Fréttir - Eyjafréttir - 08.04.1998, Qupperneq 2
2
Fréttir
Miðvikudagur 8. apríl 1998
Rólegheit
Liðin vika var með rólegra móti hjá
lögreglu. færslur alls 150 í dagbók
eða svipað og vikuna þar áður.
Helgin var nijög róleg og er það
von lögreglu að bæjarbúar verði
jafnrólegir yfir páskahelgina.
Lentí saman
í körfubolta
Venjan er sú í körfuboltanum að
leikmenn. sem brjóta af sér, fá
dæmda á sig villu og verða að fara
af leikvelli við fimmtu villu. En
væntanlega hefur ekki verið dómari
til staðar í leik sent fram fór á
þriðjudag í síðustu viku. Þá var
kærð lfkamsárás sem átti sér stað á
lóð Barnaskóla Vestmannaeyja.
Þar hafði tveimur drengjum lent
saman þegar þeir voru að spila
körfubolta. Flýði annar þeirra af
svæðinu, kom á lögreglustöðina og
kærði hinn fyrir líkamsárás. Mun
slíkt fátítt í þessari íþrótt.
AprílgabbP
1. apríl er dagur glens og gamans.
Þann dag taka menn mátulega
alvarlega þær tilkynningar sem
þeim berast. Þennan dag var lög-
reglu tilkynnt um að flutningakerru
hefði verið stolið úr Skvísusundi.
Þegar betur var að gáð hafði maður.
sent stóð í búslóðaflutningum,
fengið kerruna „lánaða“ og komst
hún því til skila. Hvort hér var um
aprflgabb að ræða skal látið ósagt.
Fékkhníf
ílærið
Þann 1. apríl var kontið með
slasaðan sjómann til hafnar en
hnífur hafði stungist í læri hans
þegar skipið var að veiðum. Hann
ntun ekki hafa verið alvarlega
slasaður.
Fíkniefna-
áhöld
fundust
Eitt fíkniefnamál kom upp um
helgina. Bifreið, sem tveir menn
voru í, var stöðvuð og við leit í
henni fundust áhöld til neyslu
fíkniefna. Hafi bæjarbúar ein-
hverjar upplýsingar um ffkniefna-
neyslu eru þeir hvattir til að hafa
samband við lögreglu í síma 481-
1666 eða síntsvara 481-1016.
Heitið er nafnleynd.
vorílofti-
aðgátíumferð
Nú þegar vora tekur hættir
ökumönnum jafnan til að auka
hraðann. Lögreglan vill minna
ökumenn á að fara varlega.
Ennfremur er þeim bent á að nteð
vorinu fjölgar börnum sern eru á
ferð og er því enn frekari ástæða til
að sýna varkámi.
Trillubáturinn Mardís VE fékk á sig sjó á Selvogsbanka:
Hefðl ekkl írillað
vera einn um borð
-segir Jóel Andersen, sem var meö Halldóri syni sínum á bátnum
Feðgarnir Jóel og Halldór, heimtir úr helju.
Hræringar í verslun í Eyjum
Þann 26. mars sl. vildi það óhapp til
að trillubáturinn Mardís VE fékk á
sig ólag og fyllti vestur á Selvogs-
banka. Tveir menn voru um borð,
feðgarnir Jóel Andersen og Halldór
sonur hans en þeir eiga bátinn.
Þeim var giftusamlega bjargað af
þyrlu Landhelgisgæslunnar og
varðskip náði að hífa bátinn upp
síðar um kvöldið. Fréttir náðu tali
af Jóel og fengu hann til að segja frá
atburðinum.
„Þetta var urn kvöldmatarleytið.
Við höfðum verið að draga línu vestur
á banka og aflinn hafði verið þokka-
legur. Nokkur kaldi var og talsverð
vindbára. Svo gerðist það allt í einu á
einni öldu að allt kom grængolandi
inn á bakborða og bátinn fyllti nær
samstundis. Mardís er opinn bátur,
um sex tonn að stærð. Hefði báturinn
verið tómur þá hefði þetta sjálfsagt
ekki gerst. En við vorum komnir með
nokkurn afla og báturinn því þyngri
og lyfti sér ekki með öldunni.
Halldór fór strax útbyrðis en náði að
komast að gúmbátnum og hafði að
losa hann og blása hann upp. Það var
allt í lagi með gúmbátinn sjálfan en
ýmiss konar dót um borð varð til að
torvelda að komast um borð í hann.
Eg var í símanum þegar þetta
gerðist og náði sambandi við Her-
mann á Sjöfn VE sem var á heimlejð
og var talsvert fyrir austan okkur. Ég
lét hann vita hvemig komið var og að
við þyrftum aðstoð. Það var mikill
léttir að hafa náð sambandi því að þar
með vissum við að okkur yrði
bjargað. Við vorum þama einir á sjó,
vissum raunar af varðskipi einhvers
staðar í grenndinni og vorum alveg
óhræddir. Vistin í gúmbátnum varð
heldur ekki ýkja löng, líklega um
klukkutími og korter þangað til þyrlan
birtist. Það gekk vel að ná okkur um
borð enda þyrlumenn vanir slíkum
aðgerðum.
