Fréttir - Eyjafréttir - 05.11.1998, Qupperneq 2
2
Fréttir
Fimmtudagur 5. nóvember 1998
Skemmdir í Landakirkju afsóti og reyk:
Litlu mátu muna að illa færi
GáskigenyuríLH
Helgina 24. til 25. október var
landsþing Landssambands liesta-
mannafélaga haldið á Akureyri.
Eins og kunnugt er hefur verið
stofnað hestamannafélag í Vest-
mannaeyjum sem ber það fjöruga
nafn Gáski. Valur Öm Gíslason,
formaður Gáska, sótti þingið sem
áheyrnarfulltrúi. Hann sagði að
þingið hefði verið mjög upplýsandi
og að Hestamannafélagið Gáski
hefði verið tekið inn í Lands-
sambandið á þinginu en nú eru 56
félög innan LH.
Kippur í dagbóklnni
Eftir tiltölulega rólegar helgar að
undanförnu kom loks ein sem kalla
má nokkuð erilsama hjá lögreglu.
Alls voru 160 færslur í dagbók
lögreglunnar í síðustu viku sem er
nokkuð meira en verið hefur.
Litlu hefur mátt muna að illa færi
þegar eldur varð laus í bakka og
borði sem stóð framan við altarið í
Landakirkju. Staðarhaldari var
fyrir tilviljun staddur í grennd við
kirkjuna þegar hann heyrði í
brunaboða utan á kirkjunni. Brá
hann skjótt við og tókst með
snarræði að slökkva eldinn og
koma með því í veg fyrir að hann
næði að breiðast út. Skemmdir af
eldi urðu litlar nema af sóti og
slökkvidufti sem er um alla kirkju.
Halldór Hallgrímsson, staðarhaldari
Landakirkju, segist hafa verið staddur
við heimili foreldra sinna að Heiðar-
vegi 56 þegar hann heyrði í bruna-
boða sem er norðan á kirkjunni. „Eg
rauk strax af stað því ég þekkti hljóðið
í brunaboðanum," segir Halldór. „Ég
fór strax inn og um leið og ég opnaði
innri dymar var kirkjan orðin full af
reyk. Ég sá hvar eldur stóð hátt til lofts
af borði sem stóð fyrir miðju altarinu.
Ég greip slökkvitæki og réðst gegn
eldinum sem slokknaði strax.“
Halldór er sannfærður um að þama
hafi ekki mátt muna nema nokkrum
mínútum að eldurinn næði að læsa sig
í teppi á gólfinu og síðan í bekkina.
Upptök eldsins voru að tréborði hafði
verið stillt upp framan við altarið. I
tilefni af Allra heilagra messu á
sunnudaginn var raðað sprittkertum á
bakka á borðið og þau látin loga eftir
að messu lauk. Við hitann frá
kertunum hefur kviknað í bakkanum
og var byrjað að loga í borðinu þegar
Halldór kom að. Hefði hann komið
nokkrum mínútum seinna hefði næst
kviknað í teppinu og næstu bekkjum
og þá hefði eldurinn orðið ill-
viðráðanlegur því mikill eldsmatur er
í kirkjubyggingunni sem sjálf er úr
steini.
Brunavamakerfið í Landakirkju er
tengt við lögreglustöðina en Halldór
segir að það hafi ekki virkað. Var
lögreglan mætt á staðinn vegna sím-
hringinga frá fólki í nágrenninu sem
heyrði f brunaboðanum.
Slökkviliðið var fengið til að
reykhreinsa kirkjuna en ljóst er að
mikið verk er fyrir höndum við að
hreinsa þar sem slökkviduft og sót
hefur farið um alla kirkjuna.
Fréttir höfðu samband við lögreglu
vegna þessa máls og sagði Agnar
Angantýsson. yfirlögregluþjónn. að
ekki væri ljóst hvers vegna að-
vörunarkerfið hefði ekki farið í gang
þegar kviknaði í Landakirkju. „Við
látum skoða kerfið og athuga hvað
veldur þessu,“ sagði Agnar.
Landakirkja er meðal nokkurra
stofnana og fyrirtækja í bænum sem
tengd eru viðvörunarkerfi lögreglu-
stöðvarinnar. Sagði Agnar að óljóst
væri hvaða framhald yrði á þessari
þjónustu lögreglunnar. „Það stendur til
að leggja þetta niður en það er ekki
ennþá búið að aftengja kerfið. Það
eina sem við vitum er að kerfið verður
tengt til áramóta.”
