Fréttir - Eyjafréttir - 26.11.1998, Blaðsíða 10
10
Fréttir
Fimmtudagur 26. nóvember 1998
Smári Harðarson íslandsmeistari í vaxtarrækt 1998:
Súpermann tekur flugið
-Vann sinn þyngdarflokk, heildarverðlaunin og pósu verðlaunin
Smári kom Sii
Bað henn
„Þetta var tilfinningarík stund og
keppnin vel heppnuð,“ sagði Smári
Harðarson, nýkrýndur Islands-
meistari í vaxtarrækt þegar Fréttir
slógu á þráðinn til hans á þriðju-
dagsmorguninn þar sem hann var
staddur á hótelherbergi í London
með Sigurlínu Guðjónsdóttur sam-
býliskonu sinni.
„Auðvitað vonaðist maður til að ná
góðum árangri en að ná öllum
pakkanum kom þægilega á óvart. Vinir
og vandamenn vom að segja að ég
væri bestur og ætti alla möguleika á að
sigra en auðvitað getur maður aldrei
verið viss um sigur fyrirfram."
Smári vill ekki þakka sér einum
sigurinn og segir að Hressóijölskyldan,
eins og hann vill kalla eigendur.
starfsfólk og nemendur sína á Hressó,
hafi stutt dyggilega við bakið á sér. „Ég
er í raun orðlaus og þakka öllum sem
hjálpuðu mér með einhverjum hætti.
Það er ógleymanlegt fyrir okkur Ragga
að það skuli mæta fjöldi manns í
íslensku óperuna til að styðja við bakið
á okkur. Þarna fann maður hvað maður
á góða vini en ekki bara kunningja í
þessum hóp sem er í kringum Hressó.
Anna Dóra og Jóhanna stóðu fyrir því
að fá fólkið til að mæta og fyrir þeirra
RAGNAR ÞOR Ragnarsson lenti í
þriðja sæti í -75 kg flokki á íslands-
mótinu í vaxtarrækt uni síðustu
helgi. Ragnar Þór segir að keppnin
hafi verið jöfn og spennandi í
þessum flokki, en þetta sé í annað
sinn sem hann taki þátt í
Islandsmótinu. „Eg keppti síðast
fyrir tveimur árum og lenti í þriðja
sæti þá líka, þannig að ég stefndi að
því að ná betri árangri núna. En
þetta er niðurstaðan og við hana uni
ég þé að ég sé ekki mjög ánægður.“
Ragnar segir að þrátt fyrir að
hann hafi aðeins náð bronsinu, þá
hafi verið mjög gaman að taka þátt í
mótinu. „Þetta var mjög skemmti-
legt og frábær stemmnig. Stuðnings-
menn sem komu á mótið frá
Vestmannaeyjum eiga stóran hlut í
velgengni okkar sem komu frá
Eyjum og tókum þátt í keppninni.
Stuðningsmennirnir áttu stóran hlut
í þessum sigri og vert að þakka hlut
þeirra í frábærri stemmningu á
staðnum.“
Þrátt fyrir að hafa bara náð þriðja
sætinu, þá ætlar Ragnar Þór ekki að
láta deigan síga. „Eg held að öllum
líkindum áfram og stefni á fyrsta
sætið að ári,“ segir Ragnar Þór að
lokum.
I'llbeback, Smárierekki
týpaíannaðsætið
Smári Harðarson er flestum Vest-
mannaeyingum kunnur. Við þekkjum
Smára sem sundþjálfara, líkamsræktar-
þjálfara, athafnamann í Keikóverk-
efninu og svo ekki síst fyrir einlægan
og afdráttarlausan áhuga á vaxtarrækt.
Hann hefur keppt á Islandsmeistara-
mótinu í vaxtarrækt nokkur undanfarin
ár með sífellt betri árangri og síðasta ár
varð hann annar í sínum þyngdarflokki
og þriðji í heildarkeppninni. Smári er
ekki maður sem lætur sér nægja annað
sætið og því kom það ekki nokkrum
manni á óvart að hann ætlaði að keppa
í ár. Ekki vantaði heldur áhugann
meðal bæjarbúa. Fjöldi aðila hefur
styrkt hann á margvíslegan hátt og
fimm fremstu bekkir Islensku Oper-
unnar, þar sem mótið var haldið, voru
skipaðir stuðningsfólki Smára frá
Vestmannaeyjum, af Reykjavíkur-
svæðinu og töluverðum fjölda sam-
starfsmanna Smára hjá Free Willy
samtökunum, frá Bandarikjunum.
Reyndar nálgast það kraftaverk að við
skyldum fá svo góð sæti, því miðamir á
keppnina seldust upp á einum og
hálfum tíma.
Þetta er í fyrsta skipti sem keppnin er
haldin í Islensku Operunni, en undan-
farin ár hefur keppnin verið í
Loftkastalanum, en það húsnæði nægði
ekki lengur. Það er ljóst að Islenska
Operan dugir ekki heldur, svo nú liggur
fyrir að það þarf að ftnna keppninni
stærra húsnæði að ári.
Undirbúmngur
Það er ekki fyrir hvem sem er að taka
þátt í þeim undirbúningi og æfingum
sem tilheyra því að vera keppandi á
vaxtarræktarmóti. El'tir keppnina í fyrra
tók Smári sér vikufrí. Það stóð til að
hafa það lengra en hann var strax farinn
að hugsa til næsta Islandsmeistaramóts.
