Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 16.10.1997, Blaðsíða 15

Fréttir - Eyjafréttir - 16.10.1997, Blaðsíða 15
Fimmtudagur 16. október 1997 Fréttir 15 Viðhorfskönnun meðal brottfluttra Vestmannaeyinga: Óöryggi í atvinnumálum en draumastaður barnafólks ■Petta eru heltu niðurstöður könnunarinnar en svörun var lítil Nú liggja fyrir niðurstöður úr könnun á „ástæðum fyrir brott- flutningi fólks frá Vestmanna- eyjum". Könnunin er gerð fyrir Vestmannaeyjabæ og nær aftur til ársins 1995 og miðast við upplýs- ingar um brottflutta Eyjamenn, eins og þær voru 1. desember það ár. Það var Guðmundur Þ.B. Oafs- son einn fulltrúa minnihluta bæjar- stjórnar sem óskaði eftir því að könnunin yrði gerð, 5. maí síðast liðinn. Send voru bréf til 217 aðila og bámst 62 svör, sem er um 29% svörun miðað við útsend gögn. Ekki var reynt að hafa upp á þeim sem fluttust til útlanda vegna vandkvæða á að afla upplýsinga um heimilisföng þeirra. Könnunin var tvískipt. Annars vegar var fólk beðið um að gefa tilteknum þáttum einkunn (mjög gott, gott, sæmilegt, slæmt). Fjöldi svara var mismunandi, því ekki gáfu allir öllum liðum einkunn. Þátttakendur voru beðnir um að svara tilteknum spumingum og eru svörin birt eins og þau bárust, til þess að sýna fjölbreyti- leika þeirra. Aðstandendur könnunarinnar vilja vekja athygli á því að ekki er hægt að draga mjög marktækar niðurstöður af henni. „Þetta er enginn stóri sannleik- ur um ástæður fyrir brottflutningi eða viðhorfi til Vestmannaeyja," eins og segir í greinargerð með könnuninni. Könnunin leiðir einungis í Ijós viðhorf 62 einstaklinga eða fjöl- skyldna, þannig að allar alhæftngar út frá niðurstöðum em mjög hæpnar. Um úrvinnslu könnunarinnar sáu Áki Heinz Haraldsson fulltrúi og Páll Einarsson bæjarritari. Það er nokkuð Ijóst að könnun þessi getur verið leiðbeinandi fyrir stjóm- endur bæjarins og kannski ekki síst þegar lfður að bæjarstjómarkosning- um næsta vor. Ekki er ólíklegt að frambjóðendur komi til með að miða kosningaloforð sín við niðurstöður þessarar könnunnar. Við litum í könnunina til að gera okkur einhverja mynd af því sem þar kernur fram. Það sem var neikvætt fyrir Vestmannaeyjar ATVINNUMÁL Undir liðnum atvinnumál töldu um 44% svarenda að það væri slæmt. Inn í þessa niðurstöðu eru teknir þættir eins og atvinnutækifæri, atvinnu- öryggi og tekjuöflunarmöguleika. Yfirleitt eru það atvinnumálin sem ráða hvað mestu um afkomu fólks og öryggi. I könnuninni nefna svarendur meðal annars að atvinnutækifæri séu of fá og að vinnan sé ótrygg og jafnframt einhæf. Spumingu um það hvað þyrfti að gera til þess að viðkomandi hefði áhuga á búsetu í Vestmannaeyjum aftur, svöruðu 30 aðilar að auka þyrfti fjölbreytni í atvinnumálum. HÚSNÆÐISMÁL 22% svarenda töldu ástand húsnæðismála slæmt, 30% sæmilegt, 30% gott og 18% mjög gott. Töldu svarendur að framboðið væri gott hins vegar reksturskostnaður allt of hár. Sprengingar í höfn- inni skekja bæinn Framkvæmdir vegna stálþils sem reka á niður við austurkant Friðarhafnar og dýpkanir vegna þess ganga ágætlega. Vestmannaeyingar hafa orðið varir við titring og óróa vegna sprenginga sem fylgja fi'amkvæmdum í höfn- inni. Verið er að dýpka höfnina fyrir framan væntanlegt stálþil sem Skipalyftan mun sjá um að reka niður við austurkant Friðarhafnar. Ólafur Kristinsson, hafnarstjóri, segir að sprengd verði 8 metra djúp og 20 metra breið renna. Hann segir að þegar þeirn þætti ljúki muni verða sprengt fyrir stálþilinu. „Þessum verkþáttum á að vera lokið fyrir 1. nóvember," segir Ólafur. „En það má búast við einhverjum töfum. Þannig að búast má við bombum eitthvað fram í nóvember. Annars eru Eyjamenn ekki óvanir svona titringi og minnist ég þess þegar sprengt var fyrir Herjólfslæginu. Þetta getur samt verið óþægilegt, en ég held að fólk haldi alveg ró sinni." Frá framkvæmdunum í Friðarhöfn. Fæðingardagur Bábsins Mirza 'Ali muhammeð, sem síðar tók sér titilinn Báb (þ.e. Hlið), fæddist í Shíraz í Suður Persiu 20. október 1819 e. K. Hann var Siyyid. það er að segja afkomandi Múhammeðs spámanns. Faðir Hans, velþekktur kaupmaður dó, skömmu eftir fæðingu Hans