Fréttir - Eyjafréttir - 20.08.1998, Page 10
10
Fréttir
Fimmtudagur 20. ágúst 1998
Þar sem nkir
lognmolla
næst ekki
árangur
-Púlsinn tekinn á Bjama Jóhanns-
s
syni, þjálfara IBV, um gengi liðsins í
sumar, uppákomur, stuðningsmenn
og lokaslaginn í deild og bikar
Bjami Jóhannsson, þjálfari
Islandsmeistara IBV, segist
vera sáttur við stöðu liðsins
í fótboltanum í sumar eins
og staðan er í dag. Þegar
fimm umferðir eru eftir er
ÍBV komið með fjögurra
stiga forystu, hefur 28 stig
eða nákvæmlega jafn mörg
og á sama tíma í fyrra. IBV
er einnig komið í
bikarúrslit, þriðja árið í
röð, þannig að Eyjamenn
hafa þær forsendur að
vinna tvöfalt í ár, þ.e. bæði
deild og bikar. Bjami er
alltaf jafn yfirvegaður
þegar rætt er við hann. Það
liggur við að fólki bregði í
brún þegar hann skiptir
skapi á hliðarlínunni á
leikjum en þá sjáum við
einmitt keppnishliðina á
Bjarna. Fréttir tóku púlsinn
á Bjama sl. mánudags-
morgun þar sem hann var
fenginn til að tjá sig um
sumarið það sem af er í
boltanum, uppákomur
innan liðsins,
stuðningsmenn og svo
lokaslaginn sem er
framundan í deild og bikar.
Sunnudagurinn hafði verið
viðburðaríkur hjá Bjama,
ÍBV hafði sigrað ÍR 4 -1
og svo fór hann í
lundapysjuleit með
tvíburadætrum sínum og
fundu þau á þriðja tug
pysja enda stóð leitin langt
fram á nótt. I hádeginu á
mánudaginn var svo æfíng
hjá ÍBV og eftir hádegi átti
að sleppa pysjunum!
Óhætt er að segja að íslandsmeistarar
ÍBV hafi mætt með nokkuð breytt lið
til leiks í Landssímadeildina í ár. 19
marka maður, Tryggvi Guðmundsson,
horfmn á braut ásamt landsliðsmann-
inum Sverri Sverrissyni, Guðna Rún-
ari Helgasyni, Hermanni Hreiðarssyni
og Bjarnólfi Lárussyni. Eftir misjafnt
gengi á undirbúningstímabilinu og
einstaka skelli í deildinni, hefur IBV
liðinu virkilega vaxið ásmeginn í
undanförnum leikjum og er engin til-
viljun að liðið skuli tróna á toppi
deildarinnai' enda er þar valinn maður
í hverju rúmi.
„Jú, ég er bara nokkuð sáttur við
stöðuna. Við höfum fengið jafn mörg
stig í ár eins og eftir þrettán umferðir í
fyrra, eða 28. Það sem er ef til vill
athyglisverðara er að við höfum
skorað fleiri mörk í ár en í fyrra, 34 á
móti 29. En við höfum fengið á okkur
14 mörk á móti 11 í fyrra á sama tíma.
Einnig erum við í úrslitum í bikamuni.
Auðvitað er maður sáttur við þetta en
við skulum gera okkur grein fyrir því
að það er að mörgu leyti erfiðara að
verja titil en vinna. Og svo þurfum við
að vinna bikarinn. En það er ekkert
sjálfgefið í þessu og þetta gæti allt
snúist í höndunum á okkur ef við
höldum ekki okkar striki," segir
Bjami.
Toppliðin breytast mikið
Lið ÍBV hefur breyst töluvert frá því í
fyrra. Nokkrir famir í atvinnumennsku
en í staðinn komu Steinar Guðgeirs-
son fyrirliði Fram, Kristinn Lámsson
úr Stjömunni, Þjóðverjinn Jens Paesl-
ack, Kjartan Antonsson úr Breiðablik,
Guðni Rúnar kom um miðjan júlí og
nú síðast Júgóslavinn Sinisa. Bjami
bendir á að þróunin í íslenskri
knattspymu sé sú að toppliðin breytist
mikið ár frá ári. Margir leikmenn fari í
atvinnumennsku og aðrir komi í
staðinn. Tíma taki að púsla saman
nýju liði.
