Fréttir - Eyjafréttir - 01.10.1998, Qupperneq 10
10
Fréttir
Fimmtudagur 1. október 1998
ÍBV er risi
framtfðarinnar
Það var notaleg tilfinning að vera Eyjamaður og stuðningsmaður ÍBV á KR-vellinum í Frostaskjóli á
laugardaginn. Þarna var að rætast draumur margra áhangenda ÍBV, hreinn úrslitaleikur á móti KR í
síðustu umferð. Auðvitað áttu strákanir að vera búnir að klára dæmið fyrir löngu en þá hefði ekki orðið
svona gaman á laugardaginn. KR-ingar fjölmenntu á völlinn því í þriðja skiptið á 30 árum eygðu þeir
möguleika á að hampa íslandsmeistaratitlinum sem síðast var í Frostaskjólinu 1968. Eftin/æntingin
og væntingar voru því miklar sem komu berlega í Ijós bæði á leikvelli og á áhorfendapöllunum. Gefið
hefur verið út að 5700 áhorfendur hafi verið á leiknum og voru KR-ingar í meirihluta en það dugði ekki
til því heimamenn mættu ofjörlum sínum úr Vestmannaeyjum og urðu að sætta sig við 0 - 2 ósigur og
að sjá á eftir íslandsmeistaratitlinum til Eyja. Þangað er hann kominn 2. árið í röð ásamt
bikarmeistaratitlinum 1998. Þetta eru staðreyndir sem tala sínu máli um stöðu ÍBV í íslenskri
knattspyrnusögu í dag. KR-veldið stendur auðvitað fyrir sínu en m.a.s. KR-ingar verða að viðurkenna
að ÍBV er óumdeilanlega stórveldi í íslenskri knattspyrnu í dag og hefur alla burði til að vera það áfram
næstu árin.
Þjálfa IBV næsta
sumar nema ég
verði seldur
-segir Bjami Jóhannsson þjálfari
Bjarni fékk hjartanlegar móttökur hjá eiginkonunni. Ingigerði Sæ-
mundsdónur, liegar úrslitin lágu fvrir.
Bjarna Jóhannssyni hefur á
tveimur árum tekist að skila
þremur titlum til Eyja og á góða
miiguieika á að landa þeim tjórða á
laugardaginn þegar IBV og Leiftur
takast á um hvorir eru meistarar
meistaranna.
Fréttir hittu Bjama í Þórsheimilinu
á mánudaginn og fyrsta spumingin
var hvemijg honum væri innanbrjósts
nú þegar Islandsmeistaratitillinn er í
höfn annað árið í röð? „Eg er í góðu
skapi og nýt þess að vera til,“ svarar
hann og ber hann með sér að hann fer
ekki með ýkjur um líðan sína.
Bjarni var ráðinn til ÍBV fyrir
tveimur ámm síðan og tók þá við af
Atla Eðvaldssyni, þjálfara KR. Áttir
þú von á því þegar þú komst til Eyja
haustið 1996 að 24 mánuðum seinna
værir þú búinn að landa þremur
bikurum með liðinu? „Ekki get ég
sagt það en þegar við byrjuðum
tímabilið í fyrra hafði ég góða til-
fmningu fyrir sumrinu og var viss um
að við myndum skila titlum. Að
vinna tvöfalt í ár kemur ekki alveg á
óvart en ég átti ekki von á því fyrir
tveimur árum.“
Bjami er enginn nýgræðingur sem
knattspymuþjálfari og er nú að Ijúka
sínu 13. tímabili sem meistaraflokks-
þjálfari. Hann segist því hafa þekkt
nokkuð til Eyjaliðsins áður en hann
kom hér til starfs. „Ég sagði, þegar ég
tók við ÍBV, að það væri mest
spennandi lið að taka við á öllu
landinu. I liðinu er góður húmor og
gleði og sterkar persónur auk þess að
vera fótboltamenn. Þama eru líka
rnenn sem eru tilbúnir til að leggja
það á sig sem þarf til að skila árangri.
