Fréttir - Eyjafréttir - 12.11.1998, Side 19
19
Nissandeildin: IBV 23 - FH 20
Vandræðalaust seon FH
Botnlið FH-inga sótti Eyjanienn
heim, síðastliðið sunnudagskvöld, í
Nissandeildinni í handknattleik.
Þessi leikur átti að fara fram á
föstudaginn, en vegna veðurs var
honum frestað. Eyjamenn héldu
uppteknum hætti á sínum sterka
heimavelli, og sigruðu örugglega í
leiknum, 23 - 20.
Töluverð breyting varð á upp-
stillingu ÍBV-liðsins í þessum leik.
Daði Pálsson lék stöðu leikstjómanda
og í hægra hominu lék Emil And-
ersen. Júgóslavinn, Rakanovic, var
látinn byija á bekknum, en hann hefur
átt erfítt uppdráttar það sem af er
tímabilinu.
Það var ekki að sjá að þessi breyt-
ing hefði mikil áhrif á spilamennsku
ÍBV-liðsins. Vömin var að vísu
nokkuð föst fyrir, en sóknarleikurinn
var mjög óagaður og stirðbusalegur á
köflum. En Eyjamenn vom alltaf
skrefínu á undan gestunum og leiddu
þeir leikinn í hálfleik, 10-8. Fljótlega
í seinni hálfleik fór að draga í sundur
með liðinum og þegar um 15 mínútur
vom eftir af leiknum, höfðu Eyjamenn
náð fímm marka'forystu, 20-15. FH-
ingar náðu aðeins að klóra í bakkann í
lokin en þriggja marka sigur ÍBV varð
staðreynd, 2 3-20.
Júgóslavinn, Rakanovic, náði sér
vel á strik eftir að hann kom inn á
snemma í fyrri hálfleik og var
greinilegt að það létti pressunni af
honum að vera látinn sitja á bekknum.
Valgarð og Giedrius náðu frábærlega
vel saman í leiknum og Sigmar
Þröstur varði vel á mikilvægum
augnablikum.
Að lokum má geta þess að Gunnar
Sigurðsson, markmaður Islands-og
bikarmeistara ÍBV í knattspymu, sem
hefur æft og spilað með hand-
knattleiksliði IBV að undanförnu, lék
kveðjuleik sinn gegn FH á
sunnudaginn. Gunnar fékk að vísu
ekki að spila í leiknum, en margir
hefðu viljað sjá hann spreyta sig,
sérstaklega þar sem hann spilaði mjög
vel gegn liði Breiðabliks í bikamum, í
síðustu viku, og skoraði tvö mörk
Mörk ÍBV: Valgarð 6/1, Giedrius 6,
Rakanovic 6, Svavar 2, Guðfinnur 2,
Daði 1.
Varinskot: Sigmar Þröstur 16/2.
skoraði 90% af öllum mörkum liðsins.
Síðan kemur að því að mitt lið spilar við
þetta sterka lið og mér til mikillar
undmnar þá er bara jafnt á öllum tölum.
Það skrýtna var að sterki leikmaðurinn í
hinu liðinu náði sér ekki á strik og varð
alltaf verri og verri eftir því sem á leið
leikinn. Þjálfarar í Rússlandi em mjög
harðir og á endanum kallaði þjálfari
liðsins frá Kiev, stelpuna útaf og spurði
hana hvað væri að. Stelpan svaraði því
að brjóstahaldarinn hennar hafi slitnað.
„Og er það ástæðan fyrir því að þú spilar
svona illa,“ spurði þjálfarinn, og fór
undir treyjuna hjá stelpunni og reif niður
brjóstahaldarann! Síðan sagði hann
stelpunni að hunskast út á völl og spila
eins og manneskja, sem hún gerði og
Iiðið frá Kiev vann leikinn. Það yrði nú
eitthvað sagt ef þetta yrði gert á íslandi!“
Eitthvað að lokum?
„Já, aðeins þetta: „Æfingin skapar
meistarann.“
Rútur Snorrason
Meistaradeild kvenna: ÍBV 26 - Víkingur 31
Vantar samstóðu hjá stelpunum
Eyjastúlkur fengu Víking í
heimsókn í fyrstu deild kvenna á
sunnudaginn. ÍBV-liðiðhafðispilað
sinn besta leik á tímabilinu í
leiknum á undan gegn Stjörnunni,
en Eyjastúlkur náðu ekki að fylgja
þeim góða leik eftir gegn Víkingi.
Markmaður ÍBV, hin króatíska
Lúsí, meiddist á ökkla í upphitun og
gat því ekki Ieikið í byrjun, en hún
kom síðan inn á þegar nokkuð var
Iiðið á Ieikinn og stóð sig vel.
