Fréttir - Eyjafréttir - 05.11.1998, Síða 14
14
Fréttir
Fimmtudagur 5. nóvember 1998
Landa-
KIRKJA
Vegna bruna sem varð í
Landakirkju síðdegis á sunnudag
fer allt starfið í kirkjunni fram í
Safnaðarheimilinu þar til kirkjan
verður komin í messufært hoif. Er
þá gengið inn frá Skólavegi.
Beðist er velvirðingar á öllum
óþægindum sem óhappið veldur
sóknarbömum Landakirkju. Er
það von okkar að það valdi sem
minnstri röskun á trúariðkun og
kirkjusókn. Mikil mildi var að
ekki fór illa vegna þessa og
þökkum við Drottni fyrir þá
forsjón.
Forsvarsmenn Landakirkju.
Fimmtudagur 5. nóvember
Kl. 11.00 Helgistund í Hraun-
búðum. Öllum opin.
Kl. 17.00 TTT - kirkjustarf 10 -
12 ára bama í Safnaðarheimilinu.
Kl. 20:30. Opið hús fyrir unglinga
í KFUM&K húsinu. Gott sam-
félag, leikurog spjall.
Föstudagur 6. nóvember
Kl. 9.00 árdegis. Fermingaibama-
mót í Safnaðarheintilinu. Mótinu
lýkur með kvöldvöku. Mótsstjóri
er Hreiðar Örn Stefánsson.
Sunnudagur 8. nóvember
Kl. 11.00 Barnaguðsþjónusta í
Safnaðarheimilinu. Ath. að geng-
ið er inn frá Skólavegi að þessu
sinni. Mikill söngur, leikur, sögur
og lofgjörð.
Kl. 14. Almenn guðsþjónusta í
Safnaðarheimilinu.
Kl. 20:30. Æskulýðsfundur í
Safnaðarheimilinu.
Mánudagur 9. nóvember
Kl. 20. Saumafundur hjá Kven-
félagi Landakirkju.
Þriðjudagur 10. nóvember
Kl. 16.00 Kirkjuprakkarar.
Kirkjustarf 7-9 ára krakka.
Kl. 17. Kóræfingar hjá Litlum
lærisveinum.
Miðvikudagur 11. nóvember
Kl. 10.(X) Mömmumorgnar. Sam-
verustund foreldra ungra bama.
Kl. 12:05. Kyrrðarstund í hádegi.
Léttur málsverður.
Kl. 20:30. Aglow-fundur.
Hvíta-
SUNNU-
KIRKJAN
Fimmtudagur
Kl. 20.30 Biblíulestur
Föstudagur
Kl. 17.30 Bamastarfið 10-12 ára.
Kl. 20.30 Unglingarnir.
Laugardagur
Kl. 20.30 Bænasamkoma - Fyrir-
bæn fyrir stjóm Leikskólans..
Sunnudagur
Kl. 15.00 Vakningarsamkoma -
Ræða: Hvað eiga menn að heyra
og sjá áður en Jesús kemur?
Þriðjudagur
Kl. 17.30 Bamastarfið fyrir 3-9
ára. Ath. breyttan tíma.
Allir hjartanlega velkomnir.
Aðventkirkjan
Laugardagur 7. nóvember
Kl. 10. Biblíurannsókn.
Allir velkomnir.
Baháísam-
FÉLAGIÐ
Opið hús að Kirkjuvegi 72B
fyrsta föstudag hvers mánaðar kl.
20.30. Allir velkomnir.
Heittákönnunni.
Osýnilega útgáfan
Hver er sá þriðji sem
gengur með þér?
