Fréttir - Eyjafréttir - 05.11.1998, Qupperneq 4
4
Fréttir
Fimmtudagur5. nóvember 1998
C^jaUalamb úr TórimakldlL
Gísli Óskarsson
nærði bragðlauka
lesenda í síðustu viku
með blóðmör og
lifrarpylsu og skoraði
á Guðjón Jónsson, frá
Látrum, að taka við.
„Ekki get ég nú
sagt að mér sé sérstakt þakklæti í huga
yfir þessari áskorun. En auðvitað hlaupast
menn ekki undan merkjum og auk þess á
ég góðan hauk í homi þar sem eiginkonan
er. Hún á raunar stærstan heiðurinn af
þessum þremur réttum, a.m.k. forréttinum
og eftirréttinum. En ég tek á mig
ábyrgðina af lambalærinu enda er sú
aðíerð bæði gömul, góð og einföld.
Forréttur:
Villigæsabringur:
gæsabringur
villijurtakrydd frá pottagöldrum
pipar
60 g smjör til steikingar
lOsveppir
1 peli rjómi
50 g gráðaostur
2 tsk. rifsberjasulta
'/2 tsk. salt
0 r ð s
- Gæludýraeigendur eru froðufellandi
yfir þeirri aðstöðu, eða frekar að-
stöðuleysi sem þeim er boðið upp á ef
þeim dettur í hug að bregða sér upp á
land. Hjáflugfélögunum býðst þeim að
setja dýrin í farangursrými í búr og
borga fyrir eins og um fullorðinn
einstakling í sæti væri að ræða. Um
borð í Herjólfi er ekki boðið upp á neina
aðstöðu. Ja, nema ef vera skyldi búr á
bíladekki. Gæludýraeigendum þykir
vænt um dýrin sín og því vilja margir
þeirra ekki skilja þau eftir á köldu,
stundum blautu, og mögulega hættu-
legu bíladekki. Það væri kannski
möguleiki að bjóða upp á eins og tvo
klefa í skipinu, þar sem gæludýra-
eigendum væri leyft að vera með sín
Guðjón Jónsson
er sælkeri þessarar viku
p o r____________________________
dýr á meðan á siglingu stendur. Þó
einhverjir hafi sjálfsagt ofnæmi þá er
nóg af öðrum klefum fyrir þá. Þess
utan eru klefarnir þrifnir minnst
daglega þannig að þetta ætti ekki að
vera stórvandamál, heldur bara bætt
þjónusta, því þetta er nú þjóðvegurinn
okkar.
ÍBV, þ.e.a,§. ellideildin, keppti í síðustu
viku við Ögra,.sem mun vera félag
heyrnarskertra. í byrjun leiks var kastað
upp á hvorj liðið mætti byrja. Dómari
tjlkynnti að ÍBV fengi boltann en fyrirliði
Ogra heyrði ekki dóminn sem vonlegt
var. Hann ætlaði að fara með boltann
þegar sjálfskipaður fyrirliði okkar
manna sagði; „We’ve got the ball“.
Hjúpið bringumar í kryddinu og steikið
þær vel á pönnu. Setjið í eldfast mót og
hellið ijómanum yfir. Saxið sveppina fínt
og stráið þeim yfir. Hellið einnig því sem
eftir var á pönnunni yfir. Bakið í 20
mínútur við 175°C. Takið steikina úr
ofninum og pakkið henni í álpappír en
notið soðið í sósuna, ásamt gráðaosti,
rifsberjahlaupi og salti. Sjóðið sósuna vel
upp. Berið bringumar fram í mjög
þunnum sneiðum.
Aðalrcttur:
Eg er roliubóndi og er stoltur af. Það
væri betur að hér væm fleiri rollur en færri
kerfiskarlar. I þennan rétt er best að nota
séralið ijallalamb, helst eftir sumargöngu
í Heimakletti þar sem brekkur em nógar.
Þaðan kemur féð vöðvamikið og fitulítið.
Gamaldags lambalæri:
Stórt læri, 2,8 - 3 kg
pipar
salt
pipar mix
I laukur
Kryddið lærið og steikið í steikarpotti
í 2 - 2 ‘/2 tíma við 200°C. Setjið einn lauk
með í pottinn. Sósan er búin til á
venjulegan gamaldags hátt og allt meðlæti
er líka á venjulegum nótum. Sem sagt
ekta og gamalgróin sunnudagssteik.
Eftirrcttur:
Sherrytcrta:
4 stórar eggjahvítur
200 g flórsykur
Þeytið þetta saman, setjið í tvö
hringform. og bakið í 60 mínútur við
150°C. A milli þessara tveggja botna
setjum við hálfan Íítra af þeyttum rjóma,
100 g af suðusúkkulaði og 100 g af
döðlum, hvort tveggja brytjað smátt.
Hellið svo vel yfir þetta af Bristol Cream
Sherry. Skreytið tertuna með ferskum
jarðarbeijum og berið hana fram kalda.
Eg ætla að skora á vin minn, Sigur-
mund Einarsson, rollubónda og fram-
kvæmdastjóra hjá ÚV. Hann hlýtur að
geta gefið sér tíma frá útgerðarönnum til
að ritja upp eitthvað úr eldhúsinu, nú eða
þá látið eiginkonuna koma með eitthvað
sem væri sennilega bara betra.
