Fréttir - Eyjafréttir - 16.10.1997, Síða 2
2
Fréttir
Fimmtudagur 9. október i 997
Rólegheitaástand
I dagbók lögreglunnar, frá þriðju-
degi í síðustu viku til þriðjudags í
þessari viku, voru alls 175 færslur
sem er nokkru færra en var vikuna
þar áður. Vikan var fremur róleg,
ekki miklar annir hjá lögreglu og
sögðu lögreglumenn, senr voru á
vakt um helgina að síminn hefði
varla hringt. Hins vegar er tjöldi
útkalla ekki mælikvarði á störf
lögreglu því að lögreglan sinnir
töluverðri forvarnarvinnu með því
að vera sjáanleg í umferðinni og
inni á skemmtistöðum við eftirlit.
Reiðhjólum stolið
Tvívegis var þjófnaður á reiðhjól-
um tilkynntur til lögreglu í vikunni.
Það er allt of algengt að reiðhjólum
sé stolið og vill Iögreglan benda
hjólaeigendum á að gæta betur að
hjólum sínum. Þetta á sérstaklega
við um helgar þegar fólk er undir
áhrifum áfengis og notar þá
hjólfákana til að komast leiðar
sinnar. Skiptir þá ekki máli hver á
viðkomandi hjól.
Tvö brunaútköll
Á fimmtudag í síðustu viku var
tvisvar tilkynnt um eld og liðu
aðeins þrjár klukkustundir milli
útkalla. Rétt fyrir kl. 14 var til-
kynnt um mikinn reyk að Skóla-
vegi 31 og var slökkviliðið ræst út.
Reyndist vera um hitablásara að
ræða sem ósaði svo mikið að húsið
fylltist af reyk. Ekki urðu miklar
skemmdir af en endurbætur standa
yfiráhúsinu. Ogkl. 17vartilkynnt
um mikinn reyk um borð í Baldri
VE þar sem báturinn lá við bryggju
inni íFriðarhöfn. Slökkviliðið var
kallað út og reyndist reykurinn
stafa frá rafmagnstöflu. þátlar
skemmdir urðu, aðallega vegna
reyks.
Umferðar-
lagabrot
Alls voru fjögur umferðarlagabrot
kærð í vikunni og voru tvö þeirra
minni háttar. í einu tilvikinu var
um að ræða gáleysisakstur þar sem
bifreið var snúið við, öðrum
vegfarendum til óþæginda og
hættu. Þá var ökumaður staðinn að
hraðakstri á Hamarsvegi og
mældist hann á 75 km hraða.
Féll niður í lest
Á föstudagsmorgun í síðustu viku
var tilkynnt um vinnuslys um borð
í Danska Pétri. maður hafði fallið
niður í lest skipsins þegar unnið var
við löndun og skarst hann á höfði.
Hann var lagður inn á sjúkrahúsið
en mun ekki alvarlega slasaður.
Skemmdar-
verk á bíl
Aðfaranótt laugardags var unnið
skemmdarverk á bifreið sem stóð
við Bárustíg 11. Bifreiðin hafði
verið rispuð. Lögreglan óskar eftir
upplýsingum um málið.
Ekkert bréf
frá Oddi
Á fundi bæjarráðs sl. þriðjudag má
segja að helst hat'i borið til tíðinda
að ekkert bréf lá frammi frá Oddi
Júlíussyni en hann hefur verið
einkar iðinn við bréfaskriftir til
bæjarráðs á undanförnum vikum.
Aftur á móti lítur út fyrir að þessi
áhugi Odds hafi smitað út frá sér
því alls lágu tyrir sjö brét' úr ýmsum
áttum, flest frá opinberum aðilum.
Byr fékk
engan
túnfísk
Byr VE sem hélt til túnfiskveiða í
síðustu viku kom inn í seint á
þiðjudagskvöldið.
Sveinn Valgeirsson skipstjóri á Byr
segir að ferðin hafi gengið vel, þó
aflinn hafi ekki verið í samræmi við
væntingar. Hann segir að um 30 skip
hafi verið að veiðum fyrir utan 200
mílumar.
„Við fengum engan fisk og
ástæðan kannski fyrst og fremst sú að
sjórinn var of kaldur. Samkvæmt
upplýsingum sem við fengum frá
íslenskum eftirlitsmönnum um borð í
japönsku skipunum sem voru á
svæðinu var lfka tregt hjá þeim.
