Fréttir - Eyjafréttir - 20.08.1998, Síða 16
FLUTNINGAR - VESTMANNAEYJUM
R/t/ilafifir L|J[L Immré £ ImJ mm ap
KmW^wB W M^mMÆwí Qm$
Vöruafgreiðsla
SidldlB9av*fll 4 Sfni 481 3440
Vöruafgreiðsla ■ Reykjovík
AðaMufalBgar Höðiosgötu 3
SfmlSSf 3030
Rútuferðlr-Bustours
Öl! móttaka ferðamanna, skóla- og íþróttahópa
Islandsmeistarar b -liö ÍBV kvenna varð íslandsmeistari í sínum flokki í úrslitakeppninni um síðustu
helgi. Stelpurnar, sem hér eru með írisi þjálfara, stóðu sig frábærlega. í hléi í leik ÍBV og ÍR var þeim og
stelpunum í A-liðinu, sem urðu í 3. sæti afhent blóm frá ÍBV og bæjarstjórn.
Tal fékk ekki lóð á Helgafelli
framundan
Undirbúningur fyrir leik ÍBV og
Leifturs í úrslitum Coca Cola
bikarkeppninnar er kominn á
fullan skrið. Forsala fyrir leikinn
verður á bensínstöðvum Esso á
Reykjavíkursvæðinu og í Eyjum.
Herjólfur og Flugfélag Vest-
mannaeyja hafa sett upp pakka-
ferðir í tengslum við leikinn og
stærri flugfélögin verða með
tilboð á ferðum.
Stuðningsmannaklúbbur ÍBV í
Eyjum ætlar að hafa Bikarkvöld á
veitingastaðnum Fjörunni fimm-
tudagskvöldið 27. ágúst þar sem
boðið verður upp á létta máltíð og
þjálfari ÍBV, fyrirliði og fleiri
fulltrúar koma og ræða við stuð-
ningsmennina.
Stuðningsmannaklúbburinn í
Reykjavík er kominn af stað með
sinn undirbúning og þar verður ekki
slegið slöku við frekar en fyrr. Nú
ætla stuðningsmennimir í Reykjavík
að toppa allt það sem gert hefur
verið í undirbúningi bikarúrslita-
leikja undanfarinna ára. Það má
segja að stanslaus keyrsla verði hjá
klúbbnum frá föstudegi til sunnu-
dags. Klúbburinn verður í Kringl-
unni föstudaginn 28. og laugar-
daginn 29. ágúst og startar bikar-
stemmningunni með sölu á ýmsum
ÍBV varningi. Laugardagskvöldið
29. ágúst verður svo IBV stór-
dansleikur á Broadway. Þar niun
Eymannafélagið leika Eyjalöginn
og stjóma fjöldasöng.
Að morgni leikdags verður hitað
upp fyrir úrslitaleikinn í íþróttahúsi
Fram í Safamýri. Þar verður slegið á
létta strengi, seldar verða veitingar
og vamingur og hljómsveitin Skíta-
mórall mun halda uppi stuðinu. Frá
Framheimilinu verður síðan haldið í
skrúðgöngu á Laugardalsvöllinn þar
sem leikurinn hefst kl. 15.00.
Allt þetta umstang er bara upp-
hitun því hvatning stuðningsmanna
ÍBV á leiknum er það sem máli
skiptir. Spumingin er svo bara hvort
það tekst nú loksins í þriðju tilraun
Tal hf. hefur sótt um lóð á kolli
Helgafells. A lóðinni var áætlað að
koma upp tækjaskýli á í gíg-
botninum og loftnetsstaur á
gígbarmi þar sem aðflugsljós Flug-
málstjórnar eru. Erindinu var vís-
að til umsagnar umhverfis- og heil-
brigðisnefndar sem tók umsóknina
fyrir á fundi 7 júlí s.I.
Nefndin hafnaði staðsetningunni á
kolli Helgafells en féllst á staðsetn-
ingu á Klifinu. Einnig barst umsókn
frá fyrirtækinu til skipulagsnefndar,
sem tekin var fyrir á fundi nefnd-
arinnar 6. ágúst s.l., um leyfi til þess að
byggja fjarskiptastöð í nágrenni sorp-
eyðingarstöðvarinnar á nýja hrauninu.
