Fréttir - Eyjafréttir - 12.11.1998, Side 2
2
Fréttir
Fimmtudagur 12. nóvember 1998
Fremurrólegt
Alls voru 166 færslur í dagbók
lögreglu í sl. viku sem er svipað og
í vikunni þar á undan. Þrátt fyrir
svipaðan f]ölda af færslum var ekki
eins mikill erill hjá lögreglu um
helgina og var helgina þar a undan.
Verkefni dreifðust jafnar yfir
vikuna.
Réðstádyraverði
Ein líkamsárás var kærð og átti hún
sér stað um helgina. Gestur á
skemmtistað veittist þá að tveimur
dyravörðum á staðnum. Meiðsl
þeirra vom minniháttar en engu að
síður kærðu þeir atvikið.
Tueir Djófnaðir
Tvívegis var kært til lögreglu vegna
þjófnaða í vikunni. í annað skiptið
var stolið úr verslun en í hinu
tilvikinu var hátölurum stolið úr bfl.
Bæði þessi mál eru talin upplýst.
Bifreiðum stolíð
Síðustu vikur hefur talsvert borið á
því að bflum hefur verið stolið.
Aðfaranótt laugardags var bifreið
stolið við Pizza 67 og fannst hún
skömmu síðar óskemmd. Að
undanförnu hefur nokkuð verið um
að unglingar hafi stolið bflum á
nóttinni, ekið þeim um bæinn og
skilað þeim síðan. Lögregla vill
minna fólk á að ganga þannig frá
bifreiðum sínum að enginn óvið-
komandi komist inn í þær enda er
það skylda hvers bifreiðaeiganda
samkvæmt umferðarlögum.
Tveir stútar
I sfðustu viku komu upp þrjú um-
ferðarlagabrot. Eitt þeirra var
vegna brots á stöðvunarskyldu en
tvö þar sem ökumenn voru grun-
aðir um ölvun við akstur.
inn afskrifað
A fundi bæjarráðs á mánudag var
samþykkt að afskrifa óinnheimt-
anleg gjöld, að upphæð kr.
1.759.494, samkvæmt lista hjá
sýslumanni, vegna gjaldþrota, á-
rangurslausra tjámáma o.fl.
Félómeðheimasíðu
Ágætu viðtakendur. Okkur í Féló
langar til að upplýsa ykkur um að
félagsmiðstöðin okkar „Féló“ er
komin með heimasíðu á Netinu.
Við erum á
www.eyjar.is/~felo/
Með bestu kveðjum. Við í Féló.
Hafíó kueiktá
útidyraliósum fyrír
blaðburðarfðlkið
Nú þegar svartasta skammdegið
gengur í garð er erfiðara fyrir fólk
að feta sig um götur bæjarins þó að
götulýsing sé til staðar. Enn
erftðara er þegar fólk þarf að
bregða sér út af götunum og inn í
húsgarða og húsasund. Þessu fær
blaðburðarfólk Frétta að kynnast.
Þeirra hlutverk er að koma blaðinu
til áskrifenda fyrir klukkan 8 á
fimmtudagsmorgnum, sama hvem-
ig viðrar.
Það eru vinsamleg tilmæli þessa
fólks að húseigendur skilji útidyra-
ljósin eftir kveikt á miðviku-
dagskvöldum. Það léttir blað-
burðarfólki útburðinn morguninn
eftir.
Umframorka loðnubræðslu
Ísfélagsíns nýit af Bæjarueitum
-Fyrstu samningar þessarar tegundar á landinu
Samningar hafa tekist milli hinnar
nýju loðnubræðsiu íslélagsins og
Bæjarveitna um kaup veitnanna á
umframorku loðnubræðslunnar til
upphitunar. Þetta eru fyrstu
samningar þessarar tegundar á
landinu að sögn Ivars Atlasonar,
tæknifræðings hjá Bæjarveitunum,
og gerir hann ráð fyrir að skrifað
verði undir samningana á næstu
dögum.