Allan tímann meðan við vorum í
gúmbátnum sáum við að Mardís
maraði í hálfu kafi og flaut með nefið
upp úr. Svo um miðnætti kom varð-
skip að bátnum, sem þá var enn á floti,
og náði að hffa hann upp. Okkur varð
hvorugum meint af þessu volki og
erum báðir jafngóðir eftir. En eftir á
að hyggja hef ég hugsað um að ég
hefði ekki viljað vera einn þama. Ég
held að það hafi bjargað mér að við
vorum tveir. T.d. var ég fastur í ein-
hverju drasli þegar ég ætlaði um borð
í gúmbátinn og Halldór varð að skera
mig lausan.
Báturinn sjálfur er óskemmdur að
mestu. En öll tæki eru ónýt og sömu-
leiðis allt rafmagn. Þá þarf einnig að
taka vélina upp. Við vorum tryggðir
fyrir tjóni sem þessu en alltaf er
eitthvað sem ekki fæst bætt, svo sem
veiðarfæri, kör og fleira. En fyrir
mestu var að við skyldum sleppa
óskaddaðir. Ég reikna með að
viðgerðum á bátnum verði lokið fyrir
næstu mánaðamót og þá verðum við
klárir í slaginn á ný,“ sagði Jóel
Andersen að lokum.
Miklar hræringar eru í verslun í
Vestmannaeyjum þessa dagana og
er það svo sem ekki ný saga.
Menn hætta í verslun og aðrir
koma í þeirra stað.
Frá áramótum hafa verslanimar
Ninja og Nova hætt starfsemi sinni
og heyrst hefur að Vídeóklúbbur
Vestmannaeyja muni hætta innan
skamms. En aðrir eru að víkka út
sína starfsemi og nýir aðilar að
kveða sér hljóðs. í gær opnuðu
Heiðmundur Sigurmundsson og
fjölskylda hans nýja verslun að
Vestmannabraut 30 þar sem Axel Ó
var áður með sportvöruverslun og
þar áður Hressó. Þessi verslun
nefnist 66° N og verða þar á
boðstólum sömu vörur og áður voru
í versluninni við Strandveg 75. Sem
sagt, verslunin flytur í nýtt húsnæði.
Við hliðina á 66° N mun Odd-
urinn opna sumarmarkað með leik-
föng á þriðjudag eftir páska en versl-
unin var þar einnig með ntarkað f
fyrra.
Þeir aðilar, sem hugðust opna
apótek í Geysi við Skólaveg. munu
hættir við þá fyrirætlan sína f bili og
óvíst hvað gert verður við húsnæðið.
Aftur á móti færir Hanna María
apótekari stöðugt út kvíamar. keypti
fyrr í vetur Laugarnessapótek og
mun þessa dagana að ganga frá
kaupum á Ingólfsapóteki í Reykja-
vík.
Þá hyggst Katrín Harðardóttir,
fþróttakennari, opna gjafavöm-
Jóhann Heiðmundsson á
fullu við að gera klárt í
versluninni 66° N.
verslun í Eyjum í surnar og Helga
Dís Gísladóttir, sem áður rak tísku-
verslunina Kósý, er að íhuga opnun
á húsgagnaverslun. síðar í sumar.
Það var mikið um dýrðir í ísfélaginu á þriðjudaginn þegar
loðnuvertíðinni var slúttað með mikilli veislu. í vetur voru
fryst tæp 5000 tonn af loðnu og um 500 tonn af loðnu-
hrognum.
FRÉTTIR
Útgefandi: Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Ritstjóri: Ómar Garðarsson. Blaðamenn: Benedikt Gestsson & Sigurgeir Jónsson.
íþróttir: Rútur Snorrason. Ábyrgðarmenn: Ómar Garðarsson & Gísli Valtýsson.
Prentvinna: Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Aðsetur ritstjórnar: Strandvegi 47II. hæð. Sími: 481-3310. Myndriti: 481-1293.
Netfang/rafpóstur: frettir@eyjar.is. Veffang: http//www.eyjar.is/~frettir.
FRÉTTIR koma út alla fimmtudaga. Blaðið er selt I áskrift og einnig í lausasölu I Turninum, Kletti, Veitingaskálnum Friðarhöfn. Tvistinum, Amigo, Kránni, Vöruval, Herjólfi,
Flugvallarversluninni, Tanganum, Söluskálanum Friðarhöfn. í Reykjavík: hjá Esso Stóragerði og I Flugteríunni á Reykjavíkurflugvelli. FRÉTTIR eru prentaðar 12000 eintökum.
FRETTIR eru aðilar að Samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða. Eftirprentun, hljóðritun, notkun Ijósmynda og annað er óheimilt nema heimilda sé getið.