Sami aðilí ákæróur í
tveimurmálum
Tvær líkamsárásir voru kærðar um
helgina og áttu báðar sér stað
aðfaranótt laugíirdags. Var sami
maður að verki í bæði skiptin og
hefur hann greinilega verið í mikilli
líkamlegri tjáningarþörf. Báðar
þessar árásir hafa verið kærðar.
Ekki er Ijóst hve alvarleg önnur
árásin er en í hinni nefbrotnaði sá
sem ráðist var á.
Bifreió stolið
Á sunnudag var lögreglu tilkynnt
að bifreið hefði verið stolið. Stuttu
síðar fannst bifreiðin á hitaveitu-
svæðinu austur á Nýjahrauni, lítið
skemmd. Ekki er vitað hver eða
hverjir þama voru á ferð en lög-
reglan óskar eftir upplýsingum frá
þeim sem sáu til ferða grárrar
Toyotu Tercel eftir kl. 21 á
sunnudagskvöld.
HaUatókmyntlina
í síðustu Fréttum var sagt frá því
framtaki Reynis H. Pálssonar að
koma sér á framfæri í Séð og heyrt.
Með greininni var mynd sem Halla
Einarsdóttir Ijósmyndari tók en eins
og allir vita starfar Halla í Eyjum.
Fræðslufundur
SPOEX
SPOEX -Samtök psoriasis- og
exemsjúklinga halda fræðslufund í
Ásgarði föstudaginn 6. nóvember
nk. kl. 20.30.
Fulltrúi frá stjóm samtakanna
mun mæta á fundinn auk þess sem
Birkir Sveinsson húðsjúkdóma-
læknir og Árný Helgadóttir hjúkr-
unarframkvæmdastjóri Bláa lóns-
ins. Slysavamafélagið mun aíhenda
psoriasisdeildinni í Vestmanna-
eyjum UVB Ijósaskáp að gjöf.
Kaffiveitingar.
Félagsmenn og annað áhugafólk
velkomið.
f' "
Þessidúlla komsfá f
fertugsaldurinn þann 2/
nóyember. Innilegar
hamingjuóskir.
Systkynin.
landnámsbærinn í Herjólfsdal gæd
orðið merkilegt sýningarsvæði
Landnámsbær Herjólfs Bárðar-
sonar í Herjólfsdal hefur hefur nú í
nokkur ár verið hulinn vikri og
torfi. Bærinn var grafinn upp á
árunum 1971 til 1983 en þá var
ákveðið að hylja rústirnar aftur.
Margrét Hermanns-Auðardóttir,
fornleifafræðingur sem hafði yfir-
umsjón með uppgreftrinum á sínum
tíma, segir landnámsbæinn í Herj-
ólfsdal auðveldlega geta orðið eitt
merkilegasta sýningarsvæði fomminja
á íslandi ef fjármagn fæst til endur-
byggingar gamla landnámsbæjarins.
Arni Johnsen. alþingismaður og for-
maður Herjólfsdalsnefndar, segir að
grunnvinna vegna verkefnisins muni
hefjast á næstu mánuðum, þrjú hús
verði valin úr rústunum og endur-
byggð á öðrum stað.
Margrét segir uppgraftarsvæðið í
Herjólfsdal hafa alla möguleika til að
verða eitt merkilegasta sýningarsvæði
fomminja frá landnámsöld hér á landi
ef tjármagn fæst til endurbyggingar
gamla landnámsbæjarins. Margrét
stóð fyrir uppgreftrinum, sem hófst
árið 1971 og lauk um tólf árum síðar,
og segir minjamar mjög merkilegar og
vel varðveittar. Hún hefur alloft vakið
máls á möguleikanum á endur-
byggingu húsanna en segir að áhugi
fyrir minjunum mætti að ósekju vera
meiri í Eyjum. Margrét telur að end-
urbygging landnámsbæjarins muni
laða bæði ferðamenn og fræðimenn í
auknum mæli til Eyja en upp-
graftarsvæðið liggur nú undir
vikurlagi og bíður þess að áhugi vakni
og Ijármagn finnist til verkefnisins.
Ámi Johnsen segir Herjólfsdals-
nefnd vera að undirbúa hugmynda-
vinnu vegna endurbyggingar hluta
landnámsbæjarins. Á næstu mán-
uðum verði einhver þrjú húsanna
valin, þau teiknuð upp af sér-
fræðingum og valinn hentugur staður
til endurbyggingar. Ámi segir
kostnaðaráætlun ekki enn hafa verið
gerða vegna verkefnisins og vill ekki
gefa upp á hvaða hátt nefndin hyggst
fá fjármagn til verkefnisins. Hann
kveðst þó bjartsýnn á að grunnvinnan
verði að miklu leyti unnin innan
nokkurra rnánaða.
