Fréttir - Eyjafréttir - 16.10.1997, Blaðsíða 20
FRÉTTIR
Frétta- og auglysingasíminn 481-3310 • Fax 481-1293
Hagnaðurínn
99 miUjónir
Heildartekjur Vinnslustöðvarinn-
ar hf. og dótturfyrirtækja nániu
4.450 milljónum króna á nýliðnu
rekstrarári. A fyrra rekstrarári
voru tekjur Vinnslustöðvarinnar
einnar 3.649 miiljónir króna og er
aukning milli ára 22%. Rekstr-
artekjur að frádregnum afla til
eigin vinnslu námu alls 3.602 millj-
ónum samanborið við 3.152 millj-
ónir á fyrra ári og jukust um 14,2%
á milli ára.
Þetta ketnur fram í frétt frá
Vinnslustöðinni í gær. Samkvæmt
henni námu rekstrargjöld 3.180
milljónum króna og jukust um 19,3%
á árinu. Hagnaður fyrir afskriftir nam
422 milljónum samanborið við 488
milljónir á fyrra ári. Hagnaður fyrir
afskriftir nam nú 11,7% af rekstrar-
tekjum en var 15,5% árið á undan.
Sjö tilboð
ÍFES
I gær voru opnuð tilboð í viðbygg-
ingu við FES. Alls bárust sjö tilboð.
Steini og Olli hf voru með fjögur
tilboð sem eru unnin í samstarfi við
innlenda og erlenda aðila. Tilboðin
voru ólík og buðu upp á ýmsar og
ólíkar lausnir í efni og hönnun.
Fyrirtækið 2-Þ ehf átti tvö tilboð sem
einnig eru með ólíkum lausnum og til-
lögum jafnt í efni sem útfærslu.
Þessi sex tilboð voru frá 88 millj-
ónum upp í 146 milljónir
Eitt tilboð kom frá Vömum ehf. í
Garðabæ og hljóðaði upp á rúmlega
70 milljónir.
Tilboðsgjafar hafa tjórar vikur til að
standa við tilboðin. Páll Zóphónías-
son byggingatæknifræðingur segist
ánægður með fjölda tilboða og að þau
séu innan raunhæfra marka við fyrstu
sýn.
Afskriftir námu 465 milljónum
samanborið við 288 milljónir árið á
undan. Er það rakið til sameining-
arinnar við Meitilinn, og fjárfestingar
í skipum og vinnsluhúsum félagsins.
Tap af reglulegri starfsemi hækkarúr
83 milljónum í 283 milljónir milli ára.
Hagnaður af sölu eigna var 368
milljónir og hlutdeild minnihluta í
afkomu dótturfélaga nam 14
milljónum. Hagnaður ársins nam því
tæpum 94 milljónum króna en hann
var 598 milljónir árið áður.
„Helstu ástæður fyrir því að
niðurstaðan er ekki hagstæðari eru
einkum þær að afkoman í bolfiskveið-
um og vinnslu varð afar slæm á árinu.
Sameining við Meitilinn var kostn-
aðarsamari en gert var ráð fyrir og
afkoma í loðnufrystingu versnaði
vegna lægra afurðaverðs, sagði Sig-
hvatur Bjamason framkvæmdastjóri.
Niðurstaða efnahagsreiknings sam-
stæðunnar nemur nú 7.498 milljónum
en samsvarandi niðurstaða móður-
félagsins á fyrra ári nam 4.704
milljónum króna. Heildarskuldir eru
4.960 milljónir en nettóskuldir sam-
stæðunnar eru 3.886 milljónir.
Nettóskuldir móðurfélagsins nema nú
3.229 milljónum króna.
,Á móti kemur að bókfært verðmæti
heildareigna félagsins nernur nú 7.498
milljónum króna en var 4.704
milljónir í lok fyrra rekstrarárs.
Bókfært verðmæti hefur því aukist um
2.794 milljónir króna.“
Útlit á loðnumörkuðum er gott og
hefur stjóm félagsins ákveðið að auka
frystigetu í loðnu og síld í Vestmanna-
eyjum um 150 tonn á sólarhring.
