Fréttir - Eyjafréttir - 19.11.1998, Side 16
Verð áður Verð nú
Kornax hveiti, 2 kg b-99 59
Flórsykur, 500 g kf-79 64
Púðursykur, 500 g kr. 81 69
Strósykur, 2 kg b-199 169
Ljóma smjörlíki, 500 g b+17 119
Konsum suðusúkkulaði 500 g bA% 169
Notið einstakt
Frétto- og auglýsingasími: 481-3310 * Fax 481-1293
SIMI
FIRÐIR
FLUTNINGAR - VESTMANNAEYJUM
DwgltterMkknrtékméimtr.
Voruafgreiðsla
tidldÍBgawagl 4 Sfnl 481 3440
Voruafgreiðsla í Reykjavík
Cinsl S81 3030
Öll móttaka ferðamanna. skóla- og íþróttahópa
FAX 481 1927 0)481 1909 - 896 6810
Sendibílaakstur innanbæjar.
Vilhjálmur Bergsteinsson
smmenmiiii
V481-2943,
l» 897-1178
Atvinnuleysi
ísögulegu
lágmarki
Atvinnuástand hefur verið mjög
gott í Vestmannaeyjum undan-
farnar vikur. Langt er síðan
jafnfáir hafa verið á skrá yfir at-
vinnulausa og um þessar mundir,
þá má telja á fingrum beggja
handa. Á miðvikudag í síðustu
viku voru níu manns skráðir at-
vinnulausir, fjórar verkakonur,
einn verkamaður, tveir versl-
unarmenn og tveir frá Starfs-
mannafélagi Vestmannaeyja-
bæjar.
Jón Kjartansson, formaður
Verkalýðsfélags Vestmannaeyja,
sagði að atvinnuástandið væri mjög
þokkalegt. „Ég held að flestir fái
vinnu í dag sem biðja um hana.
Þeir fáu, sem skráðir eru at-
vinnulausir, eru aðilar sem ekki em
gjaldgengir á hinum harða
vinnumarkaði í Vestmannaeyjum,
ýmissa hluta vegna,“ sagði Jón.
Frekar vantar fólk til starfa en hitt,
t.d. hefur Vinnslustöðin sótt um
leyfi til að flytja inn 20 útlendinga
til starfa hjá fyrirtækinu.
Á laugardaginn var dagur Bandalags íslenskra leikfélaga haldinn hátíðlegur víða um land og Leikfélag
Vestmannaeyja lét ekki sitt eftir liggja. Leikfélagið er nú að undirbúa æfingar á barnaleikritinu
Bangsimon og notaði tækifærið til þess að minna á leikritið og starfsemi Leikfélagsins af þessu tilefni.
Vinir Bangsimon komu sér því fyrir á góðum stað í bænum þennan dag og seldu hunang (hvað
annað) og hunangsbrauð. Því miður komst Bangsimon ekki á þennan gjörning með vinum sínum,
vegna þess að óttast var að hann myndi borða allt hunangið. Á myndinni má sjá nokkra vini
Bangsimons ásamt krökkum sem fylgdust með af áhuga. F.v. Kaninka, Grísinn, Asninn, Uglan og
ein upprennandi stjarna hjá Leikfélaginu sem er í kisubúningi. Vonir standa til að Leikfélagið frumsýni
leikritið um næstu mánaðamót og í framhaldi af því að sýna það um hverja helgi fram til jóla.
Sæbjargarmálið:
Afstaða Siglinga-
stofnunar óbreytt
Sveinn Andri Sveinsson einn
eigenda Sæbjargar VE 56 sem
strandaði árið 1984 hefur staðið í
nokkrum bréfaskriftum undan-
farið við Siglingastofnun vegna
afskráningar skipsins og hugsan-
legra möguleika á að fá loðnu-
kvóta þann sem á skipinu var, til
útdeilingar á ný vegna mistaka
Siglingamálastofnunar sem þá
hét.
I svörum Siglingastofnunar ítrekar
stofnunin fyrra álit sitt að ekki sé
hægt að útdeila kvóta af skipi sem
hefúr verið afskráð, að hennar mati
á eðlilegan hátt.
I bréfi stofnunarinnar frá 13.
febrúar síðastliðinn er staðfest að
ekki hafi fundist hjá stofnuninni
skrifleg gögn varðandi umrædda
afskráningu, en þess jafnframt getið
„að við framkvæmd afskráningar
strandaðra skipa hjá Siglinga-
málastofnun ríkisins mun það ekki
hafa verið gert að almennu skilyrði
fyrir slíkum afskráningum að fyrir
lægi skrifleg beiðni eða önnur gögn
þar að lútandi."