Fréttir - Eyjafréttir - 15.01.1998, Qupperneq 13
Fimmtudagur 15. desember 1998
Fréttir
n
Georg Kr. Lárusson sýslumaður, einn aðalsmiður punktakerfis í umferðinni
sem tók gildi um áramótin:
Sjómannaverkfall yfirvofandi þrátt fyrir að
yfirmenn hafi fellt tillögu um verkfallsboðun:
inijum fækka slysum á
uíguelli umferðarinnar
Um nýliðin áramót varð breyting
umferðarlögum og samhliða
gefínútreglugerðum
ökuferilsskrá og punktakerfi
fyrír landið alll I ökuferilsskrá
verður að finna upplýsingar um
öll umferðarlagabrot ökumanna
sem sektir eru við. Punktakerfið
nær ekki til ölvunaraksturs sem
leiðir sjálfkrafa til sviptingar
ökuleyfis. Flest önnur brot gefa
punkta og beir ökumenn sem ná
tólf punktum á þremur ánim
verða sjálfkrafa sviptir ökuleyfi í
prjá mánuði og ökumönnum
með bráðabirgðaskírteini nægja
sjö punktar til að sjá á eftir
ökuskírteinínu.
Georg Kr. Lárusson, sýslumaður í
Vestmannaeyjum, reið á vaðið með
ökuferilsskrá fyrir Vestmannaeyjar
árið 1993. Reynslan af því leiddi til
þess að hann var fenginn til að útbúa
kerfi sem næði til landsins alls og er
hann aðalhugmyndasmiðurinn að
lagabreytingunni sem tók gildi um
áramótin.
Þegar Georg er spurður að því
hver hafi verið kveikjan að því að
hann tók upp ökuferilsskrá árið 1993
stóð ekki á svarinu. „Fljótlega eftir
að ég kom hér til starfa sá ég að
fimm til sex ungir ökumenn voru að
hrella okkur í umferðinni. Flestir
þeirra duttu út þegar þeir voru teknir
vegna ölvunarakstur en aðrir héldu
áfram að stríða okkur. Þeir óku ekki
á það miklum hraða að það nægði til
sviptingar og pössuðu sig á að keyra
ekki fullir. Sérstaklega var það einn
ökumaður sem skaraði fram úr og
taldi hann ekki eftir sér að borga allt
að 30 þúsund krónur í sekt á mánuði.
Það fannst honum ekki of mikið fyrir
að stríða lögreglunni," segir Georg.
Georg á sæti í umferðaröryggis-
nefnd á vegum dómsmálaráðu-
neytisins. Þar komst hann í gögn um
erlendar ökuferilsskrár sem eru
tengdar öllunr umdæmum. „Þegar
við byrjuðum með ökuferilsskrána
árið 1993 sáum við fljótlega að við
vorum að mismuna ökumönnum.
Það voru eingöngu Eyjamenn sem
sátu í súpunni. Núna er aftur á móti
sama hvort menn brjóta af sér á
Siglufirði. Vestmannaeyjum eða
Reykjavík, allt er fært inn á sömu
ökuferilsskrána."
Fyrirmynd punktakerfísins er sótt
víð svegar úr heiminum, m.a.
Þýskalandi. Nýja Sjálandi, Kanada
og Bandaríkjanna. En punktakerfí er
ekki að finna á Norðurlöndum.
Georg settist yfir gögn frá þessum
löndum við annan mann. „Okkur var
falið að semja lagafrumvarp og
reglugerð. ökuferilsskrá og punkta-
kerfið sem tók gildi nú áramótin.
, J>essi lagabreyting heimilaði að sett
yrði reglugerð um punktakerfi. Þó
fyrirmyndin sé erlend smíðuðum við
alveg séríslenskt punktakerti. Því er
aðallega ætlað að taka á smærri
umferðarlagabrotum sem ekki liggur
svipting við. Með því á að koma í
veg fyrir slóða- og sóðaskap í
umferðinni," segir Georg.
íslenska kerfið hefur vakið mikla
athygli á Norðurlöndum og hefur
Georg flutt þar fyrirlestra hjá
yfirvöldum umferðarmála.
L
GeorgKr.Lárusson
í höfuðdráttum virkar kerfið
þannig að ákveðin umferðarlagabrot
færast í ökuferilsskrá viðkomandi
ökumanns. „Þegar ökumaður hefur
safnað upp tólf punktum á þriggja
ára tímabili verður hann sviptur
ökuréttindum f þrjá mánuði. Kemur
það til viðbótar þeirri refsingu sem
hann fær við síðasta brot sem nær að
fylla kvótann. Ungir ökumenn með
bráðabirgðaskírteini sæta þyngri
viðurlögum og^eru sviptir við sjö
punkta markið. Áðuren til sviptingar
kemur fá ökumenn viðvörun frá
ríkislögreglustjóra. Það gerist þegar
þeir hafa fengið átta punkta og fólk
með bráðabirgðaskírteini fær að-
vörun við þrjá punkta."
