Fréttir - Eyjafréttir

Issue

Fréttir - Eyjafréttir - 09.05.1996, Page 10

Fréttir - Eyjafréttir - 09.05.1996, Page 10
10 Fréttir Fimmtudagur 9. maí 1996 Þorbergur Hjalti Jónsson skógfræðingur með fyrirlestur í setrinu: Klóreifrun vegna saliroks aðalástæða frjáskemmda og vaxfartregðu í trjágróðri Þótt reynt hafl verið að rækta tré í Vestmannaeyjum í a.m.k. 140 ár eru elstu tré á Heimaey 30-40 ára en ekki nema 3 til 4 m há. Lætur nærri að vöxtur trjáa sé 30-50% af því sem vænta má við góð skilyrði á Suðurlandi en svipaður og í öðrum sjávarplássum við Suður- og Vesturströndina. Klóreitrun vegna saltroks er aðalástæða trjá- skemmda og vaxtartregðu í trjá- gróðri í Eyjum. Þetta kom fram í fyrirlestri Vestmannaeyingsins Þorbergs Hjalta Jónssonar (Hjalta- sonar hæstaréttarlögmanns) skóg- fræðings í Rannsóknasetrinu sl. laugardag um trjárækt. Þorbergur er skógfræðingur að mennt og starfaði um langt skeið hjá Rannsóknastöð Skógræktar ríkis- ins en er nú sérfræðingur í birki- rannsóknum á Náttúrufræðistofu Islands auk sjálfstæðra rannsók- naverkefna. Erindið scm Þor- bergur Hjalti flutti var árangur rannsókna sem hann hefur stun- dað sl. tvö ár í samstarfl við útibú Islandsbanka í Eyjum. Tilgangur rannsóknanna er tvíþættur. Ann- ars vegar að skilja hvað valdi því að ræktun trjáa og runna er erflð í Eyjum. Hins vegar að finna rækt- unaraðferðir sem bætt geti árang- ur trjáræktarstarfsins. Þorbergur Hjalti sagði að trjárækt í Eyjum ætti sér langa sögu þótt svo kunni ekki að virðast. Fyrst er sagt frá gróðursetningu trjáa í Eyjum um 1855. Það ár var ruddur vagnfær vegur í Herjólfsdal. Biyde kaup- maður lét þá gera trjáa- og blómagarð í dalnum sem hann nefndi Þórulund eftir konu sinni. Engar heimildir eru Náttú r uf ræði ngar Náttúrustofa Suðurlands í Vestmannaeyjum - Staða forstöðumanns - í samræmi við lög nr. 60/1992 og reglugerð nr. 643/1995 óskar stjórn Náttúrustofu Suðurlands í Vestmannaeyjum eftirforstöðumanni. Starfssvið: Forstöðumaður ber ábyrgð á daglegum rekstri stofunnar, semur rekstraráætl- anir, mótar rannsóknastefnu og ræður starfslið með samþykki stjórnar. Hann er í fyrirsvari fyrir stofuna og annast samskipti út á við. Gert er ráð fyrir að hluti starfsins felist í rannsóknum. Leitað er eftir náttúrufræðingi. Starfið krefst góðra skipulagshæfileika, sjálfstæðra vin- nubragða, frumkvæðis, samviskusemi, lipurðar í samstarfi og umgengni við fólk. Umsækjendur skulu vera vel máli farnir og ritfærir. í boði er fjölbreytt, krefjandi og áhugavert starf við að byggja upp og skipuleggja náttúru- rannsóknir á Suðurlandi og taka þátt í að móta framtíðarstefnu stofunnar. Staðan er veitt til 5 ára. Viðkomandi þarf að geta hafið störf 1. júlí nk. eða eftir nánara samkomulagi. Nánari upplýsingar um starfið veita formaður stjórnar, Svanhildur Guðlaugsdóttir hs. 481- 2041 og vs. 897-1155 eða Guðmundur Þ.B. Ólafsson, hs. 481-1774 og vs. 481-1980. Umsóknir ásamt ítarlegum upplýsingum um menntun og störf berist til Náttúrustofu Suðurlands, Ráðhúsinu, Vestmannaeyjum, eigi síðaren 8. júní 1996. Stjórn Náttúrustofu Suðurlands í Vestmannaeyjum Möguleikar til trjáræktur á víðavangi án umhirðu eru litlir. um trjárækt í upphafi þessarar aldar en árið 1931 varstofnað skógræktar- félag sem girti svæði út í hrauni og plantaði töluverðu í það fyrstu árin. Síðustu 40-50 árin hefur töluvert verið gróðursett í garða. Samt seni áður er árangurinn ekki mikill. En hvers vegna? Þorbergur Hjalti sagði að loftslagið réði einna mestu um hvaða tegundir þrífast og hve vel þær vaxa. Sumar- hitinn er mikilvægasti vaxtarþátturinn og í Eyjum væri fremur sunuuiilýtt en fáir heitir dagar. I Eyjum er lítil hætta á að frostið komi plöntunum að óvörum og haustkalshætta því fremur lítil. Vetrarkuldi ætti ekki að standa nema allra viðkvæmustu tegundum fyrir þrifum og hér koma oft langir hlýindakaflar um miðjan vetur. Það veldur því að tegundir úr meginland- sloftslagi geta vaknað af vetrardvala og kalið í vorhretum. Hér er úrkoma fremur mikil og hagstæð tijágróðri en vindasamt og hvassviðri tíð. Almenn virðist