Fréttir - Eyjafréttir - 08.04.1998, Page 15
Miðvikudagur 8. apríl 1998
Fréttir
Skipstjóraefnin aetla að
halda áfram í handbolta
Handboltavertíðin er á enda hjá ÍBV og þeir Haraldur og Sigmar Þröstur geta nú einbeitt sér að skipstjórnarnáminu,
mundað gráðuhorn og sirkla, sett út íkort og siglt eftir öllum kúnstarinnar reglum.
í vetur er óvenju fjölmennt í I. stigi
skipstjórnarnámsins í Vestmanna-
eyjum. Það nám fer nú fram í
Framhaldsskólanum, Stýrimanna-
skólinn í Vestmannaeyjum heyrir
sögunni til. Alls eru 18 nemendur í
I. stigi, raunar höfðu 30 manns sótt
um skólavist en gerðu ýmist að
hætta við áður en skóli hófst eða þá
að þeir hættu fljótlega um haustið.
Þessi fjöldi nemenda er ekki til
kominn vegna einhverrar vakningar
um ágæti sjómannamenntunar heldur
er meginástæðan sú að þetta er í
síðasta sinn sem kostur gefst á að ljúka
fiskimannaprófi eftir gamla kerfinu,
þ.e. á tveimur árum. nú stendur til að
lengja námið talsvert.
I I. stigi í vetur er nokkuð jafnt
hlutfall heimamanna og aðkomu-
manna. í hópi heimamanna eru tveir
nemendur sem í flestra huga tengjast
öðm en sjómennsku. Þetta eru tveir af
burðarásum handboltaliðs ÍBV, þeir
Haraldur Hannesson og Sigmar
Þröstur Óskarsson. Þeir hafa stundað
sitt nám í vetur af mikilli samvisku-
semi, mætt manna best þrátt fyrir að
stunda vinnu með náminu og hafa eytt
drjúgum tíma við æfingar og keppni í
handbolta. Reyndar misstu þeir af
varðskipsferðinni í vetur þar sem þeir
áttu þann dag að spila þýðingarmikinn
leik í boltanum. Þann leik unnu þeir
og fleiri hafa fjarvistiniar ekki verið á
önninni. Fréttir tóku þá félaga tali og
ræddu um handbolta, sjómennsku og
fleira.
Nú eruð þið báðir komnir vel yfir
unglingsárin. Hvað eruð þið búnirað
spila lengi með meistaraflokki?
Sigmar: Ég verð 37 ára á þessu ári og
er að verða einn af þeim elstu í brans-
anum, búinn að vera í þessu frá 1976
eða vel yfir 20 ár enda stendur við
nafnið mitt í símaskránni „Kuml og
eldri borgari í handknattleik.“
Haraldur: „Ég held upp á 30 ára af-
mælið í sumar. Ég er búinn að vera
langtum styttra en Simmi, byrjaði
1991 þegar við urðum bikarmeistarar.
Og ég er ekki enn búinn að fá neitt
viðumefni í símaskránni."
Eruð þið ánœgðir með árangur ÍBV
í vetur?
Sigmar: „Það er ekki hægt annað.
Liðið kom á óvart, okkur var spáð falli
í upphafi en svo enduðum við í sama
sæti og í fyrra. Það er ekki hægt
annað en að vera ánægður með það þó
svo að vissulega hefði verið gaman að
komast aðeins lengra.
Haraldur: „Ég segi það sama. í fyrra
féllum við t.d. snemma út úr bikar-
keppninni en nú vantaði okkur aðeins
herslumuninn á að komast í úrslit. Ég
er mjög sáttur við árangurinn í vetur
og held að allir séu það.“
Verðið þið með nœsta tímabil?
Sigmar: „Því ekki það?“
Haraldur: ,Já, að öllu óbreyttu ætla ég
að verða með.“
Þeir fe'lagar eru af þekktum sjó-
sóknurum komnir í báðar œttir.
Haraldur íföðurœttfrá Fagurlyst og í
móðurœttfrá Felli. Sigmar Þröstur í
föðurœttfrá Háeyri og í móðurœtt frá
Sunnuhvoli, frœndi þeirra Matt-
brœðra. Hafa þeir eitthvað stundað
sjó?
Sigmar: „Ég hef stundað sjó frá 1986,
aðallega þó á suntrin og kynnst flest-
um veiðarfærum. Maður er uppalinn í
sportinu og handboltinn hefur tekið
sitt yfir vetrartímann og fer illa saman
að stunda sjó og handbolta. Að
vetrinum hef ég bæði unnið í frysti-
húsum og svo hin seinni ár í netavinnu
hjá Ingóífi.
