Fréttir - Eyjafréttir - 16.10.1997, Page 19
Fimmtudagur 16. októberl997
Fréttir
19
Spáð í leikmannamál á liði ÍBV:
Búist við litlum breytingum
-en vitað er að Tryggvi, Bjarnólfur og Guðni Rúnar vilja út. Bjarni þjálfar átram
Nú er mikið spáð og spekúlerað
hvernig leikmannahópur IBV muni
Iíta út næsta sumar. Hér verður velt
vöngum yfir því án þess að traustar
heimildir séu fyrir hendi. Ljóst
þykir að IBV missir a.m.k. tvo
leikmenn en gæti jafnvel haldið
öllum hinum ef allt gengur upp.
Bjarni Jóhannsson verður áfram
þjálfari hjá IBV en verið er að
reyna að semja við hann til lengri
tíma en eins árs.
Vöm ÍBV mun að öllum líkindum
verða óbreytt næsta sumar. Zoran
Miljkovic hefur samið á ný við ÍBV.
Hlynur og Hjalti verða áfram en
Gunnar og Ivar eru með lausa
samninga en fastlega búist við því að
þeir verði áfram. Tilboð frá útlendum
klúbbum væri það eina sem gæti sett
strik í reikninginn eða fjölskyldu-
aðstæður hjá Ivari.
Guðni Rúnar Helgason ætlar sér að
verða atvinnumaður og hann fer
eitthvað út. ef ekki til Þýskalands þá
a.m.k. til Noregs. Sigurvin Ólafsson
bíður eftir tilboðum en hann fer sér
hægt í sakimar og verður líklega
áfram. svo framarlega sem stórklúbbar
í Evrópu lokka bann ekki til sín.
Kristinn Hafliðason er með lausan
samning og hann er að hugsa málið
og vegur salt. Fram vill fá Kristin en
hann ku verulega heitur að vera áfram
með ÍBV.
Ingi Sigurðsson ætlar að vera með
a.m.k. eitt sumar í viðbót en það gæti
jafnframt orðið hans síðasta. Rútur
Snorrason er að jafna sig af meiðslum
og verður að klára eitt sumar með
Hlynur og Sverrir í leik Stuttgart og ÍBV: Góður árangur ÍBV í sumar hefur vakið athygli bæði
erlendra og innlendra liða á leikmönnum þess.
sóma til að komast í atvinnumennsku
og því verður hann Ifklega áfram.
Bjamólfur Lárusson er með útþrá og
vill helst komast til Bretlandseyja enda
starfar kærasta hans (Ragnheiður
Guðnadóttir) í London við
tískusýningastörf. Vandséð er hvemig
Bjamólfur á að komast að úti því
auðvitað verður hann að sanna sig
fyrst hjá ÍBV áður en hann getur farið
út. Skynseminnar vegna hlýtur
Bjamólfur því að verða áfram hjá
IBV. Sverrir Sverrisson verður áfram
Mikill hugur í
hundboltafólki
ÍBV tekur á móti FH í NISSAN-
deildinni á föstudaginn og fer
leikurinn fram í Vestmannaeyjum.
Leikurinn hefst klukkan 20:00, en
fimmtán mínútum áður en fiautað
verður til leiks fer fram formleg
undirskrift á nýjum styrktar-
samningi Skeljungs hf. og Hand-
knattleiksdeildar IBV.
Samningurinn nær til kvenna- og
karladeilda, auk allra flokka og mun
gilda til ársins 2000. Um leið og
samningurinn verður undirritaður
munu merki tengd samningnum verða
athjúpuð ííþróttahöllinni.
Handknattleiksdeildin hefur fengið
litháenskan leikmann til liðs við sig,
Robertas Pauzolis. Hann var áður í
Ganitas Kaunas, sem spilaði nú síðast
gegn KA í Evrópukeppni
meistaraliða. Forráðamenn ÍBV binda
miklar vonir við þennan nýja
leikmann.
Jóhann Pétursson ritari handknatt-
leiksdeildarinnar segist hafa séð hann
á æfingu á mánudaginn og ber honum
vel söguna.
„Miðað við tilþrif mannsins á
æfingunni er ljóst að þama er mjög
öflug skytta á ferðinni," segir Jóhann.
„Hann er örugglega í hópi þriggja
bestu skyttna í NISSAN-deiIdinni.
Hann talar reyndar ekki nema lithá-
ensku, en skilur tungumál hand-
knattleiksins þess mun betur.“
Jóhann segir að dúndurstemmning
verði á leiknum á föstudaginn og
skorar hann á fastagesti og stuðn-
ingsmenn ÍBV að mæta tímanlega til
að ná góðum sætum.
