast. Hún hafði náð að jafna sig þegar lögregla kom á staðinn og neitaði allri aðstoð. Stuttu seinna kom aftur kall frá Lundanum vegna sömu konu og brást lögregla skjótt við og flutti hana að sjúkrahúsi. Þegar þangað var komið stökk hún út úr bflnum og hélt aftur af stað áleiðis að Lundanum. Þegar þriðja kallið kom vegna sömu konunnar taldi lögregla ekki ástæðu til að sinna því vegna fyrri reynslu. Þróunarfélag Vm stofnað í dag I bæjarráði á mánudaginn lá fyrir félags- og starfssamningur fyrir Þróunarfélag Vestmannaeyja. Samningurinn var samþykktur og og var bæjarstjóra, veitustjóra og hafnarstjóra falið að undirrita hann fyrir hönd stofnana sinna. Fyrir lá að stofnfundur félagsins verður í dag í Akóges. I framhaldi af samþykktinni var ákveðið að tilnefna Guðjón Hjör- leifsson, bæjarstjóra, í stjórn Þróunarfélagsins. Milljón til Landlystar Fyrir bæjarráði lá bréf frá hús- friðunamefnd ríkisins þar sem fram kemur að veittur haíi verið einnar milljón króna styrkur vegna Land- lystar. Landlyst, sem var eitt elsta hús bæjarins, var rifið fyrir nokkr- um ámm en ætlunin er að reisa það aftur í uppmnalegri mynd. Sláandi niðurstöður fyrir Vestmannaeyjar íkönnunum um líðan og hag unglinga: Utill agi, drekka stífar og slakur árangur í samræmdum prófum Vakin var athygli á alvarlegum námsleiða hjá 10. bekkingum í Eyjum í fyrra sem er meiri en hjá öðrum unglingum á landinu að meðaltali. Myndin var tekin í samræmdu prófunum í vor en tengist fréttinni ekki að öðru leyti. Vestmannaeyskir unglingar í efstu bekkjum grunnskólanna drekka stífar og meira miðað við aðra unglinga á landinu en færri ein- staklingar halda drykkjunni uppi. Einnig er meiri losarabragur á reglum á vestmannaeyskum heim- ilum þar sem unglingar eru og árangur í samræmdum prófum er lélegur. Þetta var niðurstaða Finnboga Gunnarssonar, deildar- stjóra Rannsóknastofnunar upp- eldis- og menntamála, sem hann kynnti í fyrirlestri í Barnaskólanum sl. mánudag. Fyrirlesturinn var byggður á tveimur könnunum um líðan og hag unglinga sem gerðar voru á landsvísu 1992 og 1995. Kannanirnar tóku til fjölmargra þátta sem vörðuðu líðan unglinga utan sem innan skóla og í samfélaginu. Aðstæður í Eyjum voru bornar saman við aðra hluta Suðurlands annars vegar og svo ailt landið hins vegar. Niðurstöður þessara kannana voru í mörgum tilfellum ansi sláandi og umhugs- unarverðar fyrir vestmanneyska foreldra. Samkvæmt niðurstöðum könnun- arinnar er fylgni á milli lítilla tilfmningatengsla barna og unglinga við foreldra sína og áfengisnotkunar unglinga og verri námsárangurs. Því betri tengsl unglinga við foreldra því duglegri eru þeir við heimavinnu og minna er um skróp. Lykilatriði í uppeldi unglinga telur Finnbogi vera að foreldrar setji unglingum reglur sem farið er eftir. Mikill misbrestur er á þessu í Vestmannaeyjum samanborið við Suðurland og allt landið. Unglingar í Eyjum búa síður við reglur en árið 1992 sögðust 60% unglinga í Eyjum sjaldan eða aldrei hafa fengið fyrirmæli um útivistartíma frá foreldrum. Finnbogi sagði fylgni vera á milli reglna og áfengis- og tóbaksnotkunar. Meiri neysla er hjá unglingum sem búa við litlar eða engar reglur. I könnuninni var spurt hvenær ung- lingamir hefðu verið drukknir í fyrsta skipti. Um 40% nemenda í 10. bekk 1995 höfðu aldrei bragðað áfengi en meginþorri þeirra sem höfðu smakkað áfengi vom fyrst drukknir 14 ára. Um 20% voru fyrst drukknir 12-13 ára. Svipaða sögu er að segja um tóbaksnolkun. Hins vegar sker Suðurland sig úr hvað varðar mikla tóbaksnotkun og virðast reykingar í mikilli sókn. Um 15% unglinga í 10. bekk í Eyjum höfðu verið drukknir 3-5 sinnum síðastliðna 30 daga, eða að meðaltali einu sinni í viku, sem er meira en annars staðar á landinu. Finnbogi sagði þetta sláandi tölur en nú ætti sér víða stað vakning hjá foreldrum sem hreinlega sættu sig ekki við þetta. Þessar tölur væru allt of háar. Drykkjan kæmi niður á skólastarfi og námsárangri og kostaði mikla baráttu. Landadrykkja er mun minni í Eyjum en á Suðurlandi og annars staðar á landinu. Hins vegar drekka vest- mannaeyskir unglingar meiri bjór og sterk vín (fyrir utan landa) miðað við jafnaldra sína og er fylgni á milli. Unglingamir