Fréttir - Eyjafréttir - 19.11.1998, Blaðsíða 11
Fimmtudagur 19. nóvember 1998
Fréttir
11
Grímur Marinó Steindórsson listamaður:
Er ákveðinn í að gefa
bænum listaverk
-þó það verði ekki staðsett á syðri hafnargarðinum
Grímur Marinó Steindórsson
myndlistarmaður var í Vest-
mannaeyjum í síðustu viku þar sem
hann vann að sniíði skúlptúrs, sem
einnig á að gegna hiutverki inn-
siglingarljóss í Vestmannaeyjahöfn.
Fyrirhuguð uppsetning verksins er í
Skanstjörunni. Grímur segir að hafn-
arstjóm hafi farið þess á leit við sig að
hanna og smíða verkið. „Verkið, sem
ég kalla Hörpu, er unnið úr sýmþolnu
ryðfríu stáli, en hugmyndin og þemað
að baki verkinu er ijögurralaufasmári,
sem er gæfumerki í vitund manna.
Þess vegna þótti mér við hæfi að nota
form smárans. I gegnum smárann
ganga svo rör, sem má reikna með að
gefi frá sér hljóð í vindi. A skúlp-
túmum, sem verða mun um ljögurra
metra hár, verður einnig staðsettur
vindmælir, loftvog og hitamælir."
Grímur segir að þegar hann hafi
farið að vinna að verkinu hafi hann
fengið þá hugmynd að gefa verk sem
hann hafði nýlokið smíði á og setja á
syðri hafnargarðinn, en eins og
kunnugt er gerði Grímur skúlptúrinn á
nyrðri hafnargarðinum, sem einnig
gegnir hlutverki innsiglingarljóss.
„Mér datt í hug að gefa höfninni
verkið til þess að setja í stað vitans
sem nú er á syðri hafnargarðinum og
orðinn mjög illa farinn. Það var búið
að samþykkja þá hugmynd, þegar
gerðar voru athugasemdir um að
varðveita bæri vitann í núverandi
mynd."
Grímur segir að þessar athuga-
semdir hafi komið sér á óvart, sér í
lagi þar sem enginn hafði séð verkið
sem hann hefði í gert og myndi einnig
gegna hlutverki innsiglingarljóss. „En
ef menn vilja friða vitann og gera
hann upp í núverandi mynd, þá er það
allt í lagi af minni hálfu. Mér skilst að
þessi viti hafi nokkurt sögulegt gildi
og ef sú verður niðurstaðan má hugs-
anlega koma skúlptúmum, sem ég var
með í huga, fyrir á öðrum stað.“
Nú átt þú verk víða um eyjuna og
þar á meðal á nyrðri hafnargarðinum.
Fyndist þér ekki sanngjamt að einhver
annar fengi að spreyta sig, ef
núverandi viti yrði rifmn á annað
borð?
„Ég hef þá trú að enginn myndi
gera verkið í samjöfnuð við þá hug-
mynd sem ég hef gert. Ég er nú
fæddur í Vestmannaeyjum og þessi
skúlptúr er hugsaður sem gjöf til
æskustöðvanna og því ekki óeðlilegt
að leitað sé til mín, eða ég gefi verk til
minnar heimabyggðar. Rætumar em í
Eyjum.“
Grímur segir að hugmyndin að baki
skúlptúmum sem hann vill gefa
höfninni og setja á syðri hafnargarðinn
séu skrúfublöð úr stáli sem hann
smíðar form utan um. „Þessi form em
svo hugsuð sem upphafning
skmfublaðanna. Verkið er um þrír og
hálfur metri að hæð og hugmyndin er
að nota sökkulinn sem núverandi viti
hvílir á. Við hlið skúlptúrsins er svo
súla með innsiglingarljósi.“
j
1
Ju
llfvÁ ''' 1 ' Mtri
— — J&KÍáÍr ' |
Grímur Marjnó við verkið sem hann vill gefa Vestmannaey-
ingum. Á efri myndinni er listamaðurinn við fjögurra-
laufasmárann sem Vestmannaeyjahöfn bað hann að vinna.
Haldið upp á 80 ára afmæli Björgunfélagsins
I ár em liðin 80 ár frá því að menn komu saman til að
stofna Björgunarfélag sem hafði það að markmiði að fá
björgunarskip til Eyja. I tilefni af þessum tímamótum
verður Björgunarfélagið með opið hús á laugardaginn að
Faxastfg 38 auk þess verður björgunarbáturinn Þór til
sýnis við Tangabryggju. Einnig verður gefið út afmælisrit
sem borið verður í hús næstu daga. Það er von okkar
Björgunarfélagsmanna að Vestmannaeyingar korni og
skoði þau tæki og tól sem björgunarsveitarmenn hafa yfir
að ráða . Til dæmis rústabjörgunarkerru og önnur tæki
sem Björgunarfélaginu hafa áskotnast á síðustu ámm.
Árshátíð Björgunarfélagsins verður svo haldin í Akóges
um kvöldið og hefst kl. 20:00
Með kveðju. Björgunarfélag Vestmannaeyja.
