Fréttir - Eyjafréttir - 19.11.1998, Blaðsíða 14
14
Fréttir
Fimmtudagur 19. nóvember 1998
Landa-
KIRKJA
Kirkjustarllð í Landakirkju.
Verið hjartanlega velkomin!
Fimmtudagur 19. nóvember:
Kl. 11.00 Helgistund á Hraun-
búðum. Öllurn opin.
Kl. 17.00 TTT - kirkjustarf 10-12
ára bama.
Kl. 20.30 Opið hús fyrir unglinga
f KFUM&K húsinu. Nýir
unglingar velkonrnir.
Sunnudagur 22. nóvember:
Kl. 11.00 Barnaguðsþjónusta
með miklum söng, sögunr, leik
og lofgjörð.
Kl. 14.00 Guðsþjónusta. Skírn.
Við messulok verður kynning á
áformum um byggingu minning-
arkirkju kristnitökunnar í Eyjum,
þjóðargjafar Norðmanna. Mola-
sopi og spjall.
Kl. 20.30. Æskulýðsfundur í
Safnaðarheimili Landakirkju.
Þriðjudagur 24. nóvember.
Kl. 16.00 Kirkjuprakkarar. Farið
verður í heimsókn með jólakort
og góðar kveðjur.
Kl. 17.15. Litlir lærisveinar.
Miðvikudagur 25. nóvember:
Kl. 10. Foreldramorgunn. Sam-
vera foreldra og ungra barna í
safnaðarheimilinu.
Kl. 12.05. Bænar- og kyrrðar-
stund í Landakirkju.
Hvíta-
SUNNU-
KIRKJAN
Fimmtudagur
Kl. 20.30 Bibh'ulestur.
Föstudagur
Kl. 17.30 Bamastarfið frá 6-9 ára.
Kl. 20.30 Unglingamir í Ijósi
Biblíunnar.
Laugardagur
Kl. 20.30 Bænasamvera.
Sunnudagur
Kl. 15.00 Vakningarsamkoma -
Trú þú á Drottin Jesú. Endur-
koma hans er í nánd.
Þriðjudagur
Kl. 17.30 Krakkakirkjan fyrir 10-
12 ára.
Hjartanlega velkomin,
Jesús Kristur mætir!
Aðventkirkjan
Laugardagur 21. nóvember
Kl. 10. Bibh'urannsókn.
Allir velkomnir.
Baháí sam-
FÉLAGIÐ
Opið hús að Kirkjuvegi 72B
fyrsta föstudag hvers mánaðar kl.
20.30. Allir velkomnir.
Heittákönnunni.
Biblían
talar
Sími
481-1585
s
Ný dönsk á hljómleikumí Iþróttamiðstöðinni:
Lofsamlegt ffamtak
Á þriðjudagskvöldið voru haldnir
tónleikar með hljómsveitinni Ný
danskri í Iþróttamiðstöðinni. Tón-
leikarnir voru á vegum nem-
endaráðs Framhaldsskólans í
Vestmannaeyjum í samráði við
jafningjafræðsluna sem berst gegn
vímuefnum og er starfandi innan
Framhaldsskólans. Sambliða því
að vinna að vímuefnavörnum, þá
var einnig markmiðið með
tónleikahaldinu að hressa upp á
bæjarbraginn, eða eins og segir í
fréttatilkynningu frá nemendaráði:
„Það er engin launung á því að við
vorum vöruð við að halda þessa
tónleika, þar sem því var haldið fram
að það komi aldrei nógu margir á
tónleika í Eyjum, hvort sem um
hljómsveitir eða kóra er að ræða.“
Góð mæting var á tónleikana eða
um tvöhundruð manns og virtust
skemmta sér hið besta, þó ekki verði
sagt að tónleikagestir hafi farið
tilfinningalegum hamförum í salnum.
Ný dönsk flutti efni af nýjum
geisladiski sínum, en einnig flutu eldri
lög með. Það er skemmst frá því að
segja að tónleikarnir voru mjög góðir
og kom berlega í ljós að Ný danskir
eru góðir lagasmiðir og húmoristar, og
ágætir hljóðfæraleikarar, helst mátti
finna að hljómburði, sem varð dálítið
grautarlegur á stundum.
