Fréttir - Eyjafréttir - 12.11.1998, Side 8
8
Sprönguskeluir
Fimmtudagur 12. nóvember 1998
Marý og Kolli í Mozart hafa hug á að breyta til eftir 25 ára verslunarrekstur:
Tryggir viðskiptavinir og
frábært starfsfólk eru kjölfestan
-segir Marý í viðtali við Fréttir vegna sprönguskells
I>að eru ekki margir í Vest-
niannaeyjum sem kveikja á perunni
þegar minnst er á Maríu Jóhönnu
Njálsdóttur en allir vita hver Marý
í Mozart er. Marý hefur alla sína
starfsævi verið við verslunarstörf,
þar af í 31 ár í eigin verslun og 25 ár
í Mozart sem hún er almennt
kennd við. Mozart á hún með
Kolbeini Ólafssyni ciginmanni
sínum sem hefur staðið með henni í
rekstrinum frá upphafi. Nú hafa
Marý og Kolli hug á að söðla um og
er Mozart til sölu en hún er sátt
þcgar hún lítur til baka og segist
ekki sjá annað en að ungt fólk eigi
alla möguleika á að að reka verslun
með svipuðu sniði og þau hafa gert í
25 ár.
Marý og Kolli opnuðu verslunina
Mozart að Bámstíg 15 þann 21.
október 1973 þegar bærinn var enn í
sámm eftir gosið. Fyrir höfðu þau
nokkra reynslu af verslunarrekstri því
Kolli rak Bensínsöluna Klett fram að
gosi. Þá var hann kallaður Kolli á
Kletti. „Kolli sá einn um reksturinn á
Kletti enda hafði ég nóg að gera með
fullt hús af bömum. Eftir gosið vildu
krakkamir okkar strax flytja til Eyja en
mig langaði ekki í sjoppurekstur. Við
fómm því í að leita að einhverju að
gera. Fyrst var talað við Björgvin og
Hallberg í Borg um að við keyptum
Litlu Borg. Ekki náðust samningar en
í þessari ferð hitti Kolli Magnús
Kristjánsson sem átti og rak ásamt
konu sinni Verslun Sigurbjargar
Ólafsdóttur að Bárustíg 15. Þeir fara
að spjalla saman og Kolli segir honum
hvað við séum að hugsa. Magnús spyr
hvort Kolli sé ekki til í að leigja af
þeim búðina og leigan færi upp í
útborgun ef við keyptum búðina.
Áhættan var því í lágmarki fyrir
okkur.“
Til að gera langa sögu stuttu þá lét
Kolli það verða sitt fyrsta verk að
hringja í Marý og þau slógu til. Gengu
þau inn í verslunina eins og hún var en
nafninu breyttu þau í Mozart.
Það var öðm vísi umhorfs í Vest-
mannaeyjum þegar Mozart varð til en
við þekkjum í dag. Allt svart yfir að
líta og sá bær sem við þekkjum í dag
var enn undir vikri. Verslun var í
lágmarki, aðeins tvær matvöruversl-
anir og Mozart varð fyrsta verslunin
sem sinnti öðmm þörfum en munni og
maga. „Þegar við byrjuðum vantaði
allt af öllu og við vomm t.d. bæði með
ritföng og leikföng þetta haust.
Seldum við mikið af leikföngum fyrir
jólin 1973 enda vomm við nánast eina
búðin.“
Fljótlega fjölgaði verslununt og
Marý og Kolli fóru inn á þá braut í
verslun sinni sem þau hafa haldið sig
við síðan. „Auðvitað höfum við gert
smábreytingar í takt við tímann. Þær
em ekki ýkja miklar en svona hefur
þetta rúllað í öll þessi ár. Við seljum
mikið af gardínuefnum í efnasölunni.
Rúmföt og sængurver em alltaf vinsæl
Sigrún innan um stranga í verslun sinni.
Magni og Sigrún í Undir nálinni:
Kominn tími á
jólaföndrið
Magni Rósenbergsson og Sigrún Magnúsdóttir hafa í fjögur ár rekið
verslunina Undir nálinni sem eins og nafnið bendir til er fyrst fremst
hannyrðaverslun.
Magni og Sigrún byrjuðu verslunarrekstur við Bámstíginn en nú eru þau á
mótum Kirkjuvegar og Miðstrætis. „Núna í nóvember em fjögur á síðan við
byrjuðum," segir Magni sem varð fyrir svömm þegar blaðamaður leit við hjá
þeint á laugardaginn. „Höfum við allan tímann lagt áherslu á vefnaðarvöm,
föndur og hannyrðir,“ bætir hann við.
Þeir sem hafa hug á fatasaum, gardínusaum eða útsaum eiga að fá eitthvað
við sitt hæfi við hjá Magna og Sigrúnu í Undir nálinni. „Við bjóðunt upp á
fataefni, tvinna, tölur, dúka, púða og púðafyllingar." segir Sigrún.
Auk þess hafa þau frá upphafi selt Husqvama saumavélar sem hafa selst vel.
