Fréttir - Eyjafréttir - 15.01.1998, Page 2
2
Fréttir
Fimmtudagur 15. janúar 1998
Fleiri blysaslys
Lögreglu barst tilkynnng frá manni
sem brenndi sig illa á gamlárskvöld
þegar blys sem hann hafði kveikt á,
sprakk í höndum hans. Eins og
kunnugt er bar töluvert á því um
áramótin að blys loguðu ekki
samkvæmt þeim leiðbeiningum
sem alla jafna er búist við. Eru því
margir sári eftir. Ekki er Ijóst hvað
hefur orsakað þessa ónáttúru
blysanna en málið mun vera í
rannsókn hjá lögreglu og
inntlytjendum.
Skemmdirábifreið
Kæra kom inn á borð lögreglu
vegna skemmda á bifreið. At-
burðurinn átti sér stað á bifreiða-
planinu við Foldahraun 41 að
kvöldi 05.01. síðastliðinn. Sá er
tjóninu olli sá ekki ástæðu til að
tilkynna það. Ef einhver getur
gefið upplýsingar um málið er sá
hinn sami beðinn um að hafa
samband við lögreglu. Best væri
þó að sá hinn seki kenndi
einhverrar iðrunar og gæfi sig fram
af fúsum og frjálsum vilja.
Maðursleginnniður
Maður kærði líkamsárás síðast
liðinn laugardag en hann hafði
verið sleginn niður á Heiðarvegi
eftir að skemmtun lauk. Maðurinn
fékk skurð á vinstri augabrún og
fyrir neðan vinstra auga.
Póstkassa stolíð
Lögreglu var tilkynnt eftir helgina
að póstkassa hefði verið stolið frá
Kirkjuvegi 88. Ekki er vitað hvað
þjófnunt gekk til. Kannski hefur
þetta eitthvað með einkavæðingu
Pósts og síma að gera. Þeir sem
geta gefið einhverjar upplýsingar
um málið eru beðnir um að hafa
samband við lögreglu.
Tjónafvöldumreyks
Á föstudaginn var tilkynnt urn reyk
í húsi við Höfðaveg. Slökkviliðið
var kallað út en þegar á vettvang
var komið var ekki laus eldur í
húsinu, heldur kom reykurinn frá
potti sent gleyntst hafði á eldavél.
Töluvert tjón varð sökum reyks.
Áfengisburðurvið
höfnina
Tilkynnt var um að verið væri að
smygla áfengi frá erlendu skipi sem
lá við bryggju í bænum. Lögreglan
brá við skjótt og kom í ljós við
rannsókn málsins að seldir höfðu
verið fimm kassar af bjór úr
skipinu. Ekki er vitað hver hinn
þorstláti kaupandi er.
Maðurféllaf
vinnupalli
Vinnuslys var tilkynnt til lögreglu á
fimmtudaginn fyrir viku. Maður
féll niður af vinnupalli í
Vinnslustöðinni. Ekki var um
alvarlegt slys að ræða, mun
maðurinn þó hafa olnbogabrotnað.
Tölvun tekur þátt í fjölþjóðlegu samstarfi:
Markaðssvæði okkar er
að verða allur heimurinn
-ekki bara Eyjar og Íslanci[ segir framkvæmdastjóri fyrirtækisins
ITSCAND stendur fyrir samstarf
sem Skotar og Skandinavíu-
þjóðirnar auk Islands standa fyrir
tii þess að nýta sér upplýsinga-
tæknina í hinum dreifðari byggðum
á norðurslóðum. Þetta samstarfs-
verkefni á sér rætur til samráðs-
fundar þessara landa sem haldinn
var í Ackergill á Skotlandi árið
1994. Verkefninu var skipt í tvo
hluta. Annar hluti áætlunarinnar
var svo ræddur í Bergen í mars á
síðasta ári.
Tölvun hf. er nú með tvö verkefni í
undirbúningi sem eru afrakstur fund-
arins í Skotlandi. Vonir standa til að
styrkir fáist til þessara verkefna frá
Evrópubandalaginu. Annað verkefn-
ið er kallað Virtual Worker sem rniðar
að því að safna saman smáunt
fyrirtækjum til að vinna saman sem
ein heild. Það er skortur á þjálfuðum
mönnum á sviði margmiðlunar, um
allan heim og með verkefninu er vilji
fyrir því að bæta úr því á næstu árum.
