Fréttir - Eyjafréttir - 12.11.1998, Síða 12
12
Fréttir
Fimmtudagur 12. nóvenrber 1998
Ármann Höskuldsson í fjórða sæti hjá Framsókn:
Eránægðurmeðhlut
Eyjamanna á llstanum
Gjafir 01 Landakirkju lenda
í geymslum og skápum
-Vanvirding, segirgefandi, hefndargjafir segir staðarhaldari
Þann 12. desember 1991 barst
Landakirkju veggteppi að gjöf.
Gefandinn var Einara Sigurð-
ardóttir og var tcppið getíð í minn-
ingu foreldra hennar frá Hruna.
Þessi gjöf er nú vafln á kefli og í
geymslu inni í skáp eins og íleiri
slíkar gjafir.
Einara segir að sér hafi áskotnast
teppið og hafi hún ákveðið að gefa
það annað hvort Betelsöfnuðinum eða
Landakirkju að gjöf. Fyrir um
tveimur mánuðum kom kunningja-
kona hennar í kirkjuna og sá hvergi
teppið. Þegar kunningjakonan og
Einara fóru að spyrjast lyrir um afdrif
teppisins gekk þeim illa að fá upp-
lýsingar. Enginn var til að svara í
kirkjunni, presturinn hefði ekkert vitað
um málið. Hún segir að teppið hafi
verið gefið með góðum hug og finnst
þetta vera vanvirðing.
Staðarhaldari, Halldór Hallgríms-
son, sagði, þegar grennslast var um
málið, að teppið væri einhvers staðar í
geymslu og að slíkar gjafir væru
hálfgerðar hefndargjafir fyrir kirkjuna.
Kirkjan ætti t.d. fullt af myndum því
alltaf væri verið að gefa. Sóknamefnd
hefði beðið fólk um að vera ekki að
gefa kirkjunni slíkar gjafir. Það gangi
ekki að taka endalaust við.
Sóknarnefnd sér um viðtöku lil
kirkjunnar. Ekki náðist í formann
hennar, en Guðbjörg Matthíasdóttir
sagði fyrir hönd safnaðamefndarinnar
að kirkjan væri yfirfull. Vegna
plássleysis væri ekki hægt að hengja
upp allar þær gjafir sem bæmst
kirkjunni og því vildi hún að fram-
kvæmdanefnd kirkjunnar tæki upp þá
stefnu, sem m.a. hefur verið tekin upp
í Dómkirkjunni, að taka ekki við
öðmm gjöfum en peningagjöfum til
viðhalds kirkjunnar og gjöfum í fullu
samráði við sóknamefnd. Það á t.d.
við um gjafir frá Kvenfélagi Landa-
kirkju, sem taka mið af þörfum
kirkjunnar á hverjum tíma. Guðbjörg
sagðist skilja það að litið væri á
meðferð gjafanna sem vanvirðingu en
sagði að með fullri virðingu fyrir
gjöfmni væri lítið annað hægt að gera
en skila henni aftur ef óskað væri eftir
því. Það væri erfitt að þiggja svona
gjafir, safnaðarheimilið væri notað lil
tónleikahalds og fyrir myndlistar-
sýningar fyrir utan athafnir sem
tengjast kirkjulegum atburðum. Þar
væri ekkert hengt upp án samþykkis
og í samráði við arkitekt. Enn hefur
ekki verið mótuð nein stefna í þessum
málum og þess vegna hefur verið
tekið við öllum gjöfum.
Nýir prestar komu til starfa við
söfnuðinn 1. september sl. Sóknar-
presturinn, Kristján Bjömsson, tók á
móti kunningjakonu Einöm í umrætt
sinn og tók að sér að kanna málið.
Talað var um að þær hefðu samband
síðar, en síðan hefur hann ekki heyrt
frá þeim.
