Fréttir - Eyjafréttir - 12.11.1998, Qupperneq 20
Heimtur úr helju
Birgir Magnús Sveinsson kominn heim
Birgir Magnús Sveinsson, sem varð
fyrir hrottalegri líkamsárás úti í
Bremerhaven 30. ágúst sl., kom
heim til Eyja á fiistudaginn eftir tíu
vikna sjúkrahúslegu í Brem-
erhaven. Birgir segir að hann sé
mjög feginn og ánægður að vera
kominn heim og hann sé á góðum
batavegi. „Reyndar verð ég dálítið
þreyttur þegar líður á daginn, en ég
er bjartsýnn og braggast með
hverjum deginum."
Birgir segir að hann þurfi ekki að
fara í neinna endurhæfingu vegna
þeirra áverka sem hann hlaut, hins
vegar muni hann fara í myndatökur
uppi á landi. Hann segir að þetta
muni samt taka sinn tíma og hann
muni verða frá vinnu að minnsta kosti
næstu sex mánuðina.
Veistu hvemig lögreglurannsókninni
miðar úti í Bremerhaven?
„Lögregla á eftir að fá skýrslu frá
lækninum sem annaðist mig. Lög-
reglan tók skýrslu af mér sex vikum
eftir árásina og árásarmennirnir hafa
verið yfirheyrðir. Þeir breyta alltaf
sögu sinni, svo þeir eru orðnir
margsaga. En þetta endar að öllum
líkindum í málaferlum, hins vegar
eiga þessir glæpamenn ekki neitt og
óvíst að segja hver niðurstaðan
verður. Þessir menn ganga hins vegar
lausir, því það hefur ekki verið hægt
að sanna neitt á þá. Þó er vitað að sá
sem réðist á mig á líkamsárásaferil að
baki.“
Birgir segir að ef Steini skipsfélagi
hans hefði ekki bmgðist svo skjótt við
sem raun ber vitni og hringt á
sjúkrabíl væri hann ekki til frásagnar.
„Einnig var ég heppinn að komast á
sjúkrahús þar sem færustu læknar í
meðhöndlun höfuðáverka starfa, en
Steini reddaði þessu held ég með
skjótum viðbrögðum."
Birgir vildi að lokum koma á
framfæri þakklæti til allra í Eyjum
fyrir stuðning og hlýhug í hans garð,
auk áhafnarinnar á Breka og ekki síst
til Steina.
Eins og sagt hefur verið frá í Fréttum
var opnaður reikningur til styrktar
Birgi í Sparisjóði Vestmannaeyja.
Þeir sem vildu styrkja hann frekar
geta snúið sér til Sparisjóðsins.
Framsóknarmenn fyrstir
Framsóknarflokkurinn á Suður-
landi hefur ákveðið framboðslista
sinn fyrir Alþingiskosningarnar í
vor.
Skipan þriggja efstu sæta var á-
kveðin með kosningu, en uppstilling
viðhöfð í önnur sæti á listanum. Efstu
sæti listans skipa 1. Guðni Ágústsson
alþm., 2. ísólfur Gylfi Pálsson alþm.,
3. Ólafía Ingólfsdóttir bóndi og
skrifstofumær, 4. sæti skipar Ármann
Höskuldsson forstöðunraður Náttúru-
stofu Suðurlands og í 11. sæti er Lára
Skæringsdóttir.
Komnir 500 mílur suður í haf
Byr VE er í fyrsta túr á túnfiskveiðum. Samkvæmt fregnum sem blaðið
hefur haft af veiðunum, hafa þær gengið frcntur treglega, þ.e.a.s. afli hefur
verið lítill. í fyrstu þremur lögnununt fengust þrír fiskar. Aftur á móti
mun allur búnaður hafa virkað eins og til var ætlast.
I gær var Byr kominn mun sunnar eða rnilli 400 og 500 sjómílur suður í haf
og ætlaði að reyna fyrir sér þar. Mjög erfitt er um fjarskiptasamband á svo
fjarlægar slóðir og því tókst ekki að ná sambandi við skipið til að grennslasl
fyrir unt frekari allabrögð.
Daghgar hrélr hmt á kmd mm er.
Vóruafgreiðsl a
SUIdlngangl 4 Sind 441 3440
Vöruafgreiðsla ■ Reykjavik
AðaHlvfningar Höðlnsgöfu 3
Sími 581 3030
í síðustu viku var 11 ára krökkum úr Hamarsskóla boðið um borð í Vestmannaey
að fræðast þar um útgerð og skipakost. Það var útgerðarfélagið Bergur-Huginn hf
sem stóð fyrir þessu boði og tilefnið að nú er Ár hafsins. Þessi mynd var tekin af
hópnum um borð og Ijóst að krakkarnir voru mjög hrifnir af framtakinu.
Gísli Jónasson og Hjörtur Hermannsson með nýjung í atvinnulífinu:
Hefja l ramleiðslu á trollkúlum
Verksmiðja sem framleiðir trollkúlur úr plasti verður
sett upp í Vestmannaeyjum fyrir árslok. Verksmiðjan
hefur verið í rekstri í Færeyjum og er framleiðsla
hennar þekkt fyrir góða vöru að því er kemur fram
hjá Gísla Jónassyni sem er einn eigenda hennar.
Verksmiðjan fór í skip í Færeyjum á mánudaginn og
verður strax hafist handa við að koma henni upp og
vonast Gísli til þess að framleiðsla hefjist fyrir jól. Með
Gísla eru Hjörtur Hermannsson og Færeyingur sem átti
og rak verksmiðjuna í Færeyjum. Kemur hann til að starfa
með þeim meðan framleiðslan er að komast í gang.
„Við keyptum Flatir 20 I af Ragnari Baldvinssyni og nú
verður hafist handa við að koma upp tækjunum og tengja
vatn og rafmagn. Til að byrja með verða tvö störf við
framleiðsluna auk sölu og skrifstofustarfa sem ég sé um,“
segir Gísli sem rekur fyrirtkækið G. Stefánsson sem selur
veiðarfæri.
Sæplast á Dalvík er eina fyrirtækið á Islandi sem
framleiðir trollkúlur í dag. Gísli segist hafa í mörg ár selt
kúlur frá verksmiðjunni meðan hún starfaði í Færeyjum.
„Trollkúlur frá verksmiðjunni eru þekktar fyrir gæði og
vel þekktar meðal íslenskra skipstjóra. Eg gat alltaf selt
allt það magn sem ég fékk. Kúlumar seldu sig sjálfar
vegna gæðanna og ég er strax farinn að fá pantanir .“
Coctail ávextir 1/1 ds. kr. 19B 164 ds. súkkul. núggat, vanilla og jarðarberja
Perur 1/1 ds. kr. 179 149 ds. kr.598 433 pk.
Ferskjur 1/1 ds. kr. 164 129 ds. Emmess vanillustangir 10 stk.
Ananas3/4ds. kr. 139 109 ds. kr. 482 323 pk.
Ananas kurl 1/2 ds. kr. H2 87 ds. Emmess smádjæf 6 stk. kr. 364 254 pk.
Duni kerti 30 stk. kr. G49 475 pk.
NYTT
Duni kúlukerti
kr. 84 57 stk.
KORTATIMABIL