Páll Sigurðsson, vélaverkfræðingur
við loðnubræðsluna, segir að farið sé
að huga að því að koma búnaðinum
upp og verði hann væntanlega tilbúinn
fyrri part næsta árs. Friðrik Frið-
riksson, veitustjóri, segir að enn sé
verið að reikna út áhrifin á dreifikerflð
en búið sé að handsala samninga með
þeim fyrirvara að dreifikerfi hitaveit-
unnar þoli álagið.
Samningurinn hefur verið nokkum
tíma í vinnslu en hugmyndin kom
fyrst upp í vor að sögn ívars.
Frumhönnun hafi verið komin fram í
júlí en nú í haust megi segja að komið
hafi í ljós að þetta var fram-
kvæmanlegt. ívar segir marga bíða
spennta eftir að sjá hvort þessi
samvinna heppnist þar sem þetta er
nýlunda hérálandi.
Að sögn Páls Sigurðssonar em
umhverfissjónarmið nokkuð ráðandi
við þessa ákvörðun, þar sem unnt er
að nýta þá orku er ella hefði farið
spillis.
„Kælivatn loðnubræðslunnar, sem
er lágþrýst gufa, er það heitt að við
getum notað það,“ segir Ivar.
Framkvæmdin fari þannig fram að
hitaveitulögn tengir loðnubræðsluna
við kerfi hitaveitunnar. Hitaveitu-
kerfið í Vestmannaeyjum byggist á
endurnýtingu vatnsins sem er dælt
heitu inn í framrás hitaveitunnar en
tekið svo aftur úr bakrás hennar, hitað
upp og dælt aftur í framrásina. Þannig
mun bakrásarvatn hitaveitunnar fara
gegnum varmaskipta loðnubræðsl-
unnar þar sem umframorkan er notuð
til að hita vatnið upp í óskgildi
hitaveitunnar. Vatninu er síðan dælt
inn í framrás hitaveitunnar en þaðan
fer það út í húsin.
Áð sögn Friðriks hefur hitaveitan
hingað til notað afgangsorku frá
Landsvirkjun. Undanfarið hefur þó
verið notuð svartolía því verð orku frá
Landsvirkjun hefur hækkað vegna
lélegs vatnsbúskapar. Friðrik segir að
áfram verði haldið að notast við
Landsvirkjun þegar verðið verði
hagstæðara. Samningamir muni ekki
hafa bein áhrif á orkuverð til neytenda
enda hafi gjaldskráin verið lækkuð um
25% í fyrra. Aðeins sé um að ræða sjö
og hálfa gígavattstund á ári af 66
gígavattstunda heildamotkun. Þetta
anni því aðeins litlu broti af
orkunotkun bæjarfélagsins en allt
hjálpist að til að létta róðurinn.
Lækkunin í fyrra hafi sniðið
rekstrinum þröngan stakk og þetta
veiti örlítið meira svigrúm.
BreytingaráEmmuVE
í Póllandi ganga
samkvæmt áædun
Framkvæmdir við lenginguna á Emmu VE í Póllandi eru á áætlun.
Báturinn var tekinn í tvennt fyrir helgi og á mánudaginn var búturinn
kominn á sinn stað.
Emma Pálsdóttir útgerðarstjóri, sem stödd er í Stettin í Póllandi þar sem
breytingin fer fram, segir að báturinn hafi verið tekinn í sundur á föstudaginn.
„Á laugardaginn var fenginn 200 tonna krani til að hífa framhlutann frá en liann
vó 137 tonn," sagði Emma.
Á sunnudaginn var búturinn settur í og efra dekkið sett á hann. „Frampartur-
inn var svo hífður að á mánudaginn. Pólverjarnir segja að framkvæmdin sé á
áætlun og vona að báturinn fari niður á fóstudaginn. Áætla þeir að breytingunum
verði lokið 10. desember en það gæti þó dregist til 12."
Umboðsaðili þeirra í Póllandi er MR. Mate en fyrirtækið, sem sér um
framkvæmdina, heitir Inter Marico Limited.
