Fréttir - Eyjafréttir - 19.03.1998, Blaðsíða 4
4
Fréttir
Fimmtudagur 19.mars 1998
Ostagratín Kristins mágs
Hvað er hún
Systa vinkona mín
að gera mér! Ég
sem kann varla að
sjóða ýsu svo vel
sé. Fyrir utan það
að ég get aldrei
farið nákvæmlega
eftir uppskrift. Þó
vill svo vel til að mágur minn, liann
Kristinn Egilsson matreiddi frábæran
rétt handa okkur þegar hann var
síðast í heimsókn. Hann eftirlét mér
uppskriftina og læt ég hana fylgja
hér með.
Ostagratin
250 grTortellini með kjöti
1 laukur
1/4 til 1/2 hvítlaukur
2 matsk. matarolía
1 dós tómatmauk (pure)
200 gr sveppir
Oregon, pipar, salt
100 gr skinka (snrátt skorið)
100 gr pepperoni (smátt skorið)
ofan á:
4 matsk. parmesan ostur
4 matsk. kotasæla
50 gr gráðostur
70 gr óðalsostur
1/4 1 rjónri
Pastað soðið. Allt sett í eldfast
mót. Tómatsneiðar þar yfir. Hita í
ofni í ca 30 mínútur v/ 200 gráður.
Að sjálfsögðu skora ég á Kristin að
koma með næstu uppskrift.
Erna Jóhannesdóttir er sælkeri
þessarar viku.
O F ð flp O
- Kannski Eyjamenn vakni ekkert af hinum pólitíska svefni
þetta árið. Undarlega rólegt er yfir lesendabréfunum í
bæjarblöðunum þó rétt tveir mánuðir séu til kosninga,
kjaradeilur sjómanna og útgerðarmanna í algleymingi og
sjálfsagt eitt og annað sem fólki liggurá hjarta. Ekkert bólar
á framboðslistum hvorki frá flokki né lista. Enda virðist vera
að það að fá fólk til að kjósa lista sé barnaleikur miðað við að
fá fólk til að gefa kost á sér. Þetta er ótrúleg breyting á
örfáum árum. Og hefði verið talið óhugsandi að þrír flokkar
sameinaðir auk óháðra væru í vandræðum með að fá fólk í
framboð til bæjarstjórnar.
- Og svo er þetta kannski ekkert svefn, heldur bara ánægja
með störf okkar ágætu bæjarstjórnar. Neikvæðnisnöldur
hefur stundum þótt vera of áberandi í bæjarlífinu hér en nú er
ekki hægt að kvarta yfir því. Enda, höfum við yfir einhverju að
kvarta? Skipum fjölgar, kvóti eykst og því vonandi verið að
snúa vörn í sókn. Helst að það vanti fólk í vinnu og svo
kannski á framboöslistana.
- Nú er á fullu verið að undirbúa Búastaðagryfjuna undir nýtt
hlutverk. Fréttir herma að ekki hafi verið ágreiningur um
málið í bæjarstjórn. Ekki eru þó allir á eitt sáttir með að hún
verði notuð undir óbrennanlegt sorp og þykir sérstaklega
íbúum austast í austurbænum nálægðin við íbúabyggðina
þar fullmikil. Einnig eru þeir aðilar sem vinna að ferðamálum
hér ósáttir við staðsetninguna. Nokkuð seint mun þó vera að
mótmæla nú, þar sem ákvörðun liggur fyrir og framkvæmdir
hafnar.
- Heyrst hefur að Þjóðhátíðarnefnd fái ekki frið fyrir
hljómsveitum sem sækja það fast að fá að spila á Þjóðhátíð.
Virðist ásókn hljómsveita aukast árfrá ári og vonandi að það
skili sér í enn betri dagskrá og hagstæðari samningum.
- Aðalfundur ÍBV-íþróttafélags hefur enn ekki verið haldinn
en sumum þykir vera kominn tími til. Eru gamlir Týrarar
farnir að óttast að aðalfundur lendi í ámóta drætti og fundur
Týs lenti, síðasta árið sem það félag starfaði.
SKEMMTILECflST AÐ
SPRIKLA A SVIÐI
Nemendafélag Framhalds-
skólans hefur á undanförnum
árum haft fyrir sið að setja upp
leikverk einu sinni á vetri i
sambandi við opna viku og
árshátíð skólans. Á föstudag
frumsýndu nemendur leikritið
„Þetta er allt vitleysa, Snjólfur,"
við góðar undirtektir áhorfenda.
