Fréttir - Eyjafréttir - 15.01.1998, Blaðsíða 8
8
Fréttir
Fimmtudagur 15.janúar 1998
Matthildur Sveinsdóttir spáir í áriö 1998:
Þar sem völva sú er rýnt hefur í framtíðina fyrir Fréttir undanfarin ár hefur
hætt öllum framtíðarspádómum og hyggst láta hverjum degi nægja sína
þjáningu í öllum greinum fóru Fréttir á stjá í leit að nýrri völvu til þess að
veita lesendum sínum innsýn í það sem framtíðin kann að fela í skauti
sér.
Að vel athuguðu máli féllst Matthildur Sveinsdóttir á að taka að sér
þetta vandasama verkefni. Hún ætlar að leggja tarotspilin á borðið og
sjá hvaða dulmögn koma til hennar úr framtíðinni. „Ég spái samt ekki til
þess að hræða fólk og ef eitthvað ógnvekjandi kemur upp, þá mun ég
ekki segja frá því. Mér hefur ekki þótt það vitlegt að vekja upp hræðslu
hjá fólki, eins og mér hefur fundist margir vera farnir að gera að
undanförnu.
Matthildur leggur áherslu á það að maðurinn hafi frjálsan vilja og þó að
spilin raðist á ýmsa vegu þá sé ekki hægt að fylgja því sem þau segja í
blindni. Maðurinn sjálfur stendur að lokum frammi fyrir aðstæðum sem
hann einn verður að taka á. Það er ekki tóbaksreykur í kringum Matthildi
og ekki þambar hún kaffi. Hins vegar á hún einn dægilegan kött sem er
af síamskyni og hinn snöfurlegasti og te drekkur hún úr stórum fanti.
Sjálfur þigg ég vatn sem er svalandi að dreypa á í mjúkum stólnum sem
hún vísar mér til sætis í. Að öllu leyti eru húsakynni Matthildar eins og
gengur og gerist á íslensku heimili. Það sem vekur kannski athygli mína
er hópur af uglum sem sitja íhugular á svipinn á borði í einu horni
stofunnar. Þær hafa róandi áhrif.
Matthildur er yfirveguð og gengur ákveðið til verks. Hún tekur
tarotspilin úrfjólubláum silkiklút, breiðir hann á borðið og leggurstokkinn
á dúkinn. Því næst stokkar hún spilin, tekur fram kristalpendúl og lætur
hann hanga yfir stokknum.
Ég spyr hana hvað þessi athöfn eigi að tákna?
„Spilin mega ekki vera í beinni snertingu við neitt „óhreint", þess vegna
hef ég þau í silki sem er náttúrulegt efni. Fjólublái liturinn er litur heilunar
og sjöunda orkugeislans, sem miðlar jákvæðum straumum. Pendúlinn
nota ég hins vegar til þess að spyrja spilin hvort þau séu tilbúin eða vilji
að þau séu spurð.“
Gott og vel og hvað segir pendúllinn?
„Hann segir já.“
Þá er Matthildi ckkert að vanbúnaði að leggja spilin. Ég byrja á því að
biðja hana um að leggja spilin þannig að hægt sé að fá heildarspá fyrir
Vestmannaeyjar á hinu nýja ári. Hún segir það ekkert mál og segist ætla
að leggja svokallaða árslögn þar sem eitt spil standi fyrir hvern mánuð
ársins. Hún segir að kannski hefði verið betra að hafa eitthvert þekkt
andlit bæjarins á staðnum, því þá næðist betra samband. Þar sem það
er ekki til staðar segir hún að við verðum bæði að einbeita okkur að
Eyjunum í huganum. Það gerum við og hún biður mig að draga eitt spil
til að fá ímynd miðju og heildarsýnar. Þessi spá hennar fyrir allt árið
tengist mjög efnahag og atvinnumálum.
Hvað sagði Völva Frétta um árið 1997?
Mislagðar hendur og sambandið ekki alltaf gon
Þegar haf't var samband við Völvu
Frétta var hún frekar niðurdregin.
Hún sagðist ekki hafa verið í góðu
formi, þegar blaðamaður spjallaði
við hana fyrir ári. „Ég var að fara
með mig á kaffidrykkju og Camei-
rcyk og skil það hreinlega ekki
hvers vegna ég sá það ekki fyrir að
ég myndi hætta ofneyslu þessara
eiturlyfja. I framhaldi af því lagði
cg alla forvitni á hilluna um
framtíðina og hef snúið mér að því
að gera upp mína persónulegu
fortíð og reyni að lifa fyrir daginn í
dag.“
Þrátt fyrir þetta ástand völvunnar
skulum við líta á það sem rættist hjá
henni í spádómum fyrir árið 1997.
