Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 16.10.1997, Blaðsíða 10

Fréttir - Eyjafréttir - 16.10.1997, Blaðsíða 10
10 Fréttir Fimmtudagur 16. október 1997 -Segir Jóhann Jónsson Listó um lausn þeirra vandamála sem Vestmannaeyingar standa frammi samfélagi og margar skoöanir hans hafa ekki átt upp á pallboröiö hjá samferöamönnum hc Jóhann Jónsson eða Jói Listó, eins og Vestmannaeyingar þekkja hann hefur búið í Vestmannaeyjum í rúmlega 30 ár. Honum er margt til lista lagt, eins og feLst í nafni hans, Listó sem hann fékk snemma eftir að hann kom til Eyja. Hann er fæddur og uppalinn í Kelduhverti í Norður- Þingeyjarsýslu, en kom til Vestmannaeyja ungur maður á vertíð, eins og margir. Hér kynntist hann konu sinni (iuðbjörgu Engilbertsdóttur. Að því leyti skar hann sig ú r félögum sínum sem komu til Eyja með honum að hann var sá eini sem vildi vera áfram. Jói Listó hefur skoðanir á öllu sein við kemur mannlegu samfélagi og margar skoðanir hans hafa ekki átt upp á pallborðið hjá samferðamönnuin hans. En það er ekki óalgengt með menn sem hafa hugsjónir og eldmóð til að fylgja þeim eftir. Jóhann segir að Vestmannaeyjar og ekki síst lífið í kringum höfnina hafi snemma orðið eins og nafli alheimsins fyrir honum og allt sem gerðist fyrir ofan Strandveg var hjóm eitt og skipti ekki máli. Hann segir að þetta hafi mótað sig geysilega og hann hafi gengist upp í þessu. Þetta álit hans hefur þó breyst á undanfömum árum. Jóhann segir að þetta breytist svo með aukinni tæknivæðingu í fisk- vinnslunni. Það verða ekki lengur þessar stóru vertíðir, þótt það geti verið mikið að gera í kringum síld og loðnu. Það hafi borist þvílík óhemja af fiski á stuttum tíma og þörfin fyrir vinnuaflið verið gríðarleg. Sér- staklega þegar helstu flutningatækin hafi verið handvagnar og hjólbörur. Sctmfélagið hefur lokast En hvernig hefur mannlífsbreytingin orðið í bænum? „Mér finnst samfélagið hafa lokast dálítið. Og mér leiðist orðið hvernig allt snýst um eitthvert kurteisishjal og lognmollu núorðið. Það er fáum málum fylgt eftir. Það er einkenni hérna, eins og með bæjarblöðin til dæmis. Menn eru orðinir svo við- kvæmir fyrir öllu sem heitir samfé- lagsgagnrýni. Gagnrýnin umræða og skoðanaskipti eru að mínum dómi bæði súrefni og næring fyrir eðlilega framþróun, vöxt og viðgang bæjarins. An þess deyr hann smám saman Menn reyna að horfa framhjá hlutunum og leiða þá hjá sér. Ef einhver neikvæð þróun er í gangi, þá má varla minnast á hana. Það er ekki í tísku lengur að vera með skoðanir. Það þykir bæði leiðinlegt og neikvætt. Jóhann segir að það sé hægt að nefna fjölmörg dæmi og tekur dæmi af Myndlistarskóla Vestmannaeyja, sem einu sinni var. „Ég byrjaði að sækja tíma í honum 1969 og var í honum nokkra vetur. Þetta var kvöldskóli. Þar fékk ég geysilega góðan grunn. Á þessum árum var mórallinn allt annar og menn opnari fyrir gagnrýni og voru gagnrýnni á umhverfi sitt. Þar lærði ég mikið um skipulagsmál, um hlutföll í byggingum og hvað menn væru að gera gott og einnig það sem miður fór. Þar kynntist ég líka fyrst umræðu um umhverfismál og málum tengdum þeim og það situr ennþá í mér. Haustið 1971 var verið að stækka flugvöllinn. Til þess var tekið gríðarlega mikið efni úr Helgafelli. Þannig að sárið, sem fyrir var, stækkaði mjög mikið á stuttum tfma. Þetta varð tilefni þess að nokkuð stór hópur fólks tók sig saman og efndi til mótmæla með kröfu-spjöldum og öllu tilheyrandi. Ég man ekki betur en að frumkvæðið að þessu hafi komið frá Guðna heitnum Hermansen, sem var bæjarlistamaður, virtur og vinsæll borgari. Svo vorum við öll úr Myndó sem þá var undir stjóm Páls Stein- gnmssonar ásamt fleira áhugafólki utan skólans. Þetta bar alveg ótrúlegan og skjótan árangur, því það liðu ekki nema nokkrir mánuðir að reglugerð var gefin út um friðun Helgafells og efnistaka algerlega bönnuð úr fjallinu. Þama fannst mér öll umræða vera svo jákvæð. Menn voru lifandi og opnir héma og þótti einkenni á Vest-mannaeyingum hvað þeir voru opnirfyrir öllum nýjungum bæði í listum og öðru. Núna finnst mér allt hafa breyst til hins verra. Það er of mikið um fordóma gagnvart ýmsu sem fellur ekki alveg að smáborgarahætti nútímans. Mér finnst þetta alvarlegt mál að fólk skuli fara héðan kannski vegna þess að það er til