Fréttatilkynning
Kristinn R.
með nýja bók
Kristinn R. Ólafsson skáld og
fjölmiðlungur er Vestmanna-
eyingum að góðu kunnur, enda
maðurinn fæddur í Eyjum og
hefur löngum haldið tengslum við
sína heimabyggð, þótt hann hafi
dvalið langdvölum á suðrænum
slóðum.
Þann 12. nóvember kom út skáld-
sagan Pósthólf dauðans eftir Kristin.
Kristinn sagði í stuttu spjalli að
sagan segði frá öldruðum Spánverja
sem finnst látinn á heimili sínu í
Madríd haustið 1992. „Öll ummerki
bera vitni um óvenjulegan dauðdaga,
líklega morð. Sá gamli reynist hafa
verið vopnabróðir Hermanns B.
Hermannssonar, Islendings nokkurs
er barðist í spænsku borgara-
styrjöldinni á fjórða áratug
aldarinnar. Hermann þessi gaf á
sínum tíma út bók um reynslu sína í
stríðinu og nefnir þar þennan félaga
sinn á nafn og kallar hann vin sinn
og lífsbjargarmann. Ljósrit af þessari
löngu ófáanlegu bók hefur rekið á
fjörur íslensks útvarpsfréttaritara í
Madríd. Hann leitar uppi Spán-
verjann og hefur verið að taka við
hann viðtöl þegar morðið er framið.
Fréttaritarinn liggur því undir grun
lögreglu og um leið nokkurs konar
ásókn hins myrta svo að hann verður
að fara á stúfana og reyna að leysa
morðgátuna, og skrifa sig frá gamla
manninum.
Kristinn segir þetta spennandi
sögu þar sem nýstárleg efnistök og
stílgaldur höfundar breyti lestrinum í
nautn.
Pósthólf dauðans er önnur skáld-
saga höfundar en sú fyrsta, Fjölmóðs
saga föðurbetrungs, kom út hjá
Ormstungu 1996. Árið 1979 birtist
ljóðabókin Inní skóginn, rituð undir
pennanafninu Krói. Nokkrar smá-
sögur eftir Kristin hafa birst í
blöðum og tímaritum eða verið
lesnar í útvarp. Þrjár spænskar
skáldsögur hafa komið út í þýðingu
hans:Paskval Dvarte og hyski hans
(1988) og Býkúpan (1991), báðar
eftir Nóbelsskáldið Camilo José
Cela, og Refskák eða Bríkin frá
Flandri (1996) eftir metsölu-
höfundinn Arturo Pérez-Reverte.
Kristinn hefur og íslenskað ýmsar
smásögur og Ijóð úr spænsku. Auk
þessa hefur hann þýtt smásögur og
ljóð úr íslensku á spænsku.
Pósthólf dauðans, sem er 254 bls.,
er prentuð hjá Steinholti og Flatey
annaðist bókband. Verð er 3.490
krónur.
Utgefandi er Ormstunga.
Styrktartónleikar
Lúðrasveitarinnar
Eitt af því sem er nokkuð óbrigðult
í tilveru okkar Vestmannaeyinga
eru árlegir styrktarfélagatónleikar
Lúðrasveitar Vestmannaeyja, en
LV hefur nú í hartnær 60 ár haldið
tónleika fyrir styrktarfélaga sína á
hverju hausti.
Tónleikar þessir eru hápunktur
starfsemi LV á hverju ári og er ávallt
mikið í lagt að þeir heppnist sem best.
Næstkomandi laugardag, 21. nóv. kl.
16.00, verða tónleikamir í Félags-
heimilinu við Heiðarveg. Samkvæmt
venju er reynt að hafa efnisskrána sem
ljölbreytilegasta, þannig að sem llestir
geti fundið eitthvað við sitt hæfi.
Meðal þess sem boðið er upp á að
þessu sinni má benda á „The Easy
Winners“ eftir Scott Joplin, syrpu af
lögum eftir Simon og Garfunkel,
syrpu af swing lögum, ásamt lögum
eftir Oddgeir Kristjánsson, svo fátt eitt
sétalið.
Það er von LV að sem flestir
bæjarbúar, bæði styrktarfélagar og
aðrir, sjái sér fært að mæta á
hljómleikana og skemmta sér með
okkur þessa síðdegisstund. Stjómandi
Lúðrasveitar Vestmannaeyja, eins og
undanfarin ár, er Stefán Sigurjónsson,
en hann er jafnframt kynnir á
tónleikunum. Aðgangseyrir fyrir þá
sem ekki em styrktarfélagar er 800
krónur.
Fréttatilkynning
I minningu
Guðrúnar Scheving
Kveðja frá vinkonu
Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi,
hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka þér,
þinn kærleikur í verki var gjöf sem gleymist eigi
og gæfa var það öllum ef fengu að kynnast þér.
(Ingibjörg Sig.)
Elsku Didda mín, þakka þér fyrir allt það sem þú kenndir mér. Ég
kveð þig með einu orði sem við skiljum báðar. Jósifína.
Guð geymi þig. Þín Sigríður Kristín (Sirrý)