Haraldur: „Það er ekki hægt að segja
að ég eigi langan sjómennskuferil að
baki. Ég hef verið tvö ár á Baldri með
pabba og kann vel við sjómennskuna.
Svo vann ég líka í Iöndunargenginu
fyrir nokkrum árum og kannski hefur
áhuginn kviknað þar.
Hvað varð til þess að þið ákváðuð
aðfara ískipstjómamám?
Sigmar: „Þetta var lengi búið að
blunda í mér. Og í vetur var síðasti
séns að taka námið á tveimur árum og
þá lét maður bara slag standa.“
Haraldur:, jig bara ákvað þetta í haust
þegar ég sá auglýst að þetta yrði í
síðasta sinn sem innritað yrði í námið
eftir gamla kerfinu. Við Simmi erum
því alveg á sama báti í þessu.
Þeir félagar standa vel að vígi í
náminu, hafa báðir lokið stórum hluta
afgrunnnáminu og þurfa því einungis
að sœkja tíma ífaggreinunum. Til að
nýta tímann betur hafa þeir einnig
verið í vélavarðanámi í vetur.
Hvemig hefurnámið gengið?
Sigmar: „Ég útskrifaðist sem stúdent
frá FÍV 1984, var í fyrsta stúdenta-
hópnum sem útskrifaðist frá skól-
anum. Það léttir verulega í skipstjóm-
amáminu að vera búinn með allar
kjamagreinamar. Og þetta viðbótar-
nám í vélaverðinum hefur fallið vel
saman við hitt.
Haraldur: „Ég er búinn með sveins-
próf í rafvirkjun og er búinn að vinna f
Geisla í 11 ár. Það er gott að vera
búinn með kjamagreinarnar, geta
einbeitt sér að fagnáminu. Og svo
þarf ég heldur ekki að taka allt sem
tilheyrir vélaverðinum, sumt af því
kláraði ég í iðnnáminu.“
Hefur skipstjórnarnámið komið
ykkur á óvart að einhverju levti?
Sigmar: ,Já og nei. Það kom mér
nokkuð á óvart hve mikið er af bók-
legu námi og hvað reikningur er
veigamikið atriði í náminu. Ég hélt að
þetta væri meira verklegt. En þetta er
búið að vera gaman.“
Haraldur: „Þetta hefur verið skemmti-
legra en ég reiknaði með og góð
tilbreyting að fara aftur að glíma við
nám. Þetta er stór hópur í I. stiginu og
góður hópur. Ég sé ekkert eftir því að
hafa farið t þetta.“
Reiknið þið með að leggja sjó-
mennskufyrir ykkur íframtíðinni?
Þeir félagar líta glottandi hvor á
annan. Tala síðan um að þeir standi
báðir vel að vígi á þessum síðustu og
verstu kvótatímum þegar nær útilokað
sé fyrir menn að hasla sér völl í útgerð
upp á eigin spýtur. Þeir eru nefnilega
báðir fæddir inn í gróin útgerðar-
fyrirtæki svo að ekki er þeim
vandanum fyrir að fara. En þeir eru
sammála um að það muni tíminn leiða
f ljós. Meðan þeir eru enn gjaldgengir
og nánast ómissandi í handboltanunt
verður tæplega af því að þeir ráði sig í
skiprúm, alla vega ekki yfir
vetrartímann. En eftir það er aldrei að
vita hvað verður.
j]
PáskamótKFS
Niðurröðun leikja: Fimmtudagur 9.
apríl, (skírdagur).
Kl. 18:00: KFS - 2. fl. Fylkis
K1.20:00: ÍBV - 2. fl. Vals
Föstudagur 10. apríl, (föstudagunra^
langi)
Kl. 16:00: ÍBV - 2. fl. Fylkis
Kl. 18:00: KFS - 2fl. Vals
Laugardagur 11. apríl,
Kl. 10:00: Fylkir-Valur
Kl. 12:00: ÍBV : KFS.
Verðlaunaafhending verður laugttr-
daginn 11. aprfl, kl. 12:00 eða
14:00. Keppt er um farandbikar.
Síðast sigraði Dalvík. Yfirdómari er
Leiknir Ágústsson. Frantkvæmda-
stjóri er Hreggviður Ágústsson,
sími 481-3129.