Eyjastelpur byrjuðu leikinn á-
gætlega, vömin var í góðu lagi og
sóknin skilaði sínu. Víkingar vom
sterkir og áttu Eyjastelpur í miklum
vandræðum með Höllu Maríu
Helgadóttup, sem skoraði 12 mörk í
leiknum. í seinni hálfleik virtist allt
hrynja hjá Eyjaliðinu, vömin
galopnaðist og ekkert gekk upp í
sókninni. Gestimir höfðu því betur í
leiknum og sigmðu með fímm marka
mun, 26-31.
Jennie, sænska stelpan í liði ÍBV,
átti mjög góðan leik fyrir heimamenn,
Amela var sterk og Lúsí varði oft á
tíðum mjög vel. Það geta flestir verið
sammála um það að lið ÍBV hefur á
að skipa einum sterkasta leik-
mannahópi í deildinni, en ef þessir
sterku einstaklingar ætla að leika hver
í sínu homi, eins og þeir gerðu í
þessum leik, þá er voðinn vís. Margar
hverjar höfðu ekki nokkra ánægju af
því sem þær voru að gera inni á
vellinum og það sem er alveg
óþolandi og niðurdrepandi fyrir
leikmenn og ekki síður áhorfendur, er
að horfa upp á sömu tvær mann-
eskjumar rífast allan leikinn, hvort
sem var í sókn eða vöm. Sænski
þjálfarinn, Marie, þatf heldur betur að
fara að taka sig saman í andlitinu, ef
hún ætlar sér ekki að missa þennan
góða mannskap út úr höndunum. Það
sama gildir með aðra leikmenn liðsins
að hver og ein verður að líta í eigin
barm og leggja sitt af mörkum
„Við verðum virkilega að fara að
stilla saman strengi okkar og spila sem
ein heild. Vörnin var ágæt í fyrri
hálfleik en hræðileg í þeim seinni.
Mér fannst sóknin í góðu lagi og það
er mjög gott að skora 26 mörk gegn
liði eins og Víkingi. Það var mikill
pirringur í okkur í seinni hálfleik og
við fórunt að spila sem einstaklingar
og því fór sem fór,“ sagði Ingibjörg
Jónsdóttir, fyrirliði ÍBV, í leikslok.
Mörk ÍBV: Amela 8, Marie 7,
Jennie 5, Ingibjörg 4, Elísa 1, Eyrún 1.
Meó tilboð
Steingrímur Jóhannesson, marka-
hrókur ÍBV í knattspyrnu. kom frá
Svíþjóð í vikunni og er með tilboð
frá sænska úrvalsdeildarliðinu,
Elfsborg, í vasanum. Steingrímur
æfði í vikutíma hjá sænska félaginu
og vilja forráðamenn félagsins,
ólmir fá hann í sínar raðir.
Steingrímur mun íliuga tilboðið
næstu daga og ntun hann
væntanlega gera upp hug sinn eftir
helgi. Steingrímur gerði 16 mörk
fyrir ÍBV í sumar og yrði það mikill
missir fyrir ÍBV ef hann færi frá
félaginu.
ívar skoraði
ívar Ingimarsson, leikmaður ÍBV í
knattspymu, sem nú dvelur hjá
enska B-deildarliðinu, Watford,
skoraði sigurínark varaliðsins í
síðustu viku. Það mun skýrast á
næstu dögum, hvort félagið gerir
samning við ívar.
Upphitun
Getr^unaleikur ÍB V og Frétta:
Ovænt úrslit
um helgina
rugluou
Til þess að trekkja að og fá fleiri
áhorfendur í leikinn á föstudag
verður upphitun fyrir leikinn í
Týsheimilinu og hefst hún klukkan
18:30. Þess má til gamans geta að
karlalið ÍBV í handbolta og fótbolta
hafa ekki lapað leik á heimavelli í
marga mánuði. í liði Gróttu/KR eru
tveir gamalgrónir Eyjamenn. þeir
Zoltán Belányi, hornamaðurinn
knái, og Gylfi Birgisson, stórskyttan
mikla, sem lék með Eyjamönnum
um árabil.
Framundan
Föstudagur 13. nóvember
Kl. 20:00 mfl.ka ÍBV-KR/Grótta
Laugardagur 14. nóvember
Kl. 15:00 mfl.kv Fram-ÍBV.
Þriðja vika hópleiks ÍBV og Frétta var
háð um helgina og var greinilegt á
skorinu að úrslitin vom mjög óvænt.
