Fréttir - Eyjafréttir - 09.05.1996, Side 14
Félagar úr heimsstjórn Kiwanis í heimsókn sinni í Eyjum.
Heimssfjérn Kiwanis í Eyjum
Fimmtudagur 9. maí 1996
Áburðar- og
útsæðissala
ÍBV
er á planinu fyrir framan
Týsheimilið og verður næsta
daga frá kl. 13:00.
Athugið að áburðarkalkið er
komið.
Sendum heim.
Símboði 845-2827.
Á laugardaginn var heimsótti
heimsstjórn Kiwanishreyfíngarinn-
ar Vestmannaeyjar með heimsfor-
setann, Eyjólf Sigurðsson í broddi
fylkingar. Alls komu 27 manns til
Eyja og tóku félagar úr Kiwanis-
klúbbnum Helgafelli á móti hópn-
um. Fyrir hádegi var farið með
fólkið í skoðunarferð í rútu um
Heimaey og í stutta bátsferð út í
Klettshelli. Eftir hádegisverð í
Kiwanishúsinu, var haldið upp í
Félagsheimili og skoðuð mynd um
eldgosið í Eyjum og uppbygginguna
að því loknu. Að lokum var Fiska
og Náttúrugripasafnið heimsótt og
þar boðið upp á hressingu af
Bæjarstjórn Vestmannaeyja. Er
ekki að orðlengja það að gestirnir
voru yfir sig hrifnir af öllu sem fyrir
augu bar í náttúru Eyjanna og lýstu
sumir því yfír að hingað mundu
þeir koma aftur seinna.
Eins og áður segir er Islendingurinn
Eyjólfur Sigurðsson heimsforseti þetta
starfsár. Til gamans má geta þess að
Eyjólfur ólst upp hér í Vestmanna-
eyjum fyrstu æviár sín.
Á starfsári sínu sem heimsforseti
hefúr hann ferðast um allan heim fyrir
Kiwanishreyfinguna, einkum til að
efía verkefni hreyfingarinnar um að
útrýma joðskorti í heiminum. Til
marks um annir Eyjólfs í þessu starfi
er að hann dvelur einungis 30 daga hér
heima á Islandi á þessu starfsári.
Joðskortur hrjáir marga jarðarbúa og
veldur alvarlegum sjúkdómum.
Kiwanishreyfingin hefur sett sér það
Knattspyrnuráð ÍBV
SJÓVE
Hafsteinn Guðfinnsson, formaður Kiwanisklúbbsins Helgafells og heims-
forsetinn Eyjólfur Sigurðsson.
Opið hús verður í húsnæði
félagsins dagana 9., 10. og i I.
maí.
Fluguhnýtingar.
Heittá könnunni.
Húsið opnar kl. 20:30.
Skráning á hvítasunnumót er
hafin í síma 481-1279.
að markmiði að útrýmajoðskorti fyrir
árið 2000. Er það fyrst og fremst gert
með því að byggja verksmiðjur sem
blanda joði f matarsalt. Sá skammtur
sem fólk fær með notkun slíks salts,
nægir lil að útrýma joðskorti.
Eyjólfur hefur bryddað upp á
ýmsum nýjungum í starfí heims-
stjómar á starfsári sínu sem heims-
forseti. Eitt af því er að halda einn
fund heimsstjórnar utan Bandaríkj-
anna en þar er aðalaðsetur hreyfing-
arinnar. Fékk hann því framgengt að
fundur heimsstjómar var haldinn í
Reykjavík 28. apríl til 3. maí síðast-
liðinn. Er þetta fyrsti fundur
heimsstjórnar sem haldinn er utan
Bandaríkjanna í sögu hreyfingarinnar.
Stjórnin
Eyjastúlkur í danskeppni í samkvæmisdönsum:
Tvær komust í úrslit
Þrjú danspör frá Dansskóla
Súsönnu Georgsdóttur í Eyjum
tóku þátt í Islandsmótinu í
samkvæmisdönsum um sl. helgi.
Mótið fór fram í íþróttahúsinu við
Strandgötu í Hafnarfirði. Stúlk-
urnar, sem allar eru á aldrinum
11-12 ára, stóðu sig með mikilli
prýði þótt engin hlytu þær
verðlaunin að þessu sinni, enda að
etja kappi við þrautþjálfaða
dansara. Eftir því sem best er vitað
er þetta í fyrsta sinn sem dansarar
héðan taka þátt í íslandsmóti í
samkvæmisdönsum.
Keppt var bæði laugardag og
sunnudag. Fyrri daginn var keppt í
suður-amerískum dönsum, þ.e. jive
og cha cha cha. Tuttugu og tvö pör
hófu keppni og komust þær Hildur
Georgsdóttir (Lámssonar) og Guðný
Gunnlaugsdóttir (Gunnlaugssonar) í
12 manna undanúrslit.
Síðari daginn var keppt í valsi og
quick step, svokölluðum „standard”
dönsum. Þar féllu Eyjapörin út í
Eyjastelpurnar sem tóku þátt í danskeppninni ásamt Súsönnu danskennara.
fyrstu umferð þrátt fyrir góða takta. Þátttakendur frá Eyjum vom þær laugsdóttir, Hildur Georgsdóttir, Erla
Lauk þar með þátttöku Eyjastúlkna að Ásta Hrönn Guðmannsdóttir, Dóra Ásmundsdóttir og Jessý Friðbjamar-
þessu sinni. Dúna Sighvatsdóttir, Guðný Gunn- dóttir
Sett niður
í Skóltt'
garðana á
laugardag
Á laugardaginn kl. 10:30 verða
kartöflurnar settar niður í
skólagörðunum.
Starfsvæði garðanna er í
Löngulág og em mamma eða
pabbi beðin um að mæta með
baminu og aðstoða við niðursetn-
inguna. Gott er að hafa með sér
skóflu og hrífu og svo auðvitað
þátttökugjaldið sem er 1.500
krónur.
Þeir sem eiga ekki heimangengt
geta haft samband við undirritaðan
og þá fínnum við annan tíma.
Einnig em þeir sem gleymdu að
skrá sig, en vilja vera með, bent á
að mæta og við kippum hlutunum
í lag.
Sjáumst hress á laugardaginn.
Tómstunda-og
íþróttafulltrúi.