„Það er mjög erfitt að vera með
taktískar æfingar á undirbúningstíma-
bilinu vegna þess að þú veist ekki
alveg hvaða lið þú verður með í
höndunum. Eg vil benda á að vorið í
ár var mjög óhagstætt veðurfarslega,
vellimir voru seinir til og leikmanna-
hópurinn okkar tvískiptur, þ.e. hluti af
leikmönnum liðsins var í Reykjavík.
Nokkur lið í Landssímadeildinni hafa
sýnt ágætis stöðugleika þegar komið
er fram í mót. Þau lið sem spáð var
efstu sætum eru þar og ég get ekki
sagt að neitt lið hafi komið mér
sérstaklega á óvart. Hvað ÍBV varðar
var mál manna í vor að erfitt yrði að
leysa af hólmi nítján marka leikmann
úr framlínu og átta marka mann af
miðjunni. En það hefur sýnt sig að
SIGRIFAGNAD: Bjarni tekur hríngínn með liðinu inni í búníngsklefa eftir sigur á ÍR-ingum um helgina.
Steingrímur Jóhannesson er öflugur
leikmaður, hann hefur skorað jafnt og
þétt sem er mikill kostur og aðrir
leikmenn hafa leyst þetta vel af hendi.
Liðið í heild sinni brást við meintum
vanda. Við eigum í dag tvo stoðsend-
ingahæstu leikmenn deildarinnar, Inga
Sigurðsson og Kristinn Lárusson.
Þetta hefur því allt gengið þokkalega
upp þrátt fyrir ýmsar vangaveltur og
hrakspár,“ segir Bjami.
Lærðum af skellinum á
Ólafsfirði
Gengi IBV í vor var nokkuð skrykkj-
ótt. Stór skellur gegn Leiftri í byrjun
júlí vakti upp margar spumingar um
virkilegan styrkleika IBV liðsins, sem
var reyndar þrátt fyrir allt enn í efsta
sæti en þar var þröngt á þingi. Bjami
segir að skellurinn gegn Leiftri hafi
verið virkilega lærdómsríkur fyrir
hann og leikmenn liðsins. Þeir hefðu
lært af mistökunum og tekið sig sam-
an í andlitinu.
Til að byrja með spilaði ÍBV ekki
sömu leikaðferð og í fyrra, sem færði
þeim Islandsmeistaratitilinn. Að þessu
sinni var lagt upp með hina gaman-
grónu leikaðferð 4-4-2 en eftir skellinn
á Ólafsfirði breytti Bjami í 4-3-3, líkt
og í fyrra, og síðan þá er IBV með
fullt hús stiga, 12.
„Leikaðferðin 4-3-3 hentaði vel í
fyrra. Flest íslensk félagslið spila með
þrjá menn á miðjunni og lentum við í
erfiðleikum á miðjunni þar sem við
vomm með tvo menn. Eftir breyt-
inguna á leikkerfinu hefur liðið smátt
og smátt verið að smella saman, þrátt
íyrir meiðsli lykilmanna. Við misstum
snemma út Sigurvin Ólafsson. Þegar
hann var loks að ná sér eftir meiðslin
lenti hann í þessu hræðilega slysi. Ivar
Bjarklind og Kristinn Hafliðason
misstu úr fyrstu fjórar umferðimar og
nú er Ivar meiddur á ný. Steinar
Guðgeirsson hefur misst úr leiki vegna
meiðsla og þá er Kjartan Antonsson
farinn til Bandaríkjanna í nám. Rútur
Snorrason hefur ekki náð að jafna sig
eftir meiðsli í fyrra og Leifur Geir
Hafsteinsson hefur ekkert verið með.
Allt þetta sýnir hversu mikilvægt er að
eiga breiðan og öflugan hóp leik-
manna til að stapdast þær kröfur sem
gerðar eru til ÍBV, þ.e. að vera á
toppnum. En miðað við þau áfóll sem
dunið hafa yfir er hópurinn í dag ekki
breiður. I raun og vem má ekki svo
mikið út af bregða,“ segir Bjami.