Álagning lögaðila 1998:
Ufsaberg trónir á toppnum
í teklu- og eignaskatti
Nú liggur fyrir álagning lögaðila í
Vestmannaeyjum fyrir árið 1998.
Alls greiða 157 lögaðilar 105
milljónir króna til hins opinbera.
Tekjuskattur þeirra er 74 millj-
ónir, eignaskattur 22 milljónir og
önnur gjöld samtals 9 milljónir.
Fimm hæstu gjaldendur lögaðila í
Eyjum eru Ufsaberg ehf. 16,5
milljónir, Isleifur ehf. 15 milljónir,
Sparisjóðurinn 13,6 milljónir, Net
ehf. 3,2 milljónir og Eyjaís ehf. 2,8
milljónir. Hafa verður í huga að í
þessum tölum er ekki tekið tillit til
tryggingagjalds sem var álagt þann
31. júlf sl.
Sé sá listi skoðaður eru það
fjölmennustu vinnustaðimar sem
greiða hæst tryggingagjald. Hæst
trónir Vinnslustöðin með 44,7
milljónir, Isfélagið með 38 milljónir
og Vestmannaeyjabær 36,3 milljónir
króna.
Tekjuskattur hækkar um 33,5%
milli ára sem er vísbending um betri
afkomu fyrirtækja í bænum á árinu
1998. Eignaskattur hækkar um
60,7% sem gefur til kynna lækkun
skulda. Markaðsgjald lækkar um
9,7% sem sennilega má rekja til
minni veltu hjá fiskvinnslu-
fyrirtækjunum.
Sfldarveisla í
Vinnslustöðinni
Á laugardagskvöldið var haldið
síldarréttakvöld í Vinnslustöðinni
fyrir starfsfólk stöðvarinnar. Þetta
mun vera í fyrsta sinn sem slíkur
fagnaður er haldinn fyrir starfsfólk
Vinnslustöðvarinnar.
Mikil og góð aðsókn var og
skemmti fólk sér hið besta. Veislan
hófst í matsalnum þar sem boðið var
upp á samlokur og drykkjarföng að
væta kverkamar, en að því loknu var
haldið inn í vinnslusal þar sem gestum
var boðið að smakka sfldarrétti og hafa
með sér heim, þeir sem vildu.
Þorbergur Aðalsteinsson markaðs-
stjóri og Halldór Amarsson fram-
leiðslustjóri munu hafa átt hug-
myndina að þessari uppákomu og féll
hún mjög í kramið og ákveðið að drífa
í að framkvæma hana, en að öðm leyti
mótaðist þetta í spjallinu. Að sögn
mun þessi uppákoma hafa verið
hugsuð sem léttur undirbúningur og
upphitun fyrir árshátíð Vinnslu-
stöðvarinnar sem haldin verður um
næstu helgi.
FRÉTTIR
Útgefandi: Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Ritstjóri: Ómar Garðarsson. Blaðamenn: Benedikt Gestsson & Sigurgeir Jónsson.
íþróttir: Rútur Snorrason. Ábyrgðarmenn: Ómar Garðarsson & Gísli Valtýsson.
Prentvinna: Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Aðsetur ritstjórnar Strandvegi 47II. hæð. Sími: 481-3310. Myndriti: 481-1293.
Netfang/rafpóstur frettir@eyjar.is. Veffang: http//www.eyjar.is/~frettir.
FRÉTTIR koma út alla fimmtudaga. Blaðið er selt í áskrift og einnig I lausasölu í Turninum, Kletti, Veitingaskálnum Friðarhöfn,_Tvistinum, Amigo, Kránni, Vöruval, Herjólfi,
Flugyallarversluninni, Tanganum, Söluskálanum Friðarhöfn. í Reykjavík: hjá Esso Stóragerði og í Flugteríunni á Reykjavíkurflugvelli. FRÉTTIR eru prentaðar í 2000 eintökum.
FRETTIR eru aðilar að Samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða. Eftirprentun, hljóðritun, notkun Ijósmynda og annað er óheimilt nema heimilda sé getið.