Fréttir - Eyjafréttir - 19.03.1998, Blaðsíða 10
10
Fréttir
Fimmtudagur 19. mars 1998
Háls- nef- og
eyrnalæknir
Atli Steingrímsson háls- nef- og eyrnalæknir
verðurá Heilbrigðisstofnuninni í
Vestmannaeyjum dagana 25. 26. og 27. mars.
Tímapantanir föstudaginn 20. mars
og mánudaginn 23. mars kl. 9 -11
Sími 481 1955
Heilbrigðisstofnunin í Vestmannaeyjum
Öll almenn heimilistækja
og raflagnaþjónusta.
EINAR HALLGRÍMSSON
Verkstæði að
Skildingavegi 13
® 481 -3070 & h® 481 -2470
Far® 893-4506.
Myndirnar fengum við hjá Siggu í Skuld. Myndin hér að ofan sýnir Þórslið. Frá vinstri: Ingunn Jónasdóttir frá Skuld,
Kristin Jónsdóttir, Sigríður Inga Sigurðardóttir frá Skuld, Ester Ágústsdóttir frá Aðalbóli og Kristbjörg Sigjónsdóttir.
Myndin hér til hægri birtist í slðasta
blaði en einhver nöfn vantaði. Frá
vinstri: Guðrún Ingvars, konajónasar
frá Skuld sem var fyrsti starfsmaður á
Vestmannaeyjaradíói, Eygló
Stefónsdóttir, frá Skuld, kona Ólafs
Björnssonar smiðs, Viktoría Jónsdóttir
frá Sunnuhlíð. Hennar maður Halldór,
Sigurbjörg Benediktsdóttir, systir
Helga Ben. og gift Ágústi Matthíassyni
forstjóra hjá Einari Sigurðssyni, Dóra
Úlfarsdóttir, gift Njáli Andersen I
Magna. Þórunn Sigurðardóttir, systir
Þorsteins á Blátindi, gift Jóni
bankastarfsmanni, Júlía Matthíasdóttir
frá Litluhólum, gift séra Þorsteini Lúther presti, Guðrún Stefánsdóttir frá Skuld, gift Helga Ben., stórkaupmanni og
útgerðarmanni og Lovísa Sigurðardóttir frá Skuld, gift Guðna Grímssyni útgerðarmanni Maggýjar VE 111,
Sigga frá Skuld kom með myndina sem hún fékk á Húsavík hjá Ingunni Jónasdóttur frá Skuld.
FASTEIGNAMARKAÐURINN I
VESTMANNAEYJUM
Opið i10:00 -18:00 alia viika daga. Simi 4811847 Fax. 481 1447
Viðtalstími kjgmanns 16.30 -19.00 þrtðjudaga íl löstudaga.
Skrifstofa i Rvk. Garðastræf 13,
Viðtalstími mánudaga kl. 18 ■ 19, Sími 551-3945
Jón Hjaltason, hrl. Löggiltur fasteignasalí
Guðbjörg Ósk Jónsdóttir Löggiltur
fasteigna- og skipasali
HUSEY
HUSEY
BYGGINGAVÖRUVERSLUN
VESTMANNAEYINGA
m
l
00
Tímamólasamningur um sorphirðu og sorpeyðingu
Þann I. mars sl. tók Gámaþjónusta
Vestmannaeyja ehf. við rekstri
Sorpeyðingarstöðvarinnar en í því
felst m.a. öll móttaka. flokkun og
eyðing sorps samkværnt verklýsingu.
Aðdragandi
Forsaga þessa máls er sú að eftir að
forstöðumaður Sorpeyðingarstöðv-
arinnar sagði starfi sínu lausu sl.
sumar barst stjórn Bæjarveitna Vm.
bréf frá Guðmundi Richardssyni, f.h.
Gámaþjónustu Vm„ þar sem óskað
var eftir viðræðum við fulltrúa
Bæjarveitna um möguleika á yfirtöku
á rekstri Sorpeyðingarstöðvarinnar
eða einhvers hluta reksturs, þ.m.t.
urðun, gámaplan eða gámasvæði
austan stöðvarinnar.
Stjórn Bæjarveitna fól veitustjóra
og undiirituðum, sem formanni
stjórnar Bæjarveitna að ræða við
fulltrúa Gámaþjónustu Vestm.eyja
Niðurstöður viðræðna urðu þær, að
lagt var til við stjórn Bæjarveitna að
gengið yrði tii samninga við Gáma-
þjónustu Vestmannaeyja um yfirtöku
á rekstri allra þátta Sorpeyðingar-
stöðvar Vestmannaeyja.
Af hverju ekki útboð ?
Ég met það þannig að það veki
spurningar í þessu máli af hverju
samningur um rekstur Sorpeyðingar-
stöðvarinnar var ekki boðinn út.
Ég ætla því að gera grein fyrir
helstu ástæðum þessarar samninga-
gerðar.