Árniann Höskuldsson forstöðu-
niaður Náttúrustofu Suðurlands
mun verða í fjórða sæti á lista
Franisóknartlokksins á Suðurlandi
vegna Alþingiskosninganna næsta
vor og Lára Skæringsdóttir mun
verða 11. sæti listans. Að sögn
Ármanns var einhugur um röðun á
listann.
„Það var kosið um þrjú efstu sætin,
en viðhöfð uppstilling í öll sæti þar
fyrir neðan. Reyndar var ég ekki á
kjördæmisþinginu, sem haldið var um
síðustu helgi, vegna anna við vinnu,
en ég hef verið starfandi í Fram-
sóknarflokknum í 18 ár fyrir utan þau
níu ár sem ég var í námi erlendis.
Auk þess hef ég verið í stjórn FUF og
í miðstjórn flokksins. Eg tek að
sjálfsögðu að mér þetta sæti, þó ég
hafi ekki verið með í ráðum hvar á
listanum ég lenti."
Þó segir Ármann að það hafi komið
sér á óvart að verða þetta ofarlega á
listanum. „Ég er hins vegar mjög á-
nægður með að það skuli vera tveir
fulltrúar á listanum sem búa í Vest-
mannaeyjum. „Vestmannaeyjar eru
nú annað stærsta byggðarlag á Suð-
urlandi og nauðsynlegt að hagsmuna
þeirra sé gætt innan flokksins og á
Alþingi."
Ármann segist þó ekki ganga með
ÁrmannHöskuldsson.
þingmann í maganum. „Kosn-
ingastarfið er nú ekki farið af stað enn
þá. Það er fyrst og fremst verið að
raða mönnum á lista og skipuleggja
starfið. Það verður haldið flokksþing
20. til 22. nóvember og þá ættu málin
að skýrast varðandi áherslur í
kosningunum sjálfum.“
Álagningaskrá lögaðila 1998:
Flest fyrirtæki auka veltu á milli ára
Álagningarskrá á lögaðila hefur nýlega verið lögð fram. Þar er að finna ýmsar fróðlegar upplýsingar að venju. Að þessu Fyrirtæki Áhaldaleigan Ásar þvottastöð Bifr.verkstæði Harðar og Matta Bílaverkst. Bragginn Bílverk s.f. Brandur/Amigo Álagður eign- arsk. 1998 0 8.869 41.400 22.967 0 27.600 Markaðsgj. 1.416 2.080 991 Álagt mark- aðsgj.1998 1.659 1.092 2.670 1.851 1.133 2.843 Ársvelta 1997 11.061.067 7.280.703 17.801.718 12.341.191 7.554.062 18.955.162 Ársvelta 1996 9.440.911 13.868.005 10.307.661 6.607.304 10.381.001
Brimnes h.f. 333.632 7.380 7.487 49.918.150 49.204.748
sinni fóru Fréttir Dala-Rafn ehf. 0 29.749 30.281 201.892.814 198.345.805
þá leið að taka Drangur ehf. 0 2.960 19.735.238 17.261.665
tilvil janaúrtak úr Eyjaradíó ehf. 231 3.190 4.613 30.756.301 21.268.719
skránni, Einar og Guðjón sf. 172.980 2.390 3.956 26.375.878 15.934.871
athugaður var Eyjaprent ehf. 64.69/ 3.876 3.961 26.342.542 25.842.494
eignarskattur Eyrún ehf. 0 1.739 1.863 12.421.199 11.594.452
ýmissa fyrirtækja Flugfélag Vestmannaeyja ehf. 104.229 4.846 1.806 12.041.162 32.309.784
og einnig álagt markaðsgjald. Útfrá Fiskmarkaður Vestmannaeyja 31.457 11.792 78.620.920 72.927.036
Faxi ehf. 134.967 11.746 11.750 78.340.893 78.314.223
Fjölverk ehf. 34.235 2.838 18.921.826 24.442.358
