Fréttir - Eyjafréttir - 16.04.1998, Blaðsíða 4
4
Fréttir
Fimmtudagur 16. apríl 1998
Fjölmenni við vígslu Athafnaversins
Formleg opnun Athafnavers ungs
fólks fór fram miðvikudaginn 8.
apríl síðastliðinn að viðstöddu
fjölmenni og stórmenni.
Það var Halldór Blöndai
samgönguráðherra sem opnaði
verið formlega með því að opna
heimasíðu versins á Internetinu.
Guðjón Hjörleifsson hæjarstóri
hélt stutt ávarp og rakti
hugmyndina að Athafnaverinu og
framkvæmd hennar til þess
veruleika sem nú er orðinn.
Sigurður Einarsson forstjóri
Isfélagsins sem átti húsnæðið sem
athafnaverið er í gaf verinu
stafræna myndavél, en slík vél er
góð viðbót við annan tækjakost
versins. Fleiri ávörp voru og flutt
þar sem menn lýstu yfir ánægju
sinni með að Athafnaverið væri
orðið að veruleika og að þetta
framtak Vestmannaeyinga væri sá
vísir, sem yrði öðrum fordæmi í
því efni að auka áhuga fólks á þeim
möguleikum sem fólgnir eru í
hugbúnaðargerð og tölvuvæðingu.
Það kom í hlut Halldors Blöndal,
ráðherra að uígja uerið. Hér er hann á
spjalli uið Pái Maruin, forstöðumann
setursins.
Hluti gesta uið uígslu Athafnauersins.
Verndarar Athafnaversins
Athafnauer unga fólksins í Vestmannaeyjum á sér nokkra uerndara og mættu
fulltrúar beirra við vígsluna. Frá uinstri: Orn D. Jénsson frá Háskéla Tslands,
Ástualdur Jóhannsson frá Nýherja, Þérður Víkingur Friðgeirsson frá Tækniuali,
Magnús Halldérsson frá Háskéla íslands, Saluör Gissurardéttír frá
Kennaraháskólanum, og Dauíð Guðmundsson frá Töluun í Vestmannaeyjum.
NÁMSKEIÐ í STOFNUN OG REKSTRIFYRIRTÆKJA
Þróunarfélag Vestmannaeyja gengst fyrir námskeiði í stofnun og rekstri fyrirtækja. Farið verður
yfír helstu þætti sem lúta að stofnun fyrirtækja, gerð viðskipta- og rekstraráætlana,
markmiðssetningar. Námskeiðið verður í tveimur hlutum, laugardaginn 25.apríl frá kl. 09.30 til
16.00 og laugardaginn 2.maí frá kl. 09.30 til 16.00.
Skráning fer fram í Rannsóknasetrinu við Strandveg 50 í síma 481-1111 eða faxi 481 -2669 fyrir
kl. 17.00 mánudaginn 20.apríl.
ATH: Takmarkaður fjöldi þáttakenda.
Námskeiðsgjald er 5000 kr. en þau fyrirtæki eða einstaklingar sem taka þátt í Iðngörðum ÞV em
sérstaklega hvattir til að mæta og munu þeir fá námskeiðsgjaldið endurgreitt.
H1) -
Kynning föstudaginn 17. apríl frá kl. 11.00
á Snyrtistofu Anitu.
er stærsta snyrtivömlína með
glýkólsým sem framleidd er í heiminum í dag.
M D geymir svörin við eftirtöldu:
Þurrki í húð,
unglingabólum,
elliblettum
sólarskemmdum
fínum línum
psoríasis o.s.frv.
Húðin verður einlitari
sléttari og stíflulaus
Frítt
að
prófa!
Komið á kynninguna og kynnist alvöru snyrtivörum.
M D. náttúmlegar snyrtivömr sem virka.
Aðal-
fundur
Aðalfundur Björgunarfélags Vestmannaeyja fyrir staifsárið
1997 verður haldinn að Faxastíg 38 þriðjudaginn 5. maí
1998 kl. 20.30.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt lögum
félagsins.
2. Önnur mál.
Stjórnin.
rsjálfstætt fólkATH. "|
1 Hér býðst einstaklega skemmtilegt tækifæri að 1
I dtarfa aðsöludreifingu á megrunar- og heilsuvör- I
| unni frábæru eftir eigin hagræðingu í samvinnu við |
I gott fólk. Mjög góðir tekjumöguleikar. Hringdu og I
■ kynntu þér vörumar.
Sími 487-1429, sími og símsvari og faxnómer 487-
ÞROUNARFELAG VESTMANNAEYJA
1206. (Bý í Mýrdalnum.
tudeQÍ
S'skrífarn enskum þýskum
og ítölskum
Hér fyrruni var lífið saltfiskur í Vestmannaeyjum.
Nú er það bolti. Handbolti á vetuma og fótbolti á
sumrin. Og reyndar teygir fótboltinn anga sína
yfir á veturinn lfka, ekki þó íslenskur heldur
enskur. þýskur og ítalskur. Óg í þeim fótbolta er
ekkert kynslóðabil, sannir fótboltaunnendur eru
allt frá tíu ára og upp úr án aldurstakmarka.