Vestmannaeyingum þykir vænt um óháða blaðið sitt
eða háða eftir því hvoum megin hryggjar geðið liggur í
það og það skiptið. Þetta marka ég af því að allir hafa
skoðun á því sem þar birtist, hvort heldur jákvætt eða
neikvætt, fagurt eða ljótt, pólitískt eða ópólitískt. Hins
vegar er þetta jákvæða og neikvæða á dálítið gráu
svæði, því það sem einum þykir jákvætt er neikvætt
fyrir öðrum. Þess vegna er líklega undirliggjandi leynd
krafa lesenda blaðsins sú að allt sé inni, en ekkert úti.
-Það sagði við mig maður á dögunum, sem hefur
skoðanir á öllu og líka blaðinu sínu, að það merkilegasta
við blaðið sitt væri það sem ekki birtist í því, samanber nafn
þessa ágæta manns sem er haldið leyndu og nota bene ekki
nefnt í blaðinu sem þú lesandi góður ert að lesa nú.
-Og hvað birtist ekki í blaðinu þínu, sagði ég.
-Ja það er svo margt, sagði hann.
-Eins og hvað, sagði ég
-Ég veit það ekki, sagði hann.
-Þá er ekki von að ég viti það, ef þú veist það ekki, þvf
einhver þarf að segja mér það sem ég veit ekki, eða ég að
lesa mér til um það Og finnst mér þú ekki í of góðum
málum að vilja eitthvað í blaðið, sem þú veist ekki hvað er.
Það var fátt um svör hjá þessum ágæta manni, sem hefur
töluverða reynslu af skrifum og ekki allt fyrir skúffuna.
Þess má og geta að maður þessi hefur fallega rithönd og er
ágætasti stílisti.
í framhaldi af þessu spurði ég hann að því hvort hann
væri kannski ekki að rugla sarnan þeim sem lesa blaðið sitt
og blaðinu sjálfu, það er lesendum og blaðinu þeirra, því
við vorum jú sammála um að blaðið væri blaðið þeirra og
þeir væru Vestmannaeyingar.
Hann hugsaði sig um nokkra stund og þvertók ekki fyrir
að svo gæti verið. Svo ljómaði hann eins og tungl í
fyllingu. Kannski ekki tungl. en einlægni einkenndi að
minnsta kosti svipinn.
-Og hvorugt getur án hins verið. A hverju sem gengur,
sagði hann.
- Já, á hverju sem gengur, endurtók ég og bætti við: Af
hverju heldur þú að þetta stafi. Þetta haltu mér, slepptu
mér, eða hataðu mig, elskaðu mig einkenni?
Hann velti þessu dálítið fyrir sér og sagði svo: Blað í
Eyjunt er ekki bara eitthvert blað. Heldur hluti af stærra
fyrirbæri sem skapar sjálfsmynd þeirra. Þess vegna skiptir
máli hvað er í því, hvernig sagt er frá og hverju er sleppt.
Vandamálið hins vegar, sem allir samþykkja, er að það sem
ekki er í því er nákvæmlega það sem allir vita og (en)
enginn þorir að setja á prent. Þetta skiptir ekki stóru máli á
landsvísu, en getur liaft afdrifaríkar afleiðingar fyrir
sjálfsmyndina í smærri samfélögum. Og þetta sem ekki
stendur í blaðinu okkar er sjálfsmyndin í sinni nöktustu
mynd og hver vill standa frammi fyrir henni á prenti, að ég
tali nú ekki um ef hún er neikvæð.
Mér þótti þetta harla góð „ræða“. Kannski ekki ræða, en
skilgreining á samfélagi sem býr við einhvers konar valta
sjálfsmynd. Valta sjálfsmynd vegna þess hversu nálæg hún
er í tíma og rúmi, því fólki sem skapar hana og reynir að
brjóta hana af sér um leið. Þess vegna nefndi ég þetta
sjónarmið við hann, hvort rétt gæti verið.
-Þú ert kominn í mótsagnimar aftur, sagði hann. Það er
með ólíkindum hversu gaman þú hefur af þessum
mótsagnaheimi þínum. Ertu að tala um einhverja fjötra
hugarfarsins?