Það var því spennandi að fá að takast
við þetta verkefni."
Hvað umgjörðina varðar segir
Bjarni að þar hafi hann vitað að
hverju hann gekk en fótboltaáhuginn
kom honum í opna skjöldu. „Mikill
áhugi Eyjamanna kom ntér mjög á
óvart og líka það hvað ofboðslega
margir iðka knattspyrnu í Vest-
mannaeyjum. Það kom mér líka á
óvart hvað margir sækja völlinn og sú
gleði og ánægja sem þú finnur hjá
fólki. Að koma heim með bikar til
Vestmannaeyja er upplifun sem þú
gleymir aldrei á lífsleiðinni. Hvað
fólk er ánægt og glatt, hvað stemmn-
ingin er mikil gerir þetta alveg
einstakt," segir Bjami.
IBV er fjórða félagið sem nær því
að vinna tvöfalt í knattspymunni og
gerist það aðeins tveimur árum eftir
að ÍBV-íþróttafélag verður til úr Þór
og Tý. Bjarni segist vissulega hafa
komið til Eyja þegar íþróttahreyfingin
hér stóð á ákveðnum tímamótum en
hann bendir á að meistaraflokkur og
2. flokkur hafi lengi verið sameinaðir.
Sameiningin hafi því ekki haft úrslita-
áhrif á árangur meistaraflokks. „Við
erum aftur á móti að sjá árangur
sameiningarinnar í yngri flokkunum
sem flestir skiluðu sér upp í A flokk í
sumar, bæði í karla- og kvenna-
flokkum og slelpurnar í 2. og 4.
flokki urðu Islandsmeistarar. Allt
hjálpast þetta að og nú erum við að
sjá besta árangur hjá bæði körlum og
konum í meistaraflokki. Sameiningin
er jákvæð og á eftir að skila sér enn
betur í framtíðinni."
Bjami segist ófeiminn að ræða um
lið IBV þar sem Hlynur Stefánsson
fyrirliði, fer fyrir sínum mönnum.
„Það sem segja má um ÍBV liðið sl.
tvö ár er að í því er sterkur hryggur og
karakter sem er að skila sér. Ég held
lika að ég verði að hæla Hlyn mjög
mikið. Hann kemur úr atvinnu-
mennskunni með mjög jákvæðan
hugsunarhátt og er einstakur leiðtogi.
I liðinu eru góðir góðir fótboltamenn
og skemmtilegir peyjar sem eru búnir
að upplifa allt það skemmtilegasta í
fótboltanum. Ég leyni því ekki að
komið hafa upp vandamál innan
hópsins, sérstaklega í sumar en menn
höfðu karakter til að leysa málin og
ýta misklíðinni til hliðar. Það er þessi
kraftur og samheldni sent vinnur KR-
leikinn. Ég vil líka taka fram að á
erfiðum stundum í sumar komu
stjómarmenn sterkir inn og mál fengu
farsælan endi.“
Hvemig hefur samstarf ykkar
Jóhannesar Ólafssonar verið? „Ég vil
meina að stjórn knattspyrnudeildar
hafi tekið margar réttar ákvarðanir,
bæði á undirbúningstímabilinu og að
fá leikmenn til liðs við ÍBV. Þar hafa
menn vandað valið og skoðað hvort
menn hefðu þann karakter sem
nauðsynlegur er til að standa sig. Jens
Paeslack lofaði góðu en stóð sig ekki.
Ég var gagnrýndur fyrir að nota hann
ekki en þeir sem ekki geta glaðst með
öðrum eiga ekki að vera í
hópíþróttum heldur í einstaklings-
íþróttum og þar eiga þeir ekki að taka
þátt í tvíhliðieik.“
Bjarni segir að IBV-liðið hafi
komið sterkara til leiks þegar búið var
að leysa innri vandamál hópsins en
vandamálin vom fleiri. m.a. meiðsli
leikmanna. Sigurvin Ólafsson datt út
á miðju tímabili, Leifur Geir Haf-
steinsson ætlaði að vera með í sumar
en komst aldrei í gang vegna þrálátra
meiðsla og Ivar Bjarklind var
meiddur um tíma. Allt em þetta menn
sem hefðu gengið inn í byrjunarlið
efstu deildar hvar sem er á landinu.
