Fréttir - Eyjafréttir

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttir - Eyjafréttir - 16.10.1997, Qupperneq 13

Fréttir - Eyjafréttir - 16.10.1997, Qupperneq 13
Fimmtudagur 16. október 1997 Fréttir 13 Bragi Ásgeirsson myndlistarmaður og gagnrýnandi: Verð að fylgjast með þvísem er að gerast útiá landi -Leit á sýningu Bjarna Olafs í Akóges Bragi Ásgeirsson myndlistarmaður og myndlistargagn- rýnandi Morgunblaðsins. Bragi Ásgeirsson myndlistarmað- ur og gagnrýnandi kom til Eyja nú í vikunni. Hingaðkoma hans var bundin opnun á sýningu Bjarna Olafs Magnússonar. Bragi hefur ekki komið til Vestmannaeyja í tuttugu ár svo það sætir tíðindum að jafn rnerkur listamaður og gagnrýnandi komi hingað í tilefni af myndlistarsýningu. „Eg hef nú farið til Akureyrar og ísafjarðar í sambærilegum erinda- gjörðum." segir Bragi. „En þerta er í fyrsta skipti í tuttugu ár sem ég kem til Eyja. Maður verður að fylgjast með því sem er að gerast úti á landi. Það er alltaf áhugavert að sjá það sent er að gerast á landsbyggðinni. Hins vegar er þetta erfrtt vegna manneklu, en það stendur nú til bóta þar sem ákveðið hefur verið að ráða annan mann, auk mín til þess að sjá um myndlistargagnrýni á Morgunblað- inu.“ Er búið að ráða í stöðuna? „Nei það er ekki búið að ganga frá því, en það sóttu sjö manns um stöðuna og allt saman karlmenn. Mér finnst reyndar dálítið vont að það skuli engin kona hafa sótt um vegna þess að konur eru í stjóm svo margra félaga myndlistamianna og meirihluti nemenda í Myndlista og handíðaskólanum eru konur. Líklega hefurengin kona þorað að sækja um. Hvers vegna veit ég ekki.“ Bragi segir að af þessum sjö mönnum séu tveir þekktir í myndlist- arheiminun, en hinum þekkir hann engin deili á. Hann segir að hann hafi skrifað um myndlist í meira en 30 ár og það sé kominn tími til að hætta skrifum um list og snúa sér frekar að almennum skrifum um myndlist. Það þurfi að gefa yngra fólki möguleika á því að komast að. „Ég vil alls ekki vera neitt „autortiet". Gagnrýni er samræða og það skiptir máli að allir taki þátt í samræðunni. Myndlistin er harður húsbóndi og maður verður að ein- beita sér vel að henni. Þessu er öðru vísi farið með okkur sem höfum verið í listaskólum í mörg ár. Þetta er orðinn vani fyrir okkur. Við höfum ákveðna yfirsýn, en það gerir okkur ekki almáttuga." Bragi segir að hann ætli ekki að hætta myndlistargagnrýni. en hann muni í framtíðinni frekar skrifa urn myndlist í sögulegu samhengi „Ég bað aldrei um að verða gagnrýnandi. Ég vildi miklu t'rekar vera kennari. Ég var alltaf frekar á móti því, en hlutimir æxluðust svona. Ég vildi miklu frekar vera til hlés. Hvemig fer það saman að vera myndlistannaður og myndlistargagn- rýnandi? „Það er ákaflega erfitt í lillu þjóðfélagi. Maður þekkir of marga. En samt hef ég ýnisa kosti umfram aðra. Ég er einangraðri að vissu marki. Það er ekki hægt að hringja í mig og skamma mig. Það er mjög mikill plús. Félagi minn og vinur ValtýrPétursson heitinn varð oft fyrir ofsóknum, þegar hann skrifaði sína gagnrýni. Einu sinni var honum hótað barsmíðum. Einhver maður beið fyrir utan hjá honum og hann hætti sér ekki út. Þetta gat verið hættulegt staif.“ Er þá betra að vera myndlistar- maður? , J>etta er ekki spuming um að vera listamaður, gagnrýnandi eða listfræðingur. Bara að það komi frá hjartanu sem rnaður segir og gerir. Það em svo margir sem þykjast hafa vit á myndlist." Hver finnst þér vera staða ís-lenskrar myndlistar í dag? „Hún er miklu betri en ég bjóst við,“ segir Bragi. Það em miklar breytingar og menn hafa verið að spá málverkinu dauða í gegnum tíðina. en málverkið ris alltaf upp aftur og hefur alltaf gert það. Ég undrast þó líka hversu margir em að mála í dag. Það em því ekki miklir möguleikar til að selja, en þetta er einhver óútskýranleg þörf hjá fólki til þess að tjá sig. Þetta er góð þörf. Ég held að málverkið sé mjög gefandi miðill. Málarar verða yfirleitt gantlir rnenn og það að stunda listir sé yfirleitt betra heldur en trimm og heilsu- ræktarstöðvar. Listin er andlegt trimm og líkaminn