í jaðarbyggðunt norðlægra slóða
Evrópu eru margir hæfileikamenn á
sviði tölvutækni sem hafa áhuga og
vilja til þess að nýta þekkingu sína og
getu á sviði margmiðlunar og
upplýsingatækni Þetta verkefni er
hluti af því að veita mönnum þjálfun á
því sviði. Hingað til hafa slíkir aðilar
starfað sjálfstætt eða hjá litlum
fyirtækjum og tekjur þeirra því verið
ntjög staðbundnar. Markmiðið með
þessu verkefni er því að koma á og
þróa nauðsynlegt umhverfi þar sem
þessir einstaklingar og smáfyrirtæki
gætu unnið skipulega að hugbún-
aðarþróun og upplýsingatækni. Það er
einnig gert ráð fyrir því að ntikið af
þessari vinnu verði gerð fyrir
alþjóðlegan markað sem ekki hefur
mikil ítök í dreifðari byggðum. Gert
er ráð fyrir að þetta verkefni muni taka
um tvö og hálft ár.
Hitt verkefnið snýst um þjóðmenn-
ingu ríkja á norðurslóðum og
þjóðararf. Markntiðið að kynna það
sem þessi lönd eiga sameiginlega og
koma því á Intemetið. Ætlunin er að
koma að fræðslu um sögu, ættfræði og
fornleifafræði. Þau lönd sem eiga
aðild að þessu verkefni eru Skotland,
Island, Noregur og hugsanlega Sví-
þjóð. Þessi lönd eiga sameiginlegan
arf frá víkingum, sem endurspeglast í
þjóðmenningu þessara landa. Þetta
eru svo ekki síður siglingaþjóðir þar
sem haftð og það sem það hefur upp á
að bjóða verða útgangspunktar. Sá
hluti sem unninn verður hjáTölvun í
Vestmannaeyjum snýr að víkingum
og arfleifð þeirra.
Ættfræðiþátturinn á að gera fólki
kleift að nálgast heimildir, nöfn og
myndir um einstaklinga. Út frá þeirn
heimildum á fólki að vera kleift að
búa sér til skematískt ættartré þar sem
hægt verður að rekja ættir einstakra
persóna.
Fornleifaþættinum er skipt í þrjá
hluta. í fyrsta lagi er unt skráning-
arkerfi að ræða um einstaka muni, í
öðru lagi sérhæfður gagnabanki og í
þriðja lagi sérstök þjónusta sem söfn
og sýningaraðilar geta sótt kynningar-
efni í.
I þættinum sem snýr að sögulegri
arfleifð snýst málið unt að útbúa
nákvæma eftirmynd af einhverjum
stað sent á sér mikla sögu þar sem
notandinn getur fengið tvívíða mynd
af staðnum og nálgast upplýsingar um
hann og atburði sem tengjast honum.
Einnig á að verða hægt að „klikka" á
ákveðna hluti með músinni sem gefur
þá þrívíða mynd af hlutnum, þar sem
upplýsingar um hann koma fram og
hægt að sjá hveming hann var
notaður.
Davíð Guðmundsson hjá Tölvun
segir að fyrirtækið komi til með að
verða sá aðili sem sér um samskiptin
milli þessara fyrirtækja. „Af því að
Tölvun er Inetmetþjónustu fyrirtæki
þá stöndum við nokkuð vel að vígi
miðað við önnur fyrirtæki sem koma
að þessu samstarfi. Við höfum því
mjög góða möguleika á þvf að bjóða
upp á umhverfið og skapa það líka.“
I dag er svo formleg opnun á
vefsíðu sem Tölvun hefur haft veg og
vanda af sem heitir IT for food. „Þetta
er einskonar tilkynningatafla þar sem
menn geta sett inn efni og við sjáum
ntikla möguleika í þessari síðu þar
sem við erunt nú matvælafram-
leiðsluþjóð. Einnig er vert að ítreka
markaðsvæði okkar er að verða allur
heimurinn, ekki bara Eyjar og Island."
Davíð segir að hann haft til að
mynda kynnst Finna á fundinum í
Skotlandi, þar sem ákveðið var að fara
í samvinnu við hann til þess að koma
á on-line bókunarkerfi í ferðaþjónustu.
„Þetta umhverft var hannað hér og
býður upp á þann möguleika að ein-
staklingar panti í gegnum Intemetið til
dæntis gistingu eða annað það sem
ferðaþjónustan hefur upp á að bjóða.“
„Öll þessi vinna er þó háð
fjármagni," segir Davíð. „Þó að
margir styrktaraðilar komi að málum
eru styrkir eins og þeir sem
Evrópubattdalagið býður upp á
ómetanlegir fyrir þróun og eflingu
hugbúnaðargerðar.
