Fréttir - Eyjafréttir - 09.05.1996, Page 8
8
Fréttir
Fimmtudagur 9. maí 1996
Mikil skuldaauking bæjaríns:
Skuldír bæjarsjóðs
jvkust um 181 milljón
-á tveimur árum segir Guðmundur Þ.B. Ólafsson.
Guðmundur Þ.B. Ólafsson, bæjar-
fulltrúi Vestmannaeyjalistans, segir
aukningu skulda bæjarsjóðs og
stofnana hans á síðustu tveimur
árum vera áhyggjuefni. Skuldir
bæjarsjóðs jukust úr 393 milljónum
króna árið 1993 í 574,7 milljónir
árið 1995 og samanlagðar skuldir
bæjarsjóðs og stofnana fóru úr 1607
milljónum í 1848 milljónir króna á
sama tímabili. Segir Guðmundur
að nú sé svo komið að ekki verði
komist hjá því að öll bæjarstjórnin
sameinist um að leysa fjárhags-
vandann. Guðmundur segir að
minnihlutinn hatl boðið fram krafta
sína til að flnna lausn á fjárhags-
vandanum en meirihluti sjálfstæð-
ismanna liafi daufheyrst við því.
Samkvæmt reikningum bæjarsjóðs
sem lagðir vom fram til fyrri umræðu
á síðasta bæjarstjórnarf'undi skuldaði
bæjarsjóður 574,7 milljónir króna um
síðustu áramót. í árslok 1993 vom
skuldimar 393 milljónir en á árinu
1994 jukust þær uni 110 milljónir og
vom 503 milljónir í árslok. Skuldimar
jukust um rúmlega 71 milljón á
síðasta ári og höl'ðu þá hækkað um
liðlega 181 milljón á tveimur ámm.
Heildarskuldir bæjarsjóðs og stofn-
ana hans vom 1607,5 milljónir í árslok
1993, 1714 milljónir f árslok 1994 og
1848 milljónir um síðustu áramót. Um
er að ræða nettóskuldir sem jukust um
107 milljónir á milli áranna 1993 og
1994 og á síðasta ári jukust þær um
134 milljónir en í heild jukust
skuldirnar um 241 milljón á tveimur
ámm.
Guðmundur segir að hjá stofnunum
bæjarins hækki skuldimar mest hjá
hafnarsjóði eða úr tæplega 118
milljónum í tæpar 205 milljónir.
„Þessa hækkun má að mestu skýra
með smíði nýs lóðs sem samkvæmt
áætlun á að kosta um 110 milljónir,"
segir Guðmundur. „En það er athygl-
isvert að skuldir Bæjarveitna lækka úr
843 milljónum í 817 milljónir á
síðasta ári þrátt fyrir bókfærða eigna-
aukningu í Bæjarveitnahúsinu upp á
55 milljónir og hækkun á skuldum
Sorpeyðingarstöðvarinnar úr 178,3
milljónum í 185,7 eða um 7,3
milljónir eins og kemur fram í
reikningunum. Samtals eru þetta 63
milljónir sem sýnir að rekstur hita-
veitu, rafmagnsveitu og vatnsveitu eru
í góðu lagi.“
Guðmundur segist lengi hafa varað
við auknum skuldum bæjarsjóðs sem
hafa aukist um 182 milljónir á tveimur
árum. „Það alvarlegasta er að
reksturinn er alltaf að taka meira og
meira til sín af tekjum bæjarsjóðs.
Reyndar varð smá breyting í jákvæða
átt á síðasta ári en þá fer aðeins lægra
hlutfall af tekjum til reksturs en árið á
undan. Það er jákvætt þó lítið sé.“
Þegar Guðmundur er spurður hvaða
leiðir hann sjái út úr íjárhagsvanda
bæjarsjóðs segir hann að bæjarstjóm
verði öll að koma að málinu. „Bæði
hvað varðar gerð fjárhagsáætlunar og
þriggja ára áætlunar. Eins öll þau at-
riði er varða framkvæmdastjóm og
stefnumörkun í fjármálum og rekstri
bæjarins. Við höfum boðið fram að-
stoð okkar á hverju ári á þessu og
síðasta kjörtímabili en samstarfi hefur
verið hafnað af meirihluta sjálfstæðis-
manna. Það er miður og ég sé ekki að
þar verði nokkur breyting á þó full
þörf sé fyrir hendi eins og
reikningamir bera með sér,“ sagði
Guðmundur að lokum.
Leiksólanum Bjarnaborg:
Rekstri hætl í sumar
Meirihluti sjálfstæöismanna sam-
þykkti í félagsmálaráði að rekstri
leikskólans Bjarnaborgar verði
hætt frá og með 29. ágúst nk. að
lokinni sumarlokun. Fulltrúar
minnihlutans viðurkenna að rekst-
ur Bjarnaborgar sé óhagkvæmur
en telja rétt að byggja upp fleiri
leikskólapláss áður en öðrum
leikskólum verður lokað.
Þetta kemur fram í fundargerð fé-
lagsmálaráðs frá 30. apríl sl. I tillögu
meirihlutans er gert ráð fyrir því að
húsnæði Bjarnaborgar verði notað
undir starfsemi tengda gmnn-
skólunum samhliða yfirtöku
sveitarfélaga á rekstri gmnnskólanna.
„Bömum þeim sem nú em á leik-
skólanum mun verða tryggð pláss á
öðmm leikskólum bæjarins og starfs-
fólkinu boðin störf á öðmm
leikskólum Vestmannaeyjabæjar,"
segir í tillögunni.