„Það var styrkur okkar að vera með
stóran og góðan leikmannahóp í
sumar. Það hefur sýnt sig að á íslandi
er nauðsynlegt að hafa stóran
leikmannahóp því félög sem em í
Evrópukeppni og ná langt í bikar em
að leika ansi marga leiki á stuttum
tíma. Það er líka vandasamt að vera
með stóran hóp því þessir menn
verða að hafa verkefni. Nú er umræða
í gangi um að vera með B-lið eða 1.
flokk sem að mínu mati gæti leikið í
3. deild. Mótamál á Islandi verða að
fara í nákvæma naflaskoðun því allt
of margir hætta eftir 2. flokk.“
Að lokum, verður þú þjálfari IBV
næsta sumar? „Síðastliðið haust
framlengdi ég samning minn við IBV
út árið 1999. Ég verð því áfram nerna
ég verði seldur," sagði Bjami Jó-
hannsson þjálfari IBV að lokum og
glotti við.
Anægjule
meistaratit
-segir fyrirliði ÍBV, I
feld og spáir í framh
Hlynur Stefánsson, fyrirliði IBV, er
óunideilanlega besti leikmaður Lands-
símadeildarinnar í sumar. Hann hefur
stjórnað sínum mönnum eins og
hershöfðingi og hefur ásamt Zoran
Milchovits náð að mynda kjarnann í
sterkustu vörn deildarinnar annað árið
í röð. Þegar Hlynur er heðinn um að líta
til baka eftir sumarið segir hann að
takmarkið hafi verið sett á að vinna
tvöfalt og það hafí tekist.
„Það var líka ánægjulegt að ná
takmarkinu með Islandsmeistaratitilinn á
KR-vellinum líka vegna þess að okkur
hefurgengið illa á útivelli í allt sumar."
Hann segir það sérstöðu IBV að hafa
bæjarfélagið allt á bak við sig. Eyjamenn
telji ekki eftir sér að leggjast í ferðalög til
að fylgja sínum mönnum í útileiki og þessi
mikli áhugi skili sér til leikmanna. „Góður
árangur IBV er líka jákvæður fyrir
bæjarfélagið enda er IBV sameiginlegt
tákn allra Eyjamanna.“
Hlynur rifjar upp að ekki séu svo mörg
ár síðan IBV var að berjast fyrir lífi sínu í
deildinni. Hann var þá atvinnumaður í
Svíþjóð og fylgdist með úr fjarlægð. „Ég
var ekki með á „Malla-tímabilinu“ en
fylgdist auðvitað með IBV og upplifði
þennan slag mjög sterkt. Þá var stuðningur
bæjarbúa líka fýrir hendi. Við emm því að
þakka fyrir góðan stuðning þegar illa gekk
með því að koma heim með Bikarinn og
íslandsmeistaratitilinn núna."
Hlynur segir að móttökumar á laugar-
dagskvöldið þegar liðið kom heim nteð
Herjólfi hafi verið ótrúlegar. „Keikó tók
þátt í þessu líka og slagorð okkar Kók-
manna á vel við: -Þetta er einstök
tilfinning.“
Hlynur er í dag 34 ára sem þykir nokkuð
hár aldur í fótboltanum og á nú möguleika
á að hætta á toppnum. „Nú er ég búinn að
vinna allt sem hægt er hér á landi og ég er
ánægður með að tímabilið skuli vera búið.
Ég fer til Portúgals þann 7. þar sem ég
ntun skoða minn gang, hlaða batteríin og
taka ákvörðun um framhaldið. En ég er
glaður og stoltur af því að vera hluti af
þessu IBV-batteríi," sagði Hlynur Stef-
ánsson, fyrirliði að lokunt.