hita sig upp með bjór og fara svo í sterkt vín. Finnbogi sagði að samkvæmt þessu drykkju Eyjaunglingar stífar og meira en fæiri einstaklingar væru að halda drykkjunni uppi. Þá er meiri losara- bragur á reglum sem bitnaði m.a. á námsárangri. Lélegur árangur í samræmdum prófum Þá kynnti Finnbogi niðurstöður í samræmdu prófunum í fyrra og bar Vestmannaeyjar saman við landið allt. Fall í Eyjum er langt yfir lands- meðaltali (sjá ramma til hliðar) og sagði Finnbogi að Eyjamenn mættu hafa sérstakar áhyggjur af dönsku þar sem fallið var hlutfallslega mjög hátt. Alls ná 51,4% 10. bekkinga í Eyjum samræmdum prófum á móti 61% á landsvísu. Finnbogi sagði viðhorf foreldra gagnvart námi og kennsla skipti hér einhverju máli. Þá vakti hann athygli á alvarlegum námsleiða hjá 10. bekkingum í fyrra sem er meiri í Eyjum en hjá öðrum unglingum á landinu að meðaltali. En í ljósi þessarar dökku myndar sem Finnbogi dró upp á fyrirlestrinum, hver eru þá skilaboð hans til vest- manneyskra foreldra? „Astandið er ekki nógu gott og þið verðið að hafa reglur til að halda aga, með öðrum orðum að vera hundleiðinleg. Foreldrar verða að leggja sig fram og gera það sem þeir geta til að hjálpa skólanum að sinna sínu starfi. Skólamir í Vest- mannaeyjum eru að taka sig á, þeir em að skoða sín mál og þeir viðurkenna að eitthvað má betur fara. En þá þarf einnig stuðning foreldra,” sagði Finnbogi. I lokin vom fyrirspumir og umræður og sýndist sitt hverjum. Lög- reglumaður sagðist í sínu starfi hafa orðið vitni að ótrúlegri framkomu foreldra í garð lögreglu þegar lögreglan hefði keyrt unglingum heim til að fylgja eftir útivistartíma unglinga. Finnbogi sagði að mikil vakning hefði átt sér stað á höfuðborgarsvæðinu í þessum efnum. Unglingamir vildu í raun og vem hafa reglur og aga og það væri af vænt- umþykju sem verið væri að grípa inn í líf þeirra. Fræðslustjóri Suðurlands sagði að eftir þessa kmfningu í Eyjum yrðu ekki allir ánægðir sem skiljanlegt væri. Ekki mætti gleyma því að ýmislegt gott væri í Eyjum en til að taka sig á þyrfti að setjast niður og ræða málin. Skólamir í Eyjum væru í naflaskoðun og það þyrftu foreldrar einnig að gera. Fundurinn var mjög vel sóttur, aðallega af mæðmm, en sorglegt var að sjá hve feður vom fáir, þeir vom aðeins teljandi á fingrum annarrar handar. Fréttir Vor í Eyjum Fyrir atvinnumálanefnd lá bréf frá handknattleiksráði ÍBV karla þar sem óskað var eftir samstarfi við nefndina vegna vöm- og þjónustu- sýningarinnar Vor í Eyjum sem verður dagana 17. til 19. maí nk. f Iþróttamiðstöðinni. Einnig var óskað eftir styrk. Nefndin fagnaði erindinu og fól formanni og bæjaistjóra að hitta bréfritara. Styrkur til kvenna Þá kom fram í atvinnumálanefnd að félagsmálaráðuneytið hefur auglýst að frestur til þess að óska eftir styrkjum frá ráðuneytinu til sérstakra verkefna er verða mættu til að þess að fjölga atvinnutæki- fæmm kvenna er til 10. maf nk. Nefndin óskaði eftir því að væntanleg stjóm Þróunarfélags Vestmannaeyja komi með tillögur er varða málið. Kofabyggð við Húsey? Á fundi félagsmálaráðs kynnti fé- lagsmálastjóri hugmynd frá Þór Valtýssyni í byggingavöm- versluninni Húsey um kofabyggð á lóð Húseyjar fyrir 6 til 10 ára böm frá l.júnítil 15.júlí 1996. Afgreiðslu var frestað til næsta fundar. Fall í samræmdum prófum 1995: Eyjar Landið Islenska 40,8% 31% Stærðfræöi 34% 26% Danska 28% 22% Enska 9,8% 7,5% \ FRÉTTIR Útgefandi: Eyjaprent hf. Vestmannaeyjum. Ritstjóri: Ómar Garðarsson. Fréttastjóri: Þorsteinn Gunnarsson. Abyrgðarmenn: Ómar Garðarsson & Gísli Valtýsson. Prentvinna: Eyjaprent hf. Vestmannaeyjum. Aðsetur ritstjórnar: Strandvegi 47II. hæð. Sími: 481-3310. Myndriti: 481 - 1293. Netfang/rafpóstur frettir@ismennt.is. Heimasíða FRÉTTA:hap://vey.ismenntis/~frettir FRÉTTIR koma út alla fimmtudaga. Blaðið er selt í áskrift og einnig í lausasölu í Turninum, Kletti, Novu, Skýlinu, Tvistinum, Pinnanum, Kránni, Búrinu, Vöruval, Herjólfi, Flugvallarversluninni, Eyjakaup, Eyjakjör og Söluskálanum. I Reykjavík: hjá Esso Stóragerði og í Flugteríunni á Reykjavíkurflugvelli. FRÉTTIR eru prentaðar í 2000 eintökum. FRÉTTIR eru aðilar að Samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.