Fulltrúar minnihlutans létu bóka að
þeim þætti lokunin vera í ósamræmi
við kosningaloforð núverandi
meirihluta um að útrýma biðlistum á
leikskóla. „Með lokun Bjamaborgar
og breytingum á Kirkjugerði hefur
a.m.k. heilsdagsplássum á leikskólum
fækkað, þrátt fyrir tilkomu reksturs
Hvítasunnusafnaðarins með styrk frá
bæjaryfirvöldum," segir í bókuninni.
Er henni fylgt eftir með spumingum
um hvemig staða á biðlistum fyrir
heilsdags og hálfsdagsplássum var
fyrir tveimur ámm og hvemig bið-
listinn er í dag. Eins er spurt hvemig
meirihlutinn ætlar sér efna loforð um
að útrýma biðlistum innan tveggja ára.
Svör vildu þeir fá á næsta fundi.
„Hvað fjölgun leiksskólaplássa í
Vestmannaeyjum varðar vill
meirihlutinn vekja athygli á því að
síðastliðið ár var fjölgað um sex
heilsdagspláss á Rauðagerði. Með til-
komu reksturs leikskólans í Betel og
væntanlegum breytingum á Kirkju-
gerði mun ekki verða um fækkun
heilsdagsplássa að ræða en hins vegar
mun hálfsdagsplássum fjölga um 43
þrátt fýrir lokun Bjamaborgar," segir í
bókun meirihlutans.
£dda Tegeder
kaupir Pizza
67 í Reykjovík
Edda Tegeder og fjölskylda hafa
keypt veitingastaðinn Pizza 67 við
Nethyl 2 í Reykjavík og ætla þau að
reka staðinn með svipuðunt hætti
og verið hefur.
Edda staðfesti þetta í samtali við
Fréttir á mánudaginn og segir hún að
Pizza 67 hafi verið með rekstur á
þessum stað í fimm ár. „Félagið, sem
kaupir veitingastaðinn, heitir Ysti-
klettur hf. og er skráð heima hjá mér
að Hrauntúni 35,“ segir Edda.
Sonur Eddu, Hermann Haraldsson,
verður framkvæmdastjóri og er hann
staddur í Kaupmannahöfn að kynna
sér nýjungar í veitingarekstri. Pizza
67 við Nethyl 2 tekur um 30 manns í
sæti en aðal áhersla verður lögð á
heimsendingarþjónustu.
Fjölskyldudagur
Barnaskólans
Laugardaginn 11. maí
Kl. 10.00 fara fram kappleikir í íþróttamiöstöö.
Barnaskóli og Hamarsskóli keppa í ýmsum
íþróttum.
Kl 13.00-16.00 færist fjöriö í Barnaskólann, þar
verður sýning á vinnu nemenda, 6. bekkur bakar
og selur vöfflur, 5. bekkur grillar pylsur og 9.
bekkur stýrir tívolíi í stofum 16 og 17. Skemmtun
verður í salnum og úti fara fram ýmsir leikir og
þrautir.
Nemendur og starfsfólk Barnaskólans.
Vestmannaeyingar
athugið!
Frá og með 1. maí varð breytíng á starfsemi og skipulagi
félagsþjónustu Vestmannaeyjabæjar.
Inngangur verður í kjallara Ráðhúss og afgreiðslutími
verður frá kl. 9.30-12.00 og 12.30 til 15.00.
Beinn sími féiagsþjónustunnar er 481-1092.
Símatímar verða sem hér segir:
Símatími félagsmálastjóra verður mánudaga og
föstudagafrá kl. 13-14, miðvikudaga frá kl. 11-12.
Símatími félagsráðgjafa verður mánudaga og fimmtudaga
frá kl. 11 -12, þriðjudaga frá kl. 13-14.
Símatími sálfræðings verður þriðjudaga og fimmtudaga
frá kl. 13-14, föstudaga frá kl. 11-12.
Sími á bæjarskrifstofunum verður áfram 481 -1088 en eftir
lokun skiptiborðs hringir sími 481-1089 á miðhæð en sími
481 -1090 á efstu hæð.
Diskó í Féló
Næsta laugardagskvöld kl. 18.30 til 21.30 verður diskó í
Féló fyrir 5., 6. og 7. bekk. Þetta er seinasta diskóið fyrir
sumarlokun í Féló.
Skráning íVinnuskólann
Upplýsingabæklingi tómstundaráðs um sumarstarfið
hefur verið dreift í alla bekki grunnskólanna. Með
bæklingnum fylgdi þátttökueyðublað í Vinnuskóla fyrir
nemendur í 7. og 8. bekk. Einnig fylgdi með
þátttökueyðublað fyrir Skólagarða fyrir nemendur í 5. og
6. bekk. Þátttökueyðublöðum átti að skila í skólana í
seinasta lagi 7. maí. Ef einhver hefur gleymt að skila inn
umsókn, þá er minnt á að skila ber umsókn strax.
Sett niður í Skólagarða
á laugardaginn
Á laugardaginn kl. 10.30 verða kartöflurnar settar niður í
Skólagarðana í Löngulág. Það er áríðandi að fullorðinn
mæti með barninu og hafi með sér skólfu og hrífu að
ógleymdu þátttökugjaldinu sem er 1500 krónur.
Þeim sem ætla að vera með, en gleymdu að innrita sig, er
bent á að mæta og við komum hlutunum í lag.
Starfsemin byrjar svo á fullum krafti 11. júní kl. 13.00.
Mætið vel og stundvíslega.
Tómstunda- og íþróttafulltrúi.