Fréttir - Eyjafréttir - 20.08.1998, Blaðsíða 6
6
Fréttir
Fimmtudagur 20. ágúst 1998
Líkanið af Helga Helgasyní VE er að sjá óaðf innanlegt og Itefur Tryggvi úthugsað huert smáatriðí
Helga Helgasyni VE
hleypt af stokkunum í annað sinn
í líkani sem Tryggvi Sigurðsson hefur gert af þessu
s
stærsta tréskipi sem smíðað hefur verið á Islandi
Tryggvi Sigurðsson, vclstjóri og
líkanasmiður, er þcssa dagana að
lcggja lokahönd á smíði líkans af
Hclga Helgasyni VE sem smíðaður
var í Vcstmannacyjum á fimmta
áratugnum fyrir Hclga Benedikts-
son útgerðarmann og fram-
kvæmdamann í Vestmannacyjum.
Er hann stærsta tréskip sem byggt
hcfur verið á Islandi fyrr og síðar.
Tryggvi hefur ekki aðeins kynnt sér
mál og stærðir á Helga Helgasyni
hann er líka fróður um sögu skipsins
en smíði þess tók fjögur ár. „Helgi
Helgason VE var smíðaður í Vest-
mannaeyjum á árunum 1943 til 1947
og er stærsta tréskip sem smíðað hefur
verið á íslandi fyrr og síðar,“ segir
Tryggvi.
„Hönnuður og yfirsmiður var Bryn-
jólfur Einarsson bátasmiður og er
kraftaverki líkast að hægt var að
smíða skipið við þær aðstæður sem þá
voru hér. Helgi Helgason var smíð-
aður inni í Botni, nálægt þeim stað
þar sem þrær Gúanósins em í dag.
Þarna var Helgi uppi í kálgörðum og
varð að draga hann eina 70 m til að
koma honum flot.
Helgi Helgason var 35 m langur og
var mældur 189 tonn. Mestur afli sem
kom upp úr honum var 364 tonn. „Það
var á Hvalfjarðarsíldinni 1947. Fór
hann beint í það
ævintýri eftir að
smíðinni lauk. Skip-
stjóri þá var Arnþór
Jóhannsson frá
Siglufirði sem á
þessum árum var
einn mesti afla-
maður landsins á
sfld. Helgi Helgason
var um
merkilegur bátur og
m.a. var í honum stærsta glóðarhaus-
vél sem framleidd hefur verið í
heiminum," segir Tryggvi.
Héðan var Helgi Helgason seldur til
Patreksfjarðar. Þá varð Finnbogi
Magnússon, margfaldur aflakóngur
yfir landið, skipstjóri á skipinu.
„Endalokin urðu þau að Helgi Helga-
son var sagaður í sundur á Akureyri
árið 1965 að því er sagt var vegna fúa.
En að sögn kunnugra var þetta hreint
skemmdarverk."
Páll, sonur Helga Ben, staðfestir
þetta. „Emil Andersen sá skipið eftir
að byrjað var að saga það í sundur.
Hann varð höggdofa og grét skipið,"
segir Páll.
Líkanið er í hlutföllunum 1:24 og
hefur smíðin staðið í þrjú ár. „Sig-
tryggur, sonur Helga Ben, bað mig um
að smíða líkanið og nú fer að styttast í
að ég skili því af mér. Ég byrjaði í
ágúst 1995 og líklega hafa farið um
800 vinnustundir í smíðina. Ég er hálf
fegin að þessu er að Ijúka en þá tekur
bara næsta verkefni við sem er líkan af
Sigurði VE fyrir ísfélagið sem farinn
er að taka á sig mynd," segir Tryggvi.
Tryggvi vill ekki gefa upp hvað
hann tekur fyrir hvert líkan en segir að
tímakaupið sé ekki hátt. „Ég hefði
meira upp úr því að vera með skóflu
hjá bænum. Auk þess er efnis-
kostnaður ótrúlega mikill og svo þarf
oft sér verkfæri sem geta verið dýr. En
ég er ekki að kvarta því þetta er mitt
áhugamál og nú eru líkon af þremur
loðnuskipun í pöntun hjá mér,“ sagði
Tryggvi sem vildi að lokum koma því
á framfæri að næstu tvær vikur verður
líkanið af Helga Helgasyni VE til
sýnis íPrýði.
Flöskuskeyti
af Flæmska Hattinum
skilaði sér á Englandi
Guðni Þór með brélið frá Morgan sem fann flöskuskeytið við Mull á
EnglandL
Guðni Þór Pétursson, níu ára
Eyjapeyi, fékk skemmtilegt bréf
fyrr á þessu ári frá sex ára strák í
norður Wales á Bretlandi. Tilefni
bréfsins var flöskuskeyti sem
Guðni Þór henti í sjóinn á
Flæmska Hattinum og fannst við
strendur Bretlands ári síðar.