Fjáifest verður í sjálfvirkum búnaði til
frystingar fyrir 168 milljónir króna.
„Heildarafköst í frystingu hjá
Vinnslustöðinni verða þá 530 tonn á
sólarhring," sagði Sighvatur að
lokum.
FLUTNINGAR- VESTMANNAHYJUM
Daghgarhriirhmtálmdimtr.
Vöruafgreiðsla
Mdldlogavogl 4 Síml 4S1 3440
Vöruafgreiðsla í Reykjavík
IVO Héðlnagota 1 - 3
Sími 531 3030
Rútufsrðlr-Bustours
Öll móttaka ferðamanna, skóla- og íþróttahópa
FAX 4811927 0> 481 1909 - 896 6810
Sendibílaakstur innanbæjar.
Vilhjálmur Bergsteinsson
S£M9ÍPE»ðA8ÍLL
0481-2943,
897-1178
ROKKMESSA Ásunnudagskvöldið var rokkmessa íLandakirkju og var hvertsæti skipað.
Hljómsveitin Dee Seven sá um tónlistina með söngvarana Jórunni Lilju Jónasdóttur og
ÓlafGuðmundsson í fararbroddi.
Ingi ráðinn byggingafvlHrúi
Á fundi bæjarráðs á þriðjudag
lágu fyrir þrjár umsóknir um
starf byggingafulltrúa bæjarins
þar af ein frá heimamanni. Þær
voru frá Trausta S. Harðarsyni,
Hafnarfirði, Þórólfi Oskarssyni,
Reykjavík og Inga Sigurðssyni,
Hólagötu 10 Vestmannaeyjum.
Samþykkt var í bæjarráði að ráða
heimamanninn Inga Sigurðsson í
starfið.
„Hvað ertu að segja, er búið að ráða
mig?" sagði Ingi þegar Fréttir slógu
á þráðinn til hans á þriðjudag og
spurðu hvemig honum litist á nýja
starfið. ,Þ>ú ert fyrsti maðurinn til að
segja mér það. Jú, auðvitað er ég
mjög ánægður með það. Ég sótti um
starfið með það f huga og vonaðist
auðvitað til þess að verða fyrir
valinu."
Ingi útskrifaðist um áramótin 1994-
1995 sem byggingatæknifræðingur
af framkvæmdasviði. Hann starfaði
sem slíkur í tvo mánuði hjá
Teiknistofu Páls Zóphóníassonar og
starfaði einnig um sex ntánaða skeið
hjá Vatnsveitu Reykjavíkur. En
síðustu tvö ár hefur hann starfað sem
framkvæmdastjóri hjá ÍB V auk þess
sem hann hefur verið einn af
burðarásunum í knattspymuliði ÍBV.
„Það má segja að þessi menntun mín
hafi ekki nýst mér sérstaklega í
starfinuhjáÍBV. Þó að vissu marki,
ég hafði yfirumsjón með völlunum
og það var sitthvað úr náminu sem
þar kom að gagni," sagði Ingi.
En er hann ekkert kvíðinn fyrir að
taka að sér þetta starf, nokkuð liðið
síðan hann lauk námi, kannski búinn
að gleyma einhveiju?
„Nei, það er ég ekki og það sem ég
lærði er alls ekki gleymt. Ég hlakka
virkilega til að taka við þessu starfi,"
sagði nýráðinn byggingafulltrúi
Vestmannaeyjabæjar, Ingi Sigurðs-
son.
Ingi er í sambúð með Fjólu
Jónsdóttur og eiga þau einn dreng.
Verðáður Verðnú
Videóspólur 240 min
4 stk. í rekka
Videóspólur 240 min
2 stk. saman
Videóspólur 240 min
Segulbandsspólur
4 stk. í rekka
Diskaþurrkur
Borðklútar
Nóa rúsínur 200 gr.
WSTMflNNflEVlUM