Þekkingu manna á evrópuknattspyrnu eru heldur
engin takmörk sett. Kollegi skrifara, sem kennir
í grunnskóla, sagði honum í vetur að nemendur í
hans bekk gætu ekki lært hvað guðspjalla-
mennimir tjórir hétu, né heldur hverjir postularnir
tólf voru og þaðan af síður hveijir væru ráðherrar
í ríkisstjórn íslands. En þeir hinir sömu nem-
endur gætu romsað upp úr sér öllum leikmönnum
Manchester United, bæði aðalmönnum og vara-
mönnum og þekktu æviágrip þeirra flestra hvena.
Svo eru menn að tala um að ungt fólk í daga viti
ekki neitt. Þetta er náttúrlega kunnátta út af fyrir
sig og kannski ekki verri en önnur.
Slíkur er einnig áhugi manna á boltamennt
handan hafsins að stofnaðir em sérstakir klúbbar
áhangenda boltaliða, sérstaklega þó á Englandi.
Og á laugardögum flykkjast rígfullorðnir menn
inn íTýsheimili. íklæddir rauðum, hvítum, gulum
og bláum treyjum og vafðir treflum í sömu litum.
Síðan skipta sömu menn sér í hópa, sem þeir
kalla liinurn aðskiljanlegustu nöfnum á borð við
„Dautt á vatni,“ „Beyglaður ljósastaur“ og
„Bæjarins bestu" og krota merki á blöð sem síðan
em send til Reykjavíkur gegnum tölvur. Og séu
menn heppnir í krotinu eiga þeir von á aumm og
jafnvel ferðalögum þar sem þeir geta barið goð
sín augum. I þessum hópi er ekkert kynslóðabil
og engin stéttaskipting. Þama sitja þeir hlið við
hlið fermingardrengurinn og afinn, hásetinn og
læknirinn, píparinn og framhaldsskólakennarinn
og rýna fránum augum í tölvumiða. Kunn-
ingjakona skrifara sagði að sér væri innanbtjósts
á iaugardögum eins og hún ætti tjögur börn en
ekki þrjú. á laugardögum gengi eiginmaðurinn
nefnilega í bamdóm á ný, fyrst inni í Týsheimili
og svo áfram tyrir framan sjónvarpið. Á laugar-
dagskvöldum væri hann ýmist frávita af gleði eða
nær óhuggandi af harmi, allt eftir því hvernig
merki hefðu raðast í leikjum dagsins. Þessi gleði,
eða ógleði eftir atvikum, entist honum oftlega
fram á sunnudag og jafnvel fram eftir vikunni. Á
miðvikudag væri liann þó yfirleitt búinn að
endurheimta sína fyrri sálarró og gæti farið að
undirbúa næstu helgartöm.
Hér fyrrum gerðu menn sér það oftlega til
dundurs um helgar að hittast í hópum og tefla
skák eða spila brids. Slíkir sérvitringar eru fá-
séðir núorðið. Enskur. þýskur og ítalskur fótbolti
liefur leyst þær göfugu hugaríþróttir af hólmi.
Höfuðgallinn við þessa tómstundaiðju er sá að
yfir hásumarið leggjast boltamenn enskir, þýskir
og ítalskir í fri. Og þar með er grunninum kippt
undan þessari ágætu tómstundaiðju að nokkru
leyti. Þó er það liuggun harmi gegn að um sama
leyti byija íslendingar að sparka bolta og þótt þeir
standi enskum, þýskum og ítölskum nokkuð að
baki í þeirri íþrótt, þá er líka hægt að krota merki
við þeirra leiki á tölvumiða og von um fé og
frama ef vel gengur.
Á fyrstu ámm sjónvarps og getrauna á íslandi
dundaði skrifari sér við að krota merki á miða í
von um skjótfenginn hagnað. Hann átti sér
einnig uppáhaldslið í enskum bolta en varð aldrei
svo frægur að eignast félagsbúning þess. Svo datt
félag skrifara niður í aðra ef ekki þriðju deild og
þar með dró úr áhuga hans. Á þeim tíma krotuðu
menn Iíka merki á miða án þess að vera
tölvuvæddir og yrði hlegið að slíkum fáráðum í
dag. Skrifari hefur ekki komist hjá því í vetur að
fylgjast með áhugamönnum um nútímafótbolta-
merkingar. kennarastofan í Framhaldsskólanum
er undirlögð í slíkar spekúlasjónir. Aftur á móti
telur skrifari sig ekki hafa nægan vitsmunaþroska
til að taka þátt í slíku. Hann lieldur sig því enn
við óæðri hugaríþróttir á borð við skák og brids.
Sigurg.
Barcelona - Benidorm - Costa del Sol - Heimsferðir, umboð í Eyjum - Straumur s. 481-1119