gengur fyrir and- anum ekki öfugt. Maður verður ekki gáfaður á því að hlaupa. Stundum hefur verið sagt að myndlistin sé móðir allra lista? „Það held ég ekki. En hún er gmnnurinn og hluti af skapandi þörf. Fuglar hafa þörf til að tjá sig. Þeir búa til falleg hreiður, en eru kannski ekki meðvitaðir um fegurðina. Það er hugsæið sem skiptir máli. Maður getur þroskað þetta hugsæi. Það er hægt að kenna myndlist. Það er stór misskilningur margra skóla í dag að það sé hægt að kenna hugsæi. Og það á að vera hlutverk skólanna að þroska þetta hugsæi og sjálfstæða ákvarðanatöku. Ég kenndi í fjölda- mörg ár. Nú em skólamir umsettnir kenningum og allir skólar að verða eins. Nú er of mikill sósíalismi ríkjandi. Það hefur margt furðulegt komið í Ijós á síðustu áruni. Það hefur verið mikil vakning hjá venjulegu fólki. Til dæmis get ég sagt frá galleríum og sýningarsölum í New York. Venjulegt fólk kemur til að skoða listina í þessum galleríum. En stundum er eins og þeim sem reka þessi gallerí sé illa við að venjulegt fólk komi og skoði þau. Þetta eru bara söluhús og salan fer fram í gegnum síma eða því um líkt, eins og sést á því að yfirleitt eru skrifstofur margra þessara galleríhaldara miklu stærri heldur en gallerín sjálf. Þetta eru eiginlega auglýsingastofur frekar en lifandi gallerí. Það liggur við að allir sem heita áhorfendur séu óvelkomnir." Hvernig er hægt að breyta þessu? „Það eru alltaf til menn. sem reka söfn og listhús sem laða að fólk. Hvemigerhægtaðútskýraþað. Það þarf útsjónarsemi. metnað og hjarta fyrir myndlist. Það hefur til dæmis tekis vel í Lousianasafninu í Danmörku, en ekki að sama skapi í Sveaborg. Það er dauður staður sýningarstjóranna. Þróunin hefur verið sú á síðustu árum að fólk er farið að forðast áreiti tjölmiðlana og leitar á rólegri mið. Ég fór til London í fyrra og kom á National Gallery, málverkasafnið og það var troðfullt af fólki. Fólk var heldur ekkert á hlaupum um safnið. Það skoðaði mjög vel. Þetta sýnir að fólk hefur tilfmningu fyrir myndlist. Við kannski breytum engu. en getum aukið áhuga fólks á myndlist og skapað jarðveg fyrir áhuga.“ Einar Logi Einarsson grasalæknir væntanlegur til Eyja: Grasalækningar hafa sannað gildi sifl Einar Logi Einarsson, grasalækn- ir, er væntanlegur til Eyja í næstu viku. Hann heldur fyrirlestur hér nk. miðvikudag. I samtali við Fréttir segir Einar Logi að grasalækningar hafi gengið mann fram af manni í fjölskyldunni í a.m.k. tíu ættliði og sennilega megi rekja það allt til landnáms. Grasalæknar í ættinni, sem oftast voru konur, sinntu jafnframt starfi yfirsetukvenna. Á síðari árum hafa karlmenn lfka komið til sögunnar í grasalækningunum og tók afi Einars, ErlingurFilipusson, við af móður sinni. Næst kom dóttir hans, Ásta sem var landsfrægur grasalæknir og nú halda Einar Logi og þrjú systkini hans uppi merki fjöl- skyldunnar í grasalækningum. „Þannig að þessi fræði eru ekki að gleymast," segir Einar Logi. „Ég hef starfað lengst í greininni en systkini mín hafa verið að koma inn í þetta síðasta áratuginn. Ég byggi alfarið á fræðum forfeðra minna en alltaf bætist einhver reynsla við hjá hverri kynslóð. Ég nota eingöngu íslenskar jurtir, sem við systkinin og aðrir ættingjar okkar söfnum á hverju sumri. Ekki er sama hvar þeim er safnað og þær þurfa að vera af stöðum sem við vitum að eru í lagi.“ Einar Logi segir að reynslan sýni að grasalækningar standi ekki að baki hefðbundnum lækningum á ýmsum sviðum. Einkum á það við ýmsa „króníska" sjúkdóma. „Við höfum náð góðum árangri í baráttu við magabólgur, magasár og óreglu á starfsemi meltingar. Það sama má segja um þvagfæravandamál, blöðru- og þvagfærabólgur, of háan blóðþrýsing, ofnæmi, astma og óværð hjá ungbörnum sem oft má rekja til svokallaðs magakrampa." Einar segir að grasalækningar hafi líka dugað betur í baráttu við ýmiss konar sár. „Þar get ég nefnt brunasár, fótasár, sár sem sykursýkissjúklingar eiga við að stríða og ígerðarsár. Til þess notum við svartan plástur sem Ifka hefur reynst vel í meðferð gegn vörtum og líkþornum. Þá höfum við náð