Fréttir - Eyjafréttir - 16.04.1998, Blaðsíða 8
8
Fréttir
Fimmtudagur 16. apríl 1998
UMBOÐ í EYJUM:
Friðfíimiu' Finnbogason
481-1166 og 481-1450
ifc ÚRVAL-ÚTSÝN
=s&ss*s
FASTEIGNAMARKAÐUR
VESTMANNAEYJA SF.
0piði10:00- 18í)0alla viritadaga. Sími 481 1847 Fax. 481 1447
Viðtalstími lögmanns 16.30 -19.00 þríðjudaga til föstudaga.
Skrilstofa í R»k. Garðastræti 13,
Viðtalstími mánudaga kl. 18 -19, Sími 551-3945
Jón Hjaltason, hrl. Löggiltur fasteignasali
Guðbjörg Ósk Jónsdóttir Löggiltur
fasteigna- og skipasali
A-A fundir
A-A fundir eru haldnir sem hér
segir í húsi félagsins að
Heimagötu 24: Sunnudaga kl.
11:00, mánudaga kl. 20:30
(Sporafundir), þriðjudaga kl.
20:30 (kvennadeild),
miðvikudaga kl. 20:30,
fimmtudaga kl. 20:30, föstudaga
kl. 23:30 og laugardaga, opinn
fjölskyldu- fundur, reyklaus, kl.
20:30. Móttaka nýliða hálfri
klukkustund fyrir hvern auglýstan
fundartíma. Athugið símatíma
okkar sem eru hvern fundardag
og hefjast 30 mín. fyrir ákveðinn
fundartíma og eru í 2 klst. í senn.
— Teikna og smiða:
Sólstofur, útihurðir,
g glugga, utanhúss-
m “ kiæðningar,
þakviðgerðir og mótauppsláttur.
J-M’MTWí
Agúst Hreggviðsson Simi: 481-2170
Trésmiðaverkst: Miðstræti 23
481 2176 GSM: 897 7529
]
Björn ívar
skóla-
skákmeistari
Suðurlands
Kjördæmismeistaramót grunn-
skóla var haldið í Barnaskóla
Vestmannaeyja dagana 3. til 4.
aprfl síðastliðinn.
Vestmannaeyingurinn ungi
Björn fvar Karlsson gerði sér lítið
fyrir og vann mótið nieð 6 og 1/2
vinningiaf 7 mögulegum. Þettaer
annað árið í röð sem Björn Ivar
verður skólaskáknieistari Suður-
lands, en í fyrra vann hann allar
skákir sínar, sjö að tölu. Keppt er í
tveimur flokkum eldri og yngri
flokki.
Er ál'engi vandaniál í þinni fjiilskyldu
Al-Anon
fyrir ætiingja og vini alkóhólista
í þcssum samtökum gctur |)ú:
Hitt aöra scm glíma viö sams konar \ andamál.
I'raöst um alkóhólisma scm sjúkdóm
Öðlast von í stað örvæntingar
Hætt ástandið innan fjölskyldunnar
Hyggt upp sjálfstraust þitt
Öll almenn heimilistækja
og raflagnaþjónusta.
EINAR HALLGRÍMSSON
Verkstæði að
Skildingavegi 13
© 481-3070 & h® 481-2470
Far® 893-4506.
Ég sló til besar
til mfn var Inltað
- því ég taldi að ég gæti unniÖ betur að bæjarmálum, efég
kæmi inn sem bæjarfulltrúi segir Sigurður Einarsson sem
skipar efsta sæti D-lista í bæjarstjórnarkosningunum í vor
Strandvegi65 Sími 481 1475
Ársæll Árnason
HÚSASMÍÐAMEISTARI
Bessahrauni 2,
sími 481-2169
GSM 899 2549
ALHLIÐA
TRÉSMÍÐI
Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins
vegna bæjarstjórnarkosninganna í
vor hefur verið ákveðinn. Upp-
stillinganefnd gerði tillögur til
fulltrúaráðsins um skipan listans og
eru eftirfarandi menn í fjórum efstu
sætunum. í fyrsta sæti verður Sig-
urður Einarsson, annað sætið
skipar Elsa Valgeirsdóttir, þriðja
sætið Sigrún Inga Sigurgeirsdóttir
og í fjórða sæti verður Guðjón
Hjörleifsson bæjarstjóri, sem jafn-
framt er bæjarstjóraefni flokksins.
