Fréttir - Eyjafréttir - 12.11.1998, Qupperneq 10
10
Fréttir
Fimmtudagur 12. nóvember 1998
Á leiksviði í
móðurkviði
Helga Thorberg, leikari, útvarpskona, kaupmaður og kvenréttindakona
rifjar upp árin í Vestmannaeyjum og það sem á daga hennar hefur drifið
Helga Thorberg er
fædd í Vest-
mannaeyjum árið
1950, en flutti frá
Eyjum þriggja ára
gömul. Foreldrar
hennar fluttu til
Eyja 1946 en fluttu
aftur til Reykja-
víkur 1953.
Fjölskyldan bjó að
Heimagötu 3 a, þar
sem Helga fæddist
en það hús fór undir
hraun í gosinu
1973. Helgaervel
kunn fyrir bækur
sinar,
leiklistarstarfsemi,
útvarpsþætti,
sjónvarpsþætti og
kvenréttindabaráttu,
en hún hefur lagt
gjörva hönd á
margt og henni er
ekkert
óviðkomandi.
Núna rekur hún
blómabúðina
Blómálfínn við
Vesturgötuna í
Reykjavík og hefur
gert í nærri sex ár,
en þar höfum við
mælt okkur mót.
Reyndar þuri'ti hún aðeins að bregða
sér l'rá og er ekki á staðnum þegar ég
kom, hins vegar er starfsmaður hennar
Petra í búðinni og við sökkvum okkur
í blómahafið á meðan. Helga kemur
svo að vörmu spori og býður mér inn
á kaffistofuna á bakvið, en það er ein
vinalegasta kaffistofa sem ég komið í
og einhvern veginn finnst mér
andrúmsloftið eiga vel við Helgu.
Hún býður mér að setjast á þriggja
þrepa tröppu, hvaðan ég hef góða
yfirsýn yfir fermetrana. Sjálf fer hún
að huga að kaffi og meðlæti og fer
strax að tala um Eyjar.
„Það er ntjög gott að geta sagt í dag
að húsið sem maður fæddist í hafi
farið undir hraun, sérstaklega frá sjón-
arhóli sögunnar, eða frásagnarinnar.
Það er betri saga. Eitt af því sem gerir
Vestmannaeyjar að sögulegum stað í
dag er eldgosið sem varð í byggðinni
og svo auðvitað Keikó núna.“
Þú átt þó ekki við að Keikó sé
seinni tíma hamfarir, eins og gjaman
er sagt um gosið?
Vestmannaeyjar
stórmerkílegurstaður
Helga hlær kröftuglega og segir það
mín orð. „Það sem ég á við er að
Vestmannaeyjar eru stórmerkilegur
staður og margt þar að finna. Eitt af
sérkennum Vestmannaeyja er Eld-
fellið og nýja hraunið, þannig að fólk
verður að koma aftur til að sjá
breytingamar sem orðið hafa og nú
hefur Keikó bæst við.“
Hvemig er Thorberg nafnið komið til?
„Afi minn var Magnús Thorberg og
ég á bréf frá 1914, þar sem segir að afa
mínum sé veitt einkaleyfi á að taka
þetta nafn upp sem ættamafn. Þá gat
fólk keypt sér ættarnöfn, en þetta var
nú bara Þorbergsson í Danmörku að
læra til prests, en Dönum gekk ekki
vel að segja Þorbergsson."
Helga segir að hún muni nú ekki
mjög mikið frá tíma sínum í Eyjum,
hins vegar haft brottför Ijölskyldunnar
verið mjög dramatísk á sínum tíma.
„Karl faðir minn var póstmeistari í
Vestmannaeyjum, þá ungur maður.
Þeim var afskaplega vel tekið af sam-
félaginu. Það fagnaði þessari nýju
fjölskyldu sent kom til Eyja ásamt
tveimur dætmm. Þetta var heillandi
fólk, fallegt og skemmtilegt. Móðir
mín lók strax þátt í Leikfélaginu og
félagsstarfmu í plássinu af miklum
eldmóði og ég vil meina að þetta hafi
verið mikil búbót fyrir plássið. Svo
gerist það að faðir minn, sem var ekki
reglusamur maður, hafði ekki reiður á
fjármálum póstsins, svo það varð
sjóðþurð hjá póstinum. Þau fluttu því
burt og allt selt sem þau áttu. í
framhaldi af því skildu þau og fluttu
upp á land og móðir inín með bömin
þrjú. Þetta varð mjög dramatískt, ekki
síst fyrir Vestmannaeyjar að missa
þessa fimm manna fjölskyldu. Þegar
húsbúnaður og annað var selt hafði
fólk á orði þegar það kom til þess að
kaupa það sem upp var boðið, að það
hefði lengi langað til þess að koma
þama inn, til þess að sjá hvemig þau
byggju. Líklega vegna þess að pabbi
var líka umboðsmaður Loftleiða og
hafði þess vegna sambönd við flug-
menn. Þess vegna fengum við oft
ávexti og ýmislegt sem ekki var
algengt í húsum í þá tíð, ólfkt því sem
er í dag, þegar allir geta verslað allt í
Elkó, Ikea og Bónus.“
Á sviði mánuði áður en húm
leithennanheim
Fékkstu leiklistarbakteríuna með
móðurmjólkinni?
„Meira en það, því að mamma var
komin átta mánuði á leið þegar hún
lék Höllu í Fjalla-Eyvindi hjá Leik-
félagi Vestmannaeyja."
Þú hefur verið á sviði í móðurkviði?
, Já það er alveg óhætt að segja það.
Það var mjög skemmtilegt því
mamma var mjög mikið í leihús- og
félagslífmu og reyndar pabbi líka, því
hann skrifaði revíur sem voru settar
upp. Pabbi var afskaplega hnyttinn og
skemmtilegur. Seinna kláraði ég að
skrifa bók sem mamma hafði verið
byrjuð á um eigið líf. Vegna þess
kom ég til Eyja til þess að safna efni
um það tímabil í lífi hennar sem hún
var í Eyjum og klára að skrifa sögu
hennar, en þetta mun hafa verið 1987
til 1988.“
Helga segir að faðir hennar hafi flutt
inn á heimilið í lengri eða skemmri
tíma í heimsókn eftir að foreldrar
hennar skildu og þau fluttu til
Reykjavíkur. „Hann var auðvitað eini
maðurinn sem móðir mín elskaði. en
hún var lærð hárgreiðslukona og fór
að vinna við það og rak sínar eigin
stofur, því hún var með þrjár, þegar
best lét. Mamma vann því mjög
mikið, en sumarfríin vom löng og ég
var því send til Vestmannaeyja til Sínu
og Alla á Hólagötunni, sumarið sem