Sigrún Inga Sigurgeirsdóttir, forseti
bæjarstjórnar og formaður menning-
armálanefndar V estmannaeyj abæjar,
segir bæjarstjóm ekki hafa í hyggju að
hefja endurbyggingu bæjarins eins og
málin standi í dag. Hún hafi séð erindi
Margrétar um málið en það hafi ekki
verið lagt formlega fyrir bæjarstjóm.
Sigrún tekur undir það álit Margrétar
að endurbygging landnámsbæjarins
yrði Vestmannaeyjabæ til heilla en
segir skort á fjármagni hamla fram-
kvæmdum. Éorgangsröðun bæjar-
sjóðs sé ströng og nú standi viðgerðir
á skólahúsnæði bæjarins fyrir dyrum.
Endurbygging í Herjólfsdal sé því
ekki áætluð af bæjaryfirvöldum í
nánustu framtíð.
Fomleifauppgröfturinn 1971-1983
ieiddi í ljós ellefu vel varðveittar
húsarústir frá þvf á landnámsöld ásamt
ýmsum öðrum mannvistarleifum.
Fomleifarannsóknir Margrétar í
Herjólfsdal bentu til að byggð nor-
rænna manna hefði hafist þar á 7. öld
eða tveimur öldum áður en Landnáma
segir til um landnám Ingólfs Amar-
sonar á íslandi. Þessar niðurstöður
oliu hörðum deilum meðal íslenskra
fræðimanna um aldursgreiningu
fomminja, sem hafa í raun staðið til
dagsins í dag.
Höfundur er Sigríður Hagalín
Bjömsdóttir, nemi í hagnýtri
fjölmiðlun.
í gær fór fram afhending viður-
kenninga til þeirra krakka seni
sigur báru úr býtum í teikni-
samkeppni Islandsbanka. Teikni-
samkeppnin var haldin fyrir
leikskóla- og grunnskólabörn í
Eyjum í tengslum við ferðir sem
Islandsbanki bauð bauð þeim í að
kví Keikós.
Alls bámst nálægt 300 myndir í
keppnina, hver annarri skemmtilegri.
Veitt vom níu verðlaun, ein verðlaun í
hverjum árgangi. Yngstu börnin sem
tóku þátt í keppninni eru fædd 1994 og
þau elstu 1986. íslandsbanki vill að
lokum koma á framfæri þakklæti til
allra þeirra sem þátt tóku í keppninni.
Þeir sem viðurkenningar hlutu vom
Selma Jónsdóttir. Jenný Guðnadóttir,
Sveinn Sigurðsson, Anton Jarl
Jóhannsson, Svandís Ósk Sveinsdóttir,
Louisa Kristín Martinsdóttir á Kósini.
Helena Sif Magnúsdóttir, Jens
Guðmundur Hjörleifsson og Steinunn
Hödd Harðardóttir.
Dómnefnd skipuðu Benedikt
Gestsson blaðamaður á Fréttum og
Steinunn Einarsdóttir myndlistar-
maður.
(FRÉTTIR)
Útgefandi: Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Ritstjóri: Ómar Garðarsson. Blaðamenn: Benedikt Gestsson & Sigurgeir Jónsson.
íþróttir: Rútur Snorrason. Abyrgðarmenn: Ómar Garðarsson & Gísli Valtýsson.
Prentvinna: Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Aðsetur ritstjórnar: Strandvegi 47II. haeð. Sími: 481-3310. Myndriti: 481-1293.
Netfang/rafpóstur: frettir@eyjar.is. Veffang: http//www.eyjar.is/~frettir.
FRÉTTIR koma út alla fimmtudaga. Blaðið er selt I áskrift og einnig I lausasölu í Turninum, Kletti, Veitingaskálnum Friðarhöfn. Tvistinum, Amigo, Kránni, Vöruval, Herjólfi,
Flugvallarversluninni, Tanganum, Söluskálanum Friðarhöfn. í Reykjavík: hjá Esso Stóragerði og í Flugteríunni á Reykjavíkurflugvelli. FRÉTTIR eru prentaðar 12000 eintökum.
FRETTIR eru aðilar að Samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða. Eftirprentun, hljóðritun, notkun Ijósmynda og annað er óheimilt nema heimilda sé getið.