Japanamir vom að fá þetta frá tveimur
og upp í þrjúhundruð kíló. Við
fréttum þó af einum sem komst í
eitthvað hlýrri sjó og fékk tvö tonn á
svipuðum slóðum og við vorum að
reyna. Japanamir og fleiri þjóðir eru
með áratuga reynslu af þessum veið-
um, svo þeir stahda betur að vígi.“
Sveinn segir að þeir muni þó ekkert
hætta við að gera út á túnfiskinn. „Við
höldum áfram að undirbúa okkur í
vetur og gera okkur klára fyrir næsta
sumar. Þá ætlum við að vera komnir
með eingirnislínu og vera búnir að
kynna okkur túnfiskslóðir betur. Einn
færeyskur skipstjóri sem ég talaði við
á heimleiðinni sagði mér að hann
hefði verið á frönsku túnfiskveiðiskipi
bara til þess að kynna sér aðferðir og
vinnubrögð. Kannski maður fari í
einn svona kynningartúr eða nám-
skeið sjálfur.“
Sveinn segir að áhöfnin muni ekki
láta deigan síga en Byr hélt til
hvítlúðuveiða í gærkvöldi.
SÍLDIN KOMIN Gullberg VE kom með fyrstu síldina á
vertíðinni á mánudaginn. Aflinn, 300 tonn, fór til vinnslu í
Vinnslustöðinni.
Vilja sjónvarpa
frá fundum
bæjarstjórnar
Fyrir fundi bæjarráðs lá bréf frá
Fjölsýn hf. þar sem óskað er eftir að
fá að taka bæjarstjómarfundi upp á
myndband. Verði þeir síðan sýndir
á sjónvarpsrás Fjölsýnar. Forseti
bæjarstjórnar hafði kynnt þetta
erindi á síðastafundi bæjarstjómar
og fól bæjarráð honum og
bæjarstjóra að ræða nánar við
bréfritara. Því kynni svo að fara að
bæjarbúar gætu á næstunni fylgst
með bæjarstjómarfundum án þess
að niæta á svæðið.
Ingi ráðinn
Á fundi bæjarráðs á þriðjudag lágu
fyrir þrjár umsóknir um starf
byggingafulltrúa bæjarins þar af ein
frá heimamanni. Þær voru frá
Trausta S. Harðarsyni, Hafnarfirði,
Þórólfi Oskarssyni. Reykjavík og
Inga Sigurðssyni, Hólagötu 10
Vestmannaeyjum. Samþykkt var
að ráða Inga Sigurðsson í starfið.
Ljósmyndasýning
Morgunblaðs-
manna í hús
Herjólfs
Þessa dagana stendur yfir sýning á
ljósmyndum fréttararitara Morgun-
blaðsins í liúsi Herjólfs á
Básaskersbryggju.
Þar em myndir sem fengu
verðlaun og viðurkenningar hjá
blaðinu sl. vor. Sýningin hefurfarið
um allt land og em Vestmannaeyjar
síðasti viðkomustaðurinn.
D)
<D
3
tC
<
Af sameignum
Nú á dögunum var stofnað stórmerkilegt félag.
Það er félag þeirra sem segja að óréttmætt sé
að útdeila fiskveiðikvótanum á þann hátt sem
gert hefur verið síðan upp var tekið að
skammta aðgang að fiski í sjó. Margir gerðust
stofnfélagar á þessum fyrsta fundi, þar á meðal
fyiTverandi sjávarútvegsráðhen'ar og a.m.k.
einn núverandi seðlabankastjóri. Það vakti
nokkra furðu skrifara að hann skyldi vera í
hópi fundarmanna, hann hefur verið öllu
kunnari fyrir það á síðustu misserum að vilja
ganga nánast óheftur í sjóði landsmanna og
brúka úr þeim fé til eigin þaifa, að vfsu einkar
gagnlegra þaifa fyrir land og lýð.
En þetta nýstofnaða félag ætlar sem sé að
einbeita sér gegn því óréttlæti að fáeinir
stórlaxar geti gengið í sameiginlega auðlind
landsmanna og eignað sér hana og er það
einkar gott og göfugt málefni. Einhvers staðar
las skrifari á dögunum að væri verðmæti
auðlindarinnar skipt jafnt milli allra núlifandi
Islendinga, kæmu um 740 þúsundir króna í
hlut hvers og eins. Vissulega væri það nú ekki
ónýtt. til að mynda fyrir fjöguna eða fimma
manna fjölskyldu ef stjómvöld ákvæðu að
borga þetta bara út í eitt skipti fyrir öll.
Kannski væri það líka besta lausnin, þá hættu
menn væntanlega að rötla yfir því að fá ekki
að njóta þessarar sameiginlegu auðlindar.
Skrifari hefur líka heyrt menn halda því fram í
blákaldri alvöru að þeir eigi heimtingu á að fá
sinn skerf greiddan út. Samkvæmt landslög-
um sé þetta sameign allra og því hljóti þeir að
eiga rétt á greiðslu. Hætt er nú við að aukast
myndu sólarlandaferðir landsmanna og
bílaflotinn endumýjaður hraustlega yrði t'arið
að borga út. En það eru víst litiar líkur á þvf.