„Jólin koma alltaf snemma hjá okkur enda fer nú föndurtíminn fyrir þau að
komast í fullan gang. Verður eitthvað tengt jólunum á Sprönguskellinum hjá
okkur,“ sagði Sigrún að lokum.
en við seljum ekki eins mikið af
fatnaði og áður. Reyndar selst ung-
barnafatnaðurinn mjög vel hjá okkur
og svo erum við með föt á konur en
sáralítið á táningana," segir Marý.
Marý segist strax hafa eignast hóp
tryggra viðskiptavina sem eðlilega
hafi breyst með árunum. „Það hefur
verið okkar lán að eiga okkar föstu
viðskiptavini sem hafa haldið ti-yggð
við okkur. Það ásamt frábæru
starfsfólki hefur verið kjölfestan í
þessu hjá okkur.“
Þó Mozart haft haldið sínu striki
hafa verslun og verslunarhættir
Vestmannaeyinga og íslendinga í
heild breyst mikið. Marý segir að þetta
lýsi sér helst í minni heimaverslun.
„Það er aðallega vegna þess að fólk
ferðast það mikið. Það fer kannski
tvær ferðir til útlanda og oft til
Reykjavíkur á hverju ári. Þetta er
þróun í þjóðfélaginu sem lítið verður
gert við.“
Ekki vill Marý viðurkenna að
kröfur viðskiptavinanna haft aukist
með árunum, þær hafi alltaf verið til
staðar. „Hafa ekki alltaf verið gerðar
kröfur um að eiga sem mest
vöruúrval?" spyr Marý sem segist þó
alls ekki vera að kvarta. „Mér líkar
óskaplega vel við þennan hóp sem
kemur til mín. Hann sýnir mér bara
allt þaðjákvæða.“
Eins og kemur fram hér á undan
hafa Marý og Kolli áhuga á að breyta
til og hafa auglýst verslunina og
húsnæðið að Bárustíg 6 til sölu. „Ég er
mjög sátt þegar ég lít til baka yfir þessi
25 ár. Ég hef staðið innan við
búðarborð frá ég var stelpa. Ég var
ekki nema 15 ára þegar ég byrjaði í
Apótekinu. Það er því kominn tími til
að breyta til.“
Marý segir að fólk hafi verið að
skoða en ennþá hafa engin tilboð
borist. „En þau koma, ég er ekki
hrædd um það. Það er örugglega til
fólk sem er tilbúið að drífa sig í rekstur
eins og þennan. Það er vel hægt að
bjarga sér og hafa lífsviðurværi af
verslun eins og Mozart í Vestmanna-
eyjum,“ segir Marý að lokum.
Marý: -Mér líkar óskapiega vel uið pennan hóp sem kemur til mín. Hann
sýnir mér bara allt pað jákvæða.
Helga Dís í Róma:
Rómantískt skal það vera
Það gat ekki í'arið öðru vísi fyrst
Helga Dís Gísladóttir ætlaði sér að
opna búð, en að það yrði gert með
stæl. I mörg ár rak hún tískuvöru-
verslunina Kósý sem þá var ein
skemmtilegasta verslun landsins í
þessum geira. Nú hefur Helga Dís
snúið sér að verslun með húsgögn,
búsáhöld, gjafavöru og fleira í
verslun sinni Rónia við Heiðarveg.
Rónia ber þess merki að Helga Dís
ræður þar ríkjum og útkoman er í
einu orði sagt frábær og hefur
verslunin Róma vakið athygli fólks
sem heimsækir Eyjar.
Helga Dís opnaði Róma 3. maí sl.
vor og var versluninni strax mjög vel
tekið. Þegar hún er spurð að því hvað
hún leggi helst áherslu á stendur ekki
á svarinu: „Vörunar sem ég er með
eru „rómó“. Það er sú lína sem ég
legg upp með,“ segir Helga Dís og
bendir í kringum sig þar sem má sjá
húsgögn og aðrar vörur í gömlum og
um leið suðrænum stíl.
Sé farið fljótt yftr sögu býður
Róma upp á húsgögn, gjafavöru,
þýsk matarstell, glös af öllum gerð-
um frá Ameríku og ítölsk hnífapör,
Heimaeyjarkerti, nýju línuna, mjög
sérstaka gjafavöm og það nýjasta em
stimplar til kortagerðar svo eitthvað
sé nefnt.
Helga segir að margir haft orðið til
þess að draga úr henni kjarkinn þegar
hún ákvað að opna verslun með
þessu sniði í Vestmannaeyjum. „En
-Suo má pað koma fram að við pökkum öllum okkar uörum inn, sagði
Helga Dís um leið og hún leit upp frá puí að pakka inn.
viðtökumar hafa verið meiriháttar og koma og þau verða gyllt og „rómó“
svartsýnisraddimar hafa þagnað. Ég hjá okkur,“ segir Helga Dís Gísla-
verð með eitthvað spennandi á dóttir að lokum.
Sprönguskellinum en svo em jólin að