Fréttir - Eyjafréttir

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttir - Eyjafréttir - 16.10.1997, Qupperneq 8

Fréttir - Eyjafréttir - 16.10.1997, Qupperneq 8
8 Fréttir Fimmtudagur 16. október 1997 Landakirkja: Rokkað i Jesú nafni ÖÐRU VÍSI MÉR ÁÐUR BRÁ. Dee Seven og Jórunn fluttu kraftmikiö og gott rokk í Rokkmessunni á sunnudagskvöldið. HÁTT í 400 manns sóttu fyrstu rokkmessu vetrarins. Það var líf og fjör í rokkmessu sem efnt var til á sunnudagskvöldið í Landakirkju. Tónlistin, sem var kröftugt rokk, minnti á engan hátt á hefðbundna kirkjutónlist cn hún virtist engu síður falla hátt í 400 kirkjugcstum vel í geð. Þetta er tjórði veturinn sem staðið er fyrir poppmessum í Landakirkju. Þær hafa notið vinsælda sem virðast ætla að haldast ef marka má aðsókn- ina á sunnudagskvöldið. Hljómsveitin Dee Seven ásamt Jórunni Lilju Jónasdóttur sér nú um tónlistina sem er nokkuð þétt rokk. Hefur sennilega ekki áður heyrst þéttara rokk í Landakirkju. Séra Jóna Hrönn Bolladóttir, sagði að leita ætti allra ráða til að koma boðskap kirkjunnar á framfæri og vitnaði þar beint í Biblíuna. Kirkjugestir voru mjög virkir í messunni og tónlistin féll í góðan jarðveg. Dee Seven er góð rokk- hljómsveit og þar fer söngvarinn, Ólafur Guðmundsson fremstur í flokki. Jórunn Lilja kemur til liðs við strákana í Rokkmessunum og er góð viðbót. Rokkmessur verða einu sinni í mánuði í vetur og Dee Seven munu sjá um tónlistina. Þar gefst unnendum góðrar rokktónlistar tækifæri til að hlýða á góða tónlist og prestamir fá tækifæri til að ná til fleira fólks í boðun fagnaðarerindisins. FRÁ afhendingunni: Siguröur Símonarson skólafulltrúi, Bergþóra Þórhallsdóttir yfirkennari, Friðfinnur Finnbogason frá Kiwanisklúbbnum, Jóna Ólafsdóttir, yfirkennari, Svavar Steingrímsson húsvörður, Halldóra skólastjóri og Guð- mundurforseti Kiwanisklúbbsins. Kiwanismenn rausnarlegir á 30 ára afmælinu: Gáfu grunnskób unum tölvur fyrir 7600 þúsund kr. í síðustu viku afhentu félagar í Kiwanisklúbbnum Helgafelli grunnskólunuin í Vestmannaeyjum tíu tölvur af fullkomnustu gerð að gjöf. Er verðmæti gjafarinnar rúmlega 1600 þúsund krónur. Guðmundur Jóhannsson. forseti Kiwnisklúbbsins Helgafells, afhenti gjöfina sem er tíu tölvur af fullkomn- ustu gerð. Fimm fara í Barnaskólann og fimm í Hamarsskóla. Tölvumar eru af Hyundai-gerð, Pentium 166 Mhz með Windows 95 með 32 mb vinnsluminni og 3,2 GB hörðum disk, 20 hraða geisladrifi, 15 tommu lita- skjám og Intel Netkoiti. „Undanfarin ár höfum við Kiw- anismenn staifað undir kjörorðunum „Börnin fyrst og fremst'‘. Teljum við að þessi tölvugjöf sé einmitt í anda þeirra," sagði Guðmundur við afhend- inguna. Gjöfin er afrakstur af vinnu Helga- fellsfélaga við sölu á jólasælgæti og söfnun auglýsinga á öskjur undir sælgætið. „Með stuðningi bæjarbúa, sem keypt hafa af okkur sælgæti, er okkur kleift að færa skólunum þessa gjöf. Það er von okkar Hlegafells- félaga að gjöfin komi að góðurn notum við kennslu í skólunum," sagði Guðmundur að lokum. Hal Idóra Magnúsdótti r, skólastjóri Hamarsskóla og Jóna Ólafsdóttir. yfirkennari í Barnaskólanum tóku á móti tölvunum. I báðum skólunum eru tölvuver en tölvumar sem þar eru gáfu ísfélag og Vinnslustöð á síðasta ári. Kennarar hafa farið á tölvu- námskeið og er tölvukennsla hafin í skólunum. Halldóra sagði að gjöfin kæmi þvf í góðar þarfir. „Formleg kennsla á tölvur hefst í 4. bekk og aðaláherslan er lögð á 4. til 7. bekk. Nemendur vinna líka einstaka verkefni á tölvur, s.s. íslensku, ensku og stærðfræði og þau sem vilja geta nýtt sér ritvinnsluna og leitað upplýsinga á Netinu," sagði Halldóra. Menntaskælingar úr Hamrahlíð á ferð undir leiðsögn Eyjamannsins Ounnlaugs Ástgeirssonar: Kanna jarðfræði og áhrif eldgossins á byggðina Gunnlaugur Ástgeirsson, Ása í Bæ, var hér á ferð um síðustu helgi með hátt í 50 nemendur úr Mennta- skólanum við Hamrahlíð. Um er að ræða nemendur í valáfanga í jarðfræði og sögu. Einn liður í kennslunni eru ferðir á vettvang þar sem könnuð eru áhrif eldgosa á byggð. Auk Vestmannaeyja er farið að Heklu og Lakagígum. Gunnlaugur, sem kennir sögu, hefur komið árlega með nemendur til Vestmannaeyja frá árinu 1991 oger þetta því sjöunda ferðin. ,Þessi áfangi er frekai' vinsæll miðað við það að um valáfanga er að ræða," segir Gunn- laugur. „Nemendur hafa komist í að vera hátt í 100. Eru þeir yfirleitt á næstsíðasta eða síðasta ári í skólanum. Við förum á þrjá staði á landinu þar sern við tengjum saman jarðfræði og eldgos og áhrif þeirra á nærliggjandi byggð. Það er farið að Heklu, Lakagígum og Klaustri og til Vestmannaeyja. Við könnum áhrif áhrif eldgosa á þessum stöðum á nærliggjandi byggðir og leggjum áherslu á Móðuhaiðindin og Heima- eyjargosið 1973 sem kom upp í miðri byggð." Áður en lagt er upp fá krakkarnir í hendur lesefni og myndir sem þau hafa til hliðsjónar við rannsóícnir sínar. Gunnlaugur segir að erfitt sé að finna einhveija heildamiðurstöðu úr verkefnunum varðandi Vestmanna- eyjar. „Það er ekki nema hvað byggð er fljót að jafna sig og hvað fólkið á auðvelt með að aðlaga sig breyttum aðstæðum." Gunnlaugur segir að nemendurnir séu tnjög áhugasamir en þeir átti sig kannski ekki strax á því hvað áhritin eru mikil. „Þeir koma kannski til mfn seinna til að þreifa á sögu landsins og þjóðarinnar í framhaldi af því sem þau lærðu í þessum áfanga. Þama er líka beitt allt öðram kennsluháttum en venja er, þar sem blandað er saman jarðfræði og sögu og þessar vett- vangsferðir hafa líka sitt að segja," sagði Gunnlaugur að lokum. HLUTI hópsins reyndi sig í sprangi og naut til þess öruggrar leiðsagnar Gunnlaugs.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.