Það vekur líka upp spumingar, hvort slíkt
samræmdist með öllu jafnrétti. Ef greitt væri
út á morgun og allir fengju jafnt, auðlindinni
skipt upp milli allra núlifandi Islendinga, hvert
yrði þá hlutskipti þeiira sem fæðast eftir
morgundaginn? Þeir myndu væntanlega
fæðast inn í auðlindarlaust þjóðfélag og fengju
enga aura í sína vasa.
Eitt af því sem hið nýstofnaða félag mun
væntanlega berjast fyrir, verður trúlega að
settur verði skattur á þá sem nýta auðlindina,
svonefnt veiðileyfagjald. Mikill styrr hefur
staðið um það frá því að fyrst var minnst á
þann möguleika að leggja slíkt gjald á
útgerðina. Þeir sem standa utan útgerðar eru
því vitanlega mjög hlynntir (menn eru alltaf
hlynntir skattlagningu sem kemur ekki við þá
sjálfa). En útgerðaraðilar em ekki eins hrifnir
af hugmyndinni og er það sjónarmið vel
skiljanlegt. Þeir hafa bent á að það fé, sem
fæst með slfkri innheimtu, muni að stórum
hluta koma frá útgerðarstöðum á lands-
byggðinni en muni að öllum líkindum renna
nær óheft á höfuðborgarsvæðið. Þetta verði
því dreifbýlisskattur og fjánnagnið notað fyrir
sunnan.
En svo er líka annað sjónarhom á þessu máli
sem skrifari hefur ekki enn heyrt að velt hafi
verið upp á borðið. Væri ekki til í málinu að
útgerðarmenn fengju greitt t'yrir að nýta
auðlindina í þágu okkar hinna? í stað þess að
leggja auknar álögur á þá, myndum við (sem
þykjumst eiga auðlindina) greiða þeim
hæfilegt gjald fyrir þá þjónustu sem þeir veita
okkur og standa með því undir nær öllum
litflutningstekjum þjóðarinnar. Sennilega væri
miklu nær að fara þessa leið. Almenningur
hefur ekki hundsvit á hvemig á að fara með
peninga, það hafa útgerðarmenn aftur á móti
og ekki vafamál að þeir myndu ávaxta þessar
greiðslur á hagnýtan máta. Og vitanlega þarf í
leiðinni að breyta þeim fáviskulegu lögum
sem segja að allir landsmenn eigi auðlindina.
Lögum, sem ekki standast, verður að breyta.
Og auðvitað er það miklu eðlilegra að láta
laganna bókstaf hljóða á þann hátt að
útvegsmenn eigi auðlindina. Þeir hafa haft á
henni eignarhald á undanfömum ámm og því
eðlilegt að sá réttur þeirra verði staðfestur með
lögum. Þar með væri líka úr sögunni að fávís
almenningur væri að röfla um einhverja
sameiginlega eign og aftur yrði friðvænlegra í
þjóðfélaginu. En einhvem veginn hefur
skrifari það á tilfinningunni að þessar
hugmyndir eigi lítinn hljómgrunn og nýja
félagið muni ekki taka þeim tveim höndum.
Það eru því allar líkur á að enn um sinn verði
rifist og röflað um þessa margnefndu sameign
okkar sem er. þegar allt kemur til alls, akkúrat
engin sameign.
Sigurg.
\
FRÉTTIR
Útgefandi: Eyjaprent hf. Vestmannaeyjum. Ritstjóri: Ómar Garðarsson. Fréttastjóri: Þorsteinn
Gunnarsson. Abyrgðarmenn: Ómar Garðarsson & Gísli Valtýsson. Prentvinnæ Eyjaprent hf.
Vestmannaeyjum. Aðsetur ritstjórnar: Strandvegi 47II. hæð. Sími: 481-3310. Myndriti: 481-
1293. Netfang/rafpóstur: frettir@eyjar.is. FRÉTTIR koma út alla fimmtudaga. Blaðið er selt I
áskrift og einnig í lausasölu í Turninum, Kletti, Novu, Skýlinu, Tvistinum, Amigo, Kránni, Búrinu,
Vöruval, Herjólfi, Flugvallarversluninni, Tanganum, Söluskálanum. I Reykjavík: hjá Esso Stóragerði
og I Flugteríunni á Reykjavíkurflugvelli. FRÉTTIR eru prentaðar í 2000 eintökum. FRÉTTIR eru
aðilar að Samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða. Eftirprentun, hljóðritun, notkun Ijósmynda og
annað er óheimilt nema heimilda sé getið.