Full ástæða er til að þakka Fram-
haldsskólanum ogjafningjafræðslunni
fyrir þetta framtak og ekki seinna
vænna að óska eftir frekari fram-
kvæmdum í þessa veru. Fyrirtæki í
Vestmannaeyjum studdu hljómleik-
ana og tóksl með því að halda
miðaverði í lágmarki. Það er ekki
síður ástæða að hrósa skipu-
leggjendum tónleikana fyrir að láta
ekki neikvæðar og mannskemmandi
úrtöluraddir ná tökum á sér. Megi þeir
hafa lof og pn's fyrir þrautseigjuna.
Vestmannaeyjar geta verið heims-
kúltúrfrontur ef ágætir íbúar eyjanna
varpa af sér úrtöluímyndinni.
Benedikt Gestsson
Basar
Kvenfélag Landakikrju heldur sinn árlega
basar og kaffisölu sunnudaginn 29.
nóvember eftir messu f Safnaðarheimilinu.
Margt góðra muna.
Komið og styrkið gott málefni.
Sýnishorn af munum í glugga Eyjaradíós,
Skólavegi 13
Kvenfélag Landakirkju
Miðvikudaginn 11. nóvember fór
fram Nóvemberhraðskákmótið og
voru nokkrir hressir strákar mættirtil
keppni. Hausthraðskákmeistarinn var
þar á meðal og var í hörkuformi.
Fljótlega eftir fjórar umferðir sást
hvert stefndi því þá var meistarinn
með fullt hús, 8 vinninga og sá sem
var næstur honum, Siggi Frans, var
með 6 vinninga og Friðrik með 6
vinninga. Enda fór svo að meistarinn
vann þetta með yfirburðum og gaf
aðeins eitt jafntefli móti formann-
inum. Björn Ivar tók á sig rögg í
seinni hlutanum og náði 2. sætinu.
En röð efstu manna var sem hér
segir:
Sigurjón Þorekelsson með 13
vinninga af 14 mögulegum. Björn
Ivar Karlsson með 9 vinninga. 3-5
Stefán Gíslason, Sigurður Frans og
Friðrik Vigfússonmeð7 vinninga og
aðrir með minna.
Fimmtudaginn 12. nóvember héldu
nokkrir skákmenn úr Eyjum á vit
ævinýranna í höfuðborginni. Ætlanin
var að taka þátt t' Deildarkeppni
Skáksambands Islands. Héðan fóru
Sigurjón Þorkelsson, Stefán Gíslason,
Ágúst Örn Gíslason og Björn Ivar
Karlsson. í hópinn bættist svo á
í framhjáhlaupi
laugardeginum Einar B Guðlaugsson.
Og f Reykjavík vom þeir Stefán Þór
Sigurjónsson . Sigurjón Jónsson og
Ágúst Óniar Einarsson. Andstæðingar
okkar voru Selfyssingar og endaði sú
viðureign með 2 vinningum gegn 4.
Tvö jafntefli og einn sigur.
Formaðutinn sýndi gott fordæmi með
því að leggja andstæðing sinn. Stefán
Þór og Ágúst Ómar gerðu jafntefli.
Önnur umferð var svo telld kl. 10
næsta morgun og voru menn í
hefndarhug eftir ófarimar dagin áður.
Þá voru andstæðingarnir Skáksam-
band Austurlands. Og fór svo að henni
lauk með jafntefli. 3 - 3. Nú var hvílt
til kl. 17 en þá liófst 3. umferð. Og
voru þá andstæðingar okkar UMSE-b
og vom menn að vonum svekktir eftir
tvær síðustu umferðir og var dag-
skipunin sigur og ekkeit annað. Einnig
bættust nú í hópinn Sigurjón Jónsson
og Einar B Guðlaugsson enda var
barist af hörku á öllum borðum og
engutn hlíft. Fór svo að 5 skákir
unnust í þessari umferð og hefði
sigurinn auðveldlega getað verið fullt
hús því fonnaðurinn varð fyrir því
óláni að tapa unnu tafli í tímahraki.
Nú var hvílt til kl. 10 á sunnudag. En
þá bættist þingmaðurinn Lúðvík
Bergvinsson í hópinn og Stefán Gísla
hvíldi. Teflt var við Skákfélag Sel-
tjarnarness og unnum við með 3 */z -
2/2 sem var mjög gott því þetta er með
sterkari liðunum í 3. deildinni.