NÝIR STARFSMENN Á FRÉTTUM Tveir nýir
starfsmenn hafa hafa bæst viö á ritstjórn Frétta. Benedikt
Gestsson, bókmenntafræðingur sem einnig hefur lokiö námi
í hagnýtri fjöimiðlun frá Háskóla íslands, er í fullu starfi og
sinnir öllum almennum fréttum. Rútur Snorrason er í hluta-
starfi og skrifar um íþróttir.
Aluarlegt vinnuslys
Alvarlegt vinnuslys varð hjá fyrir-
tækinu Berg-Hugin um klukkan
18:00 á þriðjudagskvöldið. Slysið
varð með þeim hætti að maður var
að vinna með slípirokk þegar
rokkurinn festist. Við það missti
hann tök á slípirokknum sem lenti í
andliti hans. Lögreglan segir að
maðurinn hafi verið með
öryggishlífar fyrir andliti og farið
eftir þeim reglum sem ætlast er til
þegar unnið er með slíkum tækjum.
Maðurinn fór beint í aðgerð en ekki
var lögreglu kunnugt um líðan hans
áþessu stigi.
OddurJúlmeð
ábendingar
í bréft til bæjarráðs nýlega leggur
Oddur Júlíusson til að því verði
beint til menningarmálanefndar að
hafa forgöngu um að lög sern fólk á
hugsanlega í fórum sínum, verði
tekin upp og gefin út á plötum.
í því santbandi bendir hann á
farsælt samstarf Landakirkju og
Stúdíó Klettshellis. Segist hann vita
um fólk sem á lög sem ættu fullt
erindi á plötu.
Oddur beinir því einnig til
menningarmálanefndar að hún. í
samstarfi við aðila í prentþjónustu í
bænum, ráði rithöfund í eitt ár til
starfa og yrði verk hans gefið út í
Eyjum.
Jónímarkaðsmálin
Jón Bemódusson. sem hafði veg
og vanda að uppbyggingu hurða-
verksmiðjunnar ÍMEX í Vest-
mannaeyjum, er byrjaður að vinna
hjá Siglingastofnun. Hann mun
áfram sinna sölu- og markaðs-
málum fyrir ÍMEX.
Starfsemi verksmiðjunnar er nú
komin í fullan gang og sala á
hurðunt í Þýskalandi gengur vel.
SteiniogOlliá
Hraunbúðir
Fyrir bæjarráði á þriðjudaginn lá
fyrir verksamningur við Steina og
Olla að upphæð 30 milljónir vegna
ífamkvæmda við Hraunbúðir. Hluti
verksins var unninn á síðasta ári.
Bæjarráð samþykkti samninginn
og að gert verði ráð fyrir nauðsyn-
legri fjárveitingu til verksins á fjár-
hagsáætlun þessa árs.
Skráir áfram
Einnig lá fyrir bæjarráði samningur
milli vinnumálastofu og Vest-
mannaeyjabæjar um að bærinn
annist atvinnuleysisskráningu fyrst
um sinn.
Gefumgæsinnigrið
Áhugamenn urn náttúruvernd vilja
koma því að framfæri við skot-
glaða Eyjamenn að þeir láti gæsina
á Daltjöminni í friði. Þama er urn
að ræða unga blesgæs. Blesgæsir
verpa á Grænlandi og eru farfuglar
hér á landi vor og haust.
í FRÉTTIR
Útgefandi: Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Ritstjóri: Ómar Garðarsson. Blaðamenn: Benedikt Gestsson & Sigurgeir Jónsson.
Iþróttir: Rútur Snorrason. Abyrgðarmenn: Ómar Garðarsson & Gísli Valtýsson.
Prentvinna: Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Aðsetur ritstjórnar: Strandvegi 47II. hasð. Sími: 481-3310. Myndriti: 481-1293.
Netfang/rafpóstur: frettir@eyjar.is. Veffang: hnp//www.eyjar.is/~frettir.
FRÉTTIR koma út alla fimmtudaga. Blaðið er selt í áskrift og einnig í lausasölu í Turninum, Kletti, Novu, Skýlinu, Tvistinum, Amigo, Kránni, Búrinu,_ Vöruval, Herjólfi, Flugvallarversluninni,
Tanganum, Söluskálanum. í Reykjavík: hjá Esso Stóragerði, í Flugteríunni á Reykjavíkurflugvelli. FRÉTTIR eru prentaðar í 2000 eintökum. FRÉTTIR eru aðilar að Samtökum bæjar-
og héraðsfréttablaða. Eftirprentun, hljóðritun, notkun Ijósmynda og annað er óheimilt nema heimilda sé getið.