Sigurður Einarsson sem leiða niun
listann segir fæðingu hans ekki hafa
verið erfiða. Menn hafi hins vegar
metið stöðuna þannig að ekki hafi
legið á að birta listann fyrr. Sigurður
er ekki ókunnur bæjarmálapólitíkinni.
því hann var bæjarfulltrúi frá 1986 -
1994. „Ég ákvað að taka mér hvíld
frá pólitíkinni fyrir síðustu kosningar
og snóa mér að öðrum störfum. Ég
sló hins vegar til núna þegar til mín
var leitað. því ég taldi að ég gæti
unnið betur að bæjarmálum. ef ég
kæmi inn sem bæjarfulltrúi.
Flokkurinn er búinn að vera í
meirihluta í 8 ár og hefur skilað nijög
góðu verki fyrir Vestmannaeyjar."
Sigurður segir að að miklar
breytingar séu á listanum, frá fyrri
bæjarstjómarkosningum. „Guðjón og
Elsa verða áfram á listanum og
Guðjón í baráttusætinu, en aðrir á
listanum eru nýir. A listanum er mjög
frambærilegt fólk sem hefur sýnt að
það vill efla veg Vestmannaeyja og
þeirra sem búa hér.“
Hann segir að núverandi meirihluti
hafi lagt mikla áherslu á skólamál,
æskulýðs- og íþróttaniál og hann muni
halda því starfi áfram, auk þess að
styrkja Þróunarfélagið og væntanlegt
flárfestingarfélag. .Álögur hafa verið
í lágmarki og við munum beita okkur
íyrir því að halda þeim sem lægstum.
Annars fer nú í hönd stefnuskrárvinna
sem verður birt fljótlega. Ég er að
öðru leyti bjartsýnn fyrir hönd listans
og tel Sjálfstæðisflokkinn korna fram
með sterkan og sigurstranglegan
lista.“
Sigurður segir að listinn sé skipaður
jafnmörgum konum og körlum.
„Mikii breidd er á listanum í aldurs-
samsetningu og stöifum og yngsti
frambjóðandinn er 18 ára. Flokkur
sem vill fylgjast með þróun mála
leggur upp úr því að jafnræði sé niilli
kynjanna. Jöfn skiptingin milli
kynjanna á listanum er því í samræmi
við þá tilneigingu sem er í þjóð-
félaginu og pólitísku staifi." segir
Sigurður að lokum.
Hvað segir Oallup-49% orðin að 79,9%?
Sem kunnugt er, framkvæmdi Gallup
könnun með því að hringja í Vest-
mannaeyinga og var meðal annars
spurt um fylgi vegna komandi
bæjarstjómarkosningar sem og um
hvern bæjarbúar vildu sem næsta
bæjarstjóra.
Fram kom í blaðinu Fréttum, sem
kom út 26. mars sl., að könnunin
vegna sveitarstjómarkosninganna, hafi
verið framkvæmd fyrir Fréttir og hafi
úrtakið verið 600 manns. Þess er
einnig getið í umræddu blaði, að í
næsta blaði verði nánar fjallað um
könnunina.
Margtbarfaðskýra
Þar sem umfjöllun Frétta 26. mars um
könnunina var mjög ónákvæm beið
undirritaður, seni og niargir aðrir
spenntir eftir næsta blaði Frétta, sem
kom út 2. apríl. Ekki var farið nánar í
útskýringu á könnuninni. heldur birtist
á forsíðu viðtal við þrjá bæjarfulltrúa,
þar á meðal undirritaðan, um könn-
unina, svo og var birt afsökunargrein
að hluta frá blaðamanni blaðsins til
Vestmannaeyjalistans. Enn var beðið
eftir skýringum á úrvinnslu könnun-
arinnar en ekkert var minnst á niálið í
næsta blaði Frétta sem kom út 8. apríl,
að undanskilinni grein frá Ragnari
Oskarssyni bæjarfulltrúa Vestmanna-
eyjalistans, þar sem hann fylgdi eftir
greinarskrifum sínum um rangfærslu
Frétta á niðurstöðutölum könnunar-
innar.