Ábyrgð á einni hendi
Það var mikill áhugi hjá meirihluta
stjómar Bæjarveitna að láta reyna á
það að hafa sorphirðu og sorpeyðingu
á sömu hendi.
Með því að gera einn aðila ábyrgan
fyrir allri sorphirðu og sorpeyðingu
þ.m.t. meiri flokkun og urðun, ásamt
því að nú verður allt jámarusl flutt
héðan, verður skipulag betra á gáma-
og geymsluplani austan stöðvarinnar
og öll sorphirða í bænum á einni
hendi.
Því miður hefur það oft komið fyrir
þegar eitthvað hefur farið úrskeiðis,
eins og við íkveikju í Helgafellsgryfju.
að ábyrgðin er meiri en eins manns og
erfitt að ftnna þann „ábyrga" ef svo
mætti að orði komast.
Þekking og reynsla
Eigandi Gámaþjónustu Vestmanna-
eyja, Guðmundur Richardsson,
starfaði við Sorpeyðingarstöðina frá
upphafi og vann við uppsetningu
hennar ásamt Gunnari Sigurðssyni.
fráfarandi forstöðumanni og störfuðu
þeir með starfsmönnum Norsk Hydro
sem framleiddi stöðina. og hefur hann
því mjög góða reynslu af rekstri
stöðvarinnar og þekkir allan vélbún-
aðinn.
Flokkunarstöð án viðbótar
rekstrarkostnaðar:
Nú er búið að byggja flokkunarstöð
við Sorpeyðingarstöðina. Með nýjum
samningi er ekki verið að auka útgjöld
bæjarsjóðs. en reynslan er sú hjá
bænum að þegar verið er að bæta
þjónustu og auka kröfur að það kostar
töluvert og ekki er óeðlilegt að
viðbótarkostnaður hefði orðið á bilinu
5-8% ef reksturinn hefði verið áfram í
höndum bæjarfélagsins.
Verktaki með metnað
Guðmundur Richardsson hefur séð
um rekstur Gámaþjónustu Vest-
mannaeyja og hefur annast alla
sorphirðu í Vestmannaeyjum.
Þau mál eru í mjög góðu lagi og
hafa bæjaryfirvöld fengið mikil og
jákvæð viðbrögð vegna starfa hans og
starfsmanna fyrirtækisins en þau eru
óaðftnnanleg að mínu mati og hef ég
ekki fengið neinar kvartanir vegna
sorphirðunnar.
Kröfur til umhverfismála
Kröfur til umhverfismála, þ.m.t.
sorpmála auk allrar umgengni við
náttúruna. eru sífellt að aukast og við
teljum okkur vera að horfa til
framtíðar með þessum samningi. m.a.
með betri flokkun og skýrum
verklagsreglum skv. kröfum nú-
tímans.
Vandmeðfarin þjónusta
Sorpeyðing og sorphirða er þjónusta
sem er mjög vandmeðfarin og rniklar
kröfur gerðar til þeirra þátta af
bæjarbúum.
Yfirleitt er gott að „gagnrýna" hana,
en minna um að henni sé hrósað.
Sorphirðusamningur
endurnýjaður
Sorphirðusamningurinn, sem í gildi
var, hefði mnnið út árið 2001. en hann
var endumýjaður til 5 ára sem er sami
samningstími og samningurinn um
rekstur Sorpeyðingarstöðvarinnar með
tilheyrandi útisvæðum.
Samningamir renna nú báðir út á
santa tíma og það verður því stjómar
Bæjarveitna að ákveða framhaldið að
þeim tíma liðnunt.
Viðmiðunarvísitala endumýjaða
samningsins um sorphirðuna miðast
við neysluvísitölu og er það
hagstæðari viðmiðun fyrir Bæjarveitur
en var í fyrri samningi um sorphirðu.
Dýr búnaður
Vélbúnaður Sorpeyðingarstöðvar-
innar nemur andvirði 130-150
milljóna og því er mjög mikilvægt að
aðilar sem vinna við þetta gjörþekki
búnaðinn og hafi traust eigenda til
þess að umgangast hann eins og hann
væri þeirra eign.
Gagnrýni mjög eðlileg
Þegar gengið er til samninga um svo
stórt mál sem hér um ræðir er mjög
eðlilegt að gagnrýni komi fram og
væri óeðlilegt ef slík breyting yrði
ekki gagnrýnd. enda hafa allir sem að
þessu stóðu gert sér grein fyrir því.
Ég vona að þau rök sem ég hef sett
hér fram skýri ástæður þess að gengið
var til samninga við Gámaþjónustu
Vestmannaeyja ehf.
Lokaorð
Aðalatriði málsins eru að búið er að
sameina sorphirðu og sorp-
eyðingarmál í hendur mjög góðs
verktaka sem hefur fengið hrós allra
sem hafa átt viðskipti við hann og
samningurinn gerir miklar kröfur til
umhverfis okkar, er hagstæður
Bæjarveitum og þar af leiðandi öjlum
bæjarbúum.
Guðjón Hjörleifsson