Hann bendir réttilega á að stærsti
gallinn við að hafa stóran hóp öflugra
leikmanna sé að aðeins sextán séu í
leikmannahópi hverju sinni, ellefu
sem byrji inni á en verkefnin fyrir hina
séu af skomum skammti. Bjami segir
þetta vera stórt vandamál í íslenskri
knattspymu almennt séð. Hið svo-
kallaða fyrsta fiokksmót sé úr sé
gengið. Hann vill að hér á landi verði
tekið upp kerfi þar sem varalið (B-lið)
úrvalsdeildarfélaganna geti spilað í
neðri deildum, en þó aldrei ofar en í 2.
deild. Umgjörðin í kringum leikina í
neðri deildunum sé mun skemmtilegri
en í 1. flokki og þetta myndi skapa
varamönnum og yngri leikmönnuni
kærkomin tækifæri.
Meiri kröfur gerðar til okkar
ídag
Að verða Islandsmeistari er stór á-
fangi. Slíkt er saðsamt og þekkt em
dæmi að slfkt afrek hafi drepið niður
allt hungur í fleiri titla. Gott dæmi um
það er KA liðið sem varð íslands-
meistan 1989 og féll svo niður um
deild tveimur árum síðar. Sagan
endurtók sig þegar Víkingsliðið varð
Islandsmeistari 1991 en féll svo niður
um deild tveimur árum síðar. En
þjálfari ÍBV segir að hungrið f að
halda titlinum sé mikið hjá Eyja-
peyjum.
„Við skulum ekki gleyma því að
það em öðmvísi aðstæður að veija útil
en ná í hann. Meiri kröfur em gerðar á
íslandsmeistara ÍBV þrátt fyrir breytt
lið, andrúmsloftið er þmngið spennu
og allir bæjarbúar fylgjast vel með. En
þetta er hlutur sem leikmenn með
sterka sjálfsímynd og góðan þroska
læra að lifa með og um leið sætta þeir
sig ekki við neitt annað en að vera á
toppnum,“ segir Bjami.
Morgunblaðið sagði frá uppákomu
í búningsklefa ÍBV að loknum
Evrópuleiknum gegn FK Obilic þar
sem skýrt var frá því að tveir leikmenn
ÍBV hefðu slegist. Þá hafa flogið
sögusagnir um bæinn um eitt og
annað í tengslum við liðið en Bjami
vísar þeim til föðurhúsanna.
„Sem Islandsmeistarar er meiri
pressa á liðinu eins og ég hef sagt.
Meira álag er á mönnum þegar titil
skal verja. Miklar breytingar hafa
verið á hópnum og karakter leikmanna
smellur ekki strax saman við slíkar
kringumstæður. Því er ekki að neita að
það hafa átt sér stað uppákomur innan
liðsins eins og segir í fyrmefndri
Morgunblaðsgrein sem þú vitnar í. En
stjóm liðsins, leikmenn og þjálfarar
settust niður og leystu þau mál í
sameiningu, enda verða slík mál ekki
leyst öðmvísi en innan hópsins. Við
vonum og treystum því að hópurinn
verði sterkari á eftir. Öft sameinast öfl
þegar búið er að rasa út. Þess vegna á
vel við gamli frasinn að þar sem
lognmolla ríkir næst ekki árangur,"
segirBjami.
Stuðningsmenn IBV sýna
liðinu mikið traust
Skoðanir sparkspekinga á hinum og
þessum leikmanninum, leikkerfum,
innáskiptingum og frammistöðu liðs
og leikmanna eru auðvitað mjög
skiptar. Þar er fremstur í flokki, hvers
manns hugljúfi eins og segir í IBV lagi
Leifs Geirs, hinn dæmigerði Hólsari.
Frammistaða fjölmiðla er ekki síður
vegin og metin og sýnist þar einnig sitt
hverjum. Bjami vill nefna sérstaklega
hlut stuðningsmanna IBV í sumar.
Hann segist dást mjög að þeim
Vestmannaaeyingum sem mætti á
hvem einasta leik og segir að þeir hafi
sýnt Eyjaliðinu í sumar mikið traust.
„Mér finnst hafa verið meiri
stemmning á heimaleikjunum í sumar
en verið hefur. Stuðningsmannaklúbb-
urinn á heiður skilinn fýrir sitt framlag
og umgjörð ieikjanna verið góð. Þetta
hafa ieikmenn liðsins fundið og þetta
Bjarni fær innilegt f aðmlag frá dótturínní eftir sigurinn á sunnudaginn.