Að þessu sinni tók einn af nemendum
skólans, Guðmundur Þorvaldsson, að
sér leikstjórnina en hann er raunar
hagvanur með Leikfélaginu eftir að hafa
unnið þar á bæ um nokkurra ára skeið.
Guðmundur er Eyjamaður vikunnar af
þessu tilefni.
Fullt nafn?
Guðmundur Lúðvík Þorvaldsson
Fæðingardagur og ár? 23. maí 1976.
Fæðingarstaður? Reykjavík
Fjölskylduhagir? Einhleypur en á
tveggja ára son, Magnús Almar.
Menntun og starf? Nemandi í Fram-
haldsskólanum
Laun? Engin eins og er.
Helsti galli? Ekki nógu strangur.
Helsti kostur? Þolinmóður og mikill
húmoristi.
Uppáhaldsmatur?
Svínahamborgarahryggur.
Versti matur? Kindaandlit (svið).
Uppáhaldsdrykkur? Appelsín og
jarðarberja woodys.
Uppáhaldstónlist? Allt mögulegt.
Aðallega rokk.
Hvað er það skemmtilegasta sem
þú gerir? Að fá að sprikla á sviði.
Hvað er það leiðinlegasta sem þú
gerir? Að læra heima.
Hvað myndirðu gera ef þú ynnir
milljón í happdrætti? Eyða henni í
einhverja vitleysu.
Uppáhaldsstjórnmálamaður? Nei,
enginn sérstakur.
Uppáhaldsíþróttamaður? Vala Flosa.
Ertu meðlimur í einhverjum félags-
skap? Leikfélagi Vestmannaeyja og
Leikfélaginu Sýnir, sem er áhugafólk
um allt land. Leynifélaginu Alkapó (sem
er þjóðhátíðarfélag).
Uppáhaldssjónvarpsefni?
Fóstbræður, Simpsons og Vinir.
Uppáhaldsbók? Flyskræk er alveg
yndisleg.
Hver eru helstu áhugamál þín?
Leiklist og að vera I góðra vina hópi.
Hvað metur þú mest í fari annarra?
Húmor.
Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari
annarra? Stælar og mikilmennska.
Fallegasti staður sem þú hefur
komið á? Herjólfsdalur á þjóðhátíð.
-Varstu ánægður með þessa
frumraun þína sem leikstjóri? Já,
þetta fór fram úr mínum björtustu
vonum.
-Er ekkert erfitt að hafa stjórn á fólki
sem þú ert sjálfur með í skóla?
Jú, mjög svo.
Erfiðara að fá þau til að hlusta á sig.
-Ætlarðu að leggja stund á leiklist í
framtíðinni? Ég er að fara í inntöku-
próf í þessari viku í Leiklistarskóla
Islands og rétt að sjá hvernig það
gengur áður en maður segir meira.
Hvað dettur þér íhug þegar þú heyrir
þessi orð?
-Snjólfur? Hallærislegur strákur.
-Frumsýning? Stórkostleg tilfinning.
-Framhaldsskólinn? Stoppistöð fyrir
Leiklistarskólann.
Eitthvað að lokum? Ég vil hvetja bæj-
arbúa til að koma á sýningu hjá okkur
og sjá hvað unga fólkið er að gera. Ég
vil minna á að það var eingöngu ungt
fólk sem tók þátt í síðustu uppfærslu
Leikfélagsins en það er fjölsóttasta
sýning sem sett hefur verið upp hér.
NYFfEDDIR VESTMffNNfíEYINGffR
Drengur
Þann 8. mars
eignuðust
Selma
Ragnarsdóttir
og Sindri
Oskarsson
dreng.
Hann vó 18
merkur og var
54 sm að
lengd.
Hann er hér í
fangi móður
sinnar.
Ljósmóðir var
Guðný
Bjarnadóttir.
Stúlka
Þann 23.
desember
eignuðust
íhelma
Gunnarsdóttir
og Sveinn
Magnússon
stúlku.
Hún var
14 merkur
og 52 cm.
Hún hefur
verið skírð
Agnes Sif.
Fjölskyldan
býr f
Reykjavfk.
Nýir eigendur Cafe Maria, þau Stefán Ólafsson og Helena
Ámadóttir opnuðu staðinn á ný eftir breytingar.með hófi á
laugardaginn, eftir breytingar. Myndin er tekin við það tækifæri.
ÍBÚÐ TIL
SÖLU
Til sölu efri hæð og ris
fasteignarinnar
nr. 13 við Hilmisgötu.
Stór og rúmgóð íbúð.
Lækkað verð.
JÓN HAUKSSON HDL. HEIÐARVEGI 10, S. 481-2000