-Þú mátt kalla það slíku nafni en ég held að það mætti
frekar tala um skort á hreinskilni, því þegar öllu er á
botninn hvolft, þá er einhver búkki í sálrtötrinu, hvar á
stendur hingað og ekki lengra. Það sem er handan þessa
búkka er nákvæmlega það sem ekki birtist í blaðinu þínu.
Og eins og þú heyrir þá hefur þetta samtal okkar skilað
nokkru, nefnilega að orð eru til alls fyrst og þú hefur
vissulega opnað huga minn fyrir þessu „ekkerti" sem birtist
í blaðinu þínu. En það er nú svo merkilegt að um leið og
það sem ekki birtist í blaðinu, birtist í því samt sem áður.
vegna þess að í hverri viku fylgir ósýnileg útgáfa af
blaðinu, sem er hugarfar fólksins sem les blaðið sitt af
gaumgæfni. Þannig er hugur Vestmannaeyinga eins og
lítils bams, senr vill tjá allan sinn hug, en það eina sem
skilst, er réttu mér dúsuna mína.
-Er það blaðið okkar, spyr minn ágæti viðmælandi.
-Með þeim formerkjum að um leið og dúsan er komin.
þá hættir bamið ekki að hrina, sagði ég. Og það er dúsa full
af mótsögnum.
-Þegiðu, sagði hann.
-Ég vona ekki, sagði ég. En það sést og heyrist, og allir
sem vilja vita, vita, um þögnina sem umlykur ósýnilegu og
óheyranlegu útgáfuna af blaðinu þínu. Blað sem er
upplýsandi birtir að sjálfsögðu ekki það sem allir vita,
einfaldlega vegna þess að það vita það allir, ef það væri birt
á prenti færu lesendur að tala um grátt svæði sem yrði
sýnilegt og þá yrði ekki lengur gaman í spjallinu.
-Þú rneinar að stærsta og öflugasta vettvangi dagsins yrði
þar með kippt undan tilveru Eyjamanna, sagði hann.
-Að minnsta kosti veigamiklum máttarstólpa, sagði ég.
Þannig er að þegar öllu er á botninn hvolft stendur blaðið
sína plikt og heldur þessu samfélagi gangandi hvort sem
sagt er frá því eða ekki. Blaðið gárar aldrei nema
yfirborðið en heldur samfélaginu gangandi með ósýnilegu
útgáfunni. Þetta sýnir saga blaðaútgáfu, þó vfðar væri
leitað. Tilvist blaðsins og lesenda þess byggist því á því
sem ekki birtist þar. Minn góði viðmælandi sagðist ekki
vera sáttur við þessa niðurstöðu, þvf að blöð hefðu þvert á
móti haft þann nretnað að gagnrýna samfélagið með því að
segja það sem ekki mætti segja og koma þess vegna til
leiðar góðum málum öllum til farsældar.
-Ég þekki líka menn sem telja sig hafa staðið ærulausa
eftir slfka gagnrýni, sagði ég. Og öllum þykir gott að vera
lausir við þá kviðristu, sem því fylgir, nema þeir sem geta
verið saklausir áhorfendur, en undantekningalaust eru það
þeir sem elska ósýnilegu útgáfuna og em kannski ekki svo
saklausir þegar upp er staðið. Þetta heitir að fara í hring.