„Nýir búningar liðsins verða einnig
vígðir á leiknum og þeir eru auðvitað
hvítir með merki Skeljungs hf,“ segir
Jóhann að lokum
hjá IBV enda á hann eitt ár eftir af
samningi sínum við ÍBV.
Tryggvi Guðmundsson, markakóng-
urinn, fer örugglega eitthvað annað og
verður eftirsjá í honum. Vonandi fer
hann í eitthvað stærra lið en í Noregi
enda gæti Tryggvi spajað sig hvar sem
er. Aðeins er tímaspursmál hvenær
hann fer í atvinnumennsku. Stein-
grímur Jóhannesson verður væntan-
lega á heimaslóðum, hann er Ifka
ómissandi. Leifur Geir Hafsteinsson
er að velta því tyrir sér að leggja skóna
á hilluna en undir niðri er hann
spenntur að klára eitt sumar í viðbót
með IBV. Vonandi gerir hann það.
Mynd: Sigfús Gunnar.
Hinn efnilegi Bjöm Jakobsson fer að
öllum líkindum á heimaslóðir, í KR.
Aðrir leikmenn eins og t.d.
varamarkvörðurinn Gísli Sveinsson
og efnilegir 2. flokks piltar verða
eflaust áfram f herbúðum ÍBV. Þá
verða Magnús Sigurðsson og
Sumarliði Amason eflaust áfram með
ÍBV en þeir voru lánaðir í önnur lið í
sumar en eru nú komnir aftur í ÍBV.
ÍBV er nú að reyna að fá liðsauka.
Heyrst hafa nöfn Þorvalds Makan hjá
Leiftri, Einars Þórs Daníelssonar og
Andra Sigþórssonar hjá KR, ívars
Ingimarssonar hjá Val o.fl. Þessi nöfn
eru hins vegar birt án ábyrgðar.
1. deild kvenna í handbolta: Tap og sigur
Hvað et að gerast, stelpur?
ÍBV stelpur léku tvo leiki í síðustu
viku, töpuðu þeim fyrri en unnu
þann seinni.
ÍBV steinlá fyrir FH á útivelli 26-18
eftir að staðan í hálfleik var 10-8. Þrátt
fyrir frábæra markvörslu Eglé í marki
ÍBV, sem varði 19 skot, áttu Eyja-
stelpur ekkert roð í FH. Urslit leiksins
komu verulega á óvart en vamarleik
Nissandeildin: IBV-Valur 24 - 23
GoH hjá slrákunum
Staðan í 1. deild kvenna er nú þessi:
Nr. Félag Leik U J T Mörk Nett Stig
1. Haukar 6 5 1 0 152:124 28 11
2. Grótta KR 5 3 2 0 95:89 6 8
3.FH 6 3 1 2 129:120 9 7
4. Stjaman 6 2 2 2 122:114 8 6
5. Víkingur 6 2 1 3 130:139 -9 5
6. ÍBV 5 2 3 109:119 -10 4
7. Valur 6 1 1 4 105:111 -6 3
8. Fram 6 0 2 4 117:143 -26 2
stelpnanna var vemlega ábótavant.
A laugardaginn komu Valsstelpur í
heimsókn og þá vann ÍBV aðeins með
eins marks mun. Leikurinn var mjög
slakur og mikið um mistök á báða
bóga. ÍBV hafði yftrhöndina nánast
allan tímann en staðan í hálfleik var
10-7. Val tókst að jafna 12-12 og 14-
14 en Eyjastúlkur skoruðu sigur-
markið undir lokin.
Engin bar af hjá ÍBV
og þrátt fyrir sigur er
spuming hvað sé
eiginlega að gerast í
herbúðum ÍBV!
Stelpur, upp með
sokkana.
Mörk ÍBV: Sandra
Anulyte 5, Andrea 4,
Ingibjörg 4, Elísa 1,
Unnur 1. Varin skot:
Eglé Plétiené 8/2.
Karlalið IBV vann Val í síðustu
viku, 24-23, og skoraði Hjörtur
Hinriksson sigurmark IBV á
síðustu sekúndum leiksins. Var
þetta í eina skipti sem IBV hafði
forystu í leiknum en Valsarar
höfðu 5 marka forystu í hálfleik,
17-12. Valur skoraði því aðeins 6
mörk í seinni hálfleik!
„Seinni hálfleikurinn var frábær en
þá keyrðum við hraðann upp. Það
sýnir styrk að vinna leikinn með
þessu,” sagði Guðfjnnur Krist-
mannsson, leikmaður ÍBV.