Því hafa æfingar hans staðið linnulaust
yfir frá 1. desember í fyrra og þar til
þremur dögum fyrir mótið um síðustu
helgi. Innan við fimm æfingadagar hafa
fallið úr á þessu 12 mánaða tímabili.
Jól, þjóðhátíð, afmælisdagar og annað
þess háttar hefur ekki haft áhrif á
æfingar og markmiðið allan þennan
tíma hefur aðeins verið eitt, að vinna
Islandsmeistaratitilinn í vaxtarrækt
1998. Þar að auki er mataræðið til að
gera hvem meðalmann vitlausan. Fitu-
og sykurlítið í fyrstu átta til níu mánuði.
Alltaf passað upp á að fá nóg prótein
(fiskur, kjöt, mjólkurvörur) og nóg
kolvetni til að hafa orku í æfingarnar
(brauð, kornvömr, ávextir). Eftir þessa
fyrstu átta mánuði ársins milli móta fer
að káma gamanið, því þá minnkar
matarskammturinn um svona 20%.
Prótein eykst sem hlutfall en kolvetni
minnkan Sykur og fita hverfur nær
alveg. A mæltu máli þýðir þetta:
Morgunkom í morgunmat með undan-
rennu út á. Próteindrykk um tíuleytið.
Þurrt brauð, skyr og undanrennu í
hádeginu. Próteindrykk í eftirmið-
daginn og fitulaust kjöt og hrísgrjón í
kvöldmat. í þrjá mánuði og aldrei
svindlað. Til að auka enn á yndis-
leikann þarf að stunda brennsluæftngar
sem skila bestum árangri ef þær em
gerðar á morgnana, strax þegar maður
vaknar og á fastandi maga. Brennslu-
æfingarnar em skokk og hraður gangur
í 30 - 40 mínútur á dag, fimm daga
vikunnar. Síðustu vikuna má ekki
borða neitt salt eða krydd (það bindur
vatn í líkamanum) og ekki fara í ljós
(bindur vatn í húðinni). Síðustu 3
dagana neyta menn ekki vökva. Ekki
einn sopa.
íhverjuerkeppt
I vaxtairæktarkeppni dæma fimm
dómarar auk aðaldómara keppendur
eftir þremur atriðum aðallega. Massa,
þ.e. vöðvamassa keppenda. Samræmi,
þ.e. samræmi milli líkamshluta. Og
skurði, þ.e. hve vel keppendum hefur
tekist að ná af sér fitu til að vöðvar og
vöðvaskil sjáist.
Keppt er í fjórum þyngdarflokkum,
auk flokka unglinga, kvenna og
fullorðinna karla og einnig í heild-
arkeppni kvenna og karla en í henni
keppa þeir bestu úr öllum flokkum.
Auk þess eru veitt verðlaun fyrir
skemmtilegustu rútínu (sýningu).
Þannig getur sami keppandi unnið sinn
þyngdarflokk, heildarkeppnina og rút-
ínuverðlaunin.
Keppnin sjálf
Keppnin hófst á forkeppni kl 13 á
laugardaginn var. Þar fara keppendur í
gegnum sína rútínu og dómarar hafa
betri tíma til að meta hvern og einn
heldur en um kvöldið í aðalkeppninni.
Það var ljóst nokkru fyrir keppnina að
Magnús Bess, margfaldur íslands-
meistari í flokki Smára og margfaldur
sigurvegari í heildarkeppninni yrði því
miður ekki með. En Magnús var svo
óheppinn að slíta brjóstvöðva í keppni
á Islandsmeistaramótinu í bekkpressu
síðastliðið vor. Keppnin var þó engu að
síður hörð og fyriifram bjuggust menn
helst við að Smári yrði í vandræðum í
heildarkeppninni og þar voru þeir
Guðmundur Bragason og Jón Gunnars-
son taldir hættulegastir. Islandsmeist-
aramótið í vaxtarrækt er sífellt að verða
glæsilegra og Daníel Olsen mótsstjóri
og hans fólk eiga heiður skilinn fyrir
þær framfarir sem orðið hafa á þessu
mótshaldi undanfarin ár. Samhliða
þessum framförum hefur áhuginn
aukist og þar með áhorfendafjöldinn.
Urslitin
I þyngdarflokki Smára kepptu einnig
þeir Vihjálmur Hauksson og Hermann
Haraldsson og var ekkert vitað
fyrirfram um þá nema að þeir hefðu
bætt sig verulega milli ára. Þeir
Guðmundur og Jón kepptu í sama
þyngdarflokki og því nokkur eftir-
vænting um hvor hefði betur.
Guðmundur þrautreyndur keppnis-
maður í vaxtarrækt. Samsvarar sér
alltaf vel og búinn að vinna þennan
flokk oft. Jón aftur kraftlyftingamaður,
ekki á sínum heimavelli en þekktur
fyrir mikinn vöðvamassa og að hafa
krafta í kögglum.
Það verður að segjast eins og er að
Guðmundur hefur oft verið í betra
formi en nú. Jón kom aftur gífurlega
sterkur inn í keppnina, meiri massi og
betur skorinn en Guðmundur en samt
vann Guðmundur Bragason flokkinn.
Þetta voru ekki einu úrslitin þar sem
mörgum fannst dómurum verða á
mistök og oft eins og ákveðið tregðu-
lögmál sé í gildi þegar nýir menn koma
inn í keppnina. Guðmundur hafi unnið
oft áður en Jón sé nýr og því hafi
Guðmundur unnið. Ekkert skal fullyrt
um þetta hér en persónulega hefði ég
gefið Jóni mitt atkvæði fram fyrir hinn
ágæta íþróttamann Guðmund Braga-