Fréttir - Eyjafréttir - 19.03.1998, Blaðsíða 1
Opna
vikan
heppn-
aðist vel
Opin vika var haldin í
Framhaldsskólanum í síðustu
viku undir kjörorðunum Ást
er... Tókst framkvæmdin í
allastaði vel, þrátt fyrir
áhuga margra nemenda á því
að afla sér heldur tekna í
loðnufrystingunni. Meðal
þess sem nemendur tóku sér
fyrir hendur var að setja á
svið leikritið, Þetta er allt
vitleysa, Snjólfur, vinna við
hönnun og gefa út blað.
Vikunni lauk svo með árshátíð
skólans þar sem þessi
skötuhjú gengu um klæðalítil
utan álbróka að hylja það sem
áður var hulið laufblöðum.
Má segja að nútíminn hafi
haldið innreið sína í Paradís
Framhaldsskólanema, enda
herma sögur að mun hlýrra
hafi verið þar en í
loðnufrystingunni.
Sjámiðopnu.
flllar likuráað miðlunartillaga
ríkissáttasemjara verðl samltykkt
í gær var haldinn fundur í Sjó-
mannafélaginu Jötni í Vest-
mannaeyjum þar sem ræða átti og
greiða atkvæði um miðiunartillögu
ríkissáttasemjara sem lögð var
fram í deilu sjómanna og útvegs-
manna.
Elías Björnsson formaður Jötuns
sagði að stjóm Jötuns og
samninganefnd sjómanna mæltu með
miðlunartillögunni en geti hins vegar
lítið sagt um hug sjómanna varðandi
tillöguna. „Þetta verður allt ljóst eftir
fundinn," sagði Elías að lokum.
Magnús Kristinsson, formaður
Útvegsbændafélags Vestmannaeyja,
sem sæti á í samninganefnd útvegs-
manna, sagði miðlunartillöguna mjög
óhagstæða útgerðarmönnum. Hann
segir að þættir sem beindust að
atvinnuöryggi og tryggingarmálum og
endurmenntun undirmanna og
yfirmanna hafi allir verið inni á
borðinu í samningaviðræðunum.
, fyrir utan það að þegar kosningu um
tillöguna lýkur fara lögin að tifa og
hægt að vísa öllum ágreiningi til
umboðsmanns sjómanna"
Hann segir að allar millifærslur verði
þyngdar og þeir sem veiði fyrir aðra
verði að fara í gegnum kvótaþing.
„Það er ekki einu sinni hægt að
millifæra innan sama sveitarfélags án
þess að kvótaþing komi að málinu.
Þetta mun gera einyrkjum í greininni
mjög erfitt fyrir og eiga þeir nógu
erfitt fyrir.“
Magnús telur þó að tillagan verði
samþykkt á landsvfsu þó að hún verði
hugsanlega felld hjá einstökum
félögum. „Þetta verður þungur
róður,“ sagði Magnús að lokum.
Atkvæði verða talin í dag og þá
kemur í ljós hvort flotinn leysir land-
festareða ekki.
A borðum Alþingis 13 árum eftir að skipið strandaði:
Aflaheimildir Sa-
bjargar faist færAar
yfir á annað skip
-Mistök Siglingamálastofnunar 1986 urðu til þess útgerðin
fékk ekki úthlutað kvóta 1968, segir Árni Johnsen
Árni Johnsen, alþingismaður, lagði
í gær fram frumvarp á Alþingi um
breytingu á lögum um stjórn fisk-
veiða frá árinu 1990 og breytingum
sem gerðar hafa verið á þeim síðan.
Um er að ræða ákvæði til bráða-
birgða sem veitir sjávarútvegs-
ráðherra heimild til að úthluta
aflaheimildum til nýrrar Sæbjarg-
ar. Þarna er á ferðinni stórmái því
loðnukvóti Sæbjargar VE var 1,9%
af úthlutuðum loðnukvóta 1984. Er
um að ræða um 20 þúsund tonn
miðað við kvótann í dag.