hliðar við það sem almennt er taliðnormal. Þetta er vond þróun að þannig fólk geti ekki þrifist héma og sumir em þeirrar skoðunar að það eigi ekki að geta þrifist héma og megi það ekki. Þetta er hluti af þeini flatneskju sem hér er á flestu. Það má helst enginn skera sig úr. Það á allt að vera svo hagkvæmt, jafnvel hvers kyns óréttlæti er réttlætt með þeim rökum að það sé hagkvæmt. Allt sem heitir hugsjónir, eldmóður og sannfæringar- kraftur er á undanhaldi." Silast áfram Þetta finnst Jóhanni vera helstu ein- kenni þeirra breytinga sem hann skynjar í Vestmannaeyjum og hann segir að sé kannski alls ekki verra hér en á mörgum stöðum úti á lands- byggðinni, þar sem ákveðin stöðnun á sér stað. Hér sé ekki stórfellt at- vinnuleysi né slíkt. Þetta silast áfram frá degi til dags og allt er afskaplega dauft. „Jafnvel þó að nú sé í vændurn sfld- arvertíð, þá dugir það ekki til. Vestmannaeyjar eru að mörgu leyti heppileg stærð gagnvart almennri þjónustu. Hins vegar þegar kemur að samgöngum á sjó, þá finnst mér ríkja hér ákveðinn undirlægjuháttur. Svo ég tali um Herjólf. Hann hefur verið mikið til umræðu. En það er eins og með annað. Það má stundum ekki tala JÓI LISTÓ: Viö veröum bara aö viðurkenna þaö, hvort sem okkur líkar betur eða verr aö viö erum komnir inn í nýjan tíma þar sem fólk vill hafa val og frelsi til að feröast. Þetta tel ég vera eitt aðaleinkennið fyrir vöxt og viðgang þessa samfélags. urn hann á gagnrýninn hátt. Það er eins og menn hafi farið svolítið út úr kortinu í þeirri umræðu. Menn eru jafnvel að tala um að það ætti að vera ókeypis með honum, sem mér finnst vera firra.. En ég hef sett fram hugmyndir um það að hafa tvö skip í fömm milla lands og Eyja. En það má ekki segja að Herjólfur sé yfir nóttina í Þorlákshöfn, þess vegna kviknar þessi hugmynd um að vera með tvö skip. En ferð frá Þorlákshöfn að morgni og kvöldferð t'rá Eyjum yrði bylting fyrir ferðaþjónustu í Eyjum. Það er svo margt ferðafólk sem sér ofsjónum yfir því að vera hér yfir nótt, þótt okkur finnist það alveg sjálfsagður hlutur, þá er það ekki alltaf þannig. Við verðum bara að viður- kenna það, hvort sem okkur líkar betur eða verr að við erum komnir inn í nýjan tíma þar sem fólk vill hafa val og frelsi til að ferðast. Þetta tel ég vera eitt aðaleinkennið fyrir vöxt og viðgang þessa samfélags. Mörgum finnst fáránlegt að vera með hugmyndir um tvö skip. En Herjólfur annar engan veginn álagstímum yftr sumarið. Og þegar hánn fer í slipp, skapast hér ástand sem við eigum ekki að sætta okkur við. Þetta er bara í samhengi við unrræðuna um framtíð Vestmannaeyja." Umræðan til að fela Það hafa verið settar fram hugmyndir um jarðgöng milli lands og Eyja. Jóhanni fmnst það hafa verið notað til þess að fela aðkallandi vandamál í samgöngumálum. Það má nefna í því sambandi að trúlega yrði mun ódýrara að byggja höfn upp í Landeyjasandi þar sem styst er yfir sundið. „Það er alltaf hægt að láta sig dreyma um stórframkvæmdir,“segir Jóhann, „sem kannski eru ekki raunhæfar. Einhvem tíma fyrir 20 eða 30 árum var flutt tillaga á Alþingi um athugun á hagkvæmni þess að gera stóra höfn við Dyrhólaey. Ég man eftir því að Vestmannaeyingum þóttu þetta skelfi- legar fréttir. Umræðan mótast svolítið af hagsmunaárekstrum einstaklinga, byggðarlaga og fyrirtækja en hags- munir þjóðarheildarinnar gleymast stundum. Við emm að lesa um svona áreksua daglega í blöðunum." Jóhann segir að fjöldinn sé svo upptekinn við að láta sé líða vel og vera ekki að ergja sig yfir einhverju sem búið er að segja því að séu bara leiðindi. Hann segir löngu búið að heilaþvo þjóðina gagnvart öllu sem heitir pólitík. Pólitík er fyrir alla „Það er búið að segja fólki að pólitík sé leiðinleg og margir vilji ekki koma nálægt henni. Menn eru að blanda þessu saman við flokkapólitfk. En í MÓTMÆLIN í Helgafelli sem sagt er frá í greinninni. Þeir sem þekkjast á myndinni eru frá vinstri: Gísli á Strandbergi, Jói Listó, Margrét Jóhanns, Astþór Jóhanns og Hlynur Ólafsson(Góðu fólki, báðir með hjálma), Ási Friöriks, Gulla í Sólhlíðinni, Margrét Sveins Valdimars, Palli Steingríms, Guðni Hermannsen, með sólgleraugu, Helga Laufdal, Óli Gránz, Raggi á Hressó, Óli Lár, Jón á Gjábakka og einn óþekktur.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.