Benedikt Gestsson
A þriðjudagjnn í síðustu viku var rekstrarstyrkjum íþrótta- og æsklýðsráðs fyrir árið 1998
úthlutað tíl íþróttafélaga í Vestmannaeyjum. Styrkjunum er úthlutað að tillögu íþróttabandalags
Vestmannaeyja, héraðssambands. Sigurður Einarsson bæjarfulltrúi sem sæti á í íþrótta- og
æskulýðsráði afhenti fulltrúum félaganna styrkina og sagði við það tækifæri að sérstakt tillit hefði verið
tekið til barna- og unglingastarfs við úthlutunina en það er í samræmi við samstarfssamning þar að
lútandi milli Vestmannaeyjabæjar og íþróttahreyfingarinnar í bænum. Samtals var úthlutað 1,7 milljón
og fengu eftirtalin íþróttafélög styrki: ÍBV - íþróttafélag 800.000, Golfklúbbur Vestmannaeyja 150.000,
Sundfélag ÍBV 150.000, Fimleikafélagið Rán 150.000, UMF Óðinn 150.000, íþróttafélagið Ægir 100.000,
íþróttafélag Vestmannaeyja 100.000, Knattspyrnufélagið Framherjar - Smástund 100.000. A myndinni
eru forráðamenn bæjarins og íþróttahreyfingarinnar.
Lítur út
fyrír harða
keppni
Önnur vika hópaleiks ÍBV og
Frétta var háð um síðustu helgi.
Nokkur „óvænt“ úrslit urðu og þá
sérstaklega úrslitin í leik Leicester
og Liverpool, sem Leicester vann
l - 0. Flestir hópar náðu kringum
6 réttum en tveir hópar náðu 9
réttum. Þetta voru hópamir Bláa-
Ladan og Mamnt'ans Drésa.
Staðan er nokkuð jöfn í riðlunum
og lítur út fyrir mjög harða keppni
um efstu sætin. Staðan er annars
þannig:
A-riðill: Mandarínugott I8, Einar
Jaxl og Mamm’ans Drésa 15,
Austurbæjargengið og Rauðu
Djöflamir 14, Flug-eldur 13,
Hænumar og Refimir 12, Munda
og VSV 11 og H 50 10
B-riðill: Vinstri bræðingur 17,
Hrossagaukamir, JóJó og Rúblan
14. E.R. og Rauða-gengið 13,
Bæjarins bestu og Gleraugna-
glámar 12, Heba og Allra bestu
vinir Ottós 11, Baukamir og
Doddamir 10
C-riðill: Bláa-Ladan 17, Scrabbl-
arar 16, Kóngamir og Reynistaður
15, Mariner og Stína og Tóta 13,
Klapparar 12, Bing-Brothers,
Gaukshreiðrið og Klaki 11. Pöru-
piltar og Staukamir 9
D-riðill: Dumb and Dumber 13.
Hanarnir. H.H.-Flokkur, Klúsó,
Tottaramir og Veltingurinn 12,
Don Revie, Skódinn og Villta-
Vestrið 11, Húskross og
Sein-Heppnir 10.
I framhjáhlaupi
Októberhraðskákmótið fór fram í
félagsheimilinu 28 október sl. Til
keppni voru mættir nokkrir
hressir keppendur og var tefld
tvöföld umferð með skiptum litum
í 5 mínútur. Fljótlega kom í ljós að
tveir börðust um toppinn, þeir
Einar Sig. og Björn Ivar. Einnig
blandaði formaðurinn sér í
bardagann. Enda fór að lokum svo
að þeir urðu í efstu sætunum.
Efstur var Einar Sigurðsson með 8
vinninga af 10 mögulegum, Bjöm
ívar Karlsson og Agúst Öm Gíslason
vom í 2. og 3. sæti með 7 vinninga og
aðrir minna.
Næst verður svo byrjað á
atskákmótum sem verða einu sinni í
mánuði í vetur og eru reiknuð
atskákstig úr hven i umferð. Enda em
þetta tímaskákir, sem aliir ættu að
geta tekið þátt í og vil ég nú hvetja
menn til að mæta og liðka finguma.
Með skákkveðju.
STEBBI GILLA.
Líknarkonur
Okkar árlega vinnu-
helgi verður 6. og 7.
nóvember nk. Þær
sem geta komið með
saumavélar vinsam-
legast geri það.
Mætum hressar.
Heitt á könnunni.
Kvenfélagið Líkn.