Ákvæðið hljóðar svona: „Sjávarút-
vegsráðherra er heimilt að úthluta
aflaheimildum á Sæbjörgu VE 56,
skipaskrárnúmer 1062, til samræmis
við aflaheimildir eldra skips sem
strandaði við Stokksnes 17. desember
1984.“
Með frumvarpinu fylgir greinargerð
þar sem rakin er saga Sæbjargar VE
eftir strandið. Meðal annars er bent á
að fyrir mistök Siglingamálastofnunar
hafi Sæbjörg verið tekin af skipaskrá
31. desember 1984 og enn hafi veðum
ekki verið aflýst af skipinu. Segir Ámi
að vegna afskráningarinnar hafi
Sæbjörg lent utan við hópinn sem
úthlutað hefur verið aflaheimildum frá
því lög um stjómun fiskveiða frá árinu
1985 tóku gildi. „Mistök voru gerð
árið 1986 við úthlutun aflaheimilda,
en rót mistakanna liggi hjá Siglinga-
málastofnun,“ segir Ámi í greinar-
gerðinni.
„Sjávarútvegsráðuneytið hefur í
umsögn sinni um málið talið skorta
lagaskilyrði fyrir því að leiðrétta þau
mistök við úthlutun aflaheimilda sem
urðu vegna ótímabærrar afskráningar
skipsins. Er ráðuneytið með frum-
varpi þessu veittur nauðsynlegur laga-
grundvöllur til úthlutunar aflaheint-
ilda,“ segir í lokaorðum greinar-
gerðarinnar.
Árni Johnsen gat í gær ekki sagt
hverjir væru meðflutningsmenn hans
að frumvarpinu, þar sem það væri
ekki endanlega ljóst. Um framgang
málsins vildi hann engu spá., J>etta er
réttlætismál þar sem um mistök var að
ræða við úthlutun aflaheimilda sem
urðu vegna ótímabærrar afskráningar
skipsins," sagði Ámi.
í gær var aðeins vitað með vissu að
Margrét Frímannsdóttir ætlaði að
styðja tillögu Áma. Ekki var vitað um
afstöðu annarra þingmanna Suður-
lands en gera má ráð fyrir stuðningi
allra nema Þorseins Pálssonar.
Stór bjðrgunaræflng
Þann 28. mars er fyrirhuguð allsherjar almannavarnaæfing í
Vestmannaeyjum. Æfingin er á vegum Flugmálastjórnar og Almanna-
varna Vestmannaeyja í samráði við Björgunarfélag Vestmannaeyja og
Heilbrigðisstofnunina í Vestmannaeyjum.
Æfingin verður tvískipt og ber Heitið Bakki 98 og Eyjar 98, þar sem önnur
æfingin verður skipulögð á Bakkaflugvelli og hin á flugvellinum í Eyjum
Tilgangur æfinganna er að þjálfa hina ýmsu aðila sem koma að björgun og að-
hlynningu í hópslysum. Æfingamar em ekki hugsaðar sem hraðapróf heldur em
þær frekar hugsaðar sem verkleg kennsla fyrir þá sem að þeim koma.
Að sögn Georgs Kr. Lámssonar sýslumanns er gert ráð fyrir því að stjómun
hvers þáttar verði í höndum sérþjálfaðra manna í aðkomu að hópslysum. Þeir
munu svo í samráði við sýslumenn, sjúkrahús, heilsugæslu, slökkvilið,
björgunarsveitir og starfsmenn Flugmálastjómar annast undirbúning hvers þáttar
æfmgarinnar.
Bílaverkstæðið BRAGGINN s/f.
RÉTTINGAR OG SPRAUTUN:
Flötum 20 - Sími 481 1535
VIÐGERÐIR OG SMURSTÖÐ:
Græðisbraut 1 - sími 4813.
Alla daga nema sun..
sunnudaga
föstudaga
Frá Eyjum: Frá Þorl.höfn:
Kl. 08:15 Kl. 12:00
Kl: 14.00 Kl: 18.00
Kl. 15.30 Kl. 19.00
Ucrjólfur
BRUAR BIUÐ
Sámi 4812800 Fax 4812991
Bókabúðin
Heiðarvegi 9 - Sími 481 1434