Gefin eru 3 stig fyrir sigur og 1
fyrirjafntefli. Ef markamismunur
og stigafjöldi er jafn, ráða fleiri
mörk skoruð.
Leyfðar eru fimm innáskiptingar,
sem þurfa að fara fram með
formlegum hætti. Ekki þarf að vera
markvörður meðal þessara fimm.
Þar eð aðkomuliðin þurfa að fara
með stuttum fyrirvara á laugar-
deginum, verða frekari verðlaun
veittsíðar. Þaueru:
1. Besti leikmaður mótsins. Hvert
félag/þjálfari þarfað tilnefna besta
andstæðinginn (leikmann). Frarn-
kvæmdastjóri hefur úrslitavaldið, ef
leikmenn eru jafnir í kosningunni
2. Markakóngur mótsins. Verði
leikntenn jafnir, dragast mörk gerð
úr vítum frá, ef einhver eru.
3. Bestileikmaðurhversliðs. Hann
velja þjálfaramir sjálfir.
4. Prúðasta liðið. Yfirdómari velur
það í samræmi við skráð spjöld.
Keppt er á malarvellinum í Löngu-
lág. Þátttökulið hafa forgang í
næstu keppni. nema einhver aga-
vandamál hindri það, innan sem
utan vallar.
KFS er tilbúið að lána leikmenn ef
svo ber undir í mótinu. Undir-
ritaður verður til taks til mið-
vikudags, kl. 14:00 í síma 481-1955
(vinna) eða 481-2632 (heima). Fax
er 481-2634
Hjalti Kristjánsson
framkvæmdastjóri KFS
Gott gengi í
Portúgalsferð
Meistaraflokkar karla og kvenna
ÍBV, alls 42 manna hópur. hafa að
undanförnu verið í æfingaferð í
Portúgal ásamt fimm öðrum ís-
lenskum liðuin.
Að sögn Þorsteins Gunnarssonar,
framkvæmdastjóra knattspyrnu-
deildar ÍBV, eru leikmenn og
þjálfarar afar ánægðir nteð aðstæður
og viðurgjöming í Portúgal.
Kvennalið IBV gerði það aldeilis
gott gegn stórveldinu Breiðabliki en
liðin gerðu jafntefli, 3-3. ÍBV komst
í 3-1 með mörkunt írisar Sæmunds-
dóttur, Bryndísar Jóhannesdóttur og
Hjördísar Halldórsdóttur, en
Breiðabliki tókst að jafna metin á
síðustu mínútunum.
Karlalið ÍBV lék gegn Val og
vann 4-2. Yfirburðir ÍBV vom víst
ntiklir í leiknum. Hlynur Stefánsson
skoraði tvö skallamörk fyrir ÍBV,
Steingrímur Jóhannesson skoraði
eitt og Sigurvin Ólafsson eitt úr
vítaspymu. Leifur Geir Hafsteins-
son lék þama sinn fyrsta leik í
langan tíma en hann hefur átt við
meiðsli að stríða. Fararstjórar
báðu fyrir kveðjur heim en liðin
koma heim á morgun.
Félagar í Ægi, íþróttafélagi fatlaðra í Vestmannaeyjum náðu góðum árangri á íslandsmóti
fatlaðra sem haldið var dagana 20. -22 mars sl. B-sveit Ægis í boccia komst í úrslit og lenti í 4.
sæti.
Sveitir Ægis skipuðu: Ólafur Jónsson, Guðríður Haraldsdóttir, Júlíana Haraldsdóttir, Þóra
Magnúsdóttir, Ylfa Óladóttir, Guðni D Stefánsson, Þórarinn Á Jónsson, Finnbogi Þórisson og
Sigríður Þ. Ólafsdóttir. Sundsveitin kom heim, bæði með brons og silfur. Úrslitin voru
eftirfarandi: Sigríður Þóra Ólafsdóttir hreppti 4. sæti í 100 m fjórsundi kvenna, fjórða sæti í 100
m bringusundi kvenna, og 6. sæti í 50 m baksundi kvenna. Finnbogi Þórisson hreppti 3. sæti í
50 m frjálsri aðferð karla og 4. sæti í 50 m bringusundi karla. Þorsteinn Á Jónsson hreppti 4,
sæti í 50 m baksundi karla.Þjálfarar og farastjórar í ferðinni voru Þórdís Þórðardóttir Kristjana
Harðardóttir og Kjartan Ólafsson.