Einkennílegt reikningsdæmí -
49%verðaað79,8%
í blaðinu í dag getur verið að frekar
verði fjallað um málið, en þar seni
undirritaður treystir því ekkert sérstak-
lega, er þessi grein skrifuð. Sam-
kvæmt grein í blaðinu frá 26. rnars, er
talað um fylgistap Vestrtannaeyja-
listans. Sú fullyrðing hefurpegar verið
leiðrétt eins og að framan er getið. Það
sem eftir stendur og ég vakti athygli á
í umræddu forsíðu viðtali, þá gengur
reikningur blaðsins og fullyrðingar
ekki frekar upp, hvað könnunina
varðar um bæjarstjórann. Sagt er að
fylgi við D-listann miðað við þá sem
tóku afstöðu, sé 55.1% og af þeim vilji
81,5% núvegandi bæjarstjóra, Guðjón
Hjörleifsson og að fylgi V-listans sé
43,5% og af þeim vilji 9,4%
núverandi bæjarstjóra. Síðan er klykkt
út með því að 79,8% vilji núverandi
bæjarstjóra, sem bæjarstjóra áfram.
Eins og fyrr er getið er hér um einn
allsherjar rugling að ræða.
Samkvæmt þessum tölum Frétta og
við gefum okkur um að þær séu réttar.
hefur núverandi bæjarstjóri 44,91%
fylgi frá þeim sem segjast ætla að
kjósa D-listann og 4,09% þeirra sem
segjast ætla að kjósa V-listann.
Samtals hefur núverandi bæjarstjóri
fylgi 49% fylgi þeirra sem tóku
afstöðu í könnuninni, en ekki 79,8%
eins og blaðið hélt fram í frétt sinni á
forsíðu og í fyrirsögn 26. mars sl. Það
er ljóst að mikið er að, í skýringum
Frétta. um þetta mál. Hún er reyndar
kapítuli útaf fyrir sig, þessi spuming
um bæjarstjórann, þar sem aðeins einn
bæjarstjóri er í Vestmannaeyjum og
ekki vitað um aðra sem í boði eru.
Blaðið hlýtur að hafa talið spum-
inguna þjóna einhveijum tilgangi.
Krafa um svörfrá Gallup
Það hlýtur að vera krafa þeirra sem
standa fyrir könnunum sem og þeirra
sem taka þátt í þeim, að rétt sé farið
með tölur. Svo hefur ekki verið miðað
við uppgefnar forsendur og í reynd
skekkjur í biningu á umræddri könnun
sem blaðið Fréttir tók þátt í.
Samkvæmt upplýsingum Frétta.
stóð Gallup að þessari skoðana-
könnun. Það fyrirtæki sem og önnur
sem taka slík verkefni að sér. hafa
gefið sig út fyrir að láta frá sér traustar
og vandaðar upplýsingar um kannanir
á þeirra vegum. Samkvæmt ofan-
greindu þarf að skýra marga þætti.
hvað umrædda könnun varðar og
verður því vart trúað að Gallup hafi
ekkert um málið að segja.
Guðmundur Þ. B. Olafsson.
Höfundur er bœjcufulltrúi V-listans.
Samkvæmt tölum Frétta við fylgi bæj'arstjóra er dæmið þannig
Fylgi við D-lista 55,1 %. 81,5% af þeim vilja núv. bæjarstjóra.
(81,5 x55,1/100 = 44,91) 81.5% af 55,1 %gera 44,91%
Fylgi við V-lista 43,5%. 9,4% af þeim vilja núv. bæjarstjóra.
(9,4 x 43,5 /100 = 4,09) 9,4% af 43,5% gera 4,09%
Samtals fylgi við núv. bæjarstjóra 4,09% + 44.91 % = 49%