Við fengum óvæntan félaga til liðs
við okkur sem hefur ekki keppt
kappskák í 25 ár. En var (er) góður
skákmaður fyrr á árum og var
Vestmannaeyjameistari 4 ár í röð.
Þetta er Einar B Guðlaugsson og var
einkar ánægjulegt að fá hann aftur t'
okkar raðir. Um árangur einstakra
manna er fátt að segja nema að Björn
Ivar sannaði það einu sinni enn að
hann er sífellt að bæta sig.
Árangur á einstökum borðum.
1. borð Stefán Þ Sigurjónsson 2
vinningar af 4.
2. borð Sigurjón Þorkelsson 2 V2 v.
af4.
Loksins
sáust há
skor
Fjórða umferð hópaleiks IBV og
Frétta var háð síðasta laugardag og
virtust tipparamir vera búnir að
jafna sig eftir slakt gengi um
síðustu helgi. Þótt Liverpool
tapaði enn á ný þá virtist það ekki
koma tippurunum í opna skjöldu
því flestir þeirra em löngu hættir
að tippa á Liverpool. Nokkrir
hópar náðu 9 réttum og þar á
meðal Haukur á Reykjum og
Hjörleifur í H.H. flokknum og
virðast þeir félagar á miklu skriði
um þessar mundir. Staðan er
annars eftirfarandi:
A-riðill: Mandarínugott 30,
Mamm'ans Drésa og Rauðu djöfl-
arnir, Austurbæjargengið, Flug-
eldur og Frosti feiti 25, Einar jaxl
og Reftmir 24, Hænumar 23, H 50
og VSV 22 og Munda 20.
B-riðiIl: Vinstri bræðingur 30,
Rauða-gengið og Rúblan 27, Allra
bestu vinir Ottós og JóJó 24,
Bæjarins bestu, Doddarnir, Heba
og Hrossagaukamir 23, E.R. 22,
Gleraugnaglámar21 og Baukamir
17.
C-riðill: Bláa-Ladan og
Kóngamir 29, Mariner 27,
Scrabblarar 26, Klaki, Reynistaður
og Stína og Tóta 23, Bing-
Brothers, Gaukshreiðrið og
Klapparar 22, Pömpiltar 19 og
Staukamir 18.
D-riðill: H.H. flokkur 29, Don
Revie 25, Húskross 24, Dumb and
Durnber, Hanamir, Skódinn og
Veltingurinn 23, Klúsó 22, Sein-
heppnir og Tottaramir 21 og
Villta-vestrið 19.
Fyrsta húskerfí vetrarins var um
helgina og gekk það svona
sæmilega og fengust 11 réttir. Þeir
sem keyptu hlut í því geta komið
niður í Týsheimili og fengið
borgað sinn hlut. Monrad-
leikurinn hófst nú loksins um
síðustu helgi og vegna anna verða
stöðublöðin í leiknum í
Týsheimilinu á laugardögum. Nýtt
húskerfí verður til sölu og verður
það selt í Týsheimilinu á
laugardögum og einnig geta
áhugasamir hringt í síma 481-
2671 og tekið þátt.
3. borð Bjöm I Karlsson 3 v. af 4.
4. borð Einar B Guðlaugsson 1 '/2 v.
af 3 og Ágúst Ó Einarsson '/2 v. af 1
5. borð Stefán Gíslason '/2 v. af 2,
Sigurjón Jónsson 1 v af 1 og Lúðvik
Bergvinsson '/2 v. af 1.
6. borð Ágúst Ö Gíslason 2 v. af 4.
Þegar Deildarkeppnin er háifnuð emm
við í 3. sæti með 13 V2 vinninga sem er
ekki svo afleitt. Röðin er annars þessi:
1. sæti Hellir með 17 'A vinning.
2. sæti Sf. Seltjarnamess með 15 V2
vinning.
3. sæti Tf. Vestmannaeyja með 13 'A
vinning.
4. sæti Selfoss og nágrenni með 13
vinninga.
5-6. sæti Ss Austurlands með 12
vinninga.
5-6. sæti TR.- g með 12 vinninga.
7. sæti SA. - c með 9 vinninga.
8. sæti UMSE - b með 3 V2 vinning.
I seinni umferðinni eigum við eftir að
tefla við Helli og síðan eigum við
botnliðin eftir svo þetta lítur bærilega
út.
Með Skákkveðju Stebbi Gilla.