Guðni segir að upphafið megi
rekja til þess þegar hann var með
pabba sínum, Pétri Sveinssyni
skipstjóra á Andvara, á
rækjuveiðum á Flæmska
hattinum sumarið 1996. Guðni
verður tíu ára 7. september nk.
og hefur því verið sjö ára þegar
hann var á Flæmska Hattinum.
„Ég var heilan túr með pabba og
það var gaman,“ segir Guðni Þór.
Til að stytta sér stundirnar um
borð útbjó hann með pabba
sínum flöskuskeyti með
upplýsingum um hver hann er
og hvar hann býr. Þetta skilaði
árangri og í vetur fékk hann bréf
frá Morgan Willams, sex ára
strák, sem býr í norður Wales. í
bréfinu segir Morgan að í fyrra
sumar hati hann verið í
sumarleyfi með fjölskyldu sinni í
Mull þegar hann fann flöskuna.
Morgan segist hafa orðið mjög -
spenntur þegar hann fann
flöskuskeytið. Einnig segist hann
eiga lítinn bróður. Þá fylgir
heimilisfang og ætlar Guðni Þór
að láta það verða sitt fyrsta verk
eftir að Fréttir koma út að senda
honum blaðið og bréf með nánari
upplýsingum um sig og
Vestmannaeyjar.
Morgan með flöskuseytið sem
hafðí verið eitt ár á leiðinní til
Englands.
Hlægilega ódýrar pakkaferðir með Herjðlfi
Skeljungur niðurgreiÖir fargjöldin
Herjólfur hefur í samvinnu við Skeljung hf.
og Sérleyfisbíla Selfoss sett saman pakkaferð
á úrslitaleik Bikarkeppninnar milli ÍBV og
Leifturs, sem fram fer á laugardalsvelli 30.
ágúst nk. Til að ná sem hagstæðustu
fargjöldum fyrir Eyjamenn hefur Skeljungur
ákveðið að leggja til olíukostnað í eina ferð
fram og til baka milli Eyja og Þorlákshafnar
og kemur framlag Skeljungs beint til
lækkunar á miðaverði farþega sem ætla á
lcikinn.
Herjófur og Sérleyfísbifreiðamar hafa til
viðbótar því ákveðið að slá af gjaldskrá sinni til
að gera sem flestum Eyjamönnum mögulegt að
komast á leikinn og styðja ÍBV liðið til sigurs.
Sömu fyrirtæki höfðu með sér samvinnu um
afslátt af fargjöldum á nokkra knattspymuleiki
ÍBV sl. haust og mæltis það afar vel fyrir.
Skeljungur ákvað að leggja enn meira til nú dl að
ná farmiðaverði með Herjólfi meira niður og
einnig ákváðu Sérleyfísbflamir að hafa sama
gjald í pakkaferð á leikinn og í fyrra þrátt fyrir að
gjaldskrá hafi hækkað síðan.
Verð á pakkaferð fyrir fullorðna með Heijólfi
á Bikarleikinn verður því 3000 krónur og
innifalið í því verði em ferðir með Herjólfi báðar
leiðir, rútuferðir Þorlákshöfn - Reykjavík -
Þorlákshöfn, og stúkumiði á leikinn. Einnig er
hægt að kaupa pakkaferð þar sem bara er ferð
með Heijólfi og miði á leikinn og kostar pakkinn
þá 2100 krónur. Þeir sem kaupa pakkaferðir á
leikinn á þessu verði geta ekki notað ein-
ingakortin til greiðslu.
Skeljungur, Herjólfur og Sérleyfisbflar Selfoss
líta á þessi lágu fargjöld sem sérstaka þjónustu
við þá sem ætla að sjá úrslitaleikinn og um leið
líta þeir á þetta sem stuðning við knattspymulið
ÍBV. Þessi fargjöld munu því bara gilda fyrir þá
sem kaupa sér pakkaferðir á leikinn, fyrir aðra
gildir venjubundin gjaldskrá Heijólfs.
Forsala miða hefst á afgreiðslu Herjólfs á
morgun og stendur fram að leik, svo fremi að
ekki verði uppselt, en þar sem fargjöld þessi em
afar hagstæð má búast við að fljótlega verði
uppselt í ferðir Herjólfs í tengslum við leikinn.
Það er því rétt að hvetja fólk til að tryggja sér
miða í tíma. Rétt er einnig að benda á að
einungis er hægt að kaupa pakka á þessu verði á
skrifstofu Heijólfs og ekki verður hægt að kaupa
afsláttarfargjöld með rútunum til Reykjavíkur
þegar komið er um borð í bflana í Þorlákshöfn.
Eyjamenn fjölmennum á leikinn og hvetjum
ÍBV til sigurs. Áfram ÍBV.
Skeljungur - Herjólfur - Sérlevfisbifreiðar
Selfoss.
Fréttatilkynning.