árangri í baráttu við þráláta vöðvabólgu." Einar Logi segir að reynslan sé ólygnust um árangur grasalækninga. í því sambandi bendir hann á bækur um afa sinn, Erling Filipusson og móður, Ástu grasalækni. Þar er að fmna fjölda vitnisburða frá fólki sem segist hafa fengið bót meina sinn eftir meðferð hjá þeim feðginum. „Þrátt fyrir það hafa ekki allir verið sáttir og máttu langamma mín, afi og móðir sæta lögsókn og enn er verið að reyna að bregða fyrir okkur fæti. En fólk hefur góða reynslu af starfi okkar og á meðan svo er höldum við ótrauð áfram," sagði Einar Logi að lokum. Langamma Einars starfaði í Eyjum Þórunn Gísladóttir frá Hlíð í Skaft- ártungu, grasalæknir og yfirsetukona var langamma Einars Loga Einars- sonar, grasalæknis sem heimsækir Vestmannaeyjar í næstu viku. Þórunn bjó og starfaði í Eyjum í nokkur ár í kringum aldamótin. Hér stundaði hún lækningar með góðum árangri en ekki voru allir á eitt sáttir við hana eins og fram kemur í frásögninni hér á eftir. „Hér hefði nú líka mátt segja langa sögu af sjálfsfómarstríði Þómnnar (Gísladóttur) í þarfir manna sem hafa reynt að bregða fyrir hana fæti, stríði við tortryggni, hleypidóma, getsakir, vesæld og veikindi. Hún hefir eigi haft fastalaun nema lítinn tíma sem yfirsetukona og orðið að lifa af verkum þeim er hún lét menn sjálfráða hverju þeir guldu. Hún hefir þó talið skyldu sína að eyða þreki og tíma til að hjálpa bágstöddum. En með því hefir hún bakað sér óþægindi og sætt kryt af hendi einstakra lækna fyrir hlutsemi í verkahring þeirra. Væri að sönnu fróðlegt að hafa glöggar og réttar frásagnir af þvf þótt eigi væri nema af því er hún barg Gissuri syni sínum dauðvona í Vestmannaeyjum er hann brann við matarvél fyrir tveimur árum. Hann gerði hún á örstuttum tíma albata. Ekki neitar neinn því að það var snilldarverk. Og annað snilldarverkið vann hún á bami í eyjunum er brann á sitjandanum svo að menn hugðu ólæknandi. En bæði Gissur og bamið græddi Þórunn með urtasmyrslum er hún bjó til sjálf. Margt fleira gerði Þórunn þar gott í eyjunum sem víðar. En samt hlaut hún þar, að sögn, átölur og réttarkæru í staðinn þótt niður hjaðnaði sem froða. Sagt er að henni og lækni í Vestmannaeyjum færu mörg orð á rnilli. Lét Þórunn þar eigi hluta sinn fremur en vant var því hún er að eðlisfari tölug og höfðingjadjörf sem fornmaður. Þetta þótti leiðinlegt er mönnum var vel við bæði. Það er líka afdæmingarlegt að þess háttar fólk sem er nauðsynlegt skuli ekki geta sameinað krafta sína og unnið í sameiningu. Hví tileinka ekki lærðu læknamir sér þessa kunnáttu hinna ólærðu ef þeir þekkja hana eigi áður? Það ættu þeir ekki að eiga erfitt með. Á aðra hlið er það tilfinnanlegt að alþýðufólk slítur sér út í þarfir annarra á þennan hátt, eigi einungis án launa heldur einnig viðurkenningar af hinu opinbera þótt því takist að lækna kvilla er lærðari mönnum mistekst vel. Á nú að láta þessa kunnáttu deyja út með þeim sem enn gera gott með henni? Ungu menn og konur! Lærið urtalækningakunnáttuna af Þómnni og þeim er enn gera gott með henni. Þá gerið þið sjálfum ykkur og öðrum takamarkalítið gott. Vera má að í íslenskri urtanáttúru felist flestra fslenskra meina bót. Gerið þetta sem fyrst. Þómnn auðvitað skálmar nú enn yfir íjöll og fimindi, læknar og býr til íslenska bragðgóða og heilnæma drykki. En áttræðisaldurinn dregur úr fjöri og mætti hennar sem annarra. Margir hlýir hugir þeirra sem hún hefur hjálpað munu senda henni velvildargeisla sína í ellinni." Þó það komi ekki fram í þessari frásögn, sem er að finna í íslenskum þjóðsögum og sögnum Sigfúsar Sigfússonar, segirekki alla söguna því læknir og apótekari í Vestmanna- eyjum vildu losna við hana. Fannst þeim hún taka frá sér „viðskipta- vinina“. Kom til réttarhalda en Þómnn sagði að ekki þýddi að loka sig inni því hún héldi áfram lækningunum um leið og hún losnaði, einnig gætu synir hennar sinnt lækningum á meðan. Ekki kom til þess að Þórunn lenti á bak við lás og slá. I staðinn var henni veitt takmarkað lækningaleyfi.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.