„Vestmannaeyingar verða duglegir
að koma sér í sviðsljósið." Óhætt er
að segja að jaetta hafi gengið eftir hjá
henni og hægt að nefna mikla
umræðu um fólksfækkun í Eyjum,
versnandi afkomu Vinnslustöðvarinar
o.s.fr.
„Ég sé fullt af loðnu. Það sem
veldur áhyggjum eru humarveiðarn-
ar.“
Loðnan brást ekki þótt hún hafi að
vísu verið smærri og verðminni auk
þess senr verkfallsógnin hafi verið
við dymar hjá starfsmönnum í
loðnubræðslum. Hins vegar gekk það
eftir að humarveiðin brást gjörsam-
lega.
„Ég sé fyrir mér sjónvarpsútsend-
ingar og sjónvarpsþætti frá Eyjum
senr eiga eftir að vekja heimsathygli
og hafa jákvæð áhrif á ferðamanna-
straum hingað.'1
Víst gekk þetta eftir þrátt fyrir
Camelskjálfta Völvunnar og skemmst
að minnast áhuga þýskra sjónvarps-
stöðva í kringum velgengni ÍBV á
síðasta ári að ógleymdu Jason
verkefninu sem snerist um beinar
sendingar frá Eyjum á lnternetinu.
..segir von á nýju fyrirtæki í
bænum"
Þar sá Völvan skýtl því ungur
maður stofnaði fyrirtækið Eyjablikk
og mjölpokaþvottastöðin Asar var
stofnuð á árinu að ógleymdu hinu
nýstofnaða fyriitæki Sigmund hf.
„Tilskipun ES um nýja vinnu-
tilhögun á eftir að valda hávaða."
Þetta gekk eftir, því mikill titringur
var meðal starfsmanna í loðnubræðsl-
um vegna þessarar tilskipunar.
„Miklar hræringar verða á vinstri
væng stjórnmálanna þar sem kyn-
slóðaskipti verða."
Óhætt að segja að engin skamm-
sýni hafi fylgt þessari spá. Eins og
allir vita eru miklar sameiningar-
pælingar í gangi hjá vinstragenginu
um allt land. Vestmannaeyingar hafa
ekki farið varhluta af þessu og nægir
að nefna V-listann og bæði Ragnar
Óskarsson Alþýðubandalagi og
Guðmundur Þ.B. Alþýðuflokki hafa
ákveðið að leggja hina pólitísku skó á
hilluna.
„Þingmennimir okkar munu báðir
vera í sviðsljósinu ...sérstaklega annar
þeirra og munu þeir reynast Eyjum
vel.“
Þetta eru orð að sönnu, því Árni
Johnsen lenti milli tannanna á fölki
vegna húsbyggingar sinnar í Eyjum
og ekki vakti minni athygli
fnjmfiutningur Stórhöfðasvítunnar af
segulbatidi á Stórhöfða nú í desember
síðastliðinn sem Ámi er höfundur að.
„Ekkert bikarævintýri verður í
sumar eins og í fyrra en hins vegar
mun framganga ÍBV í Evrópu-
keppninni verða til þess að við
missum stráka í atvinnumennsku í
haust."
Það er nokkuð ljóst að völvan er
mjög íþróttalega sinnuð. Þetla gekk
svo fast eftir að ekki var laust við að
völvunni brygði nokkuð sjálfri.
Völvan talar um að „íþróttahreyf-
ingin í Eyjum standi á tímamótum.“
Hún spáir því að nýtt félag verði
stofnað sem muni ganga vel
félagslega, en ekki standa undir
væntingum tjárhagslega.
Þetta stemmir hjá Völvunni, því
Þór og Týr voru sameinaðir í 1B V, en
hún hefur kannski verið heldur of
bráð á sér að spá fyrir um tjár-
hagshliðina hjá hinu unga félagi.
„Á menningar- og listasviðinu
verður mikið um að vera og verður
það eitt hið blómlegasta í mörg
ár...þar vegur nýr Listaskóli þungt á
metunum."
Listaskóli var vígður á árinu og
menningarstarfsemi var með miklum
blóma bæði á myndlistar- og tónlist-
arsviðinu. Skemmst að minnast
mikills sigurs Kirkjukórs og Sam-
kórsins bæði í Eyjutn og á fasta-
landinu og hingaðkomu Braga Ás-
geirssonar myndlistarmanns og gagn-
rýnanda gagngert til að skoða sýningu
Bjarna Ólafs Magnússonar í
Akogeshúsinu.
„...jalnvel mun útlendur listamaður
setjast hér að um tíma."
Bruce MacMillan rithöfundurinn
sem kvongaðist sinni heitt elskuðu á
Stórhöfða í sumar hafði mikinn áhuga
á því að kaupa hér hús og dvelja hér
hluta úr áii.