Þetta lofar göðu
Fyrir ekki löngu tók Jón tngi Guðjónsson við rekstri á
veitingastaðnum Lundanum. Nú hefurJóni Ingi verið
kunnari fyrir annars konar rekstur tii þessa, hefur stundað
sjó á eigin útgerð en hefur sem sagt söðiað um í rekstri. í
síðasta blaði sagðist hann m.a. hafa áhuga á að fá
Vestmannaeyinga fyrr út á iífið um helgar. Jón Ingi er
Eyjamaður vikunnar að þessu sinni.
Fullt nafn? Jón Ingi Guðjónsson.
Fæðingardagur og ár? 5. febrúar 1946.
Fæðingarstaður? Vestmannaeyjar.
Fjölskylduhagir? Bý
einsamall, ásamt 18
ára syni mínum.
Menntun og
starf? Lærður
rennismiður.
Framkvæmda-
stjóri á
Lundanum.
Laun? Jahá!
Helsti galli? Of
vinnusamur.
Helsti kostur?
Mjög vinnu-
samur.
Uppáhaldsmatur? Hamborgarahryggur með öllu tilheyrandi.
Versti matur? Mér finnst enginn matur vondur.
Uppáhaldsdrykkur? Vatn.
Uppáhaldstónlist? Alæta á tónlist.
Hvað er það skemmtilegasta sem þú gerir? Að veiða á stöng í
fallegri á.
Hvað er það leiðinlegasta sem þú gerir? Að gera ekki neitt.
Hvað myndirðu gera ef þú ynnir milljón í happdrætti?
Ferðast.
Uppáhaldsstjórnmálamaður? Árni Johnsen, eru ekki að koma
kosningar?
Uppáhaldsíþróttamaður? ÍBV í heild sinni.
Ertu meðlimur í einhverjum félagsskap? Já, Sjóstang-
veiðifélagi Vestmannaeyja.
Uppáhaldssjónvarpsefni? Fréttir og fræðslumyndir.
Uppáhaldsbók? Engin sérstök en bækur um dulræn efni og
furðuleg fyrirbæri höfða til mín.
Hvað metur þú mest í fari annarra? Jákvæðni.
Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari annarra? Neikvæðni.
Fallegasti staður sem þú hefur komið á? Vestmannaeyjar.
Hvernig datt þér í hug að fara út í veitingarekstur? Ég var
byrjaður að leita mér að einhverju öðru en sjósókn, var á leiðinni í
land, og þá barst þetta upp í hendurnar á mér.
Er þetta eitthvað svipað og að vera í útgerð? Já og nei. Að
sumu leyti og sumu ekki.
Hvernig gengur að fá fólk fyrr út á lífið? Þetta er
langtímaverkefni en síðasti laugardagur lofaði góðu.
Hvað dettur þér í hug þegar þú heyrir þessi orð?
Lundinn? Skemmtilegt starfsfólk.
Tvöfaldur vodka í kók? Kátt fólk.
Gaui gamli? Faðir minn, sem mér þykir mjög vænt um og svo
góður bátur.
Eitthvað að lokum? Ég vil þakka fyrir góðar viðtökur í nýju starfi.
Drengur Þann 30. ágúst eignuðust Matthildur Gunnarsdóttir og Jón
Gunnar Hilmarsson son. Hann vó 13 merkur og var 50 sm að lengd.
Hann hefur verið skírður Gunnar Bjarki. Á myndinni er hann með stóra
bróður sínum Hilmari Smára. Fjölskyldan býr í Kópavogi.
Herjólfl seinkar
Vegna óviðráðanlegra ráðstafana siglingar hefjist á sunnudag en
seinkar komu Herjólfs úr slipp í farþegareruþóbeðniraðfylgjastmeð
Danmörku og er hann væntanlegur framvindunni og verða upplýsingar
hingað til Eyja nú um helgina.. lesnar inn á símsvarann í síma 481
Því er gert ráð fyrir að áætlunar- 2800.
Innköllun _
afruglara
Þeir áskrifendur Fjölsýnar sem ekki hafa greitt áskrift
síðustu 3 mánuði eru vinsamlega beðnir um að skila
afruglurum inn til Raftækjavinnustofunnar Geisla.
Ástæðan er mikil eftirspurn eftir áskrift og afruglarar
fyrirtækisins á þrotum nú um nokkurn tíma.
• •• i y
jolsyn
Vestmannaeyjum
A-A fundir
A-A fundir eru haldnir sem hér
segir í húsi félagsins að Heima-
götu 24: Sunnudaga kl. 11:00,
mánudaga kl. 20:30 (Spora-
fundir), þriðjudaga kl. 20:30
(kvennadeild), miðvikudaga kl.
20:30, fimmtudaga kl. 20:30,
föstudaga kl. 19:00 og 23:30 og
laugardaga, opinn fjölskyldu-
fundur, reyklaus, kl. 20:30.
Móttaka nýliða hálfri klukkustund
fyrir hvern auglýstan fundartíma.
Athugið símatíma okkar sem eru
hvern fundardag og hefjast 30
mín. fyrir ákveðinn fundartíma og
eru í 2 klst. í senn.
8. nóvember Herjólfur vœntanlegur qftur
fró Danmörku
15. nóvember Tónleikar Ný Dönsk í
Iþróttamiðstöð cí vegum
Framhaldsskólans