því tíðarfar í Eyjum fremur hagstætt trjágróðri. En hvers vegna kala trén þá illa og hækka lítið. Þorbergur Hjalti sagði ljóst að klóreitrun vegna saltroks væri aðal- ástæða trjáskemmda og vaxtartregðu í tijágróðri í Eyjum. Skilyrðin eru að öðru leyti fremur hagstæð fyrir tijá- gróður úr strandloftslagi og síst verri en víða annars staðar á sunnanverðu landinu. Af þessu leiðir að ef hægt er að vinna á klóreitruninni eru góðar von um árangur. Með réttu vali tegunda, kynbótum og réttri ræktu- naraðferð megi rækta tijágróður með góðum árangri í göðrum og við torg bæjarins. Möguleikar tijáræktar á víðavangi án umhirðu eru hins vegar litlir. Fyrirlesturinn var mjög vel sóttur. Fyrirlestur um vaxtarþroska og sykurát barna: Hæltið að bertt bömin um allt - og gefið þeim sem fjölbreyttasta fæðu í stað bætiefna Hættið að bera börnin um allt heldur leyfið þeim að hreyfa sig. Og hafið fæðu barna sem fjölbreyttasta í stað þess að gefa þeini bætiefni. Þetta voru heillaráð sem foreldrum voru gefin á fróðlegum og skemmti- legum fyrirlestrum urn hreyfingu og sykurát barna í síðustu viku sem haldinn var á vegum foreldrafélag- anna á leikskólunum í Eyjum. Foreldrar kunnu mjög vel að meta þetta framtak foreldrafélaganna því aðsókn var mjög góð. Olöf Heiða Elíasdóttir leikfimi- kennari flutti fyrirlestur um hreyfi- þroska bama og mismunandi stig hans. Helsta hreyfiþroskaskeið bama er á forskólaaldri. í 1. bekk Bama- skólans hefur Olöf Heiða lagt hreyfi- þroskapróf fyrir nemendur og fór hún í gegnurn það. Rest böm em vel stödd í hreyfiþroska en önnur illa stödd. Aldurinn 7 til 11 ára er best til þess fallinn að kenna bömum íþróttir. Olöf Heiða lagði mikla áherslu á að á þessum aldri fengju þau rétta kennslu í íþróttum, af menntuðu fólki og að æfingar væm sem fjölbreyttastar. Á gelgjuskeiðinu verður brottfall stúlkna úr íþróttum áberandi og sagði Ólöf Heiða að þá „linuðust’’ stúlkumar en strákamir yrðu harðari af sér. Algengt er að sjá foreldra halda á bömum út í bíl, á leikskólann, inn í hús o.s.frv. Og þegar heim er komið eftir vinnudaginn er bömunum plant- að fyrir framan sjónvarpið og svo er farið að sofa. Ólöf Heiða sagði mikil- vægt að foreldrar leyfðu krökkunum að hreyfa sig sem mest sjálf og væm ekki að halda á þeim í tíma og ótíma. Foreldrar mættu ekki hefta orku hjá Afmæli Kristján Valur Óskarsson verður fimmtugur 13. maí nk. Hann tekur á móti gestum í Kiwanis laugar- daginn 11. maí frá kl. 20:00. krökkunum því offita gæti verið fylgi- kvilli. Þá gæti rangur hreyfiþroski haft áhrif á námsárangur síðar. „Fólk fer út og viðrar hundinn sinn og á meðan situr bamið inn íbfl. Leyfið bömunum líka að hreyfa sig, það kemur þeim til góða seinna meir," sagði Ólöf Heiða. Ohófleg sykurneysla Iris Þórðadóttir hjúkmnarfræðingur, fjallaði um sykurneyslu barna. Hún sagði að tíu prósent af fæðu barna ætti að vera sykur. Hins vegar væri meðal sykumeysla á ísland 19-21 %.,Jslend- ingar eru hræðilegar sykurætur og þetta er ekkerl annað en ávani og fíkn." sagði íris. Htin taldi vatns- drykku bama ábótavant og varpaði fram þeirri spurningu hvort sykur hefði áhrif á hegðun bama?I fyrsta lagi sagði íris að ef börnum vantaði undirstöðu eins og B-vítamín gæti sykurátið haft í för með sér örlyndi sem leiddi af sér ákveðið hegðunar- vandamál. I öðm lagi hefðu áhrif jámskorts bein áhrif á skaplyndi, ein- beitingu og náinshæfileika sem lýsti sér í áhugaleysi og óróleika. íris lagði mikla áherslu á að ekki ætti að gefa bömum bætiefni heldur ættu þau að fá sem fjölbreyttasta fæðu. Lýsi væri reyndar mjög hollt og gott. í þriðja lagi tók Iris barnaafmæli sem dæmi þar sem sykurinn hleypir fjöri í mannskapinn. Líkleg skýring á því gætu verið viss efnaskiptavandamál í nýra. Iris tók einnig fram að ekki mætti kenna sykumeyslu um allan óróleika. Þar skipti einnig máli reglulegur svefn. Og svona til gamans má geta þess að fyrir pizzuunnendur em það góðar fréttir að Iris mælti með pizzum sem skyndibita, þ.e. ef álegg væri í hófi! íris hjúkrunarfræðngur.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.