Fréttir - Eyjafréttir - 12.11.1998, Síða 1
25. árgangur • Vestmannaeyjum 12. nóvember 1998 • 46. tölublað • Verð kr. 140,- • Sími:481 3310 • Fax: 481 1293
Kynningardagur hjá Rannsóknasetrinu:
Veðrið drð úr aðsðkn
Síðastliðinn laugardag var opið hús
í Rannsóknasetri Háskólans í Vest-
mannaeyjum. Tilgangurinn var að
kynna starfsemi setursins og
stofnanir þess fyrir Vestmanna-
eyingum. Mikil starfsemi fer fram
í setrinu, en eins og kunnugt er, eru
starfræktar þar ýmsar stofnanir,
eins og Hafrannsóknastofnun,
Náttúrustofa Suðurlands, Rann-
sóknastofnun fiskiðnaðarins og
Þróunarfélag Vestmannaeyja.
Von var á fyrirlesurum frá Reykja-
vík. en ekki varð af því sökum þess
að ekki var flugfært milli lands og
Eyja sökum rigningar og roks. Setti
því veðrið nokkum svip á opna húsið
Elfar Bragi var meðal
gesta í Setrinu og er
upprennandi vísinda-
maður eins og sjá má.
og ekki mikið fjölmenni sem nýtti sér
þá kynningu sem fór á setrinu.
Páll Marvin Jónsson, segir að líklega
hafi um tugur manna mætt þennan
laugardag. „Þetta er auðvitað hrika-
lega dræmt, en veðrið hafði sitt að
segja. Það bætti heldur ekki úr skák
að fyrirlesararnir sem áttu að koma
voru veðurtepptir upp á landi. Sér-
staklega var leiðinlegt að Jóhann
Sigurjónsson gat ekki komið, en hann
ætlaði að halda erindi um hvali við
Island. Viðstefnumsamtaðþvíaðfá
hann síðar til þess að halda erindi sitt.“
Páll Marvin segir að þrátt fyrir að
þetta opna hús hafi farið fyrir ofan
garð og neðan muni Rannsóknasetrið
halda velli. „Setrið verður fímm ára í
október á næsta ári og þá mun verða
mikið um dýrðir. Einnig getur fólk
alltaf komið í setrið til þess að sjá
hvaða starfsemi er í gangi hjá okkur,“
sagði Páll Marvin að lokurn.
Svarfolía í stað rafmagns hjá Bæjarveitum eykur kostnað:
Marý í Mozart:
Kostar 140 þúsund ádag
Friðrik Friðriksson veitustjóri segir
að Bæjarveitur Vestmannaeyja
brenni nú uni 25 tonnum af svart-
olíu á sólarhring til þess að hita
bæinn, en það kostar Bæjarveitur
kr. 365.000 á sólarhring.
Kostnaður vegna afgangsorkukaupa
frá Landsvirkjun væri 225.000 á
sólarhring, ef allt væri með felldu,
þannig að það kostar Bæjarveitur um
140.000 aukalega á sólarhring að
brenna svartolíunni. „Þessi skerðing,
sem við áttum reyndar von á vegna
lélegs vatnsbúskapar á hálendinu í
sumar. er nú komin til framkvæmda.
Það er ódýrara að brenna svartolíu
heldur en að kaupa afgangsorkuna
sem nú hefur verið hækkuð í þriðja
þrep samkvæmt gjaldskrá Landsvirkj-
unnar.“
Friðrik segir að Bæjarveitur hafi
verið í aðgerðum til þess að bregðast
við þessu ástandi. „Það sem við
stöndum frammi fyrir er að auka tíma-
bundið niðurgreiðslur frá ríkissjóði og
ef satt skal segja erum við ekki
bjartsýnir á að það gangi. I annan stað
gætum við aukið lántökur, en það er
mjög slæmur kostur vegna skulda-
stöðu fyrirtækisins nú. I þriðja lagi er
möguleiki að hækka gjaldskrána, sem
er ekki neinn kostur í sjálfu sér vegna
þess að okkur hefur gengið vel að
lækka hana á undanfömum miss-
erum.“
Friðrik segir að þrátt fyrir þessa stöðu
sé betra að brenna svartolíu heldur en
að kaupa afgangsorkuna á því verði
sem hún býðst núna. „Þetta munar
um 60 aurum á kílóvattstundina. Hins
vegar vil ég leggja áherslu á það hvort
að stjórnvöld ætli ekki að framfylgja
stefnu sinni um jöfnun orkukaupa til
landsmanna. Vestmannaeyjarásamt
Orkubúi Vesttjarða og Rarik eru líka
með hitaveitur sem verða fyrir
skerðingu vegna þessa. Þetta hefur
bara ekki jafn mikil áhrif á þær veitur
þar sem þær eru miklu stærri en við,
en hjá okkur er þetta hlutfallslega
þungur biti. Þess vegna gerum við þær
kröfur að niðurgreiðslur verði auknar
á meðan þetta ástand varir.“
Oddur kostar bæinn 100 húsunda
Á fundi bæjarráðs á niánudag var niikið um bókanir
í ntáli núnier átta á dagskrá. Þorgerður Jáhannsdótti>
(V) Iagði fram bókun þar sem hún óskaði eftir að
afrit af skriflegum beiðnum um upplýsingar og s'
sem berast bænum og varða stjórnsýslu og rek<
bæjarins.
Meirihluti bæjarins lét þá bóka vegna þessa: „Bærinn
hefur fengið á annað hundrað fyrirspumir um stjómsýslu
bæjarins frá sama aðila frá miðju þessu ári. Kostnaður við
að svara þessum fyrirspumum er sennilega nokkur
hundmð þúsund á ársgrundvelli. Verði gögnin einnig
send til bæjarfulltrúa V-listans, eykst sá kostnaður. Við
fömm því fram á við fulltrúa V-listans að hann lesi svörin
hjá Oddi Júlíussyni til að draga úr kostnaði en yflr 99%
spuminganna em frá honum."
Ekki sætti Þorgerður sig við þessa málsmeðferð því að
ún lét bóka eftirfarandi: „Með vísan í 41. grein sam-
kktar um stjóm Vestmannaeyjabæjar og fundarsköp
arstjómar ítreka ég fyrri beiðni mína. jafnframt minni
. , á upplýsingaskyldu bæjaryfirvalda."
Samkvæmt þessu virðast talsverð fjárútlát fylgja
upplýsingaskyldu stjómvalda þegar kostnaður vegna
svara til eins aðila nemur hundmðum þúsunda á ári. Ef
fleiri bætast í þann hóp verður sennilega að reikna
sérstaklega með þessum lið í fjárhagsáætlun bæjarins.
Vil breyta til eftir 25 ár
Marý í Mozart, tekur þátt í Sprönguskelli með öörum kaupmönnum
í bænum þessa dagana. Þrátt fyrir að vera enn að af fullum krafti
vill hún fara að breyta til og hefur í hyggju að selja verslunina.
Sjá bls. 8.
Bílaverkstæðið BRAGGINN s/f.
RÉWNGAR OG SPRAUTUN:
Flötum 20 - Sími 481 1535
VIÐGERÐIR OG SMURSTÖÐ.
Græðisbraut 1 - sími48132,
mnz Vetraráœtlun
Frá Eyjum Frá Þorl.höfn
Mán - lau kl. 08:15 kl. 12.00
Sunnudaga kl. 14.00 kl. 18.00
Aukaferðir föstudaga kl. 15.30 kl. 19.00 / : y-ryrtp
Heriólfur
Sími 481 2800 Fax 481 2991