og var honum þá komið í fóstur hjá móðurbróður sínum, sem var kaupmaður í Shíraz. í bemsku lærði hann lestur og þau undirstöðufræði. sem venja var að kenna börnum. Fimmtán ára gamall gerðist Hann kaupsýslumaður, fyrst með fóstra sínum og síðan öðmm frænda, sem bjó í Búshihr á ströndum Persaflóa. í æsku vakti Hann eftirtekt sakir mikils fríðleika og yndisþokka og einnig sakir framúrskarandi guðrækni og lyndisgöfgi. Hann stundaði bænagjörð, föstu og önnur fyrirmæli Islam af óbifanlegri festu og hlýddi ekki aðeins bókstafnum, heldur lifði í anda kenninga spámannsins. Hann kvæntist, þegar Hann var tuttugu og tveggja ára gamall. Honum fæddist einn sonur, sem dó í bemsku á fyrsta ári boðunarferils Bábsins. Er hann varð tuttugu og fimm ára gamall lýsti Hann því yfir samkvæmt guðlegri fyrirskipun að „Guð hinn upphafni, hefði útvalið Hann í stöðu Bábs (Hliðs).“ Bahá'íar í Vestniannaeyjum halda upp á fæðingardag Bábsins 19.10/97 kl. 18:00. Nefndu 10 svarendur háan orkukostn- að neikvæðan fyrir búsetu í Vest- mannaeyjum og spumingunni um það hvað þyrfti að gera til þess að viðkomandi hefði áhuga á því að koma aftur, svöruðu 12 að lækkun orkukostnaðar myndi breyta miklu þar um. VERSLUN Þátttakendur voru frekar óánægðir með ástand verslunar í bænum. Meðal annars var kannað vömverð og vöruval. 43% töldu áastand verslunar sæmilegt og 28% slæmt. Þegar spurt var hvað núverandi dvalarstaður svarenda hefði umfram Vestmanna- eyjar svöruðu 21 því til að ódýrari innkaup vægju þar mest. MENNTUN OG SKÓLAMÁL I heildina virðast svarendur vera nokkuð sáttir við skólamál, þó eru 38 sem segja þau sæmileg eða 36% 37 eða 36% að ástandið sé gott. Hins vegar vegur þyngst möguleikinn til framhaldsmenntunar þar sem 24 svarenda telja hana sæmilega og 13 slæma. Spumingunni um hvað núverandi dvalarstaður hefði umfram Vestmannaeyjar svöruðu 16 að nám íháskóla, framhaldsnám og sémám vægju þar þyngst. Hins vegar voru 6 aðilar sem gáfu það upp sem ástæðu fyrir brottfluttningi að þeir hefðu flutt beinlínis vegna háskólanáms. Það sem var jákvætt fyrir Vestmannaeyjar HEILBRIGÐISMÁL Það verður ekki annað sagt en svarendur væru ánægðir með með þjónustu sjúkrahúss og heilsugæslu. 65 svarendum eða 54% þótti ástand þeirra mála gott og 20% mjög gott, eða 24 af þeim sem svöruðu. Enginn nefnir þó heilbrigðisþjónustuna þegar spurt er um jákvæðustu þættina við búsetu í Eyjum. Nema tengja megi það svörum sem 4 nefndu. að lítið væri um stress og 10 nefndu gott umhverfi og 22 nefndu gott mannlíf. SAMGÖNGUR Vestmannaeyingareru mjög ánægðir með samgöngur samkvæmt niður- stöðum könnunarinnar. Spurt var um vegamál, flugsamgöngur og Herjólf. Ef litið er á heildina eru 43% svarenda, eða 79 þeirra telja þær mjög góðar. 38% telja þær góðar, eða 70. Ef litið er á spuminguna um jákvæð- ustu þætti fyrir búsetu í Eyjum, þá eru 6 sem telja vegalengdir stuttar á hinn bóginn þegar spurt er um neikvæðustu þættina eru 17 sem nefna háan ferðakostnað og 14 nefna einangrun, sem ekki er skilgreind nánar. 6 aðilar nefna hins vegar kostnaðarsöm ferðalög sem beina ástæðu fyrir flutningi. UMHVERFI Það má telja mjög áhugavert þegar litið er á spumingu er varðar umhverfi, en þar inni í eru veðurfar, upp- eldisskilyrði barna og mannlífið. Þó að veðurfarið fái frekar lága einkunn, þá em þátttakendur í könnuninni mjög ánægðir með uppeldiskilyrði bama sinna. Ef litið er á umhverfisþáttinn í heild telja 36% eða 66 það mjög gott, 38% gott, eða 68. Sem svar við spurningunni um jákvæðustu þætti fyrir búsetu í Vest-mannaeyjum nefna 22 barnauppeldi og 11 svara henni sem draumastað uppalenda. Frá Oddinum * Uorum aö fá enn eina sendináu af spænsku dúkkunuum ofí dúkkulömpunum. * Sumir eru Þefiar byriaöi á jólaföndrinu. Uorum aö fá sendingu af föndurvörum. RITFANGA- 0G GJAFAVÖRUVERSLUNIN ODDURINN STRANDVEGI 45 - SÍMI 481 1945 Grasalækningar Einar Logi Einarsson, grasalæknir heldur fyrirlestur um grasalækningar í Sveinafélagssalnum við Heiðarveg miðvikudaginn 22. október kl. 20:00. Hægt verður að panta viðtalstíma á fyrirlestrinum og í síma 587-7714.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.