Gísli og Ragnarsf. 69.000 1.083 692 4.613.779 7.220.697
markaðsgjaldinu Goðaland/Vilberg 0 5.423 36.156.822 36.583.529
var síðan reiknuð H. Sigurmundsson hf. 0 24.133 23.425 156.181.737 160.902.192
ársvelta Hellugerðin 0 518 3.453.667 9.747.607
fyrirtækjanna Hertoginn 0 1.672 1.581 10.541.017 11.147.742
árið 1997 og Húsey ehf. 0 10.506 10.645 70.973.515 70.046.759
samanburður á ísleifur ehf. 464.755 36.306 33.625 224.188.299 242.063.357
ársveltu einnig Hressó 0 1.393 1.930 12.867.908 9.287.563
reiknaður út frá markaðsgjaldi þess árs. Ljósmyndastofa Höllu 0 1.065 7.100.685 880.084
Miðbærs.f. 38.165 1.562 1.703 11.354.429 10.414.338
Miðstöðin sf. 90.752 6.538 9.456 63.046.083 43.590.873
Reynistaður ehf. 69.000 7.678 7.724 51.498.302 51.191.606
Markaðsgjald er Skipalyftan ehf. 394.035 34.062 33.437 222.934.844 227.101.913
0.015% af veltu Steini og Olli ehf. 0 10.259 7.878 52.525.068 68.399.933
fyrirtækjanna. Steypustöð Vestmannaeyja 310.588 3.013 20.088.605 29.202.817
Svanberg ehf. Sæfell ehf. Tréverk ehf. Tölvun ehf. 5.318 27.600 140.733 27.600 1.325 2.583 4.866 6.321 1.167 I. 982 4.899 II. 170 7.780.751 13.214.608 32.663.152 74.473.853 8.834.186 17.221.662 32.443.130 42.144.067
Veitingaskálinn 0 12.679 8.809 58.732.334 84.534.823
Flamingo ehf. 0 1.855 2.749 18.328.435 12.367.860
Vélaverkstæðið Þór ehf. 345.222 12.170 11.109 74.067.147 81.141.163
Vöruval ehf. 64.090 33.304 37.075 247.190.518 222.048.092
2Þ ehf. 86.566 132 7.448 49.658.125 41.597.347
Ungliðahreyftng Lions - LEO:
Böm með
geðræn
vandamál
þarfnast
aðstoðar
Næstu helgi munu Leoklúbbar á
öllum Norðurlöndum selja kerti
til styrktar ákveðnu málefni og
mun pakkinn með 10 kertum
kosta 500 kr. Leoklúbburinn
Plútó sem er starfræktur hér í
Eyjum ætlar að taka þátt í þessu
samnorræna verkefni og munu
íslenskir Leoklúbbar láta ágóðann
renna til tækjakaupa fyrir bömin
sem dvelja á bamageðdeildinni að
Dalbraut 12 í Reykjavík.
Talið er að eitt af hverjum
fimm börnum sé með geðræn
vandamál. Þessi vandamál geta
verið misalvarleg og ýmiss konar
svo sem hegðunartruflanir, of-
virkni, þunglyndi, áráttuhegðun,
truflað raunveruleikaskyn og
fleira. Því miður fá mörg böm
með geðræn vandamál ekki þá
hjálp sem þau þarfnast. Þörfin
fyrir bamageðdeildina er mikil og
eru langir biðlistar af bömum sem
bíða eftir plássi. Þessi mála-
flokkur hefur viljað gleymast hjá
þjóðfélaginu. Leofélagar töldu
því að tími væri komin til að
styrkja börn með geðræn vanda-
mál.
Leoklúbburinn Plútó er ný-
stofnaður og em meðlimir 19
talsins. Við vinnum með Lions-
klúbbi Vestmannaeyja og viljum
láta gott af okkur leiða til líknar-
mála, forvama og fleiri mála.
Með von um góðar viðtökur
f.b. stjórnar
Ólafur Jóhann Borgþórsson