Mörk ÍBV: Hjörtur 6/2, Guðfinnur 6,
Svavar 6, Belaný 4/2, Haraldur 1
(vippa) og Sigurður B. 1
Varin skot: Sigmar Þröstur 13.
í gærkvöldi átti ÍBV að spila við
botnlið Breiðabliks í Kópavogi en
úrslit leiksins lágu ekki fyrir þegar
blaðið fór í prentun.
Lilháinn er mætturi
Karlalið ÍBV í handbolta hefur
fengið góðan liðsstyrk. Litháinn
Kaunas Robertas kom til Eyja á
mánudaginn eftir að hafa leikið
með liði sínu Ganitas Kaunas í
Evrópukeppni meistaraliða gegn
KA á sunnudaginn.
Sá litháenski er 190 srn á hæð og
mikil skytta. Hann á t.d. að baki yfir
100 landsleiki fyrir Litháen og hefur
skorað um 800 mörk, takk fyrir. Hann
er mikill liðsstyrkur en IBV hefur
einmitt tilfinnanlega vantað skyttu.
Þorbergur Aðalsteinsson, þjálfari
ÍBV, fylgdist með leiknunt á sunnu-
daginn og tók Litháann síðan með sér
til Eyja. Þorbergi líst mjög á kappann.
Hann var besti maður Ganitas Kaun-
as en fékk rautt spjald í upphafi seinni
hálfleiks og var það upphaftð að
endalokum Litháanna sem steinlágu
fyrir KA. Hann er því ekki skaplaus.
Þess má geta að svo gæti farið að
von væri á enn frekari liðsstyrk til
ÍBV en það mun skýrast fyrir mán-
aðamótin.
Kani til IV
ÍV hefur spilað í 2. deild körfu-
boltans undanfarin misseri. Nú
virðist sent lyfta eigi þar grettistaki
því von er á bandarískum körtu-
boltamanni til að styrkja liðið í
vetur. Sá ku reyndar ekki vera tnjög
hávaxinn en engu að síður öflúgur
leikmaður sem jafnframt mun þjálfa
liðið. IV hefur sett stefnuna á I.
deild.
Toppslagur
á morgun í
Nissandeild-
inni þegar
ÍBV og FH
mætast
Það verður sannkallaður toppslagur
í handboltanum á morgun. ÍBV
mætir FH í Nissandeildinni á
morgun, föstudag, kl. 20. FH-ingar
eru í efsta sæti deildinnar, með fullt
hús stiga eftir fjóra leiki en ÍBV er
með 4 stig, hefur unnið tvo og tapað
tveimur.
FH-ingar undir stjórn Kristjáns
Arasonar hafa komið skemmtilega
á óvart í haust. En það hafa
Eyjamenn lfka gert og verður
fróðlegt að sjá hvernig nýju
litháensku skyttan hjá ÍBV tekst
upp í sínum fyrsta heimaleik.
Spá Frétta: ÍBV-FH 26-24
Næstu leikir
í 2. flokki ka. í vetur verður ekki
leikið í turneringum heldur leikj-
unum dreift yfir veturinn. Á
laugardaginn kl. 14 fær ÍBV lið
Hauka í heimsókn.
IBV lék sína fyrstu leiki um síðustu
helgi gegn Val og Gróttu.
Sverrir og
Tryggvi
fengu 200
þúsund hvor
íslenskar getraunir hafa haft þann
sið að verðlauna sérstaklega þá
knattspymumenn í Úrvalsdeildinni
sem skora þrennu í leik eða meira.
Tveir leikmanna ÍBV fengu góðan
glaðning fyrir frammistöðu sína í
sumar. Sverrir Sverrisson fékk 200
þúsund kr. fyrir að skora fjögur
mörk í leik og Tryggvi Guðmunds-
son sömu upphæð fyrir að skora
tvívegis þrennu. Góð uppbót það á
gott knattspymusumar.
Síðasta
golfmótið
Á laugardag verður sfðasta golfmót
sumarsins hjá GV. Það er
Stöðvamótið, fjórða og síðasta
mótið í Haustsprengjunni og hefst
það kl. II. Leiknar verða 18 holur.
Um kvöldið kl. 20 verður svo matur
og verðlaunaafliending í golf-
skálanum en þar verða afhent
verðlaun fyrir öll fjögur mótin auk
heildarverðlauna. Áthygli er vakin
á því að skráningu í mótið verður að
vera lokið kl. 20 á föstudagskvöld.
Síðan tekur við frí í golfinu fram
að áramótum en gamlárskvölds-
mótið verur að vanda á sínum stað.