Fréttir - Eyjafréttir - 01.10.1998, Qupperneq 20
FLUTNINGAR • VESTMANNAEYJUM
Daaléaar far&lr hvarl á land mim at.
ivtniiviiiii iviuii iivvii h iiufifl vviii vii
Vörualgreiðsla
Sldldlngavegl 4 Sími 481 3440
Vöruafgreiðsla i Reykjavik
Aðallluinlngar Höðlnsgötu 3
Siml 881 3030
Sendibílaakstur innanbæjar.
Vilhjálmur Bergsteinsson
simmmAtiu
*481-2943,
•897-1178
Á aOalf'undi Sambands íslenskra
sveitarfelaga, sem haldinn var fyrir
skömmu, fóru þrír fulltrúar frá
Eyjum, þau Guðjón Hjiirleifsson,
Sigurður Einarsson og Þorgerður
Jóhannsdóttir. Til stjórnar sam-
bandsins tilnefnir uppstillingar-
nefnd fólk til stjórnarkjörs.
I síðasta tbl. Dagskrár er birt grein
eftir Ragnar Óskarsson, þar sem segir
að sveitarstjórnarmenn hafi hafnað
Guðjóni og heldur viljað Þorgerði í
stjómina. Er Guðjón í framhaldi af því
sagður hafa róið að því öllum árum að
Þorgerður yrði ekki valin og þar af
leiðandi enginn fulltrúi Vest-
mannaeyja í stjórninni til að gæta
hagsmuna þeirra innan sambandsins.
Reynt var að ná í Þorgerði í gær
vegna þessa máls og fá hjá henni
upplýsingar um hvernig plottað var
gegn henni á fundi sambandsins. Hún
sá sér ekki fært að tjá sig um málið
vegna anna við fundarstörf. En benti
hins vegar á að fjallað hafi verið um
málið í blöðum á sínum tíma og að
Fréttir hefðu ekki haft áhuga á málinu
þá. Enn fremur bætti hún við að þeir
sem kynnu að lesa hefðu haft ágæta
möguleika á því að kynna sér málið þá.
Guðjón Hjörleifsson meintur að-
fararmaður að Þogerði segir það regin
firru að liann hafi óskað eftir því að
komast í stjórn sambandsins. „Eg er
einn af 5 fulltrúum í fulltrúaráði
sambandsins sem kosnir eru á Suð-
urlandi. Það er hefð fyrir því að
meirihluti bæjarstjórnar Vestmanna-
eyja velji aðalmanninn í fulltrúaráðið.
Eg var tilnefndur af núverandi
meirihluta og aðalmenn eru einir hæfir
inn í stjómina og það veit Ragnar. Ég
hafði ekki uppi neinar óskir um að
komast í stjómina, enda næg verkefni í
fúlltrúaráðinu."
Guðjón segir að uppstillinganefndin
sé þverpólitísk níu manna stjóm. „Þar
eru 4 frá Sjálfstæðisflokki 2 frá
Framsóknarflokki og 3 frá A-flokk-
unum og Kvennalista. Þessir fulltrúar
A-flokkanna og Kvennalista hafa átt í
vandræðum með að velja menn af
þessum væng stjórnmálanna vegna
þess að þeir em í minnihluta á svo
mörgum stöðum eftir síðustu kosn-
ingar, Skyldi engan undra, ef undan
eru skildir Austfirðir og nokkrir aðrir
staðir. Þorgerður var aldrei í kjöri, en
til þess að uppstillingamefnd tilnefni
menn þurfa þeir að vera í kjöri til þess
að ná kosningu. Þetta veit Ragnar
Óskarsson, enda búinn að reyna þetta
síðan 1978. Auk þess hefði Þorgerður
ekki komið til greina vegna þess að
hún teldist vanhæf vegna þess meðal
annars að hún er formaður Starfs-
mannafélags Vestmannaeyjabæjar og í
samfloti bæjarstarfsmanna í BSRB.
Það gengur að sjálfsögðu ekki að
fulltrúar sitji beggja vegna borðsins.
Þetta er því bull sem kemur fram í
grein Ragnars og ég vísa ásökunum
hans því til föðurhúsanna og upp á
flugvöll,“ segir Guðjón.
Nú fer sá tími í hönd að ýmiss konar flækingsfuglar berast með veðrum og vindum til
landsins. Þessi fugl heitir laufsöngvari og á sínar heimaslóðir í Norður-Skandinavíu. Það
voru þær Ásta Björk Guðnadóttir, Halldóra Björk Halldórsdóttir og Esther Bergsdóttir sem
fundu hann sl. föstudag þar sem hann hafði vankast eftir að hafa flogið á rúðu. Þær fóru
með hann á Náttúrugripasafnið þar sem hann fékk hjúkrun við hæfi. Hann slapp hins
vegar daginn eftir og frelsinu feginn. Á myndinni, sem Kristján Egilsson tók, heldur Ásta
Björk á laufsöngvaranum.
Fagranesið kemur í stað Herjðlfs sem fer í slipp eftir tvær vikur
Magnús Jónasson frantkvæmda-
stjóri Herjólfs segir að náðst hafi
samningar við Fagranesið um að
halda uppi samgöngum milli Þor-
lákshafnar og Vestmannaeyja á
meðan Herjólfur er í slipp.
Magnús segir að mjög erfitt hati
verið að fá skip en allar leiðir reyndar
til þrautar. ,J>au skip sem okkur stóðu
til boða hentuðu ekki við þær að-
stæður sem eru á þessari siglingaleið
og höfðu enda ekki haffæmis skírteini
til þess að sigla fyrir opnu haft.“
Að sögn Magnúsar mun síðasta ferð
Herjólfs verða frá Þorlákshöfn mið-
vikudaginn 14. október kl. 12:00.
Fyrsta ferð Fagranessins verður hins
vegar tfá Þorlákshöfn mánudaginn 19.
október kl 13:00 og síðan daglega frá
Vestmannaeyjum kl. 08:15 og frá Þor-
lákshöfn kl 13:00 að minnsta kosti til
4. nóvember. Herjólfur er væntan-
legur að utan þann 6. nóvember og
fyrsta ferð samkvæmt áætlun frá Vest-
mannaeyjum 7. nóvember.
Magnús segir þetta tímabundin
vandræði sem ekki haft verið kostur á
að leysa á annan hátt. „Menn vilja
gera sitt besta og þetta var þrauta-
lendingin í stöðunni. Varðandi þetta
fjögurra daga samgönguleysi frá 14.
til 19. október á ekki að verða neitt
stopp á vöruflutningum. því að hér
verða skip frá Eimskip og Samskip
þann 15. og 16.“
Magnús vildi enn fremur nefna að
það væri ekki við áhöfn Fagranessins
að sakast í þessu máli. „Þeir gera sitt
besta og eru allir af vilja gerðir til þess
að halda uppi eins góðri þjónustu og
hægt er við þessar aðstæður."
Guðjón Hjörleifsson bæjarstjóri:
Neitar að hafa staðið
í vegí fyrir Þorgerði
-íkjöri til stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Kjúklingar Kr. C76 489 stk.
LW franskar kartöflur 2,5 kg. kr. 387 pk.
Abt mjólk m/musli 170 gr. Kl. 05 59 ds.
MS appelsínusafi 1 Itr. Kl. 1 46 122 ferna