Punktar færast inn með þrenns
konar hætti. í fyrsta lagi þegar
ökumaður greiðir sekt vegna
umferðarlagabrots. í öðru lagi þegar
ökumaður undirgengst lögreglu-
stjórasátt hjá sýslumanni og í þriðja
lagi með dómi.
Brot fyrnist sjálfkrafa þremur
árum eftir að það er framið, þegar
kemur til sviptingar vegna upp-
safnaðra punkta og þegar viðurlög
vegna brota falla úr gíldi.
„Punktakerfinu er ætlað að taka á
brotum sem skapa hættu í
umferðinni, t.d. eins og að aka yfir á
rauðu ljósi. Ölvunarakstur gefur ekki
punkta. Viðulög vegna hans eru
mjög skýr, svipting ökuleyfis og þar
eru ítrekunaráhrif. Með punkta-
kerfinu er verið að búa til ítrekun-
aráhrif í öðrum brotum. Eftir því sem
ökumaður brýtur oftar af sér harðnar
á dalnum hjá honum.“
Georg segist vonast til þess að
kerfið eigi eftir að virka en hann vill
ekki sjá hálfa þjóðina án ökuleyfis
fyrir vorið. „Miðað við reynslu
annarra þjóða er það ekki nema
fjórðungur ökumanna sem fær
punkta og ef miðað er við tölfræðina
má búast við að 20 til 30 ökumenn
verði sviptir árlega á öllu landinu.
Sem dæmi um punkta má nefna
að akstur gegn rauðu Ijósi gefur fjóra
punkta, ekið gegn einstefnu tvo
punkta. ekið fram úr þar sem það er
bannað gefur þrjá punkta, þegar ekið
er yfir 41 km hraða eða meira yfir
leyfilegum hámarkshraða gefur tjóra
punkta og þegar ekið er 31 til 40 km
yfir leyfilegum hámarkshraða gefur
þrjá punkta. Önnur brot gefa einn til
tvo punkta.
Það er von okkar að vamaðar-
áhrifin verði sterk svo dragi úr
slysatíðni og ekki komi til þess að
mikill fjöldi ökumanna verði sviptur
ökurétti. Að lokum er rétt að hafa
það í huga að við erum að fjalla um
einstaklinga sem gerast brotlegir við
þau ákvæði umferðarlaga sem eru
svokölluð hættubrot og em sett til að
vemda líf og limi borgaranna. Það er
á þessum vígvelli sem menn í allt of
mörgum tilfellum örkumlast og eins
og tölur sína, láta lffið,“ sagði Georg
Kr. Lámsson sýslumaður að lokum.
__________________________________I
Kvótabraskið
kemur lítið víð
sjómenn í Eyjum
-segir formaður Verðandi
Á meðan félagar í Skipstjóra- og
stýrimannafélaginu Verðandi felldu
að boða til verkfalls frá og með 2.
febrúar nk. samþykktu félagsmenn
í Sjómannafélaginu Jötni sam-
hljóða tiilögu. Afstaða skipstjóra og
stýrimanna í Vestmannaeyjum
kom ekki á óvart og jafnvel var
búist við að undirmenn á fiski-
skipaflotanum myndu einnig fella
tillöguna. Aðalkrafa sjómanna er
uppstokkun á verðmyndunarkerfi
aflans en LIU hefur sett fram
kröfur á móti. Aðalkrafa útgerðar-
manna er að fá helming hlutar
þegar færri eru í áhöfn en ákvæði
kjarasamninga segja til um.
Vélstjórar eru sér á báti í þessum
viðræðum með kröfum sínum í
hærri aukahluti.
Tillaga um verkfallsboðun frá og
með 2. febrúar nk. kom frá lands-
samtökum sjómanna og yfirmanna og
voru atkvæði allra félaganna talin á
fimmtudaginn. Verkfallsboðun var
samþykkt í langflestum tilfellum og
var Verðandi stærsta félagið sem
felldi tillöguna. Það kemur þó ekki í
veg fyrir að flotinn stöðvist, komi til
verkfalls, þar sem félagar í Jötni
samþykktu verkfallsboðið.
„Hjá Verðandi eru 133 á kjörskrá
og greiddu 92 atkvæði. Af þeim sögðu
58 nei, 32 sögðu já og tveir skiluðu
auðu,“ segir Halldór Guðbjömsson
starfsmaður Verðandi og bætti við að
úrslitin hafi ekki komið á óvart.
í sama streng tók Magnús Guð-
mundsson formaður félagsins. „Það lá
í loftinu að menn voru ekki tilbúnir til
að fara í átök á þessum tíma,“ segir
Magnús. ,Ástæðumar eru þær helstar
að loðnusjómenn segja að þetta sé
versti tínrinn fyrir þá að fara í verkfall,
þegar loðnuvertfð stendur sem hæst.
Hin ástæðan er sú að sjómenn í
yestmannaeyjum hafa það bara ágætt.
Eg hef talað við marga og þeir taka
undir þetta. Þá er kvótabraskið ekki
eins áberandi hér og sums staðar
annars staðar á landinu."