Var lægsta skorið 2 réttir og verða
nöfn þeirra hópa sem fengu 2 rétta
ekki gefin upp til að vemda
viðkomandi aðila. Flestir hópamir
vom annars með 4-6 rétta en hóp-
urinn Frosti feiti var með 7 rétta. En
það vom tipprefimir Haukur á
Reykjum og Hjörleifur Jensson í H.H.
flokknum sem fengu flesta rétta eða
8. Vel gert hjá þeim félögum. Annars
er staðan þannig:
A-riðill: Mandarínugott 23, Aust-
urbæjargengið, Einar Jaxl, Mamm
'ans Drésa og Rauðu djöflamir 19,
Flug-eldur. Frosti feiti og Refimir 18,
H 50 16, Hænumar, Munda og VSV
15
B-riðill: Vinstri bræðingur 23,
Rauða-gengið og Rúblan 19, JóJó 18,
Hrossagaukamir 17, Allra bestu vinir
Ottós, Bæjarins bestu, E.R. og
Gleraugnaglámar 16, Doddamir 15,
Heba 14 og Baukamir 12
C-riðill: Bláa-Ladan og Kóngamir
21, Scrabblarar 20, Mariner og
Reynistaðurl8, Stína og Tóta 17,
Bing-Brothers og Klaki 16, Klapparar
15, Gaukshreiðrið 14, Pömpiltar og
Staukamir 13
D-riðill: H.H. flokkur 20, Don Revie,
Dumb and Dumber og Veltingurinn
17, Hanamir, Sein-heppnir og
Skódinn 16, Húskross og Tottaramir
15, Klúsó og Villta-Vestrið 14
Við viljum minna á að stöðublöðin
liggja í Tvistinum og em þau komin
þangað á laugardagskvöldum.
Um næstu helgi verður selt hús-
kerfið skemmtilega. Einnig hafst
Monrad-leikurinn um næstu helgi en
hann hefur ekki komist í gang vegna
ónógrar þátttöku og nú síðast vegna
óviðráðanlegra orsaka. Viljum við
biðjast velvirðingar á þessu. Þannig
að ennþá er tækifæri til þess að taka
þátt í Monrad-leiknum.
Nissandeildin: IBV mætir Gróttu-KR annað kvöld
Mcð sóðum stuðninsi áhorfcnda
vcrða Bdló 03 félagar léttur biti
Á föstudaginn kl 20:00 mun
meistaraflokkur ÍBV í hand-
knattleik fá Gróttu-KR í heimsókn
í Nissandcildinni. ÍBV hefur staðið
sig mjög vel á heimavelli það sem af
er keppnistímabilinu og má gera
ráð fyrir hörkuleik í íþrótta-
miðstöðinni á fóstudagskvöldið.
Liðið er með fullt hús stiga á
heimavelli og eitt stig á útivelli, sem
sýnir hversu mikilvægir og megn-
ugir öflugir stuðningsmenn geta
verið. Liðið er í góðu formi núna
eins og kom í ljós í leiknum gegn
FH á dögunum, þar sem IBV
sigraði með glæsibrag. Vörnin
hefur staðið sig vel og leikmennirnir
lagt sig alla fram, enda er ágætis
breidd hjá ÍBV Iiðinu og þeir eiga
að geta unnið leikinn við Gróttu-
KR ef rétt er á málum haldið og
stuðningsmenn mæta fflefldir á
Ieikinn til þess að efla þrek þeirra
og koma upp góðri stemmningu.
IBV á því góða möguleika á því að
komast í toppslaginn.
í liði Gróttu-KR eru tveir kunnir
leikmenn sem léku eitt sinn með ÍBV,
en það em þeir Zoltan Beláni og Gylfi
Birgisson. Þeir hafa farið hamfömm
með Gróttu-KR undanfarið og ljóst að
þeir búa þar að reynslu sinni með
IBV, en Zoltan lék með ÍBV í ein sjö
ár og er nú markahæstur leikmanna
Nissandeildarinnar. Gylli er hins
vegar Eyjapeyi í húð og hár, þannig að
segja má að í vissum skilningi séu þeir
að leika á heimavelli gegn sínu gamla
liði.
Það verður gaman að fylgjast með
þessum hörkuleik og sjá hvernig
strákamir munu spjara sig gegn sterku
liði Gróttu-KR. Þess vegna er hér
með sent út almennt hvatningar og
herútboð til allra Vestmannaeyinga
um að fjölmenna á völlinn til þess að
stappa stálinu í ÍBV strákana, sem
ætla ekki svo auðveldlega að lúta í
parket fyrir Gróttu-KR liðinu.
Til þess að peppa upp baráttuþrekið
munu stuðningsmenn IBV liðsins hita
upp fyrir leikinn í Týsheimilinu kl
18:30 á föstudaginn.
Með hljóðnemann á vellinum mun
verða fullhuginn og hinn andlegi tækl-
ari Elliði Vignisson, sem getið hefur
sér góðan orðstír með hljóðkerfí um
allar Vestmannaeyjar og þó víðar væri
leitað.
Haft er fyrir satt að Omar muni
verða leyniáhorfandi á vellinum og
munda þar sína haukfránu linsu til
þess að festa á filmu hina ódauðlegu
stemmningu.
ÁFRAM IBV. MÆTUM NÚ ÖLL
OG HVETJUM STRÁKANA
OKKAR!!!!
Valgarð Thoroddsen, sem hér er
að störfum í Rannsóknasetrínu,
hefur allt öðrum hnöppum að
hneppaáföstudag.