Fréttir - Eyjafréttir - 19.03.1998, Síða 16
FLUTNINGAR - VESTMANNAEYJUM
Doghgar hrSlr hrtrl á kmd tm 9r.
Voruafgreiðsla
Sklldlngovegi 4 Sími 441 3440
Vöruafgreiðsla ■ Reykjavík
TVO Héðlnsgola 1 - 3
Sfmi 031 3030
Georg sýslu-
maðursklp-
aðurvaralög-
reglustjóri I
Reykjavík
Georg Kr. Lárusson hefur verið
skipaður varalögreglustjóri í
Reykjavík.
Hann var skipaður þann 17. mars
sl„ en skipun hans tekur gildi frá og
með 1. maí nk. Georg hefur verið
sýslumaður í Vestmannaeyjum frá
1. júlí 1992 eða nærri sex ár. Þess
má geta að þegar Georg var
skipaður sýslumaður í Vestmanna-
eyjum var það 17. mars 1992. Er
þessi áhittingur talinn með ólík-
indum.
Starf varalögreglustjóra hafði áður
með höndum Haraldur Jóhannes-
sen, sem nú er ríkislögreglustjóri.
Vaskurlnn
verði felldur
af útihátíðum
Árni Johnsen ásamt fleiri þing-
mönnum er nú með í undir-
búningi frumvarp til laga um
niðurfellingu virðisaukaskatts á
útihátíðum.
Ámi segir að frumvarpið verði
lagt fram í næstu viku. „Það er
verið að vinna í þessu máli og
klára. Þessi innheimta virðis-
aukaskatts hefur truflað Þjóðhátíð í
Eyjum og hefur þótt ósanngjöm
gagnvart þeim sem að henni hafa
staðið," segir Árni. Hann segir
hugmyndina hafa fengið góðar
undirtektir hjá þeim sem hann hafi
rætt við og að hann hafi trú á því að
málið nái fram að ganga í þinginu.
Eins og fram kom í síðustu Fréttum
hefur Eyjaprent - Fréttir verið að færa
út kvíamar að undanfömu. Öll efri
hæðin á Strandvegi 47 hefur nú verið
tekin undir prentsmiðjuna og veitir
ekki af eftir að nýjasta vél
fyrirtækisins var tekin í notkun, en
síðustu Fréttir voru fyrsta verkefnið
sem prentað varí henni. Eyjaprenter
nú búin fullkomnustu tækjum til
prentunar sem völ er á og því vel í
stakk búið til að takast á við hvaða
verkefni sem vera skal í offsetprentun.
Fréttir eru stærsta verkefni prent-
smiðjunnar og það verkefni sem
mestu kröfumar gerir til framleiðslu-
hraða þá daga sem prentun blaðsins
stendur yfir.
Nýja vélin, Heidelberg SORM,
styttir vinnsluhraða blaðsins umtals-
vert auk þess að skila meiri gæðum í
prentun. Sífelld þróun á sér stað í
hönnun prentvéla og þar eins og alls
staðar annars staðar hefur tölvu-
tæknin auðveldað mönnum störfin og
aukið gæðin.
Heidelberg prentvélamar hafa í
áratugi þótt skara framúr í rekstrar-
öryggi og endingu og þetta orðspor
réði mestu um að Heidelberg varð
fyrir valinu hjá Eyjaprent.
Ekki skemmdi þó fyrir að umboðs-
maður Heidelberg á Islandi er Eyja-
maðurinn, Friðrik E. Ólafsson, oftast
kallaður Elli í Magna, en hann hefur
verið óþreytandi við að selja
Heidelberg undanfama áratugi enda er
þær að finna í öllum helstu prent-
smiðjum landsins.
Sendibílaakstur innanbæjar.
Vilhjálmur Bergsteinsson
SEWaifSaMBILL
V481-2943,
Trr 897-1178
Auróra ferða-
málaráðgjafi
Auróra Friðriksdóttir hefur nú
tekið við starfi ferðamálaráð-
gjafa Þróunarfélags Vestmanna-
eyja.
Bjarki Brynjarsson hjá Þróunar
félaginu segir stöðuna vera 50%
starf. „Fjórir aðilar sóttu um starfið,
þar af þrjár konur og einn karl.
Allir umsækjendur voru héðan úr
Vestmannaeyjum."
Bjarki segir að hinn nýi starfs-
maður muni sinna allri almennri
ráðgjöf varðandi ferðamál og
framkvæmd þeirra. „Þó er gert ráð
fyrir áherslubreytingum og að
meiri tími gefist til stefnumótunar
og áætlana fram í tímann. Auróra
hefur mikla reynslu af ferðamálum
hér í Vestamannaeyjum, sem þótti
kostur. Hún hefur einnig marga og
góða tengiliði bæði innan lands og
utan.“
Á síðasta ári lagði Vestmanna-
eyjabær 2,7 milljónir til hags-
munaaðila í ferðamálum og ekki er
gert ráð fyrir hækkun á þessu ári.
Inni í þessari upphæð eru ekki
launagreiðslur. Auk þess hafa
komið framlög frá fyrirtækjum til
starfseminnar. Páll Marvin Jóns-
son sem sinnt hefur ferðamálum á
vegum Þróunarfélagsins, en lætur
nú af því starfi, segir að einnig hafi
komið 620 þúsund frá bænum til
upplýsingamiðstöðvar ferðamála.
Skoðanakönnun
Þessa dagana er Gallup að gera
skoðanakönnun fyrir Fréttir í
Vestmannaeyjum vegna kom-
andi bæjarstjórnarkosninga.
Úrtakið er 600 manns og verða
niðurstöðumar birtar í næsta blaði.
Er ekki að efa að niðurstöður
könnunarinnar muni hleypa lífi í
kosningabaráttuna sem hefur verið
heldur bragðdauf hingað til.
Multi Grain Cheerios
Team Cheerios
Rapid kaffífilter nr. 4,80 stk. í pk.
Bjarnabrugg léttbjór
Videóspólur:
2 stk. x 240 mín.
2 stk. x 195 mín.
2 stk. x 180 mín.
137236* 199,- pk.
265,- pk.
118,- pk.
63,- ds.
kni?&2.; 891,- pk.
kr.m-_ 842,- pk.
791,- pk.