Sú umsókn er hins vegar til umfjöll-
unar hjá umhverfis- og skipulags-
nefnd.
Fulltrúi Tals hf. kom á fund um-
hverfis- og heilbrigðisnefndar þann 23.
júlí s.l. og skýrði afstöðu fyrirtækisins
gagnvart umsókn sinni um stað-
setningu á Helgafelli. Eftir að hafa
endurmetið málið sá nefndin ekki
ástæðu til þess að breyta fyrri afstöðu
sinni og hafnaði erindinu.
Drífa Kristjánsdóttir segir að afstaða
umhverfis- og heilbrigðisnefndar var-
ðandi staðsetningu téðra mannvirkja á
Helgafelli væri skýr og afdráttarlaus,
þar sem að fellið væri friðað og rök
nefndarinnar þau að mannvirki á kolli
fellsins væm til lýta og sjónmengandi.
Varðandi umsólai Tals hf. um aðra
möguleika á staðsetningu fjarskipta-
stöðvar sagði Drífa að það mál yrði
trúlega tekið fyrir á næsta fundi
nefndarinnar sem yrði fljótlega"
Þórólfur Ámason forstjóri Tals hf.
segist ekki gera neinar athugsemdir við
niðurstöðu nefndarinnar og segir aðra
staði í Eyjum inni í myndinni. „Við
viljum gera þetta í góðri samvinnu við
heimamenn og að tekið verði tillit til
umhverfissjónarmiða. Þess vegna
viljum við stíga hægt til jarðar í
þessum málum og að allir geti verið
sáttir."
Þórólfur segir að verið sé að skoða
þijár staðsetningar núna fyrir tækja-
búnað Tals hf. en hann vilji ekki úttala
sig um málið að svo stöddu. „Klifið
hentar illa vegna þess að þá næst ekki
nema til lítils hluta bæjarins sem þýddi
að setja yrði upp tvær stöðvar á
eyjunni, en við viljum losna við það í
lengstu lög vegna kostnaðar við slíkt.
Við ætlum að reyna að finna eina
staðsetningu, þar sem em góð skilyrði
og umhverfismálin verða í lagi."
VMbrögðin
komumérí
opna skjöldu
„Landnytjanefnd gaf grænt ljós
með skilyrðum, sem voru meðal
annars þau að ég biði eftir
samningum vegna ókláraðra
túnasamninga. Eg fékk sam-
þykki allra íbúa við Stapaveginn
nema tveggja sem ekki tóku
efnislega afstöðu til þess að ég
girti af svæðið og beitti þar
hestum. Eg girti því svæðið af í
góðri trú og í ljósi orða
landnytjanefndar," segir Valur
Orn Gíslason um umsókn sína til
hrossabeitar ofan við Stapaveg.
Valur Öm segir að leyfi hans til að
nýta landið nái frá 15. maí til 1.
október og að einn hestur verði að
vera á hvem hektara. „Ég girti af 6
til 8 hektara og á svæðinu hafa verið
5 hestar sem hafa verið í góðu
sambýli við fjölbreytt mófuglalíf á
staðnum."
Aðspurður um viðbrögð Róberts
Sigurmundssonar og undirskrifta-
söfnunar hans gegn hrossahaldi
Vals Amars á svæðinu segir hann
að ofstækisfull framkoma hans hafi
komið sér í opna skjöldu. „Ég átti
alls ekki von á þessum viðbrögðum.
Ef þetta er liður í því að Eyjamenn
sæki alla sína afþreyingu til
Reykjavíkur eða upp á land, þá er
það í fullkominni mótsögn við þá
viðleitni fólks hér í Eyjum að geta
eflt fjölbreytni tómstunda á staðn-
um. Auk þess sem allir opinberir
staðlar um beitarþol séu uppfylltir,
en þeir kveða m.a. á um að beita
megi einum hesti á hvem hektara í
tólf mánuði. Mér finnst að menn
ættu að kynna sér forsögu málsins
áður en þeir stökkva upp á nef sér."
Valur Öm segir að ef hann fái ekki
land til að halda sín hross, þá sjái
hann sína sæng útbreidda og neyðist
til að yfirgefa eyjuna. „Mér finnst
að bæjarstjóm verði að taka af
skarið í þessu máli svo óvissunni
verði eytt hið bráðasta.“