Fréttir - Eyjafréttir

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttir - Eyjafréttir - 16.10.1997, Qupperneq 1

Fréttir - Eyjafréttir - 16.10.1997, Qupperneq 1
Styttist í kennaraverkfall: -Bæjarstjórn fundaði meó kennurum: Obætanlegt t/ón kemi til aðgerða -er sameiginleg niðurstaða funmins Með hverjum deginum sem líður styttist í boðað verkfall grunn- skólakennara. Það mun hefjast mánudaginn 27. október, hafi ekki samist fyrir þann tíma, og þar með lamast öll starfsemi grunnskól- anna. Á þriðjudag boðaði bæjarstjóm Vestmannaeyja til fundar með grunn- skólakennurum í Vestmannaeyjum þar sem málin voru rædd. Eftirfar- andi ályktun var samþykkt á fund- inum: „Fundur bæjarstjómar Vestmanna- eyja og grunnskólakennara í Vest- mannaeyjum telur það vera sameiginlegt verkefni sveitarstjómar- manna og grunnskólakennara að tryggja að góður og öflugur grunn- skóli sé í hverju sveitarfélagi. Það tekst ekki nema innan hans starfi hæft og vel menntað starfsfólk sem er sátt við kaup, kjör og starfsaðstæður. Kjarasantningar kennara verða einnig að taka mið af þeim breytingum sem lög krefjast á hverjum tíma, nú til dæmis breytingum sem verða við einsetningu gmnskólans. Bæjarfulltrúar og grunnskólakenn- arar eru sammála um að verkföll kennara valdi grunnskólunum óbætanlegu tjóni og því verði að grípa til allra tiltækra ráða til að koma í veg fyrir að til frekari slíkra aðgerða komi. Þá vill fundurinn benda á að færa megi sterk rök fyrir því að alvarleg kjaramálaátök milli sveitarfélaga og kennara hafi mun skaðlegri áhrif á landsbyggðinni en á höfuðborgar- svæðinu. Fundurinn vill beina þeirri ein- dregnu áskomn til samninganefnda Lítil þátttaka í vor kom fram ósk í bæjarráði um það að Vestmannaeyjabær léti kanna ástæður þess að Vest- mannaeyingar flyttu frá Eyjum. Brugðist var snöfurmannlega við þessum óskum og hafa nú niðurstöður könnunarinnar litið dagsins ljós. Þó ekki sé ástæða til að taka niður- stöðumar of alvarlega vegna þess hve fáir svöruðu, þá er Ijóst að könnunin getur verið leiðbeinandi fyrir ráða- menn bæjarins og bæjarbúa sjálfa um það hvar skórinn kreppir að. Aðeins bárust 62 svör af 217 bréfum sem send vom út. Það þýðir og er kannski umhugsunarvert að 155 aðilar skyldu hunsa könnunina. Kannski eru það ákveðin skilaboð til Vestmanna- eyjabæjar og segir jafnvel meira heldur en svör þeirra sem skiluðu sér til baka. Sjá nánar á bls. 15. sveitarfélaganna og kennarasamtak- anna að nýhöfnum viðræðum milli þeirra um nýjan kjarasamning verði ekki slitið fyrr en niðurstaða er fengin.” Samkvæmt þessu er fullur vilji bæjarstjómar til að leysa deiluna. En málið er í höndum samninganefndar sveitarfélaganna og þessi deila snýst um peninga og hvaðan eigi að taka þá. Boðað var til fundar hjá sáttasemjara á þriðjudag en ekki mun sá fundur hafa aukið mönnum bjartsýni á að lausn sé í sjónmáli. Að öllu óbreyttu stefnir því í verkfall. Á þriðjudag var haldinn fundur í Foreldrafélagi Bamaskóla Vest- mannaeyja. Þar var þessi ályktun samþykkt: „Foreldrafélag BV vill lýsa yfir þungum áhyggjum sínum vegna yfirstandandi kjaradeilu kennara og samninganefndar sveitarfélaga. Við foreldrar getum ekki sætt okkur við að enn einu sinni skuli stefna í verkfall hjá bömum okkar. Er metnaður hjá sveitarfélögum ekki meiri en svo að þeir sitji hjá og feli sig bak við launanefnd sveitarfélaga? Það er krafa okkar foreldra að kennarar fái nauðsynlegar kjarabætur svo að komist verði hjá stórfelldum flótta úr stéttinni. Við verðum að hugsa um framtíð bama okkar í þessu máli. Við verðum að tryggja þeim bestu fáanlega menntun þvf að um leið erum við að tryggja hag þessarar þjóðar um ókomna framtíð.” HauststiHur Ljósmynd: Óskar Björgvinsson ÖLL ERUMIHO BLÓMÍSAMA GARÐIí síðustu viku varhaldin vinavika í Hamarsskóla. Til að undirstrika að öll erum við afsama meiði, var útbúið listaverkþar sem allir nemendur og starfsfólk áttu sitt blóm. Börkur tekinn við Börkur Grímsson tók í gær við stöðu útibússtjóra Islandsbanka í Vestmannaeyjum. Um leið lét Aðalsteinn Sigurjónsson af störfum. Aðalsteinn, sem á að baki langan og farsælan starfsferil í bankanum, tók við starfi útibússtjóra þann 15. október 1987. Hann hafði því gegnt starfinu í nákvæmlega tíu ár þegar hann lét stólinn af hendi til Barkar. Staðan var auglýst en ekki fékkst uppgefið hvað margir sóttu um en þess má geta að útibú íslandsbanka í Vestmannaeyjum er stærsta eða næststærsta útibú bankans. Börkur er 33 ára viðskiptafræð- ingur. Hann starfaði í þrjú ár að loknu námi á Endurskoðunar- skrifstofu Sig. Stefánssonar f Vest- mannaeyjum. Árið 1995 vann hann sex mánuði í íslandsbanka þar til hann réðst sem fjármálastjóri til Vinnslustöðvarinnar. Þar var hann í eitt og hálft ár en þann 1. febrúar sl.. var hann ráðinn aðstoðarútibússtjóri Islandsbanka í Eyjum. Börkur er kvæntur Guðrúnu Sigurgeirsdóttur, Jónassonar frá Skuld, og eiga þau tvær dætur. Börkur Grímsson útibússtjóri. GGI IR LDUNA gingamálain á ~ Hægilegan hr Bílaverkstæðið BRAGGINN s/f. RÉTTINGAR OG SPRAUTUN: Flötum 20 - Sími 481 1535 VIÐGERÐIR OG SMURSTÖÐ: Græðisbraut 1 - sími 48132 Vetra ráœtl u n Frá Eyjum: Frá Þorl.höfn: Alla daga nema sun. Kl. 08:15 Kl. 12:00 Aukaferöir föstudaga Kl: 15:30 Kl: 19:00 sunnudaga Kl: 14.00 Kl: 18.00 Ucrjólfur BRUAR BILIÐ Sími 481 2800 Fax 481 2991

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.