Magnús, sem er skipstjóri á
togaranum Bergey, sem er í eigu
ísfélagsins, segir að aðalkrafa sjó-
mannasamtakanna um verðmyndun
sjávarafla sé ekki svo mikið upp á
borðinu í Eyjum. Sjálfur er hann
ánægður með samskiptin við
ísfélagið. „Ég veit ekki hver útkoman
er á síðasta ári en árið 1996 fóru um
60% aflans á markað og var ísfélagið
sjálft iðulega að kaupa fisk frá okkur.
Sama er að segja hjá Vinnslustöðinni,
þar fer hluti aflans á markaði hér og
erlendis. Hjá einstaklingsútgerðunum
er aflinn seldur þar sem hæsta verðið
er hverju sinni,“ segir Magnús.
Hjá Jötni em 316 á kjörskrá og af
þeim greiddu 188 atkvæði sem er
tæplega 60% kjörsókn. Já sögðu 109,
76 sögðu nei og þrír seðlar voru auðir
og ógildir. Elías Bjömsson, formaður
Jötuns, sér fram á erfiða samninga og
þar komi ekki síst til kröfur LÍÚ. Um
kröfur sjómanna um að allur fiskur
fari á markað eða fiskverð verði
markaðstengt eða tengt afurðaverði
segir hann að útfæra megi það á
marga vegu.
„Við höfum sett fram þrjár
hugmyndir. I fyrsta lagi að fiskverð
fáist með sölu á markaði, gólf- eða
tjarskiptamarkaði. í öðru lagi að
fiskverð verði til við tengingu við
markaðsverði og í þriðja lagi að
fiskverð verði til með tengingu við
afurðaverð. Það sem við erum að
berjast fyrir er að sjómenn taki ekki
þátt í kvótabraskinu og forðast návígið
við útgerðarmenn um ákvörðun
fiskverðs," segir Elías.
Kröfur LIÚ eru f tíu liðum og það
sem helst stendur í sjómönnunt snýr
að fækkun í áhöfn. Fram að þessu
hafa sjómenn fengið óskiptan aflahlut
þegar þeir hafa verið færri í áhöfn en
ákvæði segja til unt. Sem dæmi má
taka bát þar sem skiptaprósentan er
30% sem skiptast á í tólf staði. Séu níu
í áhöfn skiptast þessi 30% í jafnmarga
staði og hækkar kaupið samsvarandi.
Auk þess hækka aukahlutirnir sem
útgerðin borgar af sínum hlut. LÍÚ
krefst þess að helmingur hlutar þeirra
sem vantar í áhöfn skiptist milli þeirra
sem eru um borð og hinn
helmingurinn renni til útgerðarinnar.
Önnur krafa sem lýtur að launum er
hlutur skipstjóra á nótaskipum sem í
dag hafa þrjá hluti. Krafa LÍÚ er að
þeirfái tvo hluti.
Verði skipverji óvinnufær vegna
sjúkdóms eða meiðsla sem ekki verða
rakin til vinnuslyss fær hann greiddan
hlut í allt að tvo mánuði og síðan
kauptryggingu. Ræðst það af starfs-
aldri hvað sá tími er langur. LÍÚ vill
að kauptrygging verði greidd fyrsta
mánuðinn og síðan laun staðgengils í
tvo nránuði.
Þá vill LÍÚ að öll helgarfrí verði
afnumin og í staðinn komi fjögurra
sólarhringa frí í mánuði. Þá vilja
útgerðannenn að hægt verði að semja
um að hafnarfrí verði ekki tekin en í
staðinn skipti skipveijar með sér fríum
eða frítúrum. Eins að skipverjar á
vinnsluskipum taki sér frí þriðja hveni
túr nema samkomulag sé um annað.
Tryggingagjald, sem alþingi hækkaði
nýlega, vilja útgerðarmenn að verði
tekið af óskiptu. Næst síðasta atriðið
snýr að frystitogurum. 1 dag skipta 24
skipverjar á milli sín 31.5% af afiahlut
sem hækkar um 0,5% við hvern
skipverja þar umfram. LIÚ vill að
bætt verði við að 31,5% miðist við 25
og 26 menn í áhöfn. Að lokunr áskilja
útgerðarmenn sér fullan rétt á að
leggja fram frekari kröfugerð.
Magnús Kristinsson, formaður
Útvegsbændafélagsins, segir að
staðan sé óneitanlega erfið og
niðurstaðan hjá Jötni hafi verið þvert á
það sem vonast var til. „Okkar
draumur var að verkfallstillagan yrði
ekki samþykkt og áfram yrði róið af
fullum krafti frá stærstu verstöð
landsins. Ekki síst í febrúar sem er
okkur svo mikilvægur vegna
Ioðnunnar. Staðan í dag er mjög
tvísýn og erfitt að spá í framtíðina,"
segir Magnús.
I gær lá fyrir að vélstjórar á stórum
fiskiskipum fresta verkfalli sínu til 2.
febrúar þannig að þá fara allir sjó-
menn í verkfall náist samningar ekki.